Dagur - 02.06.1978, Side 8

Dagur - 02.06.1978, Side 8
DAGXJR Akureyri, föstudagur 2. juní 1978 BÍLAVÍR - RAFGEYMAKAPLAR LEIDSLUSKÓR - KAPALSKÓR Ferðalangar eru farnir að leggja leið sína til bæj- arins og hitti Ijósmyndari Dags þetta unga fólk á tjaldstæðinu í vikunni. Eflaust er þetta fyrsta ferðafólkið sem tjaldar á svæðinu norðan Hús- mæðraskólans. Á myndinni má sjá Svanhvíti Ingólfsdóttur og Sigurð Blöndal, en Kristrún Kristinsdóttir hafði brugðið sér eitthvað frá. Þeim líkaði vistin vel, en kvörtuðu undan því að salernin voru lokuð. Olli það óneytanlega nokkrum vandræðum. mynd:áþ. Vængir heffja reglubundið flug til Ólafsfjarðar Beöiö eftir leyfi frá Samgöngumáiaráðuneytinu „Við ætlum að hefja ffug til Ólafsfjarðar strax og sam- gönguráðuneytið hefur veitt leyfi, en því er ekki að leyna að ýmislegt þarf að gera við flug- völlinn í Ólafsfirði, áður en hann getur talist í sæmilegu ásig- komulagi", sagði Jónas Sig- urðsson, framkvæmdastjóri flugfélagsins Vængja. „Flug- Þelamerkurskóli fær níunda bekk Fyrir skömmu fékk Þelamerkur- skóli heimild frá Menntamála- ráðuneytinu, til að starfrækja ní- unda og síðasta bekk grunn- skólans og þurfa því nemendur ekki framar í aðra skóla tíl að Ijúka honum. Tvær nýjar kennsiustofur verða teknar í notkun í haust, en u. þ. b. 20 til 30 nýjir nemendur munu bætast í hópinn. Gert er ráð fyrir að tveir nýir kennarar verði ráðnir til skólans. heimavist Þelamerkur- skóta rúiriar ekki aukninguna og verður því að flytja hluta nem- endanna til og frá skólanum dag hvern. „Það er langt komið að byggja skólastofurnar og hafist verður handa við byggingu skólastjóra- íbúðar í sumar“, sagði Stefán Halldórsson, formaður skóla- nefndar Þelamerkurskóla. „Nú er skólinn orðinn fullkominn grunn- skóli, en til þessa höfúm við aðeins haft átta bekki og þeir sem hafa viljað taka níunda bekkinn hafa orðið að leita annað“. Á undanförnum vetrum hafa að jafnaði um 115 nemendur stundað nám við Þelamerkurskóla. Fjórir hreppar standa að skólanum en þeir eru: Glæsibæjarhreppur, Skriðuhreppur, Öxnadalshreppur og Arnameshreppur. Skólastjóri Þelamerkurskóla er Sæmundur Bjarnason. málastjórn telur sig ekki vera af- lögufæra, en bæjarstjórinn á Ólafsfirði mun hafa í hyggju að fá geröar einhverjar lagfæringar á vellinum. M. a. vantar síma og talstöð á völlinn og eins er nauðsynlegt að fá lagfærðan vegarspotta sem að honum liggur." Flug Vængja til Ólafsfjarðar hefst væntanlega í byrjun júní og sagði Jónas, að áætlunin gerði ráð fyrir tveimur ferðum í viku. Farið verður á þriðjudögum og föstu- dögum og farið verður í loftið kl. 14 frá Reykjavík, og komið til Ólafs- fjarðar rúmum klukkutíma síðar. Ef undirtektir verða góðar er hug- sanlegt að ferðunum verði fjölgað síðar í sumar. Hvað svo sem um aðstöðuna á Ólafsfirði má segja, þá er hún síst verri en víða annarsstaðar. Flug- félagið Vængir flýgur á fimmtán staði hér á landi og á aðeins einum þeirra er ljósabúnaður. Það er reynsla forráðamanna Vængja, af flugi til Siglufjarðar, að farþegum fjölgi sífellt, og nú er svo (Framhald á bls. 7). ___/ # Ungmenna- félögin Ungmennafélög landsins hafa aukið starfsemi sína verulega á síðustu árum og einnig rýmkað starfssvið sitt, þótt íþróttirnar skipi öndveg- ið. Blað Ungmennasam- bands íslands, Skinfaxi, 2. hefti er komið út, en ritstjóri þess er Gunnar Kristjánsson. í þessu hefti ritar Gunn- laugur Árnason, framkv.stj. HSÞ greinina Norður yfir fjöllin hvít, Kristleifur Meldal, form. Magna á Grenivfk greinina, Vaxandi starf á Grenivík, Þórmóður Ásvalds- son, formaður HSÞ svarar spurningum blaðamanns, ennfremur Eysteinn Hall- grímsson í Grímshúsum og Hinrik Árni Bóasson form. Eilífs í Mývatnssveit. Þá er i ritinu grein um heimsókn f Eiðaskóla, minn- ingargrein um Karl Kristjáns- son, eftir Gunnlaug Tr. Gunnarsson og greint frá margvíslegu starfi ung- mennafélaganna. # Skilji þeir, sem eiga! Furðuiegt er það hvernig ein- stakir pótintátar hjá Akureyr- arbæ telja sig geta farið með fólk, sem treystir á forsjá þeirra og aðstoð. Á ekki að vera hægt að treysta orðum háttsettra manna þegar þeir gefa ákveðin loforð um eftirlit með húsum og viðgerðir? Eða á bara að gera kröfur tll þeirra sem minna hafa á milli handanna og láta þá borga og borga stórfé fyrir hálfónýtt húsnæði? Ég bara spyr, en ég veit líka að þeir skilja sneiðlna sem eiga hana. Og ég krefst úrbóta og þess að menn sinni störfum sínum. Ásgrfmur Þorsteinsson. uuu # Of mikiö pantað af eyrnamerkjum Á síðastliðnum vetri kynnti Reykjalundur eymamerki, sem þeir ákváðu að hefja framleiðslu á. Bændur höfðu strax mikinn áhuga, þar sem gert var ráð fyrir að eyrna- merkin frá Reykjalundi mundu kosta um 1/2 af þvf sem Innfiutt merkf hafa kost- að. Rúmlega 200 þús. eyrna- merki hafa þegar verið pönt- uð en útilokað er fyrir Reykjalund að afgrelða meira en 50 þús. áður en sauðburði lýkur, svo það eru vinsamteg tilmæli frá Reykjalundi til bænda, að þeir fallist á, að pantanir sem ekki er hægt að afgreiða nú, fái að standa og þeir afgreiði merkin tíman- lega fyrir sauðburð 1979. Pantanir munu nú verða af- greiddar í þeirri röð, sem þær bárust Reykjalundi. # Spurtum réttinn Lesandi kom að máli við blaðið og bað fyrir eftirfar- andi fyrirspurn: „Ræður hægri handar reglan á gatnamótum Geislagötu og Gránufélagsgötu eða telst sá hlutí Geislagötu, sem er norðan Gránufélagsgötu, bif- reiðastæði?". Gísli Ólafsson, yfirlög- regluþjónn, sagði að nyrsti hluti Geislagötu - teldist gata, enda stæði t.d. raðhús bæj- arins við hana. Hins vegar er stæði vestan við húsið og í framtíðinni verður haft eftirlit með því að bflar leggi ekki nálagt gatnamótunum. Sem sagt hægri handar reglan gildir og bílar sem koma upp Gránufélagsgötu verða að stöðva fyrir umferð er kemur suður Geisiagötuna. Dagur hestsins á Sauðárkróki Sauðárkróki 31. maí. Hér á Sauðárkróki var á laugardaginn Dagur hestsins haldjnn hátíð- legur í votu veðri en kyrru og að mörgu fólki viðstöddu á malar- velli inn með brekkunum. Þar fór fram firmakeppni og tóku 45 hross þátt f henni. Dómarar voru: Skafti Steinbjörnsson, Magnús Jóhannsson og Jón Garðarsson. Efstu hrossin voru: Kolfinna Sörladóttir, sém keppti fyrir Raf- magnsverkstæðið Al, eigandi Sig- ríður Þorsteinsdóttir. f öðru sæti varð stóðhesturinn Sörli, sem keppti fyrir Skemmuna, eigandi Sveinn Guðmundsson og í þriðja sæti varð Svarti september, sem keppti fyrir Bílaverkstæði KS, eig- andi Jónas Sigurbjörnsson. Þá var sýnd söðulreið. Konur riðu í söðlum að gömlum sið og ennfremur voru sýndir kerru- og trússahestar og hin ýmsu hesta-verkfæri, svo sem hesta-sláttuvélar, snúnings- og rak- starvélar og herfi. Þá voru folalds- hryssur sýndar og börn fengu að koma á bak þægum hestum, í um- sjá fullorðinna. Egill Bjarnason flutti ræðu á móti þessu. Sauðburði er að ljúka og hefur hann víðast gengið vel og ærnar reynst frjósamar. Hjá Þórði bónda á Ríp í Hegranesi létu 140 ær lömbum sínum og voru það 217 lömb er þar drápust. Er þetta stór- kostlegur skaði og enn hefur ekki fundist ástæðan fyrir þessu mikla lambaláti. Tíð er köld og jörð er blaut. G.Ó. Grenivík: n Kennslurýmið X þess sem ráðuneytið telur nauðsynl. Á liðnu ári var hafist handa við byggingu skólahúss á Grenivík, og lágu framkvæmdir niðri í vetur, en á næstunni verður byrjað á nýjan leik. Þegar er búið að gera sökkul hússins og stefnt er að því að gera það fokhelt í sumar. Barnaskólinn á Grenivík er í ákaflega hrörlegu húsnæði og ef heildarflatamál kennslurýmis þess er borið saman við staðal frá Menntamálaráðuneytinu, kemur í Ijós að það er einn sjötti þess sem ráðuneytið telur nauðsynlegt. „Framkvæmdir í sumar eru háðar því fjármagni sem fæst. Fjárveiting frá ríki er tólf milljónir króna, en í fjárhags- áætlun sveitarfélagsins er gert ráð fyrir tuttugu milljón króna fram- lagi“, sagði Jakob Þórðarson, sveitarstjóri. „ Hins vegar eru þessar tuttugu milljónir háðar lánveitingum, sem enn hafa ekki fengist. Þessi skóli á að fullnægja okkar þörf á næstu árum og verður þó sjöundi bekkur grunn- skólans fluttur til Grenivíkur. Verði fjölgun íbúanna örari en við gerum ráð fyrir, er auðvelt að byggja við skólann, en hann er hannaður með það fyrir augum“. Heildarflatamál nýja skólans er 600 fermetrar og auk hinnar hefðbundnu skólastarfsemi, verður bókasafn hreppsins til húsa í skólanum. Þá er í kjallara rými sem tilheyrir íþróttaúsi sem eftir er að byggja. „Gamla skólahúsið er rúmlega hálfrar aldar gamalt og því var full þörf á að byggja nýtt“, sagði Jakob. „ Upphaflega var gert ráð fyrir að skólahúsið yrði tilbúið 1980, en bjartsýnustu menn eru að gæla við þá hugmynd, að það verði haustið 1979, en það fer auðvitað eftir lánamöguleikum. Tekjur hreppsins nægja ekki til að það sé hægt.“.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.