Dagur - 18.05.1978, Side 1

Dagur - 18.05.1978, Side 1
TRÚLOFUNAR- HRINGAR AFGREIDDIR SAMDÆGURS GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI DAGUR LX. Árg. Akureyri, fimmtudaginn 18. maí 1978 29. tölublað • Öflugt atvinnulíf (-í|am- vinnumanna og félagsrékstur bæjarbúa hafa einkum lagt grunninn að blómlegri byggð á Akureyri og gert Akureyri að einu traustasta bæjarfélagi á landinu, þar sem nú ríir bjartsýni og einhugur. #Framsóknarmmenn á Ak- ureyri vilja enn treysta þennan atvinnugrundvöll og tryggja afkomu hvers og eins, þannig að jöfn hagsæld almennings verði látin sitja í fyrirrúmi fyrir skjótfengnum auði. Atvinna handa öllum er mannréttindi og undirstaða menningarlífs og . framfara. Stöðugt verður að fylgjast með þróun atvinnulífsins og fylgja verður markvissri stefnu í atvinnumálum. Verk- efni ríkisvaldsins er að tryggja undirstöðuatvinnuvegunum eðlileg rekstrarskilyrði og tryggja stöðu þeirra gegn er- lendri samkeppni. #Framsóknarmenn á Akur- eyri telja mikilsvert að skyn- samleg stefna í lánveitingum verði látin vinna gegn verð- bólgu og koma í veg fyrir taumlausa eyðslu og rekstur óhagkvæmra fyrirtækja. en háir vextir verði ekki látnir magna verðbólgu með aukn- um tilkostnaði á framleiðslu undirstöðuatvinnuvega lands- • Framsóknarmenn á Akur- eyri vilja efla atvinnulýðræði svo að allt starfsfólk fyrirtækja geti haft áhrif á umhverfi sitt. aðbúnað og öryggi á vinnu- stað. Með auknu atvinnulýð- ræði er unnt að bæta afkomu fólks. auka velsæld þess í starfi og vinna að bættum skilningi á þörfum verkafólks og af- komu atvinnuveganna. • Framsóknarmenn á Akur- eyri vilja stefna markvisst að því að efla iðnaðinn í bænum, enda felst vaxtarbroddur at- vinnulífsins á Akureyri í hon- um. Iðnaðurinn hefur átt veigamikinn þátt í atvinnuör- yggi bæjarbúa og svo mun verða um ókomin ár. ®Framsóknarmenn á Akur- eyri vilja vinna að félagslegu réttlæti og jafnri skiptingu tekna og stuðla að því, að sér- hver einstaklingur fái notið sín í samfélagi við aðra menn. þar sem jafnrétti allra er virt. (Úr stefnuskrá framsóknar- mannat. 24166 23207 24167 Þegar snjóa leysii og frost fór úr Jörö f Kelduhverfi kom f IJós hve stórar og miklar sprungur hafa myndast í vetur. Hér má sjá Krlstján Jónsson, bónda f Hlíðargerði, en þessi sprunga sem hann stendur í myndaðist í túninu skammt frá íbúðarhúsinu. f veginn, skammt frá bænum, var u.þ.b. 15 metra djúp sprunga. Myndtáþ. Land sundursprungið í Kelduhverfi sprungur hættulegar yfirferðar f Kelduhverfi eru tún víða sundur skorin af gjám og smærri og stærri sprungum. Hefur þetta allt komið betur í Ijós er snjóa leysti og klaki fór að þiðna. Og enn bættist við sprungurnar um helgina, enda varð þá verulegra jarðskjálfta vart, einkum á Kópaskeri, þótt tjón yrði ekki þar. Talið er, að löng spilda frá norðri til suðurs, eða frá Öxarfirði og suður fyrir Kröflu, hafi gliðn- að um allt að tvo metra. En veru- legt landsig hefur einnig orðið í Kelduhverfi. Er nú rætt um nauðsyn á að girða af stórt svæði, vegna hættu í umferð manna og skepna um sprungusvæðið. Ekki sér í botn sumra gjánna, en vatn er i botni sumra. Allt veldur þetta bændum miklum örðugleikum í sauðburði. Þessi sveit hefur fengið nýja ásýnd og ber þar mest á stóru vatni í miðri sveit, þar sem áður voru sandar. Jarðskjálftarnir á Kópaskeri um hvítasunnu, áttu upptök sín þar skammt frá. Ragnar Stefáns- son, jarðskjálftafræðingur telur. að búast megi við fleiri jarðhrær- ingum næstu daga eða vikur. en vart muni draga til stórra tíðinda af þeirra völdum þar, heldur miklu fremur norður af Tjörnesi. Framsóknarfélag Akureyrar kynnir stefnu sína Gefur út vandað rit Stefnuskrá framsóknarmanna á Akureyri vegna bæjarstjórnar- kosninganna er nú að koma út í dálitlum bæklingi, sem borinn verður í hvert hús í bænum. Auk stefnuskrárinnar, eru í bæklingnum stuttar greinar eftir Sigurð Óla Brynjólfsson. bæjar- fulltrúa, Tryggva Gislason. skóla- meistara, Sigurð Jóhannesson. framkvæmdastjðra, Ingimar Eydal. kennara og Pétur Pálmason. verk- fræðing, sem eru efstu menn B-listans. Þá eru viðtöl við Þóru Hjalta- dóttur, húsmóður. Árna Bjarnason. stýrimann. Guðrúnu Albertsdótt- ur. bankastarfsmann. Ólaf Ás- geirsson, lögregluþjón og Þorleif Ananíasson, skrifstofumann. Enn- fremur er í ritinu ávarp Stefágs (Framhald á bls. 2). Frá lögreglunni Um hvítasunnuhelgina var mjög margt fólk á kvöldin í miðbænum, enda veður gott. Þar var allmikil ölvun og hafði lögreglan mikið að gera lengi nætur, við það að flytja ölvaða menn heim til sín og suma í „Stein- inn“. En slys urðu ekki og skemmdarverk voru ekki framin. Á föstudagskvöld hvarf kona frá Vistheimilinu Sól- borg. Var mikil leit hafin og fannst hún síðdegis á sunnudag ofan við byggð í Kræklingahlíð, heil á húfi en var flutt í sjúkrahús. Hjálparsveit skáta, Flug- björgunarsveit, flokkur úr Kivanisklúbbnum og margir fleiri tóku þátt í leitinni, ásamt lögreglunni og lögðu sig allir vel fram. sagði Gísli Ólafsson, yfir- lögregluþjónn. Helgi M. Bergs áfram bæjarstjóri? I umræðum þeim, sem nú standa yfir um bæjarstjórnar- mál, hefur það ekki komið fram, hvert bæjarstjóraefni frambjóð- enda er. Helgi M. Bergs bæjarstjórl, tók við embætti sínu á miðju kjörtímabili, í stað Bjarna Einar- ssonar. Framsóknarmenn beittu sér fyrir ráðningu þeirra beggja. Blaðið leitaði upplýsinga um þetta mál hjá efsta manni B-list- ans, Sigurði Óla Brynjólfssyni, en hann svaraði því á þessa leið: Afstaða okkar, framsóknar- manna til þessa máls er fyrir löngu mótuð. Við beittum okkur fyrir því, að Helgi M. Bergs var ráðinn bæj- Helgi M. Bergs. Sigurður Óll Brynjólfsson. arstjóri, þegar við urðum að sjá á bak Bjarna Einarssyni. Helgi hefur sýnt hæfni, dugnað og áhuga í starfi sínu og er okkar bæjarstjóraefni. Vænti ég þess. að aðrir flokkar styðjj hann einnig, því öll viðbrögð þeirra«ýna, að þeir bera einnig fullt traust-til hans. Störf bæjarstjóra eru ótrúlega margþætt. Hann er bæði fram- kvæmdastjóri bæjarstjórnarinnar og um leið forystumaður um ýmis mál. Honum hefur, ásamt starfsliði sínu tekist að halda fjarmálastöðu bæjarins góðri. Hann er mikill áhugamaðu’- um þær framkvæmd- ir, sem staðið er í og unnið að og (Framhald á bls. 2). B-listinn er listi Framsóknarflokksins

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.