Dagur - 11.01.1978, Síða 1
TRULOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
. SIGTRYGGUR & PÉTUR
' AKUREYRI
DAGUR
LXI. ÁRG. AKUREYRI, MIÐVIKUDAGINN 11. JANÚAR 1978. 2. TÖLUBLAD
1 papp'*
Órói í Gjástykki
Landsig hefur nú orðið a
Kröflusvæðinu og jarð-
skjálftahrinur, sem eiga
upptök sín í Gjástykki. Er
þetta í sjöunda sinn, sem
svokallað kvikuhlaup hef-
ur orðið á þessu umbrota-
svæði og hefur þetta síðasta
stefnt í norður og gleikkað
sprungur í Gjástykki um
einn metra eða meira. Á
mánudagsmorguninn fund-
ust verulegir jarðskjálfta-
kippir í Kelduhverfi og við
Öxarfjörð, og þar hafa
einnig jarðsprungur aukist.
Hvergi varð jarðelds vart.
Mikil rannsókn
Opinber rannsókn fer nú
fram á kaupum skipa, allt
frá árinu 1972, vegna gruns
um óheiðarleg viðskipti. —
Einkum beinist rannsóknin
að því, hvort uppgefið
kaupverð skipanna hefur
verið rétt eða falsað, svo
sem grunur leikur á. Mikl-
ar fjárhæðir varðandi skipa-
kaupin, t.d. frá Noregi,
hafa verið dregnar undan
til skatts og gjaldeyrisyfir-
valda, reynist grunur um
misferli réttur.
íþróttamaöur
ársins
Hreinn Halldórsson, Ev-
rópumeistari í kúluvarpi,
var einróma kjörinn íþrótta élg'5
maður ársins 1977 af sam-
tökum íþróttafréttaritara
og hlýtur hann þann heiður ||S
annað árið í röð. En meðal K
tíu hæstu í atkvæða- ;
greiðslu um titilinn urðu . ' ;
Gísli Þorsteinsson, Gústav ||||
Agnarsson, Ingi Bjöm Al-
bertsson, Guðmundur Sig-
urðsson, Ingunn Einars-
dóttir, Ásgeir Sigurvinsson,
Vilmundur Vilhjálmsson,
Björgvin Þorsteinsson og K
Geir Hallsteinsson.
iilf
Samkvæmt viðtali við Pétur
Björnsson á Raufarhöfn og
fleiri, fara hér á eftir fréttir frá
Raufarhöfn:
Strax á fyrstu dögum ársins
byrjaði loðnubræðslan og var
hráefnið frá fyrra ári, en síðan
komu hingað níu skip með dá-
lítið af loðnu, sem veiddist 3.
janúar, fyrst þeirra var Pétur
Jónsson.
Togarinn Rauðinúpur hélt til
veiða 3. janúar og hefst vinna
við fisk ekki fyrr en hann kem-
ur úr sinni fyrstu veiðiferð.
Útflutningsverðmæti frá
Raufarhöfn á síðasta ári mun
nálgast 1300 milljónir króna og
þar af eru loðnuafurðir kr. 7—
800 milljónir að útflutnings-
verðmæti. íbúar staðarins eru
um 500.
Jökull hf. rekur bæði Rauða-
núp og hraðfrystihús. En þar
að auki eru gerðir út þilfars-
bátarnir Þorsteinn, Hildur,
Guðmundur Jónsson, Gunnþór,
Sæfinnur, Fönix, Hrönn, Hegri,
Sæfugl, Viðar, Ægir og Svanur,
og er stærð þeirra frá 6—50 tn.
Hér á Raufarhöfn er grunn-
skóli og tóniistarskóii. Skóia-
stjórar eru Angantýr Einarsson
og Karl Jónatansson. Má því
segja, að menntunaraðstaða sé
sæmileg. En hið sama verður
ekki sagt um læknisþjónustuna,
sem er fyrir neðan allar hellur.
Við erum læknislausir og á
Þórshöfn er heldur enginn lækn
ir eins og er. En hjúkrunarkon-
una, Þórdísi Kristjánsdóttir,
höfum við, og er það gott svo
langt sem það nær. Hjá okkur
hefur lenginn læknir verið í
mörg ár. Flugfélag Norðurlands
heldur uppi flugferðum.
í félagsheimilinu Hnitbjörg-
semi rram. Öjaidan eru dans-
leikir yfir vetrarmánuðina, en
félagsheimilið þjónar sínu hlut-
verki. Á nýársnótt var þar
dansleikur. Húsið er 11 ára og
lítur enn mjög vel út.
Atvinna var góð á síðasta ári,
en í byrjun ársins og aftur í
nóvember voru nokkur hlé og
voru ekki allir mótfallnir hvíld.
Um þessar mundir eru úti-
bússtjóraskipti Kaupfélags N.-
Þingeyinga. Ingunn Árnadóttir
lætur af störfum en við tekur
Pétur Þorgrímsson.
íbúatalan vex, en vöntun á
húsnæði tefur fyrir aðflutningi
m # r ■ • ri • r -rk r um fer ýmiskonar félagsstarf- fólks.
vpiainrmiiTnmcmr i xr
Á árinu 1977 er liðin hálf öld frá því að Sambandið hóf að flytja inn búvélar. Allan þann tíma hefur Sambandið flutt inn handa íslenskum bændum vélar og tæki frá fyrirtækinu Inter- national Harvester, en það er eins og kunnugt er eitt hið öfl- ugasta í sinni grein í heimin- um. Þessa var minnst sérstaklega í hófi, sem International Har- vester hélt fyrir umboðsmenn í tengslum við Smithfield land- búnaðarsýninguna í Lundúnum í síðasta mánuði (nóv. 1977). Þar afhenti M. Larry Abbott, fram- kvæmdastjóri fyrirtæksins í Bretlandi, skrautritað perga- mentsskjal, sem það hafði látið útbúa sérstaklega sem viður- kenningarvott til Sambandsins fyrir hálfrar aldar gott sam- starf. Af hálfu Sambandsins veitti Jón Þór Jóhannsson frkvstj. skjalinu viðtöku. Kristján Jóhannsson syngur í Borgarbíói Kristján Jóhannsson söngvari heldur konsert í Borgarbíói á laugardaginn kl. 5 e. h. Með honum koma fram, Sigurður D. Franzson, og syngja þeir saman nokkra dúetta úr óperuaríum og svo undirleikarinn, Thomos Jackmann. Viðfangsefni þessara fyrstu sjálfstæðu hljómleika Krist- jáns Jóhannssonar, eru bæði innlend og erlend. Aðgöngu- miðasalan hefst við innganginn kl. 4 e. h.
Knattspyrnufélag Akureyrar 50 ára
Þess var minnst á sunnudaginn
8. febrúar að Knattspyrnufélag
Akureyróir varð hálfrar aldar
gamalt, stofnað af 12 ungmenn-
um þann mánaðardag fyrir
fimmtíu árum í Hafnarstræti 23,
Schiöths-húsi.
Þar var nú festur veggskjöld-
ur á húsið, áletraður af þessu
tilefni og rakti Haraldur Sig-
urðsson, bankamaður og for-
maður KA, nokkra þætti í sögu
félagsins, en fyrst og fremst
þakkaði hann stofnendum frum-
kvæðið.
Fyrstu stjórn KA skipuðu:
Tómas Steingrímsson, formað-
ur, Jón Sigurgeirsson, ritari og
Helgi Schiöth gjaldkeri, og voru
þeir Tómas og Helgi viðstaddir
athöfnina og Jón Sigurgeirsson
kom litlu síðar.
Núverandi stjóm KA skipa:
Haraldur Sigurðsson, formaður,
Stefán B. Árnason, Haraldur
Valsteinsson, Hermann Haralds-
son og Skjöldur Jónsson. Eins
og fyrr segir voru stofnendur 12
en nú eru félagar 1340 og mun
KA eitt fjölmennasta íþróttafé-
lag landsins.
Viðfangsefni félagsins hafa
löngum verið knattspyrna,
frjálsar íþróttir, handknattleik-
ur og skíðaíþróttir, síðar einnig
körfuknattleikur, júdó og borð-
tennis og lyftingar. Hefur félag-
ið oft staðið í fremstu röð í
þessum greinum.
Alls þessa verður betur
minnst í afmælishófi félagsins,
sem verður 4. febrúar og þá
mun afmælisblað koma út. — Á
sunnudaginn var stofnuð KA-
deild í Reykjavík og var því
fagnað hér nyrðra.
Knattspyrnufélag Akureyrar
hefur aðal aðsetur sitt í Lundar-
skóla, en þar er malarvöllur fé-
lagsins og grasvöllur er í bygg-
ingu.
Að athöfn lokinni við Hafn-
arstræti 23, þar sem saman voru
komnir margir yngri og eldri
félagar, var boðið upp á kaffi
og meðlæti í íþróttahúsinu, þar
sem KA hefur sérstakt herbergi
og íþróttabandalagið myndar-
lega stofu.
Dagur árnar Knattspyrnufé-
lagi Akureyrar allra heilla á
merkum tímamótum. Og á með-
an enn virðist ekki fundin önn-
ur hollari viðfangsefni ungra
manna og kvenna en íþróttir,
er þess að vænta, að hið þrótt-
mikla félag megi enn um langa
tíð þjóna hlutverki sínu
Fjögur minkabú
Nú eru aðeins fjögur
minkabú á landinu, en árið
1976 voru þau sjö talsins.
Um 23 þúsund hvolpar
fæddust á þessum búum sl.
ár og áætlað söluverð
minkaskinna 130—140
milljónir íslenskra króna.
Verð loðskinna hefur ver
ið sæmilegt eða gott og auk
þess öðlast fslendingar
mikilvæga reynslu í með-
ferð dýranna með hverju
ári sem líður og innlent
fóður er gott og loftslagið
heppilegt til að fá þétt-
hærða pelsa.
Tveir úr fyrstu stjórn KA, Helgi og Tómas, ásamt núverandi form.,
Haraldi Sigurðssyni. (Ljósm. E. D.).
Schiöths-IIúsið, Hafnarstræti 23, þar sem KA var
stofnað fyrir 50 árum. (Ljósm. E. D.).