Dagur - 09.06.1978, Page 7
Rhönlerche II kennslusviffluga
Svlfflugur geta lent á ótrúlegustu stöðum á þess að verða fyrir nokkru hnjaski og ákaflega fá slys hafa orðið á svifflugs mönnum.
Sviffluga í upptogi.
(Myndir: GVA og fl.)
Heillandi og hættu-
laus íþrótt
Fyrir rúmum 40 árum, eða nánar
tiltekið 9. apríl 1937 var stofnað
hér í bæ Svifflugfélag Akureyrar.
Svifflugíþróttin var þá að ryðja
sér til rúms víða í Evrópu, og má
teljast ótrúlegt hve snemma svif-
flugfélag er stofnað hér norður í
Dumbshafi, enda er félagið enn,
eftir því sem næst verður komist
nyrsta svifflugfélag heims.
Svifflugfélagið hér kom sér
strax upp renniflugu af þýskri
gerð, og var henni skotið á loft
með sterkri gúmíteyju fram af
kirkjugarðsbakkanum og víðar.
Sjálfsagt muna margir eldri Ak-
ureyringar eftir flugtilburðum
þessum þegar renniflugunni var
skotið fram af kirkjugarðsbakk-
anum og lenti á leirunum fyrir
neðan eða á ísilögðum pollinum.
Flugkappar þeir sem þarna klufu
loftið í hið fyrsta sinn, kunnu
vitanlega ekkert að fljúga, enda
urðu margar lendingamar næsta
ómjúkar, og ekki lent þar sem til
var ætlast, t.d. hafnaði svifflugan
eitt sinn í opinni gröf í kirkju-
garðinum. Ekki var þó mokað
yfir hana þar, enda gröfin ætluð
öðrum, heldur var henni náð upp
og gert við hana, en viðgerðir
voru mjög stór þáttur í starfsemi
svifflugfélagsins fyrstu árin, þó
ekki sé meira sagt.
Eitthvað munu sumir hafa haft
litla trú á þeim skynskiptingum
sem létu skjóta sér á flug með
teyju, og um frumherja svifflugs-
ins hér varð þessi vísa til:
Upp í flug þeir fara í teyju
feykna hræddir lafa,
þeir sem ekki brúka bleyju
buxnaskipti hafa
Þó ótrúlegt megi virðast varð
sigrast á flestum byrjunarörðug-
leikum, og félagið stækkaði og
flugflotinn jókst jafnt og þétt, og
árið 1950 átti félagið þrjár svif-
flugur auk renniflugunnar marg-
brotnu, og sá tími liðinn að svif-
flugmönnum væri talið hættara
en öðrum að bleyta buxur, þó
vjtanlega yrðu þeir að hafa
buxnaskipti með svipuðum hraða
og aðrir.
Svifflugfélag Akureyrar hefur
nú yfir að ráða fimm svifflugum.
og hefur flugflotinn aldrei verið
stærri og betri, eijda hefur starf-
semin verið mikil undanfarin ár
og félagið í vexti. Félagið heldur
flugæfingar á Melgerðismelum
flestar helgar yfir sumartímann ef
veður leyfir, og þó hestamenn
hafi þrengt nokkuð að þar, er að-
staðan enn ágæt.
Nú er það svo, að félög eins og
svifflugfélagið eiga oftast næsta
erfitt uppdráttar sökum fjár-
skorts, og eru sjóðir Svifflugfél-
agsins nú sem endranær galtómir,
enda nokkuð kostnaðarsamt að
standa undir rekstri svifflugfél-
ags. Bæjarbúar og bæjarstjórn
hafa þó sýnt félaginu góðan
skilning, og félagið fær árlega
Flugænng á Melgerðismelum. Myndin var tekin fyrir nokkrum
árum.
Og þarna erum við komin á Svifflugsmót er haldið var á Hellu
197 0 Á myndinni eru Leifur Magnússon, Sigmundur Andrés-
son, Sverrir Þorláksson og Bragi Snædal. Sigmundur hlaut
Islandsmeistaratitilinn.
nokkurn styrk frá bæjarstjóm. og
þó ekki sé þar um nein auðæfi að
ræða, hefur aldrei staðið til að
leggja félagið niður af þeim sök-
um.
Svifflugnám getur hver sem er
hafið er hann hefur náð fimmtán
ára aldri, og er námið ekki dýrt,
t.d. er enginn stofnkostnaður.
Svifflug er heillandi iþrótt, og
alls ekki kyrrseruiþrótt. og er fyrir
fólk á öllum aldri, en nokkuð
tímafrekt a.m.k. ef góður árangur
á að nást. Svifflugfélagið hefur nú
í hyggju að auka starfsemi sína og
auðvelda fólki svifflugnám með
því að halda vikulangt námskeið
á Melgerðismelum í júlí í sumar.
og verður það nánar auglýst siðar.
Bragi Snædal.
DAGUR.7