Dagur - 28.06.1978, Síða 1

Dagur - 28.06.1978, Síða 1
TRÚLOFUNAR- HRINGAR AFGREIDDIR SAMDÆGURS GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI DAGUR LXI. ÁRG. Akureyri, miðvikudaginn 28. júní 1978 41. tölublað \m . r IH-iyiU.....^AKUREYm Kaupendur, auglýsendur athugið! Dagur kemur út einu sinni í viku, á miðvikudögum, meðan á sumar- leyfum starfsfóiks stendur. ★ ★ Þakkir til stuðn- ingsmanna B-list- ans í Norður- landskjördæmi eystra Að afstöðnum alþingis- kosningum senda fram- bjóðendur Framsóknar- flokksins í Norðurlands- kjördæmi eystra öllu stuðningsfólki einlægar þakkir. Stuðningsfólkið á heiðurinna af því sem vannst að þessu sinni í óhagstæðri baráttu. Það er sá kjarni sem treyst verður á þegar sókn hefst til endurheimtu þess, sem nú var misst. Við sendum sérstakar þakkir öllum, sem unnu fyrir B-listann að undir- búningi kosninganna og aðstoðuðu á kjördegi með margvíslegum hætti. Lifið heil. Frambjóðendur B-listans. ★ ★ Togararnir Svalbakur landaði 21. júní 168 tonnum. Afla- verðmæti 18 milljónir Sléttbakur landaði 193 tonnum 19. júní. Afla- verðmæti 20,6 milljónir króna. Sólbakur landaði 5. júní á Siglufirði 150 tonnum, fyrir 18,4 milljónir og landaði á Akureyri fyrir helgina 139 tonnum. Aflaverðmæti 14,7 millj- ónir króna. 24166 23207 24167 Alts voru 14.817 á kjörskrá í Norðurlandskjördæmi eystra. Atkvæðl grelddu atkvæðl grelddu 5.620 eða 88.6%. Myndlna tók áþ af akureyrskum kjósendum 13.282 eða 89.64%. I Norðurlandskjördæmi vestra voru 6.344 á kjörskrá og á kjörstað, en kosíð var í Oddeyrarskóla. Stjórnarflokkarnir biðu veru- legt afhroð í kosningunum Þegar talningu atkvæða í alþingiskosningunum á sunnudaginn lauk síðdegis á mánudag, var Ijóst, að stjórnarflokkarnir höfðu goldið afhroð í kosningunum en stjórnarandstæðingarnir unnuð á að sama skapi, einkum Alþýðuflokkurinn, sem telja verður sigurvegara kosninganna. Sjónvarp og útvarp gerðu landsmönnum kleift að fylgjast með atkvæðatalningunni mæstu nótt og fram á mánudag. í framhaldi þessara kosninga, sem teljast verða sögulegar vegna mikilla breytinga á þingstyrk flokkanna, er myndun nýrrar ríkis- stjórnar mæst á dagskrá og getur hún einnig orðið söguleg og e.t.v. erfið. Möguleikar eru margir og allir flokkar hafa óbundnar hendur til stjómarmyndunar. Á næsta Alþingi situr nú 2I þingmaður, sem ekki sat þar á því síðasta og 11 frambjóðendur úr hópi fráfarandi þingmanna féllu í þessum kosningum, þar af 9 af stjórnarflokkunum og svo báðir fulltrúar Samtakanna. Alþýðuflokkurinn, sem hafði 5 þingmenn, hefur nú 14, Fram- sóknarflokkur. sem áður hafði 17 þingmenn. hefur nú 12 Sjáfstæðis- flokkur, sem áður hafði 25 þing- menn, hefur nú 20, Samtökin komu engum manni að nú, en höfði tvo þingmenn, Alþýðubandalag, sem hafði 11 þingmenn, hefur nú 14. Hlutfallstölur flokkanna í al- þingiskosningunum eru þessar: Alþýðuflokkur hlaut 22% at- kvæðanna, aukning 12,9% Framsóknarflokkur hlaut 17% atkvæðanna, tapaði 7,9% Sjálfstæðisflokkur hlaut 32,6% atkvæðanna, tapaði 10,1% Alþýðubandalag plaut 22,8% aukning 4,5% Sú breyting varð á þingliði Norðurlandskjördæmis eystra, að Ingi Tryggvason, þriðji maður á lista Framsóknarflokksins, féll, en kosningu náði Bragi Sigurjónsson, efsti maður á lista Alþýðuflokksins. Auk þess varð Árni Gunnarsson. annar maður á lista sama flokks. landskjörin þingmaður. Möguleikar til myndunar nýrrar ríkisstjórnar eru margir, en þá lyk- ilaðstöðu hefur Sjálfstæðisflokkur- inn, að geta myndað meirihluta- stjórn með einum flokki öðrum og hvaða flokki sem er. Nú er það á valdi forseta íslands, að fela einhverjum flokksforingj- anna stjórnarmyndun, eftir að rík- isstjórnin hefur sagt af sér, en það mun hún hafa gert í gær. Stefnt að 15 til 17 MW rafmagnsframleiðslu í Kröflu næsta haust - Búast má við eldsumbrotum á næstunni Ákveðið hefur verið að verja 350 milljónum króna til endur- vinnslu og tenginu hola í Kröflu. Ef framkvæmdir geta hafist í byrjun næsta mánaðar ætti þeim að verða lokið í nóv- ember, en þá mun virkjunin geta framleitt 15 til 17 MW. Ekki hafa verið teknar neinar ákvarðanir um boranir nýrra hola. Einar Tjörvi Elíasson, yfir- verkfræðingur og framkvæmda- stjóri Kröflunefndar, hefur gert áætlun um endurvinnslu og teng- ihgu hola í Kröflu og gerir áætl- unin ráð fyrir viðgerðum á holum númer ellefu, tíu og þrjú. Efra kerfið (tvö hitakerfi er í Kröfiu) í tveimur fyrmefndu holunum verður fóðrað af, en bætt verður slit á fóðringu holu þrjú og einnig verður efra kerfið steypt af. Þrjú og tíu eru ekki tengdar og verður því að koma þeim í samband við gufuveituna. Allt er nú með friði og spekt á Kröflusvæðinu, en að sögn Páls Einarssonar, jarðeðlisfræðings, má búast við tíðindum hvað úr hverju. „Það er nokkur óregla í landrisi og hraðinn breytist frá degi til dags“, sagði Páll Einarsson. „Samkvæmt fyrri reynslu, og þeim hugmyndum sem við höf- um um þetta svæði, þá gæti eitt- hvað farið að gerast, en það gæti líka dregist talsvert. Hvort það verður eldgos á þessum slóðum er ekki hægt að segja neitt um, því kvikuhlaup gæti líka átt sér stað“. 'Það var Iftið um að vera ( Kröflu um sl. helgl, en hver velt nema vlrkjunin elgi eftir að framleiða rafmagn handa Norðlendingum næsta haust. Mynd:áþ.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.