Dagur - 18.05.1978, Side 4
Útgefandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
Skrifstofur Tryggvabraut 12, Akureyri
Ritstjórnarsímar: 24166 og 23207
Sími auglýsinga og afgreiöslu: 24167
Ritstjóri (ábm.): ERLINGUR DAVÍÐSSON
Blaöamaður: ÁSKELL ÞÓRISSON
Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf.
Sérstætt
bæjarsamfélag
Minni þrætur eru um bæjarstjórn-
armái á Akureyri en í flestum
öðrum kaupstöðum landsins, og
er hér þó nægur blaðakostur til
skoðanaskipta og opinberra átaka
um málefni bæjarfélagsins. Þetta
er staðreynd, sem deiluglöðum
stjórnmáladrengjum er ekki að
skapi, né heldur þeim, sem þá lík-
ar lífið best, er hæst er reitt til
höggsins hverju sinni En því er
ekki að leyna, að hin hljóðláta
stjórnun, sem daglega vekur svo
litla eftirtekt, deyfir umræður al-
mennings um bæjarmál yfirleitt og
það svo, að algengt er að heyra
menn segja sem svo, að það sé nú
nokkuð sama hvað kosið sé.
En verður ekki að gera kröfu til
þess, að bæjarbúar fylgist með
bæjarmálefnum, eins og þær
koma fram í sannorðum fréttum
og viðræðum, og eins og þau
koma mönnum fyrir sjónir? Verður
ekki að gera þær kröfur til sæmi-
lega upplýstra karla og kvenna á
Akureyri, að ekki þurfi að benda á
staðreyndir, sem við augum blasa
og fólk hefur notið á undanförnum
árum, til þess að það trúi?
Akureyri hefur verið einn eftir-
sóttasti kaupstaður landsins til
búsetu síðustu árin. Þetta eru svo
mikil umskipti frá fyrri kyrrstöðu-
tíma, að hver og einn hlýtur að
leggja þá spurningu fyrir sjálfan
sig, hvernig á þessari breytingu
standi. Þeir, sem ekki finna svarið
í atvinnuöryggi síðustu ára, allri
uppbyggingunni í bænum, í aukn-
um stuðningi við íþrótta-, uppeld-
is- og menningarmál, hljóta að
lenda á bekk með seinþroska og
dálítið skrítnu fólki. Sannleikurinn
er sá, að hin mikla framkvæmda-
og félagsmálastefna, sem fylgt
hefur verið í bæjarmálum mörg
undanfarin ár, þjónar flestum
þeim markmiðum, sem almenn-
ingur væntir sér af góðu bæjarfé-
lagi. Forystu í þeim málum hafa
framsóknarmenn haft. Hinn eftir-
sótti bær okkar, Akureyri, er með
sterku svipmóti félagshyggju,
samvinnu og framfara og ekki
undarlegt. Þeir menn, sem vilja
tryggja svipaða stefnu eftirleiðis,
velja á milli þessa forystuflokks í
bæjarmálum og hinna flokkanna
og það gera þeir á kjördegi.
En sú afstaða að leggja kollhúf-
ur og hugsa sem svo, að bæjarmál
komi sér ekki við, er fyrir neðan
virðingu fullorðinna og ekki
sómasamleg afstaða fólks í hinum
fagra bæ okkar a.m.k. ekki hjá
framfarasinnuðu og bjartsýnu
fólki.
Þolir þorskstofninn við
ísland verr ágang en
þorskur í Norðursjó?
Ræða Ingvars Gíslasonar alþm. á fundi fulltrúaþings
Evrópuráðs
Herra forseti.
Umræður um þetta mál hafa verið
hófsamlegar, og ætla ég ekki að
breyta til í því efni. Hinu get ég ekki
neitað að ég er mjög sammála því,
sem kom fram í ræðu fulltrúa
skoska Þjóðræknisflokksins,
George Reid. Það er augljóst, að
Evrópulönd hafa yfirleitt verið sein
á sér að viðurkenna þá stefnu, sem
styðst við nútímahugsun, að hverju
strandríki sé nauðsyn að eiga sér
rúma fiskveiðilögsögu. Þó er sann-
ast sagna að hugsunarháttur ný-
lendustefnunnar er á undanhaldi í
Evrópu. Ég skil til fullnustu stefnu
Reids og flokks hans, sem miðar að
því að krefjast 50 mílna fiskveiði-
lögsögu handa Skotlandi ogskosku
eyjunum. Og ég er innilega sam-
mála honum um það, að ríkisstjórn
Bretaveldis í London hefur ekki
ævinlega farið skynsamlega að ráði
sínu í þessum efnum. Ég er einnig
afar þakklátur fyrir þann velvilja
sem víða kom fram meðal Skota,
þegar íslendingar deildu sem ákaf-
ast við bresku stjórnina í London.
En deilan við Breta er afstaðin. Við
íslendingar horfum vongóðir til
framtíðarinnar, og lítum ekki reiðir
um öxl.
En svo að ég snú mér að
skýrslunni, sem hér er til umræðui,
þá vil ég gjarnan þakka framsögu-
manni nefndarinnar ágæt störf.
Skýrslan geymir miklar almennar
upplýsingar um ástand lífsins í
sjónum, og ég er ekki í vafa um að í
henni felst hollur boðskapur til
allra, sem láta sig fiskveiðar nokkru
varða.
Eigi að síður hlýt ég sem eyjabúi
nyrst í Atlantshafi að sakna þess
hversu fátt er sagt um ástand fisk-
stofna við ísland, Færeyjar og
Noreg. Ég skal þó gera þá játningu
að þessi ágalli skýrslunnar er að
nokkru afleiðing af því að ég var
ekki viðstaddur allan undirbúning
hennar og má því sjálfum mér um
kenna.
Framsögumaður þræðir skyn-
samlega veginn milli bjartsýni og
svartsýni. Honum er ljóst eins og
okkur öllum, að höfin eru ekki ó-
tæmandi. Það er mæta vel hægt að
útrýma sjávarlífi með rányrkju og
mengun. Þannig er hin dökka hlið á
málinu.
En það er einnig önnur hlið á
málinu: Bjarta hliðin.
Bjartsýnin segir okkur að það sé
jafn auðvelt að nytja sjávarfangið á
skynsamlegan hátt, án allrar rán-
yrkju.
Þessi skýrsla greinir frá ýmsum
staðreyndum um rányrkju sjávar.
Við erum upplýstir um það, hvern-
ig síldarstofninn í Atlantshafi var
næstum því gereytt, svo og
Norðursjávarsíldinni. Og ætli það
mætti ekki bæta Ermasundssíld-
inni við þessa upptalningu?
En skýrslan hefur einnig að
geyma upplýsingar um heilbrigt á-
stand margra mikilvægra fiskstofna
á tilteknum fiskimiðum. Má þar til
nefna botnfiska í Norðursjó, s.s.
þorsk og ýsu, sem eru meðal vin-
sælustu matfiska í mörgum lönd-
um. En það gefur mér aftur tæki-
færi til þess að minna vini mína í
Bretlandi og öðrum löndum, sem
liggja að Norðursjó, á það að lík-
lega eru fiskimiðin í Norðursjó hin
allra bestu í heimi. Þau eru gjöfulli
og þolnari gegn rányrkju en miðin
við Noreg, ísland og Færeyjar.
Hið góða ástand þorsk og ýsu- Vegna takmörkunar á ræðutíma
stofnsins í Norðursjó, er gerólíkt verð ég nú að láta staðar numið.
því sem er á íslandsmiðum að því En ég vil í lokin minnast á
er tekur til þessara fisktegunda. Á- breytingartillögur, sem fram hafa
stand íslenska þorskstofnsins er al- komið við ályktunaruppkast land-
Ingvar Gíslason alþm. í forsetastól á þlngl Evrópuráðs.
varlegt, og hið sama er að segja um
ýsustofninn, svo og ufsannn og
karfann við fsland.
Heildarstærð þorskstofnsins við
íslands hefur minnkað úr 2.6 mill-
jón lestum I955 í I.2 milljón lesta
árið 1978. Þess vegna var og er
nauðsynlegt að draga úr sókn á
þorskstofninn við fsland. fslenska
ríkisstjórnin hefur af þessum sök-
um sett ýmsar reglur um takmörk-
un þorskveiða m.a. með svæðalok-
un, tímabundnu þorskveiðibanni
og öðrum aflatakmörkunum. Al-
gert bann við þorskveiði var í gildi
um vikuskeið á háhrygningartíma
þorsks nú í vetur.
búnaðar- og sjávarútvegsnefndar.
Ég er sammála þeirri gagnrýni
sem uppi hefur verið höfð að
„heildaraflamagn" er oft mjög
villandi tala. Hún segir ekkert um
það, hvernig ástand einstakra fisk-
stofna kann að vera í smáatriðum.
Hinsvegar felst ég ekki á þá breyt-
ingartillögu, að nauðsynlegt sé að
fella niður með öllu 6. gr.
ályktunaruppkastsins. Ég held að
auðvelt sé að lagfæra orðalagið. Ég
flyt því breytingartillögu við 6. gr. á
sérstöku þingskjali. Þar sem þessi
breytingartillaga min hefur stuðn-
ing nefndarinnar, vona ég að hún
verði samþykkt.
Gylfi Þórhallsson:
f|SKÁK
Friðrik Ólafsson, stórmeistari, kom
til Akureyrar miðvikudaginn 12.
apríl og sama dag tefldi hann fjöl-
tefli á 30 borðum við nemendur og
kennara í Menntaskóla Akureyrar.
Hann vann 27 skákir og gerði þrjú
jafntefli. Daginn eftir tefldi hann
við 42 skákmenn úr Skákfélagi
Akureyrar. Úrslit urðu þau að hann
vann 27 skákir og gerði 15 jafntefli.
Á föstudag tefldi hann klukkufjöl-
tefli á 13 borðum, hann vann 10
skákir og gerði jafntefli við þá Atla
Benediktsson Davíð Haraldsson og
Harald Ólafsson.
Minningarmót um Júlíus Boga-
son er nýlega lokið. Bifreiðastöðin
Stefnir gaf veglegan bikar til þessa
móts, en ætlunin er að halda árlega
minningarmót um Júlíus. Þetta var
annað í röðinni en í fyrra sigraði
Halldór Jónsson.
I ár sigraði stórefnilegur ungl-
ingur Jón Árni Jónsson, en hann
hlaut 5 vinninga af 7. Var þetta
mjög óvæntur sigur en verðskuld-
aður. I sjöttu og næstsíðustu um-
ferð tefldi hann við Jón Björgvins-
son var þetta eiginlega úrslita
skákin í mótinu. Jón Árni vann
skákina, þurfti hann nú ekki nema
1 /2 vinning til þess að verða efstur.
í öðru til fimmta sæti voru þeir Jón
Björgvinsson, Margeir Steingríms-
son, Jóhann Snorrason og Marinó
Tryggvason með 4 1/2 v. í sjötta og
sjöunda sæti voru þeir Haraldur
Ólafsson og Hreinn Hrafnsson með
4 v.
Jón Árni og Hreinn Hrafnsson
voru þeir einu af keppendunum
sem töpuðu ekki skák. Keppendur
voru fjórtán, og voru tefldar 7 umf.
eftir Nonrad kerfi.
I unglingaflokki er keppni ný-
lokið, en þar voru 15 keppendur.
Röð efstu manna:
1. Pálmi Pétursson 13 v. (af 14.
mögulegum), 2. Bogi Eymundsson
12 1/2 v., 3. Ragnar Ragnarsson 12
v., 4. Aðalsteinn Sigurðsson 11 v., 5.
Jakob Kristjánsson 10 v.
„Aflt vaknar til lífsins á
vorin“
Nú fer að vora vonum við, og segir
ekki í einum góðum dægurlaga-
texta — „allt vaknar til lífsins á
vorin."
Ég var gangandi á ferð um Ak-
ureyrarbæ hér um daginn. Veður
var milt og ég fann til einhvers sem
bærðist innra með mér Það var til-
hlökkum og gleði yfir því að senn
tæki að vora. Ég leit í kring um mig
og á trén í görðunum, sem mikið er
af á Akureyri. Brum þeirra var
þrútið og bústið, albúið að opna sig
mót komandi sumri. Ég fann til
samkenndar með þessum trjám,
sem biðu vors í von og trú á lífið.
En hvern hug bera böm nútím-
ans yfirleitt til náttúruniiar, eða
hugsa þau aldrei til hennar? í trjá-
lundi í lægð nálægt Bjarmastíg,
kom ég auga á nokkra stálpaða
stráka, vera að slíta og snúa greinar
af trjánum. Bað ég þá að hætta
þessu. Þeir voru tregir til og þótti ég
víst lítinn rétt hafa til að banna
þeim þetta, og e.t.v. var það svo.
Þessar athafnir þeirra hafa ekki
endilega stafað af skemmdarfýsn
eða slíku. Það er bara skilnings- og
virðingarleysi, leyfi ég mér að
segja, fyrir því sem vex og dafnar í
gróðurríkinu, mörgum til ánægju
og augnayndis, burt séð frá öllu
hagnýtu gildi.
Ég vil því beina þeirri einlægu
ósk minni, til uppalenda barna og
unglinga að þeir reyni að glæða
skilning þeirra og samkennd með
móður náttúru.
G. Þ.
með okkur á marga vegu. Þjóðfélag
okkar vantar sárlega vinnukraft á
markaðinn og þar sem við erum sá
vinnukraftur, sem atvinnuvegirnir
þurfa á að halda, leiðir það af sjálfu
sér, að við leysum þennan vanda og
verðum um leið sjálfstæðari í fjöl-
skyldunni og í þjóðfélaginu en áður
og þurfum kannski ekki að biðja
eiginmanninn um hvern eyri, eins
og áður var.
Éf sá nýlega í Degi grein eftir
konu úr Hlíðarhverfi, þar sem hún
talar um verslunarþjónustu KEA í
bænum og mjög réttilega. Styð ég
hinnar mál og tala af reynslunni í
mínu hverfi, þar sem samvinnufél-
agið veitir góða þjónustu. En erindi
mitt með þessari grein, að þessum
inngangi slepptum, var að minnast
á framboð stjómmálaflokkanna
hér á Akureyri og bæjarmálin. Það
eina framboð, sem athygli vekur, er
listi framsóknarmanna. Þar koma
nýir menn fram á sjónarsviðið,
menn eins og Tryggvi Gíslason,
skólameistari og Jóhannes Sig-
valdason, framúrskarandi menn,
hvor á sínu sviði. Ekki geta nú
framsóknarmenn gert sig ánægða
með minna en fjóra fulltrúa í bæj-
arstjórn eftir kosningarnar í vor.
Hinir tveir yrðu þá Sigurður Óli
Brynjólfsson og Sigurður Jóhann-
esson, og þarf ekki að kynna þá
sérstaklega fyrir bæjarbúum, en
hinir þurfa kynningar við, enda
munu þeir vaxa af því.
Ég get vel fallist á það sjónarmið,
sem Dagur hefur verið að lýsa, að
það er orðinn mikill munur á bæn-
um á síðustu árum, og það hefur
orðið undir forystu framsóknar-
manna, nú með góðum stuðningi
vinstri flokkanna, sem samanlagt
hafa meirihlutann og stjórna ferð-
inni. Um leið má minna á, að það
er ekki sama hver bæjarstjórinn er.
Við áttum ágætan bæjarstjóra, þar
sem Bjami Einarsson var og nú
höfum við Helga M. Bergs og von-
andi verður hann áfram bæjar-
stjóri.
Ekki ætla ég að fara að tala illa
um íhaldið í bænum. Allir þekkja
það og einu sinni var sagt, að allt
væri betra en íhaldið og það er nú
von, því íhaldsmenn, sem kalla sig
sjálfstæðismenn í seinni tíð, eru í
álögum. Það fer aldrei vel að láta
þá stjórna fyrir sig málum, sem svo
illum álögum eru háðir, að allt
visnar og deyr í höndunum á þeim,
eins og var hérna í bænum á
íhaldsárunum, þegar atvinnuleysið
var mest og bæjarfélagið lét sig svo
óteljandi margt nauðsynlegt, engu
skipta. Þannig stjórn vill enginn fá
yfir sig á nýjan leik.
En svo ég víki aftur að upphafinu
á þessari grein, er það mun skyn-
samlegra að við, konur, tökum í
enn ríkara mæli þátt í framleiðslu-
störfunum, eftir því sem atvinnu-
vegimir þurfa. Ætti það að vera
ljóst, að það er þjóðhagslega sjálf-
sagt mál í stað þess til dæmis að
flytja inn þúsund konur í frystihús-
in frá útlöndum. En þá minni ég
háttvirta frambjóðendur til bæjar-
stjómarkosninga á það, og þá, sem
enn ráða málum eram að kosning-
urrt, að við þurfum enn mjög bætta,
og ekki síst aukna aðstöðu fyrir
börnin okkar svo við getum tekið
enn meiri þátt í atvinnu utan
heimilis en við gerum.
Húsmóðir á Ytri-brekkunni.
Allt miðar í rétta átt
Á síðustu og raunar bestu árum
kvennanna verður mér oft til þess
hugsað, í hve miklu karlasamfélagi
við búum þó enn í dag, þrátt fyrir
allt jafnréttið, sem á borðinu liggur
samkvæmt lögum landsins, þrátt
fyrir allar fagrar yfirlýsingar, svo
ekki séu nefnd smjaðuryrði karl-
manna um launajafnrétti og annað
réttlæti og síðast en ekki síst baráttu
okkar sjálfra í jafnréttismálum. En
allt er þetta að breytast í rétta átt.
En þrátt fyrir karlasamfélagið
sem enn er ráðandi, vinna tímarnir
Skákin í dag var tefld í sfðustu
umf. á Skákþingi Norðurlands.
Hvítt. Brynjar Sigtryggsson
Húsav.
Svart. Jón Torfason Húnavatnss.
Nimzo-Indversk vörn.
1. d4 — Rf6
2. c4 — e6
3. Rc3 — Bb4
4. Dc2 — 0-0
5. a3 — Bxc3
6. Dxc3 — d6
7. g3 — Bd7
8. Bg2 — Bc6
9. Bxc6 — Rxc6
10. Rf3 — d5
11. c5 — Re4
12. Dd3 — a5
13. Rd2 — a4
(Svartur kemur með heldur betri
stöðu út úr byrjuninni. Nú væri 14.
Rxe4 — dxe 15. Dxe4 — Dxd4
svörtum í hag.).
14. 0-0 —Ra5
Framhald á bls. 2).
Orðog
Bók með þessu nafni eftir Pál
Hallbjörnsson er nýkomin á bóka-
markað, og er þetta sjöunda bók
höfundar. Bók þessi er all nýstár-
leg. Yfirskriftin gefur nokkuð til
kynna um efnisval: Guð í hjarta,
guð í stafni gefur fararheill. Bókin
er tileinkuð íslenzkri æsku.
Páll Hallbjörnsson er meðhjálp-
ari Hallgrímskirkju í Reykjavík. í
formála bókarinnar ritar hann:
„Þegar ég nú sendi frá mér þessa
bók, sem einkum eru hugleiðingar
og bænir, er fjalla um andlega
auðugt líf, er ekki ósennilegt, að
hún þyki nokkuð sérstæð meðal ís-
lenzkra bóka, er út koma nú á
dögum, þar sem ólærður leikmaður
talar aðallega út frá eigin reynslu, í
bænum og viðtölum við sinn
himneska föður um veginn og hvað
sé mannlegu lífi mesta hamingja.“
Bókin er í þremur meginþáttum:
Viðtöl við höfund lífsins, hugleið-
ingar um mannlífið og bænir. Efnið
skiptist allt í örstutta kafla og letrið
er stórt og auðlesið. Bókin er rituð
bæði í bundnu og óbundnu máli og
vitnar höfundur oft í ljóð og bæna-
vers skálda að fornu og nýju.—
Bókin er fyrst og frenst persónu-
leg trúarreynsla höfundar. Og hann
leiðir skýrt í ljós hve mikils má sín
einlægt traust til Guðs og sterk
löngun til að feta í fótspor Frelsar-
ans. Höfundur teflir fram reynslu
sinni á skákborði lífsins og sýnir
þar sigurmátt kristindóms í hugsun,
orði og verki. Það er hinn rauði
þráður, sem gengur í gegnum alla
bókina.
Bókin er hverjum manni hollt
lesefni í þeirri viðleitni að byggja
upp sinn innri hugarheim og brynja
hann gegn aðsteðjandi vandamál-
um. í þeim heimi, sem við lifum er
fátt eitt sem byggir manninn upp
andlega og siðferðislega, en aftur á
móti margt, sem rífur manninn
ákall
niður og tætir hann í sundur. — Þar
af leiðandi leggur margur flakandi
í sárum við veginn án þess að um
hann sé hirt, þrátt fyrir alla
„menninguna'* og tækni nútímans.
Orð og ákall er eins og mótvægi
gegn þessu öfugstreymi. Bókin
réttir á hverri blaðsíðu lesandanum
gullkorn af þeim dýrmætasta fjár-
sjóði, sem til er í veröldinni, hvern-
ig hægt er að bregðast jákvætt við
því, sem að höndum ber.
Eg vil taka undir ummæli bisk-
upsins herra Sigurbjörns Einars-
sonar, er hann ritar um bókina:
„Það mun reynast heilnæmt hverj-
um manni að slást í för með höf-
undi í þeim hugleiðingum hans
sem hér eru á blöð komnar og
fylgja honum inn í þann helgidóm
bænar og tilbeiðslu, sem andi orða
hans er vígður."
Ein af hugleiðingum Páls hljóðar
svo:
Flestum veitist erfitt að breyta
lífshorfum sínum og siðvenjum. En
Jesús sagði: Allt getur sá, sem trúna
hefur. Þessi orð Frelsarans eru
raunhæf og sannleikurinn sjálfur.
Ef við mennirnir trúum og treyst-
um á Drottin Jesúm, eru okkur allir
vegir færir. öll störf getum við
unnið með hann í huga og sem
stöðugt leiðarljós, því hann er
sannleikurinn og lífið.
Hafi maður ekki gengið á Guðs
vegi, er ekkert hér í heimi eins
nauðsynlegt og að breyta til — taka
nýja lífsstefnu þar sem Guð er
leiðtogi allra athafna og starfa.
Þetta kann mörgum að reynast erf-
itt, en það er vissulega hið eina rétta
og örugglega það besta, sem gert
er.“ Páll Hallbjörnsson á miklar
þakkir skilið fyrir að hafa skrifað
þessa bók.
Pétur Sigurgeirsson.
Jóhannes Atlason leiðbeinir KA-mönnum. Mynd: Ó.Á.
Knattspyrnumenn æfa
Æfingar allra flokka í knatt-
spyrnu eru nú að hefjast. Fél-
ögin hafa ráðið þjálfara þannig,
að allir ættu að geta fengið til-
sögn í íþróttinni. Æfingar hjá
Þór fara fram á íþróttavelli fél-
agsins í Glerárþorpi, að undan-
skyldum þeim æfingum hjá
meistaraflokki sem verða á
grasvellinum. Hjá KA fara
æfingarnar fram annað hvort á
malarvellinum við Lundarskóla
eða á grasvellinum við
Menntaskólann, en þann völl
hafa KA MENN TEKIÐ Á
LEIGU. Þá verða einnig ein-
hverjar æfingar hjá meistara-
flokki á grasvellinum við Gler-
árgötu.
í þessu blaði er birt æfingar-
tafla KA, en æfingartafla Þórs
verður birt í næsta blaði. Stjórn
knattspyrnudeildar KA skipa.
Örlygur tvarsson, Stefán
Gunnlaugsson, Siguróli Sig-
urðsson. Guðmundur Björns-
son. Eiður Eiðsson. Þormóður
Einarsson og Ólafur Ásgeirsson
Þórsarar sóttu tvö stig
til Sandgerðis
Þór lék sinn fyrsta leik í
annari deild 'a þessu vori
suður í Sandgerði gegn
Reyni. Leikið var í blíð-
skapaveðri en völlurinn var
blautur og . þungur. Lið
Reynis er skipað ungum og
efnilegum leikmönnum, en
flestir gengu upp úr öðrum
flokki í fyrra en þá urðu þeir
íslandsmeistarar í þeim
flokki.
Fyrri hálfleikur liðanna var
marklaus og leikurinn þóf-
kenndur. Þórsarar áttu fleiri
tækifæri, en Reynismenn réðu
spilinu sérstaklega á miðj-
unni. Sigþór Ómarsson sem
lék nú með Þór í fyrsta sinn á
þessu vori, komst einn innfyrir
vörn Reynismanna seint í síð-
ari hálfleik. Reynismenn tóku
þann kostinn að fella Sigþór
og dómarinn dæmdi umsvifa-
laust víti.
Sigurður Lárusson skoraði
örugglega úr vítaspyrnunni og
tryggði Þórsurum sigur í þess-
um leik. Aðeins nokkrum
sekúntum fyrir leikslok komst
Jón Lárusson í dauðafæri en
markmaður Reynis bjargaði í
horn á síðustu stundu.
Úrslit leiksins urðu því þau
að Þór sigraði með einu marki
gegn engu. Árni Gunnarsson
fékk að sjá rauða spjaldið hjá
dómara leiksins, og fær því
leikbann í næsta leik liðsins.
Ekki voru allir sáttir við það
að Árni fengi svo strangan
dóm. og töldu menn brotið
hafa verið smávægilegt. Það
þýðir hins vegar ekki að deila
við dómarann. og það vita
leikmenn best sjálfir.
Jafntefli hjá
leik í fyrstu
Meistaraflokkur KA í knatt-
spyrnu lék sinn fyrsta leik í
fyrstu deild á Kópavogsvelli
s.l. laugardag.
Lesa mátti það í spádóm-
um sunnanblaðanna fyrir
helgina að þetta yrði auð-
unninn leikur fyrir Breiða-
bblik. Þeir hófu fíka leikinn á
fullum krafti, og til að byrja
með opnaðist vörn KA nokk-
uð illa, en Þorbergur mark-
maður var á réttum stað og
afstýrði frekari hættu.
Á 35 mín. átti Óskar gott skot
að marki Blikanna, en mark-
manni tókst að verja á síðustu
stundu. Aðeins þremur mín.
síðar átti Donni hörkuskot sem
markmaður réði ekki við og
skoraði hann því fyrsta mark
íslandsmótsins í ár svo og fyrsta
mark KA í fyrstu deild. Blik-
arnir voru ekki á því að gefa
sinn hlut og rétt fyrir lok fyrri
hálfleiks jöfnuðu þeir og þannig
KA í fyrsta
deild
var staðan í hálfleik. Þeir gerðu
síðan fyrsta mark síðari hálf-
leiks, strax í byrjun hans, en
Sigurbjörn Gunnarsson jafnaði
úr vítaspyrnu skömmu síðar.
Það sem eftir var leiksins sóttu
KA menn mun meir. og voru
óheppnir að gera ekki fleiri
mörk.
Úrslit leiksins urðu því jafn-
tefli, 2 mörk gegn 2.
Úrslitin verða að teljast
sanngjörn, því þótt KA hafi átl
meira í síðari hálfleik, voru
Blikarnir frískari í þeim fyrri.
Jóhann Jakobsson var bestur
KA manna og sýndi oft á tíðum
snilldartakta, en flestir leik-
menn áttu góðan dag.
og gefa þeir allar frekari upp-
lýsingar um deildina.
Æfingartafla KA.
Meistara og fyrsti flokkur. Æf
ingar eftir ákvörðun þjálfara
Jóhannesar Atlasonar.
2 fl. Þriðjudaga og fimmtudaga
kl. 20.30, þjálfari Gunnar
Gunnarsson.
3 fl. þriðjudaga og fimmtudaga
kl. 19.30. þjálfari Rafn Bene-
diktsson.
4 fl. Mánudaga og miðvikudaga
kl. 20.00. þjálfari Einar Pálmi
Árnason.
5 fl. þriðjudaga og fimmtudaga
kl. 16.00, þjálfarar Jóhannes
Atlason og Eyjólfur Ágústsson.
6 fl. þriðjudaga og fimmtudag;
kl. 14.00, þjálfari Jóhannes
Atlason.
Kvennaflokkur. Mánudaga og
miðvikudaga kl. 18.00. þjálfari
Guðmundur Lárusson.
Akureyrar
mót
í badminton
Um síðustu helgi var haldið í
iþróttahúsinu i Glerárhverfi
Akureyrarmót í badminton
Keppendur voru 22 og sá
Tennis og badmintonfélag Ak-
ureyrar um mótið.
í einliðaleik karla sigraði
Kári Árnason, en hann lék til
útslita við Andrés Magnússon
Kári ásamt Gísla Bjarnarsyni
sigraði einnig í tvíliðaleik karla
en þeir sigruðu í úrslitaleiknum
Kristinn Jónsson og Andrés
Magnússon.
I tvenndarkeppni sigruðu
hjónin Ásdís Þorvaldsdóttir og
Kári Árnason. en þau sigruðu
Bryndísi Þorvaldsdóttur og Ör-
lyg ívarsson í úrslitaleik. í flokk
drengja 14-16 ára sigraði í ein-
liðaleik Steinar Sveinsson eftir
úrslitaleik við Grétar Örlygs-
son. í tvíliðaleik i sama flokk
sigruðu Steinar og Jón Rafn
Pétursson, eftir úrslitaleik við
Grétar Örlygsson og Ómar Ör-
lygsson.
í flokki 12-14 ára sigraði
einliðaleik Ómar Pétursson, en
hann vann Sigurð Ólafsson
Ámi Gíslason sigraði Jón Stef-
ánsson í flokki yngri en 12 ára
einliðaleik, og í tviliðaleik sama
aldursflokks sigruðu Árni
Gíslason og Fjölnir Guðm
undsson þá Þorvald örlygsson
og Jón Stefánsson. Allir sigur-
vegarar hver í sínum flokki telj-
ast Akureyrarmeistarar.
4. DAGUR
DAGUR.5