Dagur


Dagur - 28.06.1978, Qupperneq 8

Dagur - 28.06.1978, Qupperneq 8
DAGUR Akureyri, miðvikudaginn 28. júní 1978 JEŒM HÖGGDEYFAR MONRO-MATIC ® SHOCK ABSORBER f FLESTA BÍLA Unnið var að kappi við nýju þróna þegar blaðam. Dags átti leið um Mývatnssveit um sl. helgi. I botn hennar er lagður svartur plastdúkur og virðlst mannvirkið vera hið traustasta. Mynd:áþ. Byrjað að dæla í nýju þróna í næsta mánuði KISILIÐJAN Á vegum Kísiliðjunnar í Mý- vatnssveit er verið að byggja hráefnisþró sem á að taka rúm- lega 300 þúsund rúmmetra af kísilgúr. Að sögn Vésteins Guð- mundssonar, framkvæmda- stjóra, er hugmyndin að hefja dælingu t þróna þann sjöunda júlí. „Þó svo dælingin dragist eitthvað á langinn, þýðir það ekki að verk- smiðjan muni stöðvast“, sagði Vé- steinn. „Ein þró er í lagi og dælt í hana. Hins vegar eru tvær ónýtar.“ Nýja þróin á að geta rúmað vetrarforða verksmiðjunnar og er hún utan sprungusvæðisins. Fram- leiðsla Kísiliðjunnar hefur gengið vel í sumar og sagði Vésteinn að gert væri ráð fyrir að verksmiðjan framleiddi u.þ.b. 2200 tonn af kís- ilgúr í þessum mánuði, en það er nokkuð mikið meiri framleiðsla en gerist og gengur á þessum tíma. • Tveggja báta varpa Nú ent um það bil að hefjast tiiraunaveiðar á kolmunna með tveggja báta vörpu, sem mistókust í fyrra en verða reyndar á ný. Tveir 300 smá- lesta bátar munu hefja veiðar þessar á Dorhnbanka en síð- an austan við land. I' öðru lagi gerir Baldur tilraun með flot- vörpu austan við land, en flutningaskíp eiga að hirða aflann úr flotvörpunni koma honum til lands. Eru tilraunir þessar gerðar á vegum sjáv- arútvegsráðuneytislns Nýr Sáttasemjari Guðlaugur horvaldsson, há- skólarektor, hefur verið skip- aður sáttasemjari rfkisins, samkvæmt nýjum lögum um það starf og er skipun hans miðuð við 15. apríl á næsta ári, en þangað til gegnir hann rektorsembættlnu og sátta- semjarastarfinu ekki að fullu. Starf sáttasemjara á nú, samkvæmt nýju lögunum, að vera aðalstarf og á sátta- semjarann verður lögð ríkari skylda en áður, að hafa for- göngu um sáttastörf og jafn- framt fylgir því meiri réttur til afskipta af vinnudeilum. • Umferöin á Akureyri Akureyringar hafa löngum verið þekktir fyrir einkenni- lega umferðarmenningu og í fjarlægum landshornum má heyra tröllasögur um þetta atriði. Eftir að umferðarijósin komu upp sögðu gárungarnir að hver og einn bæjarbúi á Akureyri ætti sinn upp- áhaldslit og færi yfir gatna- mótin á honum. Um strætis- vagna Akureyrar hefur verið sagt að enginn vissi hvert þeir ækju né hvar þeir stopp- uðu - þeir sæjust bara öðru- hvoru. í þessu sambandi má geta sögu um SVA, en hún hljóðaði á þá leið að strætis- vagninn hefði stöðvað á Glerárbrú og vagnstjórinn talið þá sem ætluðu upp á Brekku og síðan þá sem vildu halda á Eyrina. Brekkan vann og þangað var haldið. Á nokkrum helstu umferð- argötum bæjarins má sjá brotna akgreinalínu á miðju gatnanna. Reykvíkingar höfðu það fyrir satt, að Akur- eyringar héldu á aka ætti á henni miðri svo auðveldara væri að halda beinni stefnu. Yfirvinnubann á Sigiufirði og Ólafsfirði Á fundi hjá Verkalýðsfélaginu Vöku á Siglufirði í síðustu viku var ákveðið að yfirvinnubann tæki gildi þann 1. júlí n.k. Þessi ákvörðun tekur til fyrirtækja sem greiða ekki fullar vísitölubætur, en í þeim hópi eru m.a. Síldar- verksmiðjur ríkisins, Þormóður rammi og Siglósíld. Starfsfólk Hraðfrystihúss Ólafsfjarðar og Hraðfrystihúss Magnúsar Gamalíelssonar kom á yfir- vinnubanni í síðustu viku. Samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu Vöku á Siglufirði, eru engar viðræður í bígerð við fram- angreind fyrirtæki, en Siglufjarð- arkaupstaður hefur þegar samið við sítt starfsfólk um greiðslu vísi- tölubóta og gildir samkomulagið frá og með 1. mars sl. Einnig hafa margir saltfisk- og hrognafram- leiðendur samið við starfsfólk um greiðslu vísitölubóta. Leikskóli byggður við Hlíðarlund Fyrir skömmu var boðin út bygging leikskóla við Hlíðar- lund og ákvað bæjarstjórn, á síðasta fundi, að gera verk- samning við Aðalgeir og Viðar h/f, en fyrirtækið bauð rúmar 63 milljónir króna í bygging- una. Kostnaðaráætlun nam rúmum 55 milljónum króna. Tvö tilboð bárust í húsið og var hið hærra frá Pan h/f - 73,5 milljónir króna. Á sama bæjarstjómfundi var lögð fram fundargerð byggingar- nefndar nýja íþróttahússins, en þar var fjallað um áframhaldandi byggingarframkvæmdir við hús- ið. Bæjarstjórnin samþykkti heimild til að gera verksamning, á grundvelli einingarverðs fyrra til- boðs, við núverandi verktaka, Híbýli h/f. I sambandi við leikskólann má geta þess að ekkert tilboð kom fram í fyrsta útboði og því var gerð önnur tilraun. Má segja með sanni að verktakar á Akureyri hafi brugðist að nokkru leyti, enda lagði Akureyrarbær niður byggingarflokka sína svo akur- eyrsk byggingarfyrirtæki mættu fá meiri verkefni. Það er því e.t.v. ekki óeðlilegt að bærinn taki upp byggingarflokka á nýjan leik, sem hefðu m.a. þau verkefni að byggja þau hús er bærinn er að reisa hverju sinni og viðhlítandi tilboð berast ekki í. Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur mynda meirihluta á Húsavík Haukur lætur af starfi Efftir að umræður höfðu staðið í tæpan mánuð, tókst loks að mynda meirihluta á Húsavík, en aðild að honum eiga Framsókn- arflokkur og Sjálfstæðisflokkur. K-listinn (Alþýðubandalag, óháðir og vinstri menn) var bú- inn að eiga í viðræðum við aðra flokka í 17 daga en hvorki gekk né rak, enda setti listinn fram óaðgengilegar kröfur. Sjálf- stæðlsmenn gátu ekki fellt sig við Hauk Harðarson sem bæjar- stjóra og mun hann því gegna starfinu þar til nýr hefur verið ráðinn. Framsóknarflokkur hef- ur 3 bæjarfulltrúa á Húsavík og Sjálfstæðisflokkur 2. Viðræður um myndun meiri- hluta í bæjarstjórn Húsavíkur hóf- ust að frumkvæði K-listans, með bréfi til fulltrúa A og B listanna dagsettu 31. maí. í bréfi þessu komu fram grundvallartillögur K-listans til meirihlutamyndunar er síðar urðu að skilyrðum í bréfi þeirra til B-listans dagsettu 3. júní en A-Iistinn hafði þá samþykkt grundvallartillögumar. Það voru aðallega tvö atriði er fulltrúar B-listans töldu sig ekki geta gengið að, án þess að tilslökun kæmi frá K-listanum, en það voru kröfur þeirra um að starf bæjar- stjóra yrði auglýst nú þegar og einnig yrði auglýst eftir verkfræð- mgi til að annast yfirstjórn verk- legra framkvæmda, en þessu starfi hefur bæjartæknifræðingurinn sinnt frá 1971. Á þessu strönduðu viðræðumar og hófust þá viðræður milli K og D-lista um meirihluta en þær strönduðu einnig á svipuðum skilyrðum fyrrnefnda listans. Með bréfi dagsettu 15. júní til- kynnti Kristján Ásgeirsson, efsti maður K-listans, að hann teldi til- gangslaust að reyna lengur að hafa forgöngu um frekari meirhluta- myndun og eðlilegt væri að B-líst- inn tæki nú við að reyna að mynda meirihluta í bæjarstjóm Húsavíkur. Hófust þá strax viðræður milli fulltrúa B-listans og D-listans, að frumkvæði Framsóknarflokksins, en þetta voru einu listarnir sem ekki höfðu reynt með sér meiri- hlutamyndun. Fulltrúar B-listans kváðust strax vilja ráða Hauk Harðarson sem bæjarstjóra, ef list- arnir kæmu sér saman um meiri- hluta. Þetta gátu Sjálfstæðismenn ekki sætt sig við, en tjáðu sig reiðubúna að ganga til samninga með því skilyrði, að Haukur yrði ráðinn til 2ja ára, en þessu hafnaði Haukur þar sem hann taldi - rétti- lega - að í slíkri kröfu felldist ekki sú traustyfirlýsing sem bæjarstjóra er nauðsynleg til að gegna þessu starfi. Einnig taldi Haukur að slík ráðning samræmdist ekki sveitar- stjórnarlögum. Þrátt fyrir framansagt héldu við- ræðurnar áfram og tókst sam- komulag milli flokkanna. Sam- komulag tókst að kjöri bæjarstjóra yrði frestað á fyrsta bæjarstjómar- fundi og að B-listinn hefði for- göngu um að leita eftir nýjum bæj- arstjóra til fjögurra ára og setti fram tillögu um hann fyrir hinn nýja meirihluta. Haukur Harðarson gegnir því starfi bæjarstjóra til bráðabirgða. Ákveðið var að gert yrði sam- komulag um endurskipulagningu (Framhald á bls. 2).

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.