Dagur - 11.01.1978, Side 1

Dagur - 11.01.1978, Side 1
TRULOFUNAR- HRINGAR AFGREIDDIR SAMDÆGURS GULLSMIÐIR . SIGTRYGGUR & PÉTUR ' AKUREYRI DAGUR LXI. ÁRG. AKUREYRI, MIÐVIKUDAGINN 11. JANÚAR 1978. 2. TÖLUBLAD 1 papp'* Órói í Gjástykki Landsig hefur nú orðið a Kröflusvæðinu og jarð- skjálftahrinur, sem eiga upptök sín í Gjástykki. Er þetta í sjöunda sinn, sem svokallað kvikuhlaup hef- ur orðið á þessu umbrota- svæði og hefur þetta síðasta stefnt í norður og gleikkað sprungur í Gjástykki um einn metra eða meira. Á mánudagsmorguninn fund- ust verulegir jarðskjálfta- kippir í Kelduhverfi og við Öxarfjörð, og þar hafa einnig jarðsprungur aukist. Hvergi varð jarðelds vart. Mikil rannsókn Opinber rannsókn fer nú fram á kaupum skipa, allt frá árinu 1972, vegna gruns um óheiðarleg viðskipti. — Einkum beinist rannsóknin að því, hvort uppgefið kaupverð skipanna hefur verið rétt eða falsað, svo sem grunur leikur á. Mikl- ar fjárhæðir varðandi skipa- kaupin, t.d. frá Noregi, hafa verið dregnar undan til skatts og gjaldeyrisyfir- valda, reynist grunur um misferli réttur. íþróttamaöur ársins Hreinn Halldórsson, Ev- rópumeistari í kúluvarpi, var einróma kjörinn íþrótta élg'5 maður ársins 1977 af sam- tökum íþróttafréttaritara og hlýtur hann þann heiður ||S annað árið í röð. En meðal K tíu hæstu í atkvæða- ; greiðslu um titilinn urðu . ' ; Gísli Þorsteinsson, Gústav |||| Agnarsson, Ingi Bjöm Al- bertsson, Guðmundur Sig- urðsson, Ingunn Einars- dóttir, Ásgeir Sigurvinsson, Vilmundur Vilhjálmsson, Björgvin Þorsteinsson og K Geir Hallsteinsson. iilf Samkvæmt viðtali við Pétur Björnsson á Raufarhöfn og fleiri, fara hér á eftir fréttir frá Raufarhöfn: Strax á fyrstu dögum ársins byrjaði loðnubræðslan og var hráefnið frá fyrra ári, en síðan komu hingað níu skip með dá- lítið af loðnu, sem veiddist 3. janúar, fyrst þeirra var Pétur Jónsson. Togarinn Rauðinúpur hélt til veiða 3. janúar og hefst vinna við fisk ekki fyrr en hann kem- ur úr sinni fyrstu veiðiferð. Útflutningsverðmæti frá Raufarhöfn á síðasta ári mun nálgast 1300 milljónir króna og þar af eru loðnuafurðir kr. 7— 800 milljónir að útflutnings- verðmæti. íbúar staðarins eru um 500. Jökull hf. rekur bæði Rauða- núp og hraðfrystihús. En þar að auki eru gerðir út þilfars- bátarnir Þorsteinn, Hildur, Guðmundur Jónsson, Gunnþór, Sæfinnur, Fönix, Hrönn, Hegri, Sæfugl, Viðar, Ægir og Svanur, og er stærð þeirra frá 6—50 tn. Hér á Raufarhöfn er grunn- skóli og tóniistarskóii. Skóia- stjórar eru Angantýr Einarsson og Karl Jónatansson. Má því segja, að menntunaraðstaða sé sæmileg. En hið sama verður ekki sagt um læknisþjónustuna, sem er fyrir neðan allar hellur. Við erum læknislausir og á Þórshöfn er heldur enginn lækn ir eins og er. En hjúkrunarkon- una, Þórdísi Kristjánsdóttir, höfum við, og er það gott svo langt sem það nær. Hjá okkur hefur lenginn læknir verið í mörg ár. Flugfélag Norðurlands heldur uppi flugferðum. í félagsheimilinu Hnitbjörg- semi rram. Öjaidan eru dans- leikir yfir vetrarmánuðina, en félagsheimilið þjónar sínu hlut- verki. Á nýársnótt var þar dansleikur. Húsið er 11 ára og lítur enn mjög vel út. Atvinna var góð á síðasta ári, en í byrjun ársins og aftur í nóvember voru nokkur hlé og voru ekki allir mótfallnir hvíld. Um þessar mundir eru úti- bússtjóraskipti Kaupfélags N.- Þingeyinga. Ingunn Árnadóttir lætur af störfum en við tekur Pétur Þorgrímsson. íbúatalan vex, en vöntun á húsnæði tefur fyrir aðflutningi m # r ■ • ri • r -rk r um fer ýmiskonar félagsstarf- fólks. vpiainrmiiTnmcmr i xr Á árinu 1977 er liðin hálf öld frá því að Sambandið hóf að flytja inn búvélar. Allan þann tíma hefur Sambandið flutt inn handa íslenskum bændum vélar og tæki frá fyrirtækinu Inter- national Harvester, en það er eins og kunnugt er eitt hið öfl- ugasta í sinni grein í heimin- um. Þessa var minnst sérstaklega í hófi, sem International Har- vester hélt fyrir umboðsmenn í tengslum við Smithfield land- búnaðarsýninguna í Lundúnum í síðasta mánuði (nóv. 1977). Þar afhenti M. Larry Abbott, fram- kvæmdastjóri fyrirtæksins í Bretlandi, skrautritað perga- mentsskjal, sem það hafði látið útbúa sérstaklega sem viður- kenningarvott til Sambandsins fyrir hálfrar aldar gott sam- starf. Af hálfu Sambandsins veitti Jón Þór Jóhannsson frkvstj. skjalinu viðtöku. Kristján Jóhannsson syngur í Borgarbíói Kristján Jóhannsson söngvari heldur konsert í Borgarbíói á laugardaginn kl. 5 e. h. Með honum koma fram, Sigurður D. Franzson, og syngja þeir saman nokkra dúetta úr óperuaríum og svo undirleikarinn, Thomos Jackmann. Viðfangsefni þessara fyrstu sjálfstæðu hljómleika Krist- jáns Jóhannssonar, eru bæði innlend og erlend. Aðgöngu- miðasalan hefst við innganginn kl. 4 e. h. Knattspyrnufélag Akureyrar 50 ára Þess var minnst á sunnudaginn 8. febrúar að Knattspyrnufélag Akureyróir varð hálfrar aldar gamalt, stofnað af 12 ungmenn- um þann mánaðardag fyrir fimmtíu árum í Hafnarstræti 23, Schiöths-húsi. Þar var nú festur veggskjöld- ur á húsið, áletraður af þessu tilefni og rakti Haraldur Sig- urðsson, bankamaður og for- maður KA, nokkra þætti í sögu félagsins, en fyrst og fremst þakkaði hann stofnendum frum- kvæðið. Fyrstu stjórn KA skipuðu: Tómas Steingrímsson, formað- ur, Jón Sigurgeirsson, ritari og Helgi Schiöth gjaldkeri, og voru þeir Tómas og Helgi viðstaddir athöfnina og Jón Sigurgeirsson kom litlu síðar. Núverandi stjóm KA skipa: Haraldur Sigurðsson, formaður, Stefán B. Árnason, Haraldur Valsteinsson, Hermann Haralds- son og Skjöldur Jónsson. Eins og fyrr segir voru stofnendur 12 en nú eru félagar 1340 og mun KA eitt fjölmennasta íþróttafé- lag landsins. Viðfangsefni félagsins hafa löngum verið knattspyrna, frjálsar íþróttir, handknattleik- ur og skíðaíþróttir, síðar einnig körfuknattleikur, júdó og borð- tennis og lyftingar. Hefur félag- ið oft staðið í fremstu röð í þessum greinum. Alls þessa verður betur minnst í afmælishófi félagsins, sem verður 4. febrúar og þá mun afmælisblað koma út. — Á sunnudaginn var stofnuð KA- deild í Reykjavík og var því fagnað hér nyrðra. Knattspyrnufélag Akureyrar hefur aðal aðsetur sitt í Lundar- skóla, en þar er malarvöllur fé- lagsins og grasvöllur er í bygg- ingu. Að athöfn lokinni við Hafn- arstræti 23, þar sem saman voru komnir margir yngri og eldri félagar, var boðið upp á kaffi og meðlæti í íþróttahúsinu, þar sem KA hefur sérstakt herbergi og íþróttabandalagið myndar- lega stofu. Dagur árnar Knattspyrnufé- lagi Akureyrar allra heilla á merkum tímamótum. Og á með- an enn virðist ekki fundin önn- ur hollari viðfangsefni ungra manna og kvenna en íþróttir, er þess að vænta, að hið þrótt- mikla félag megi enn um langa tíð þjóna hlutverki sínu Fjögur minkabú Nú eru aðeins fjögur minkabú á landinu, en árið 1976 voru þau sjö talsins. Um 23 þúsund hvolpar fæddust á þessum búum sl. ár og áætlað söluverð minkaskinna 130—140 milljónir íslenskra króna. Verð loðskinna hefur ver ið sæmilegt eða gott og auk þess öðlast fslendingar mikilvæga reynslu í með- ferð dýranna með hverju ári sem líður og innlent fóður er gott og loftslagið heppilegt til að fá þétt- hærða pelsa. Tveir úr fyrstu stjórn KA, Helgi og Tómas, ásamt núverandi form., Haraldi Sigurðssyni. (Ljósm. E. D.). Schiöths-IIúsið, Hafnarstræti 23, þar sem KA var stofnað fyrir 50 árum. (Ljósm. E. D.).

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.