Dagur - 18.01.1978, Síða 1
TRULOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
, SIGTRYGGUR & PÉTUR
1 AKUREYRI
DAGUR
LXI. ÁRG.
AKUREYRI, MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR 1978. 3. TÖLUBLAÐ
ttmut 1 pappw
-=
Skoðanakönnun
FulltrúaráS sfundur í Fram-
sóknarfélagi Akureyrar
samþykkti á fimmtudaginn
í síðustu viku, að fram
skyldi fara skoðanakönnun
til undirbúnings framboðs-
lista framsóknarmanna í
bæj arst j ómarkosningunum
í vor. Allmiklar umræður
bafa farið fram um undir-
búning kosninganna, með-
al annars um skoðanakönn-
un, sem nú er ákveðið að
fari fram. FramboÖsnefnd
á að skila tillögum um fyrir-
komulag könnunarinnar, og
eiga þær að byggjast á
þeim reglum, sem miðstjóm
Framsóknarflokksins hefur
sett.
Snædrottningin
Leikfélag Akureyrar hefur
sýnt Snædrottninguna
þrisvar sinnum fyrir troð-
fullu húsi og við ágætar
undirtektir. Næsta sýning
er á fimmtudaginn og á þá
sýningu var uppselt á
mánudaginn. En klukkan 5
á miðvikudag verður að-
göngumiðasalan opnuð fyr-
ir helgarsýningamar.
Þessi sjónleikur, sem
gerður er eftir einu ágætu
ævintýri H. C. Andersen,
er þegar orðinn vinsæll og
allt útlit á, að sýningin gefi
mjög góða raun í mikilli
aðsókn.
LA fær nú 11 milljón
króna styrk frá ríkinu, sem
er 100% hækkun frá fyrra
ári.
Loðnuveiðiskipin í höfn á Akureyri. — Ljósm. E. D.
Lögreglan
Frá því seinni part síðustu
viku gistu aðeins ellefu
menn „steininn“ og þykir
það ekki mikið. Bjuggust
flestir við öðm þar sem
loðnuveiðiflotinn lá í höfn
á Akureyri fram á helgi,
en sjómenn vom hinir
prúðustu.
Síðan á miðvikudag hafa
orðið fimm árekstrar í
bænum og nokkrar
skemmdir á bílum en engin
slys á fólki. Frá áramótum
hafa orðið 25 árekstrar og
er það of mikiö. Tveir vom
teknir fyrir meinta ölvun
við akstur síðari hluta vik-
unnar.
Aðafaranótt 9. janúar var
unnið skemmdarverk í
símaklefanum í Seljahlíð,
og símatækinu stolið. Get-
ur það komið sér mjög illa
fyrir þetta hverfi og em
þeir beðnir að veita lög-
reglunni upplýsingar, sem
eitthvað kynnu að vita.
Til sölu
Fram hefur komið, að
Skipaútgerð ríkisins hefur
gert tillögur um það til rík-
isstjórnarinnar, að strand-
ferðaskipin Esja og Hekla
verði seldar en þrjú strand
ferðaskip verði keypt í
þeirra stað.
Flotinn sigldi í höfn
yrir rúmri viku hófst mikill órói í Gjástykki og jafnframt
jókst mjög sig á Kröflusvæðinu, mest við Leirhnúk.
Þetta er talið kvikuhlaup, hið sjöunda í röðinni, eftir að
stöðugar rannsóknir á jarðhræringum hófust í nágrenni
Kröfluvirkjunar.
Á þriðjudagskvöld í síðustu
viku ákváðu sjómenn á loðnu-
veiðiflotanum að halda til hafn-
ar í mótmælaskyni við nýákveð-
ið loðnuverð. Héldu skipin síð-
an til Akureyrar, samtals á
fjórða tug. Því var þá þegar lýst
yfir, að skipin fæm ekki út fyrr
en leiðrétting hefði fengist, eða
einhverjar breytingar, varðandi
loðnuverðsákvörðunina. Þá bár-
ust af því fregnir frá Færeyj-
um, að færeyskir sjómenn
fengju 15 krónur fyrir kílóið af
loðnu, veiddri á fslandsmiðum.
Fundarhöld hófust á Akur-
eyri í tilefni þessa atburðar og
sjö manna sendinefnd frá sjó-
mönnum gekk á fund forsætis-
ráðherra í Reykjavík og fleiri
ráðamanna. En í samþykkt frá
fjölmennum fundi sjómanna var
sendinefnd þessi kjörin og var
erindi hennar það, að fá úr því
úar. Færi flotinn ekki á miðin
skorið, hvort unnt væri að end-
urskoða loðnuverðið frá 10. jan-
fyrr en svör lægju fyrir.
Sendinefndin fékk þau svör,
að valdið til ákvörðunar loðnu-
verðs væri í höndum verðlags-
nefndar og úrskurði hennar yrði
ekki breytt, en hinsvegar fengu
sjómenn þau loforð, að fyrir
næstu verðlagsákvörðun, 15.
febrúar, myndu forsendur end-
urskoðaðar, hvað snertir loðnu-
verð til sjómanna.
Fjölmennur fundur í Nýja-
bíói ákvað, eftir að hafa fengið
svör ráðherra og í trausti þess,
að staðið væri við loforð um
endurskoðun, að sigla á miðin
á ný.
Á meðan loðnuveiðiskipin
lágu í höfn á Akureyri, gerði
sunnanrok log nokkur þeirra
skipa, sem lágu við nýju vöru
'höfnina við Strandgötu,
skemmdust. Er tjónið talið
skipta nokkrum milljónatugum,
en með bráðabirgðaviðgerðum
olli þetta ekki teljandi töfum á
veiðum.
Stóðiö
a gjof
Sauðárkróki 16. janúar. Veðrið
hefur verið óvenjulega óstillt,
ýmist rigningar eða frost og
nokkur snjókoma. Nú hefur
brætt yfir og er því stóðhrossum
gefið út, því lítt næst til beitar-
innar. En innan héraðs eru veg-
ir greiðfærir.
Togararnir lönduðu sæmileg-
um afla í síðustu viku. Viðgerð
á frystihúsinu er nær lokið og
því var unnt að taka á móti afl-
anum, sem var 70—80 tonn hjá
hverju skipi. Er því nóg að
starfa.
Leiksýningar átti að hafa hér
um jólin, en hvað eftir annað
urðu leikarar til skiptis veður-
tepptir í Reykjavík vegna trufl-
ana á flugsamgöngum, svo að
leiklistin hér varð með minnsta
móti.
Karlakórinn Heimir hélt
þrettánda-skemmtun sína í
Miðgarði. Þar kom fram Krist-
ján Jóhannsson frá Akureyri
og var söng hans ágætlega tek-
ið. Fylgja honum þakkir og ám-
aðaróskir héðan, frá söngekk-
um Skagfirðingum. — G. Ó.
Fasteignagjöldin
Bæjarstjórn hefur samþykkt að
gjalddagar útsvara og aðstöðu-
gjalda á Akureyri á árinu 1978
skuli vera tíu og fyrirfram-
greiðsla þessara gjalda við sömu
prósentu af fyrra árs gjöldum
og ákveðið verður fyrir þing-
gjöld, eða 70%.
Þá hefur bæjarstjórn sam-
þykkt, að á þessu ári verði not-
uð heimild í lögum til að inn-
heimta aðstöðugjald á Akureyri
á þessu ári og verði notaður
sami gjaldstigi og sl. ár, sem er
hámark samkvæmt lögum. —
Einnig hefur bæjarstjóm sam-
þykkt reglur um álagningu fast-
eignagjalda á árinu, en á þeim
Heita vatniö í Reykjadal
Nú er verið að ljúka við gólfið
í íþróttasalnum í nýja íþrótta-
húsinu á Laugum í Reykjadal
og er hann talinn mjög skemmti-
legur. Þar vantar þó enn ýmis
tæki, svo sem böðin.
Hitaveitan frá Laugum var
lögð í haust norður í Breiðu-
Skákkeppni UMSE lokið
Árlegri sveitakeppni í skák a
vegum Ungmennasambands
Eyjafjarðar lauk 11. des. sl. —
Þátttaka var meiri en nokkru
sinni fyrr, eða 11 sveitir frá 8
félögum. Þátttakendur voru alls
62, þar af 2 stúlkur.
Fyrsta umferð var tefld að
Melum 1. nóv. og var þar minnst
Búa Guðmundssonar, Bústöð-
um, og var keppnin að þessu
sinni tileinkuð minningu hans.
Búi var mikill skákunnandi og
um langt árabil liðsmaður í
skáksveit umf. Skriðuhrepps,
sem oftast hefur sigrað í þess-
ari keppni.
Úrslit í keppninni urðu þessi:
1. A-sveit umf. Skriðuhrepps,
35 Vz vinningur.
2. B-sveit umf. Skriðuhrepps,
28% vinningur.
3. A-sveit umf. Saurb. og bindf.
Dalb. 28 vinningar.
4. Sveit umf. Möðruvallasóknar
24% vinningur.
5. Sveit umf. Dagsbrúnar
24 vinningar.
6. A-sveit umf. Oxndæla
22 vinningar.
A-sveit umf. Skriðuhrepps
hlaut verðlaunabikar. Sveitina
skipuðu: Guðmundur Búason,
Framhald á blaðsíðu 2.
mýri_ þar sem fimm fjölskyldur
fengu heita vatnið til upphitun-
ar og ætlunin er að leggja leiðsl-
una lengra norður.
Heita vatnið á Laugum, sem
fékkst með borun og er 70—80
lítrar á sekúndu, sjálfrennandi,
er 64 gráðu heitt. Hitaleiðslan
frá fútibúi KÞ vestan ár og
norður í Breiðmnýri er plast-
leiðsla, sem reynist vel og hita-
tap er mjög lítið.
Sett var upp skíðatogbr. fyrir
nokkru skammt frá Laugaskóla,
sem skólinn og sveitarfélagið
stóðu að. Togbrautin var mikið
notuð í fyrra en minna nú í vet-
ur, það sem af er, vegna þess að
snjórinn er lítill.
f Reykjadal eru sex íbúðar-
hús í smíðum. Reykjadalsá var
mjög gjöful í sumar og veiddust
þar á fimmta hundrað laxar, en
sú tala er óstaðfest.
lögum hefur orðið nokkur
breyting frá sl. ári. Reglumar
eru þær, að fasteignaskattur
verði innheimtur með 20% álagi,
en vatnsskattur og holræsagjald
með 25% álagi. Lögum sam-
kvæmt getur hæsta álagning
fasteignaskatts verið 25% álag,
en vatns- og holræsagjalds 50%
álag. Með þessum breytingum
og hækkunum á fasteignamati,
munu þessi gjöld hækka mjög
verulega frá sl. ári, eða um 90—
100%. Það skal tekið fram, að
fasteignagjöld þessi hafa sífellt
rýrnað hlutfallslega síðan árið
1972, en þá komu ný lög um
fasteignagjöld og munu gjöldin
nú í ár sambærileg að gildi,
eða tæplega þó, við gjöldin það
ár. Bæjarstjórnin hefur notað
heimild í lögum og mun nota á
þessu ári til lækkunar fasteigna-
skatts á elli- og örorkulífeyris-
þegum um þriðjung til tvo
þriðju hluta og miðast það við
efnahag, eftir ákveðnum regl-
Orkubú
Með janúarmánuði sl. tók
Orkubú Vestfjarða form-
lega til starfa með því að
yfirtaka rekstur Rafmagns-
veitna ríkisins á Vestfjörð-
um og rekstur Rafveitu ísa-
fjarðar á ísafirði. Orkubúið
heldur áfram þeim rekstri,
sem nefnd orkufyrirtæki
höfðu áður. Markmiðið er
að yfirtaka eignir sveitarfé-
laganna á svæðinu, jafna
orkuverð, fjórðungurinn
búi við sama orkuverð og
aðrir