Dagur - 16.12.1977, Page 1
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
Verslunarlóðir
Bæjarstjórnin hefur sam-
þykkt að auglýstar verði
tvær verslunarlóðir í Gler-
árhverfi fyrir matvöru-
verslanir o. fl. Ennfremur
verslunarlóð £ Lundar-
hverfi, hvort tveggia í sam-
ræmi við skipulag þessara
svæða. Bæiarstiórn áskilur
sér rétt til að úthluta hverri
lóð um sig til fleiri en eins
aðila og óskað er eftir, að
í lóðarumsóknum verði
gerð grein fyrir nýtingu
lóðanna.
Byggingalán
Á vegum bæjarstjórnar er
sjóður, svonefndur Bygg-
ingalánasióður, og hafði
hann 13.8 milliónir króna
til ráðstöfunar á þessu ári.
Þegar auglýst var eftir um-
sóknum til lána úr sióðn-
um, var tekið fram. að þeir
sætu fyrir og hefðu for-
gang, sem væru að eignast
íbúð í fyrsta skinti. Alls
bárust 152 umsóknir og lán
hlutu 86, samtals að upp-
hæð 13,8 milljónir króna.
Lánin eru veitt til sex ára,
afborgunarlaus fyrsta árið.
Lánaðar voru 130 og 180
þúsund krónur til hvers
húsbyggjanda.
Meiri mjólk
Fyrstu 9 mánuði þessa árs
hafa mjólkursamlögin tekið
á móti 94.4 milljón kg af
mjólk, en á sama tímabili
í fyrra var innvegin mjólk
89.5 milli. kg.
Allt síðastliðið ár tóku
mjólkursamlögin á móti
112 millj. kg, en { ár er út-
lit fyrir að innvegin mjólk
verði um 118 millj. kg.
Smávegis samdráttur
varð í sölu nýmjólkur eða
um 2.7%, en veraleg aukn-
ing í sölu undanrennu.
Framleitt var um 40 lest-
um minna af smjöri á þe.ssu
ári en í fyrra. Birgðir í upp
hafi ársins voru nú 558 lest
ir, en í fyrra 328 lestir.
Nokkur samdráttur hefur
orðið í sölu á smjöri, í
fyrra voru .seldar fyrstu 9
mánuði ársins 1265 lestir,
en í ár 1035 lestir. Birgðir
1. október s.l. voru 1080
lestir, en 1. okt. 1976 voru
þær 649 lestir.
'
Lyfjatramleiðsla.
í fundargerð Byggingar-
nefndar frá 30. nóvember
kemur fram, að Konráð
Árnason, Akureyri, sækir
f. h. Lindáss hf. um leyfi
til að byggia fyr.sta áfanga
húss á lóðinni Hrísalundi
1, en í þessum áfanga á fyr-
irtækið að starfrækja lyfja
framleiðslu og fleira á því
sviði. Bygginganefnd sam-
þykkti erindið fyrir sitt
leyti.
ú 'il:;
DAGUR
LX. ÁRG. AKUREYRI, FÖSTUDAGINN 16. DESEMBER 1977 58. TÖLUBLAÐ
Fjárlögin upp í 140 milljarða
Þjóðhags.stofnun vinnur nú að
endurskoðun tekjuáætlunar rík-
issjóðs fyrir næsta ár í ljósi
nýrrar vitneskju um innheimtu
ríkistekna 1977 og nýrrar þjóð-
hagsspár fyrir næsta ár. Þó
þeirri endurskoðun sé ekki lok-
ið, er gert ráð fvrir að innheimt-
ar ríkistekjur verði 10,7 milljörð
um meiri en ætlað var í fjár-
lagafrumvarpi því, sem lagt var
fram í haust. í þessari áætlun
er reiknað með að skattvísitala
verði óbreytt frá því, sem gert
var ráð fyrir í fjárlagafrum-
varpi eða 131 stig, þótt hækkun
meðaltekna verði líklega 42%
milli áranna 1976 og 1977.
Þetta kom m. a. fram í ræðu
sem fjármálaráðherra flutti á
Alþingi á þriðjudag við aðra
umræðu fjárlaga, en þá ræddi
ráðherra um hugmyndir þær,
sem nú eru uppi innan ríkis-
stjórnarinnar, um á hvern hátt
megi mæta þeim auknu útgjöld-
Um, sem fyrirsjáanleg eru á
fjárlögum.
Samkvæmt framansögðu þarf
fjárveitingavaldið að brúa 7,6
milljarða króna bil og hyggst
ríkisstjórnin leysa hrann með
lækkun gjalda og nýrri tekju-
öflun.
í ræðu fjármálaráðherra kom
fram að rætt er um að lækka
Skattheimtan vex og opin-
berar framkvæmdir
dragast saman
ríkisútgjöld um 3.745 millj. kr.
Auk þess sem gert er ráð fyrir
framkvæmdafé til vegagerðar
um 300 millj ,kr., frá tölu fjár-
lagafrumvarpsins, en tekjur
lækka að sama skapi vegna þess
að gert er ráð fyrir minni hækk-
un á bensíni en upphaflega var
ráðgert.
Meðal þess, sem áætlað er að
lækka, er launaáætlun, en rætt
er um að lækka þann lið um
1.720 millj. kr. með því að draga
úr eftirvinnu ríkisstarfsmanna
og öðrtlm aukagreiðslum.
Þá upplýsti ráðherra að lögð
yrðu fram á Alþingi frumvörp
um tekjuöflun fyrir ríkissjóð og
um skyldusparnað. í gær var
lagt fram frumvarp um hækk-
un á sjúkratryggingargjaldi um
helming og skilað það ríkissjóði
1, 9 milljarði kr. Þá er ráðgert
að leggja á sérstakt jöfnunar-
gjald á innflutning á brauðvör-
Hafnarvörður
Á fundi sínum 6. desember
tók bæiarstjóm Akureyrar
fyrir tillögu hafnarstjórnar
til afgreiðslu um ráðningu
hafnarvarðar. Umsækiend-
ur voru: Árni Ingólfsson,
skinstjóri. Baldvin Þor-
steinsson skipstjóri og Jón-
as Þorsteinsson, skipstióri.
Meirihluti hafnarstiórnar
(4 af 5) mælti með Bald-
vini Þorsteinssyni í stöð-
una, en minnihlutinn fJón
G. Sólnes') mælti með Jón-
asi Þorsteínssyni.
Bæjarstjórn samþvkkti
tillögu meirihluta hafnar-
nefndar með siö atkvæðum
af ellefu. Baldvin er því
ráðinn í stöðuna.
um og sælgæti, sem skila mun
ríkisSjóði 0,3 milljörðum.
Þá sagði ráðherra, að hug-
myndir væru um að leggja 10%
skyldusparnað á hátekjur 1978.
sem skili einum milljarði. Flug-
vallagjald verði tvöfaldað á ut-
anlandsferðir og gefur það 0,3
millarð í ríkissjóð og loks að
heimild til álagningar gjalds á
gjaldeyrisleyfi verði rýmkuð í
2% og henni beitt að fullu á
ferðagjaldeyri og að hálfu á
flest annað. Þessi ráðstöfun gef-
um 0.2 milliarða kr.
í lok ræðu sinnar sagði fjár-
málaráðherra að með þessum
aðgerðum skorti eilítið á að
jöfnuður næðist í ríkisfjármál-
tlm 1978 og yrðu því hugsan
lega lagðar fram frekari til-
lögur, áður en þriðja umræða
fjárlaga færi fram. Fjárlögin eru
nú í meðferð þingsins, að hækka
um rúma 18 milljarða króna og
bera því verðbólgunni enn ó-
rækt vitni, og að hún sé síður
en svo á undanhaldi, miðað við
140 milljarða upphæð fjárlag-
anna.
Ný Ijós
Á Iaugardaginn verða sett upp
umferðarljós á mótum Glerár-
götu og Þórunnarstrætis, sem
lengi hefur verið slysastaður í
umferðinni.
Frumsýning
Sauðárkróki 14. desember. Jóla-
innkaupin eru í fullum gangi á
Sauðárkróki og kaupgetan virð-
ist mikil hjá almenningi^ enda
hefur verið atvlhhugóðæri á
staðnilhi.
Ytri tákn um nærveru jólanna
eru einnig sýnileg í bænum, og
uppi á Nöfunum er búið að
tendra ljós á krossi þeim, sern
jafnan er gert um þessa hátíð.
Ljósakrossin stendur framan
við kirkjugarðinn.
Leikfélag Sauðárkróks frum-
sýndi nýlega sjónleikinn Af-
mælisveisluna, sem er þýddur
úr ensku og er broslegur harm-
leikur og vel með hann farið
undir leikstjórn Hauks J. Gunn-
arssonar frá Reykjavík. Leik-
endur eru sex: Elsa Jónsdóttir,
Ólafur Jóhannsson, Jón Ormar
Ormsson, Elísabet Árnadóttir,
Gunnlaugur Ólsen og Hafsteinn
Hannesson. Leikurinn verður
sýndur aftur um jólin. Frum-
sýningunni var frábærlega vel
tekið. Helga Hannesdóttir er
formaður Leikfélags Sauðár-
króks. Jónas Þór Pálsson gerði
leikmyndir.
Vegna endurbóta á frystihús-
inu er uppihald á vinnu hjá
Fiskiðjunni og verður svo fram
yfir áramótin. Fólk getur því
slaDoað vel af á meðan og veit-
ir kannski ekki af. — G. Ó.
DAGUR
16 síður
ídag
Jólagjafir og jólakauptíðin
Vegir hafa verið góðir og samgöngur greiðar að undanförnu og
margt aðkomufólk í bænum, sem jafnan á mörg erindi til Akur-
eyrar fyrir jólin, meðal annars til að versla. En bæjarbúar hafa
einnig byrjað jólainnkaup sín og má segja, að jólakauptíðin sé
þegar hafin, þótt hún fari eflaust enn vaxandi.
Kaupgeta almennings er mikil, þrátt fyrir dýrtíð og hátt vöru-
verð, því atvinna hefur verið góð. Um marga má segja, að þeir
hafi rúm peningaráð, þótt aðrir, sérstaklega ungt fólk, sem stend-
ur í því stímabraki að eignast eigið húsnæði, eigi í meiri og minni
fj árhags vandræðum.
Margir tala um kaupæði fyrir jólin og má víst víða heimfæra
það. Fólk kaupir til að eyða peningum og fólk er einnig að kaupa
jólagjafir til að gleðja aðra, hvort sem fjárráð eru mikil eða lítil.
Flestum hlýnar um hjartað fyrir jólin og gjafmildin eykst. Nokk-
urt stórlæti býr einnig með fólki og má sjá það í innkaupum
jólagjafa.
En hvað sem þessu líður virðist full þörf á því að benda fólki á
skynsamleg innkaup, svo sem í þá veru að leita fyrir sér og bera
saman verðlag á hlutunum, sem það hefur áhuga á að kaupa. Á
hitt mun víst tilgangslítið að benda, að oft fylgir eins mikil eða
meiri jólagleði litlum jólagjöfum en stórum, vegna hinnar sterku
tísku og einnig vegna verðbólgunnar, sem hvetur til kaupa.
Verulegur þáttur allra jólainnkaupanna eru jólagjafirnar, og
þar munu bækur oftar verða fyrir valinu, þegar ætilegu sleppir,
en allt annað. Bækur hafa um langa tíð verið keyptar i miklum
mæli til jólagjafa, og það svo að sumir nefna desembermánuð bóka-
mánuð og útgáfufyrirtækin keppast við að prenta bækur á jóla-
markaðinn. Auglýsingar um bækur dynja í eyrum hlustenda næst-
um daginn út og daginn inn, og sjónvarpsauglýsingar eru að stór-
um hluta helgaður þessum jólamarkaði bókanna.
Hið rétta er, þrátt fyrir yfirdrifnar auglýsingar um bækur, að
bækur eru flestum hlutum hentugri til gjafa, en ætíð er nokkur
vandi að velja öðrum bækur og þær verða eflaust mikið keyptar
í ár, enda úr miklu að velja, sennilega meiru en nokkru sinni áður.
Og það er gleðiefni, að þrátt fyrir mikla útgáfu lélegra, eða jafnvel
einkisverðra bóka, eru margar góðar bækur út komnar nú í haust
og vetur. Vandinn er þvf sá að velja kjarnann frá hisminu í bóka-
búðunum, einkum þegar fólk kaupir bækur, sem öðrum eru ætl-
aðar.
Að venju eru Ijósaskreytingar komnar upp hér og þar í bænum.
Á því sviði er engin nýbreytni, en ljósin gleðja engu að síður og
eru kærkomin. Fólk hugsar einnig fyrir ljósaskreytingum á heim-
ilum, inni og úti, og er ekkert nema gott um það að segja. Þá
leggja margir leið sína þangað, sem jólatré eru seld og grænar
greinar. í raun og veru stefnir allt að jólum og flestir hlutir miðast
öðrum þræði við þau.
íslendingar eru svo hamingjusamir að eiga svo vel til hnífs og
skeiðar að þeir geta haldið ríkmannleg jól, þótt undantekningar
finnist. En því miður virðist það lítið auka hátíðaskap eða jóla-
gleði, því manneskjan þráir sífellt meira af öllum hlutum og ekki
síst hverskonar munaði. Vel mættu menn þó minnast þess, að stór
hluti mannkyns sveltur heilu hungri og í mörgum löndum deyr
helmingur barna innan fimm ára aldurs vegna fæðuskorts.