Dagur - 09.06.1978, Qupperneq 8
DAGUR
Akureyri, föstudaginn 9. júnf 1978
VÉLAPAKKNING AR
OG ÁSÞÉTTI
Hótel Norðurljós
tekið til starfa
Hótel Norðurljós á Raufarhöfn
hefur tekið til starfa og er ætl-
unin að hafa hótelið opið fram í
lok október og lengur ef aðsókn
er næg. Fjölmargar pantanir
hafa borist um herbergi í júlí og
águst og t.d. mun Flugfélagið
Vængir flytja vikulega ferða-
mannahópa norður til Raufar-
hafnar yfir hásumarið. Hótel-
gestir geta m.a. keypt veiðileyfi á
hótelinu, en árnar sem hægt er
að fiska í eru: Deildará, Hölkná
og Hafralónsá.
Að sögn hótelstjórans, eru 40
herbergi í Hótel Norðurljósi og ef
svefnpokapláss er talið með tekur
hótelið hátt á annað hundrað gesti.
Hótel Norðurljós er gömul verbúð
en hún var gerð upp og hótelrekst-
ur hófst árið 1974. Nú vinna tíu
menn á hótelinu.
Upplýst inn-
brot og
skemmdir
Búið er að upplýsa
skemmdarverk, sem unnin
voru á bifreiðum er stóðu
við bifreiðaverkstæðið
Þórshamar h/f. Þar voru
unglingar að verki. Einnig
hafa verið upplýst nokkur
innbrot og m.a. fjögur inn-
brot í verslunina Esju við
Norðurgötu. Kom í ljós að
hinn seki hafði tekið þátt í
innbrotinu í Ferðanesti
LA boöið á
Listahátíð
f tilefni að listahátíð í Reykjavík,
sem nú stendur yfir býður Leik-
félag Reykjavíkur, Leikfélagi
Akureyrar til sín, til þess að sýna
tvö leikrlt LA, Hunangsilm og
Galdraland. Sýnlng Galdralands
verður í Iðnó klukkan 3 á
sunnudag og fyrsta sýning á
Hunangsilmi verður á þriðju-
daginn klukkan 8.30.
Hinn ágæti leikstjóri á Akureyri,
Brynja Benediktsdóttir, lét svo um
mælt við blaðið, að nú væri enn
kjörið tækifæri fyrir Akureyringa
að efna til vinsælla leikferða suður
til höfuðborgarinnar.
Leikfélag Reykjavíkur kemur
hingað norður með Skjaldhamra
Jónasar Árnasonar og hefjast sýn-
ingar 18 júní.
En á meðal Leikfélag Akureyrar
er í leikför syðra. koma Dalvíking-
ar og skemmta Akureyringum með
sínum ágæta sjónleik, Fjölskyld-
unnu.
Harður árekstur varð í Furuvöllum sl. þriðjudag, fyrir sunnan
prentsmiðju Odds Björnssonar. Þar var nýlegri Mazda bifreið
sveigt í veg fyrir Mercedes Benz, sem var að koma upp Furuvelli.
Eins og sjá má urðu miklar skemmdir á bifreiðunum, en slys urðu
ekki á fólki. Mynd:áþ.
HÚSAVÍK:
Alþýðubandalag, óháðir og
kratar ræða við íhaldið
„Þar sem K-listinn kom sterk-
astur út úr kosningunum töldum
við rétt, að hann hefði frum-
kvæði að myndun meirihluta í
bæjarstjórn. Til að byrja með
voru viðræður mitli K-listans,
A-listans og B-listans, en upp úr
þeim slitnaði sl. mánudags-
kvöld,“ sagði Egill Olgeirsson,
efsti maður B-listans á Húsavík.
„K-listinn, ásamt A-listanum,
hefur hafið viðræður við Sjálf-
stæðisflokkinn og hófust þær
s.l. þriðjudag."
Egill sagði að strandað hefði á
þeim kröfum K-listans, að auglýst
yrði starf bæjarstjóra og yfirmanns
verklegra framkvæmda. Þegar leið
á viðræðurnar áttu framsóknar-
menn von á tilslökun eða mála-
miðlun frá fulltrúum K-listans, en
því var ekki að heilsa, heldur fengu
fulltrúar B-listans í hendur nýjar og
auknar kröfur um sömu atriði.
i kosningunum fékk K-listi þrjá
fulltrúa kjörna, B-listi þrjá, D-listi
tvo og A-listi einn. Fulltrúafjöldi
Sjálfstæðisflokks og Framsóknar-
flokks e óbreyttur frá fyrri kosn-
ingum, en K-listinn, sem er listi
Alþýðubandalags og óháðra, vann
einn mann. A-listinn hafði tvo
fulltrúa, en tapaði nú einum.
Á síðasta kjörtímabili var meiri-
hlutinn skipaður þremur fulltrúum
Framsóknarflokksins, tveimur
fulltrúum Alþýðuflokksins og
tveimur fulltrúum K-lista alþýðu-
bandalags og óháðra, en sjálf-
stæðismenn voru í minnihluta með
tvo fulltrúa.
.......mimmni
Sjómannadagsráð heiðraði á Akureyri þá Þorstein Magnússon
vélstjóra og Knut Erner sjómann á sjómannadaginn. Mynd: E.D.
# Hrafnagils-
skóli
Orlofshelmill reykvískra hús-
mæðra verður í sumar í
Hrafnagllsskóla í Eyja*’.oi.
Ennfremur munu húsmæður
víðsvegar að af Norðurlandi
dvelja þar og elnnlg hús-
mæður úr Strandasýslu. Er
tallð, að samtals dvelji um
400 húsmæður úr Reykjavík í
Hrafnagllsskóla I sumar.
Reynsla af þessum stað mun
þykja góð og hefur blaðið af
þvf sannar fregnir frá þeim
sem reynt hafa. Fyrsti hópur-
inn að sunnan kemur hingað
norður 24. júní.
# Nógafstórri
úthafsrækju
íslendingar eru í stöðugri leit
að nýjum fiskstofnum í haf-
inu. Má þar nefna spærling
og kolmunna, sem farið er að
nýta svo um munar sfðustu
árin.
Nú er haldið áfram að
kanna rækjumiðln og horfir
vel ( þeim efnum. Verksmiðj-
ur, sem úr aflanum hafa unn-
íð á vetrum, hyggjast nú
nokkrar vinna rækjuna í
sumar, svo sem á ísafirði,
Hvammstanga, Skagaströnd,
Akureyri, Dalvík og Húsavfk,
sennilega einnig á Kópa-
skeri. Veiðlsvæðl djúprækj-
unnar er nú frá Grfmsey og
Kolbeinsey alit vestur um
Horn. Hefur á þessu svæði
fundist stór og falleg úthafs-
rækja.
# Ullinstendur
fyrir sínu
Á nýlega höldnum ársfundi
Útflutningsiðnaðarins kom
meðal annars fram, að út-
flutningur iðnvara á síðasta
ári nam 7,4 milljörðum króna,
utan áls, sem er veruleg
aukning frá 1976. Þegar ál er
undan skllið, er ullar- og
skinnaiðnaðurinn lang-
stærstu útflutningsgreinarn-
ar. Þetta kemur mönnum
sjálfsagt ekkl á óvart. En það
getur leitt hugann að því, að
sauðfjárbúin framleiða fleira
en kjöt, sem selst ekkí allt
innanlands og mjög er um
rætt. Og hér kemur það fram,
sem oft áður, að fslenska ull-
In stendur fyrir sínu.
Helmingur heita
vatnsins ónotað!
Víðast á landinu gengur erf-
iðlega að fá heitt vatn til
húsahitunar, og á þeim stöð-
um þar sem það hefur fund-
ist, reynist það oft á tíðum of
lítið.
Á Sauðárkróki er það hins
vegar þannig að heita vatnið
er meira en nóg, og rennur
um helmingur þess vatns,
sem fæst ónýtt. Uppi eru
nokkrar hugmyndir um nýt-
ingarmöguleika, þar á meðal
að koma upp gróðurhúsum.
Hafnar er framkvæmdir við
lagningu aðrennslísæðar til
Sauðárkróks frá holunum,
sem standa við Áshildar-
holtsvatn, nokkra kíiómetra
sunnan kaupstaðarins.
Gömlu lagnirnar eru orðnar
mjög úr sér gengnar og nær
óhæfar til vatnsflutningsins.