Dagur - 18.05.1978, Blaðsíða 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
DAGUR
LX. Árg.
Akureyri, fimmtudaginn 18. maí 1978
29. tölublað
• Öflugt atvinnulíf (-í|am-
vinnumanna og félagsrékstur
bæjarbúa hafa einkum lagt
grunninn að blómlegri byggð
á Akureyri og gert Akureyri
að einu traustasta bæjarfélagi
á landinu, þar sem nú ríir
bjartsýni og einhugur.
#Framsóknarmmenn á Ak-
ureyri vilja enn treysta þennan
atvinnugrundvöll og tryggja
afkomu hvers og eins, þannig
að jöfn hagsæld almennings
verði látin sitja í fyrirrúmi
fyrir skjótfengnum auði.
Atvinna handa öllum er
mannréttindi og undirstaða
menningarlífs og . framfara.
Stöðugt verður að fylgjast
með þróun atvinnulífsins og
fylgja verður markvissri
stefnu í atvinnumálum. Verk-
efni ríkisvaldsins er að tryggja
undirstöðuatvinnuvegunum
eðlileg rekstrarskilyrði og
tryggja stöðu þeirra gegn er-
lendri samkeppni.
#Framsóknarmenn á Akur-
eyri telja mikilsvert að skyn-
samleg stefna í lánveitingum
verði látin vinna gegn verð-
bólgu og koma í veg fyrir
taumlausa eyðslu og rekstur
óhagkvæmra fyrirtækja. en
háir vextir verði ekki látnir
magna verðbólgu með aukn-
um tilkostnaði á framleiðslu
undirstöðuatvinnuvega lands-
• Framsóknarmenn á Akur-
eyri vilja efla atvinnulýðræði
svo að allt starfsfólk fyrirtækja
geti haft áhrif á umhverfi sitt.
aðbúnað og öryggi á vinnu-
stað. Með auknu atvinnulýð-
ræði er unnt að bæta afkomu
fólks. auka velsæld þess í starfi
og vinna að bættum skilningi
á þörfum verkafólks og af-
komu atvinnuveganna.
• Framsóknarmenn á Akur-
eyri vilja stefna markvisst að
því að efla iðnaðinn í bænum,
enda felst vaxtarbroddur at-
vinnulífsins á Akureyri í hon-
um. Iðnaðurinn hefur átt
veigamikinn þátt í atvinnuör-
yggi bæjarbúa og svo mun
verða um ókomin ár.
®Framsóknarmenn á Akur-
eyri vilja vinna að félagslegu
réttlæti og jafnri skiptingu
tekna og stuðla að því, að sér-
hver einstaklingur fái notið
sín í samfélagi við aðra menn.
þar sem jafnrétti allra er virt.
(Úr stefnuskrá framsóknar-
mannat.
24166
23207
24167
Þegar snjóa leysii og frost fór úr Jörö f Kelduhverfi kom f IJós hve stórar og miklar sprungur hafa
myndast í vetur. Hér má sjá Krlstján Jónsson, bónda f Hlíðargerði, en þessi sprunga sem hann
stendur í myndaðist í túninu skammt frá íbúðarhúsinu. f veginn, skammt frá bænum, var u.þ.b. 15
metra djúp sprunga. Myndtáþ.
Land sundursprungið í
Kelduhverfi
sprungur hættulegar yfirferðar
f Kelduhverfi eru tún víða
sundur skorin af gjám og
smærri og stærri sprungum.
Hefur þetta allt komið betur í
Ijós er snjóa leysti og klaki fór
að þiðna. Og enn bættist við
sprungurnar um helgina, enda
varð þá verulegra jarðskjálfta
vart, einkum á Kópaskeri, þótt
tjón yrði ekki þar.
Talið er, að löng spilda frá
norðri til suðurs, eða frá Öxarfirði
og suður fyrir Kröflu, hafi gliðn-
að um allt að tvo metra. En veru-
legt landsig hefur einnig orðið í
Kelduhverfi.
Er nú rætt um nauðsyn á að
girða af stórt svæði, vegna hættu í
umferð manna og skepna um
sprungusvæðið. Ekki sér í botn
sumra gjánna, en vatn er i botni
sumra. Allt veldur þetta bændum
miklum örðugleikum í sauðburði.
Þessi sveit hefur fengið nýja
ásýnd og ber þar mest á stóru
vatni í miðri sveit, þar sem áður
voru sandar.
Jarðskjálftarnir á Kópaskeri
um hvítasunnu, áttu upptök sín
þar skammt frá. Ragnar Stefáns-
son, jarðskjálftafræðingur telur.
að búast megi við fleiri jarðhrær-
ingum næstu daga eða vikur. en
vart muni draga til stórra tíðinda
af þeirra völdum þar, heldur
miklu fremur norður af Tjörnesi.
Framsóknarfélag
Akureyrar kynnir
stefnu sína
Gefur út vandað rit
Stefnuskrá framsóknarmanna á
Akureyri vegna bæjarstjórnar-
kosninganna er nú að koma út í
dálitlum bæklingi, sem borinn
verður í hvert hús í bænum.
Auk stefnuskrárinnar, eru í
bæklingnum stuttar greinar eftir
Sigurð Óla Brynjólfsson. bæjar-
fulltrúa, Tryggva Gislason. skóla-
meistara, Sigurð Jóhannesson.
framkvæmdastjðra, Ingimar Eydal.
kennara og Pétur Pálmason. verk-
fræðing, sem eru efstu menn
B-listans.
Þá eru viðtöl við Þóru Hjalta-
dóttur, húsmóður. Árna Bjarnason.
stýrimann. Guðrúnu Albertsdótt-
ur. bankastarfsmann. Ólaf Ás-
geirsson, lögregluþjón og Þorleif
Ananíasson, skrifstofumann. Enn-
fremur er í ritinu ávarp Stefágs
(Framhald á bls. 2).
Frá lögreglunni
Um hvítasunnuhelgina
var mjög margt fólk á
kvöldin í miðbænum,
enda veður gott. Þar var
allmikil ölvun og hafði
lögreglan mikið að gera
lengi nætur, við það að
flytja ölvaða menn heim
til sín og suma í „Stein-
inn“. En slys urðu ekki
og skemmdarverk voru
ekki framin.
Á föstudagskvöld hvarf
kona frá Vistheimilinu Sól-
borg. Var mikil leit hafin og
fannst hún síðdegis á
sunnudag ofan við byggð í
Kræklingahlíð, heil á húfi
en var flutt í sjúkrahús.
Hjálparsveit skáta, Flug-
björgunarsveit, flokkur úr
Kivanisklúbbnum og
margir fleiri tóku þátt í
leitinni, ásamt lögreglunni
og lögðu sig allir vel fram.
sagði Gísli Ólafsson, yfir-
lögregluþjónn.
Helgi M. Bergs áfram bæjarstjóri?
I umræðum þeim, sem nú
standa yfir um bæjarstjórnar-
mál, hefur það ekki komið fram,
hvert bæjarstjóraefni frambjóð-
enda er.
Helgi M. Bergs bæjarstjórl,
tók við embætti sínu á miðju
kjörtímabili, í stað Bjarna Einar-
ssonar. Framsóknarmenn beittu
sér fyrir ráðningu þeirra beggja.
Blaðið leitaði upplýsinga um
þetta mál hjá efsta manni B-list-
ans, Sigurði Óla Brynjólfssyni,
en hann svaraði því á þessa leið:
Afstaða okkar, framsóknar-
manna til þessa máls er fyrir löngu
mótuð. Við beittum okkur fyrir því,
að Helgi M. Bergs var ráðinn bæj-
Helgi M. Bergs.
Sigurður Óll Brynjólfsson.
arstjóri, þegar við urðum að sjá á
bak Bjarna Einarssyni. Helgi hefur
sýnt hæfni, dugnað og áhuga í starfi
sínu og er okkar bæjarstjóraefni.
Vænti ég þess. að aðrir flokkar
styðjj hann einnig, því öll viðbrögð
þeirra«ýna, að þeir bera einnig fullt
traust-til hans.
Störf bæjarstjóra eru ótrúlega
margþætt. Hann er bæði fram-
kvæmdastjóri bæjarstjórnarinnar
og um leið forystumaður um ýmis
mál. Honum hefur, ásamt starfsliði
sínu tekist að halda fjarmálastöðu
bæjarins góðri. Hann er mikill
áhugamaðu’- um þær framkvæmd-
ir, sem staðið er í og unnið að og
(Framhald á bls. 2).
B-listinn er listi Framsóknarflokksins