Dagur - 16.12.1977, Page 7
ONDVEGISBÆKUR
VIÐ ALLRA HÆFI
Baráttan um brauðið
Tj yggví Kanlsson
i: n
al!
Annað bindi æviminninga TRYGGVA
EMILSSONAR verkamanns sem segir hér
frá manndómsárum sinum i Skagafirði og á
Akureyri og verkalýðsbaráttu og stétta-
átökum nyrðra, þar sem Tryggvi var alltáf í
fylkingarbrjósti. Stórmerk samtimaheimild,
einstætt bókmenntaverk. Verð 'kr. 5640,
félagsverð kr. 4600.
Draumar um veruleika
lslenskar sögur um og eftir konur. Þessi bók
varpar ljósi á vanræktan þátt bókmennta-
sögunnar, birtar eru 22 sögur eftir konur,
meðal þeirra eru ýmsir af fremstu rit-
höfundum islenskum. HELGA KRESS valdi
sögurnar og ritaði rækilegan inngang. Verð
kr. 4440, félagsverð kr. 3745.
Turninn á heimsenda
Nýjasta skáldsaga færeyska rithöfundarins
WILLIAMS HEINESEN, kórónan á llfsverki
þessa frábæra skálds. Umgerðin er Þórshöfn
á fyrstu áratugum aldarinnar og ógleyman-
iegar persónur ber fyrir augu. ÞORGEIR
ÞORGEIRSSON þýddi bókina og mun vand-
fundin snjallari þýðing á erlendu nútima-
skáldverki. Verð kr. 4320, félagsverð 3500.
Vélarbilun í næturgalanum
Vébrbilun
í nætur-
galanum
Hann er orðinn miðaldra, að honum sækja
vandamál þess æviskeiðs, óttinn við ellina,
dofnandi kynlif, skilningsieysi barna. Sann-
færingarnar eru bilaðar, tómleiki og vonleysi
ráðandi.
Fimmta bók ÓLAFS HAUKS SÍMONAR-
SONAR.
Elsku Míó minn
AstrítB
Lind Jl
f
r i
Saga handa börnum á öllum aldri eftir AST-
RID LINDGREN. Bókin um Búa Ólason sem
i raun réttri heitir Mió og er konungssonur i
Laudinu ifjarskanum. Enn ein og þó engri lik
eftir höfund bókanna um Linu langsokk,
Emil i Kattholti og Bræðurna Ljónshjarta.
HEIMIR PALSSON þýddi. Verð kr. 1920.
Morðið á ferjunni
Fyrsta bókin i flokknum „Skáldsaga um
giæp” eftir hina heimsfrægu sænsku rithöf-
unda MAJ SJÖWALL og PER WAHLÖÖ.
Lögreglusaga i sérflokki enda hafa þessar
bækur alls staðar hlotið góða ritdóma og
metsölu. Þýðandi er ÞRAINN BERTELS-
SON rithöfundur. Verð kr. 4320, félagsverð
kr. 3670.
Þórbergur Þórðarson
R.UTSA if.í.l f
Rauða hættan
Ferðasaga MEISTARA ÞÓRBERGS frá
Sovétrikjunum ásamt helstu greinum hans
og ritgerðum svipaðs efnis. Bókin vakti geisi-
miklar deilur á sinum tima enda um að ræða
afar sérstætt ritverk. Verð kr. 4920, félags-
verð 4180.
MAL OG
MENNING
Fjörutíu ára forusta
í íslenskri bókaútgáfu
Seiður og hélog
Reykjavikursaga frá hernámsárum eftir
ÓLAF JÓHANN SIGURDSSON. Þessi skáld-
saga ber með sér hugblæ hernámsáranna,
skýran og ijóslifandi. Eitt megineinkennið er
rikuleg kimni og eru margir kaflarnir meðal
þess allra besta sem Ólafur Jóhann hefur
skrifað. Fyrsta skáldsaga höfundar eftir aö
hann hlaut Bókmenntaverðlaun Norður-
landaráðs. Verðkr. 5580, félagsverð kr. 4550.
Heimslist - Heimalist
8. IW>«.Jot*ut*o
HEÍMSUST-
HEIMALIST
Yfirlit evrópskrar listasögu eftir R. BROBY-
JOHANSEN. Bók sem hefur farið sigurför
um allan heim. Nýstárleg og alþýðleg fram-
setning. Bókin er prýdd hundruðum mynda,
þ.á.m. mörgum litmyndum, en verð er samt
ótrúlega lágt. BJÖRN TH. BJÖRNSSON list-
fræðingur þýddi bókina, valdi Islenskt mynd-
efniog ritaði eftirmála um höfundinn og verk
hans. Verð kr. 4920, félagsverð 4000.
Vopnin kvödd
... _________
vy' .
|
Skáldsagan frá heimsstyrjöldinni fyrri sem
fyrst aflaði HEMINGWAY heimsfrægðar.
Astarsaga með hörku og vitfirringu styrj-
aldarinnar að bakgrunni. Islensk þýðing
HALLDÓRS LAXNESS vakti mikla hrifn-
ingu á sinum tima en jafnframt hörð við-
brögð ýmissa stafsetningarpostula og
kreddumanna um málfar. Verð kr. 4560,
félagsverð kr. 3700.
Sautjánda sumar Patreks
Fyrsta bókin eftir K.M. PEYTON um hinn
óforbetranlega Patric Pennington, iþrótta-
garpinn, pianósnillinginn, vandræðaung-
linginn. Frábær unglingasaga I þýðingu
SILJU AÐALSTEINSDÓTTUR. Verð kr.
3120.
Mín vegnaog þin
fcio&k MfíAÍsöríiK
M ÍN VKGNA OG ÞÍN
Ný ljóöabók eftir NINU BJÖRK ARNA-
DÓTTUR. „Með þessari fimmtu ljóðabók
sinni hefur Nina Björk náð þeirri hæð I Ijóða-
gerð að vænta má framhalds sem mun auðga
islenskar bókmenntir eins og þessi ljóð hafa
nú gert.” (Siglaugur Brynleifsson, Þjv.).
Verð kr. 2100, félagsverö kr. 1785.
Búrið
Olga Ouðrún
BÚRIÐ
Ef þú ert bókaormur og vantar bók til að
gleypa i þig þá gæti þetta verið bókin.
Ef þú ert reiður og vantar bók til að grýta.þá
gæti þetta verið bókin.
Búrið eftir OLG.U GUORONU ARNA-
DÓTTUR er skáldsaga fyrir unglinga (og
annað fólk) sem segir sannleikann um við-
kvæmt efni — skólakerfið. Verð kr. 3336,
félagsverð 2855.
Þórbergur Þórðarson
S
Ymsar ritgerðir
Ritgeröasafn i tveimur bindum eftir þennan
mesta ritgerðasmið islenskra bókmennta.
Ilér er að finna fjölmargar ritgerðir sem
hafa ekki birst i bók áður. Verð hvors bindis
kr. 4680, félagsverð kr. 3980.
Þessa auglýsingu má nota sem pöntunarseðil
Þá þarf að merkja við þær bækur, sem viðkomandi
vill fá og senda siðan til Máls og menningar
Laugavegi 18, 101 Reykjavík.
Nafn
Heimilisfang