Dagur - 02.06.1978, Síða 7

Dagur - 02.06.1978, Síða 7
 # Höfum ávalt fyrirliggjandi túnþökur # Skerum þökur ef óskað er 9 Verð kr. 25 pr. fermeter 0 Flytjum heim til kaupenda Upplýsingar í símum 23947 og 24927 Arður til hluthafa Á aðalfundi H.f. Eimskipafélags íslands 18, maí 1978 var samþykkt að greiða 10% - tíu af hundraði í arð til hluthafa fyrir árið 1977 H.F. Eimskipafélag íslands. Húsnæði óskast Sumaráætl. innanlandsflugs Ung hjón úr Reykjavík óska eftir 2-3ja herb. íbúð frá og með 1. sept. eða fyrr. Reglusemi, góð umgengni og fyrirframgreiðsla ef óskað er. Sumaráætlun innanlandsflugs, sem flogin verður af 'FIugfélagi íslands, Flugfélagi Norðurlands og Flugfé- lagi Austurlands, gekk í gildi 1. maí s.l. Með tilkomu sumaráætlunar fjölgar ferðum allverulega, en samtals tekur áætlunin til 21 við- komustaða. Ferðum frá Reykjavík er hagað sem hér segir: Til Akureyrar verða fimm ferðir daglega fyrri part viku en sex ferðir á föstudögum, laugar- dögum og sunnudögum. Samtals 37 ferðir í viku. Til Egilsstaða verða tvær ferðir á dag virka daga en þrjár ferðir á sunnudögum, samtals 15 ferðir á viku. Til Hafnar í Homafirði verða ferðir þriðjudaga, fimmtudaga, föstudaga, miðvikudaga og sunnu- daga, samtals fimm ferðir í viku. Til Húsayíkur er flogið daglega og að auki tvær ferðir á þriðjudög- um og fimmtudögum. Samtals niu ferðir I viku. Til ísafjarðar verða tvær ferðir á dag, samtals 14 ferðir í viku. Til Norðfjarðar verður flogið á laug- ardögum. Til Patreksfjarðar verður flogið á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum, þrjár ferðir 1 viku. Til Sauðárkróks verða ferðir alla daga nema laugardaga og sunnudaga. Til Vestmannaeyja verða fjórar ferðir á dag nema á þriðjudögum og föstudögum, þá eru þrjár ferðir. Samtals 26 ferðir í viku. Til Þingeyrar verður flogið mánudaga, miðvikudaga og föstu- daga. Alls verða brottfarir frá Reykjavík 118 í viku samkvæmt áætlun. Flugfélag Norðurlands heldur uppi ferðum frá Akureyri til Egils- staða, Grímseyjar, Húsavíkur, Isa- fjarðar, Kópaskers, Raufarhafnar, Vopnafjarðar og Þórshafnar. Frá Akureyri verður ferðatíðni sem hér segir: Til Egilsstaða verður flogið á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum. Til Grímseyjar á þriðjudögum og laugardögum, til Húsavíkur á þriðjudögum og föstudögum. Til Isafjarðar á mánudögum og föstudögum. Til Kópaskers fimmtudaga, mánu- daga, miðvikudaga. Til Rauf- arhafnar verður flogið alla virka daga. Til Vopnafjarðar verður - Gagnfræðaskóli (Framhald af bls. 8). samræmt grunnskólapróf og voru nemendur Gagnfræðaskólans, í nær öllum greinum, vel yfir lands- meðaltali. Flest bendir til, að starfræktur verði 3ji bekkur framhaldsdeildar á verslunarsviði næsta vetur. Sverrir Pálsson, skólastjóri Gagnfræða- skóla Akureyrar, sagði í skólaslita- ræðu, að þegar hefðu borist tíu umsóknir um setu í þriðja bekk. Hér er um að ræða sérhæft versl- unarnám og með því að bæta enn einu ári við, geta nemendur lokið stúdentsprófi. Bestum árangri í öðrum bekk framhaldsdeildar náðu: Heil- brigðissvið: Guðný Bergvinsdóttir 8,6. Uppeldissvið: Ragna Erlings- dóttir 8,3. Viðskiptasvið: Laufey Ámadóttir 7,8. Á fyrra ári framhaldsdeildar náðu bestum árangri: Ragnheiður Sigfúsdóttir 9,1. Uppeldissvið: Hulda Davíðsdóttir 7,9. Viðskipta- svið: Hjörtur Steinbergsson: 8,7. Það kom fram í ræðu skólastjóra að Guðmundur Gunnarsson kenn- ari og Jónborg Þorsteinsdóttir hús- vörður hafa sagt upp störfum fyrir aldurs sakir. Bæði hafa þau lagt skólanum til starfskrafta sina i fjölmörg ár og færði skólastjóri þeim þakkir og óskaði þeim vel- famaðar í komandi framtíð. Snæbjöm Guðbjartsson talaði fyrir hönd 20 ára nemenda og af- henti skólanum 23 upphleypt Is- landskort til minningar um Val- mund Sverrisson. Einnig flutti Fríða Sæmundsdóttir, fulltrúi Verslunarmannafélags Akureyrar, stutt ávarp og fagnaði þeim áfanga sem náðst hefur í menntun versl- unarfólks. Hansína Einarsdóttir, formaður nemendaráðs, þakkaði skólastjóra og kennurum fyrir hönd nemenda og færði Jónborgu Þor- steinsdóttur málverk að gjöf, sem virðingar og þakklætisvott fyrir óeigingjöm störf. I upphafi ræðu sinnar minntist skólastjóri Ármanns Dalmanns- sonar, Áma Júl. Ámasonar, Val- garðs Haraldssonar og Vilhjálms H. Vilhjálmssonar, en þeir höfðu allir starfað sem kennarar við Gagnfræðaskólann og létust á skólaárinu. Einnig minntist skóla- stjóri Snorra Sigfússonar fyrrv. skólastjóra Barnaskóla Akureyrar. I lok ræðu sinnar talaði skólastjóri til nýútskrifaðra nemenda og sagði m.a. að þeir skyldu ávalt gæta þess að vera ekki þjónar tækninnar, heldur herrar hennar. Þeir ættu líka að leggja á það áherslu að rækta hið góða með sér, en heimurinn yrði aldrei betri en mennimir sjálfir. Að lokum ámaði skólastjóri nemend- um velfamaðar og sagði 48 starfsát Gagnfræðaskóla Akureyrar á enda runnið. sömuleiðis flogið alla daga nema laugardaga og sunnudaga. Frá Ak- ureyri til Þórshafnar verður flogið alla virka daga. Brottfarar- og komutímar til og frá Akureyri eru samræmdir flugi Flugfélags Is- lands. Flugfélag Norðurlands hefur þrjár flugvélar til að sinna sumaráætlun, þ.e. einni Twin-Otter, einni Piper-Navajo, einni Piper-Aztec. Flugfélag Aust- urlands hefur bækistöð á Egils- stöðum, Undanfarin ár hefur verið góð samvinna milli Flugleiða og aðila sem sinna áætlunarbílferðum til og frá flugvöllum á ýmsum stöðum á landinu. Þar má m.a. nefna Egilsstaðaflugvöll og fleiri. Frá Kynningardeild Flugleiða hf., Reykjavíkurflugvelli. Góður hagi i sandlendinu Grímsstöðum á Fjöllum 31. mai. Hér er orðið alautt fyrir löngu því snjóinn leysti fljótt í vor og kominn fallegur gróður í sandlendið þótt ekki hafi verið hlýtt. Við erum búnir að sleppa verulegum hluta af lambfénu. Sauðburður hefur gengið ágætlega. Vegirnir eru orðnir all- góðir og allt opið til Austurlands, en ennþá eru takmarkanir á Hóls- sandi. Nokkur umferð er þegar byrjuð, meðal annars hópferðir og er þar einkum skólafólk á ferðinni. Hér er mannheilt og margir áhugasamir um kosningarnar. K.S. — Ólaffsfjörður (Framhald af bls. 1). Uppl. í síma 23897 á Akureyri. Frá Vistheimilinu Sólborg Óskum að taka á leigu frá 1. júlí n.k. í eitt ár stóra íbúð eða tveggja íbúða hús. Tvær til þrjár íbúðir í fjölbýlishúsi, helst í sama stigahúsi kæmu einnig til greina. Uppl. gefur framkvæmdastjórinn í síma 21757. Frá Dalvíkurskóla Næsta vetur verða eftirtaldar framhaldsdeildir starfræktar ef næg þátttaka fæst. Heilsugæslubraut fyrsta náms ár Uppeldisbraut fyrsta náms ár Viðskiptabraut fyrsta náms ár Annar áfangi Iðnskóia (eftir áramót) Þeir nemendur sem ekki hafa framhaldseinkun í samræmdum greinum grunnskólaprófs, sækja aukatíma í við komandi greinum fram að áramót- um. Ath. heimavist og mötuneyti er við skólann Umsóknir sendist skólastjóra fyrir 10. júní. Bændur — Bændur Vélasýning Glóbus hf. og Dragi sf. efna til sýningar á landbúnaðartækjum og vélum laugardaginn 3. júní frá kl. 10-18 og sunnudaginn 4. júní jkl. 10-18. Sýningin verður við húsnæði Draga sf., Fjölnisgötu 2, Akureyri. Ðændur komið og kynnist nýjungum hjá Glóbusi hf. Glóbus hf. Dragi sf. komið að sætanýting á leiðinni Reykjavík-Siglufjörður-Reykjavík er ágæt, en nýting á leiðinni Reykjavík-Mývatn-Reykjavík er ein hin besta hjá félaginu. Jónas gerði ráð fyrir að þróunin yrði svipuð á Ólafsfirði, þar sem líklegt væri að Dalvíkingar kæmu til með að notfæra sér þjónustu Vængja, enda snöggtum styttra frá Dalvík til Ólafsfjarðar, en frá Dalvík til Ak- ureyrar. Pétur Már Jónsson, bæjarstjóri á Ólafsfirði sagði i viðtali við Dag, að von væri á fulltrúum Flugmála- stjórnar til Ólafsfjarðar á næstu dögum. Þeir munu kanna hvað þarf að gera til að koma flugvellin- um á Ólafsfirði í viðunnandi horf, en of snemmt er að spá um fram- vindu mála. Knattspyrnan (Framhald af bls. 5). Fjórða umferð deildarinnar hefst á föstudag en þá mætir KA Fram á Laugardalsvelli. Spennandi verður að fylgjast með úrslitum þess Ieiks, en liðin eru talin mjög áþekk að styrk- leika. Á laugardag leika ÍBK og Þróttur, FH og ÍA, fBV og Val- ur, og Víkingur og UBK. I annari deild verða líka spennandi leikir. Þórsarar fá Hauka úr Hafnarfirði I heim- sókn, og þar verður eflaust um mjög spennandi leik að ræða. Haukar hafa verið í toppbaráttu deildarinnar undanfarin ár, og ætla sér eflaust að sækja tvö stig til Akureyrar, en þau fást ekki fyrirhafnarlaust. Leikur þessi fer fram á Þórsvellinum, þar sem grasvöllurinn er ekki orð- inn keppnishæfur ennþá. Þá leika einnig saman Austri og Völsungar, KR og Þróttur, og Ármann og iBl. Allt verða þetta spennandi og skemmtilegir leikir. DAGUR.7

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.