Dagur - 06.10.1978, Síða 6
Fréttatilkynning
frá Hitaveitu Ak-
ureyrar
Hitaveita Akureyrar er nú reiðubúin
að tengja við veitukerfið hús við eft-
irtaldar götur: Akurgerði, Hamra-
gerði, Kotárgerði, Stekkjargerði,
Birkilund, Einilund, Espilund, Áshlíð,
Bakkahlíð, Brattahlíð, Háahlíð,
Höfðahlíð, Lönguhlíð og Skarðshlíð.
í lok vikunnar verður unnt að
tengja hús við: Barmahlíð, Mánahlíð
og Sunnuhlíð.
Húseigendur við ofantaldar götur
eru eindregið hvattir til að ganga frá
greiðslu heimæðagjalds og tengja
hús sín sem allra fyrst.
Hitaveita Akureyrar veitir einnig
viðtöku heimæðagjöldum úr öðrum
bæjarhlutum, sem dreifikerfi er lagt í
á þessu ári.
Nánari upplýsingar um það, hven-
ær unnt verður að tengja hús við
aðrar götur verða gefnar jafnóðum
og það verður Ijóst.
-Lóðin komin
áloft
(Framhald af bls. 5).
má búast við að þeir fái 4 til 5
þátttakendur af þeim 10 sem
sendir verða. Mótið hefst á laug-
ardaginn kemur kl. 14.00 og
verður í Lundaskóla og eru
áhorfendur kvattir til að fjöl-
menna í húsið og er aðgangur
ókeypis, en það er mjög sjalds-
gæft á stórmótum í íþróttum. Þá
er einnig fyrirhugað mót í kraft-
lyftingum þann 22. okt, með
þátttöku Skúla Óskarssonar sem
ætlar að reyna við Norðurlanda-
met í sínum flokki. Þann 18. nóv.
verðursíðan árlegt minningarmót
um Grétar Kjartansson en hann
var einn af frumkvöðlum lyfting-
aríþróttarinnar hér í bæ.
UOIR
Haustmkarm
Komnir i buðirnar
Mjög mikið úrval
Nú er retti timinn að setja
þá í Ú/ | j
moldina Pfr Jl/7
KJ
Norskunámskeið
verður haldið ef næg þátttaka fæst. Kennari Bernt
Erik Heid. Enn er hægt að bæta við nemendum í
sænsku. Innritun fimmtudag 5. október kl. 17-20
símar 21792
Námsflokkar Akureyrar
Þá er einnig fyrirhuguð bæjar-
keppni við Vestmanneyinga og
þá mætir Óskar Sigurpálsson með
sitt vaskasta lið. Þá skal þess getið
til gamans að Óskar sem er
geysilega sterkur lyftir það þung-
um lóðum að þau kosta á núver-
andi gengi um eina og hálfa
milljón. Nú stendur yfir nám-
skeið fyrir keppnismenn og er
Kári Elisson leiðbeinandi, en
hann byrjar með námskeið fyrir
byrjendur í næstu viku og þeir
sem hafa áhuga á að fara á nám-
skeið hjá Kára geta látið skrá sig á
mótinu á laugardaginn. Nám-
skeiðið er ókeypis.
-Gangnaseðlar
að gömlum sið
(Framhald af bls. 8).
er handskrifaður gangnaseðill lát-
inn berast milli bæja, að afliðnu
sumri að gömlum sið. Þegar seðill-
inn kemur svo aftur til föðurhús-
anna, hafa gjarnan verið ritaðar á
hann vísur neðanmáls. Minnist ég
þess frá í fyrra, að ein vísan var
svona:
Hljóðnar fagur fuglasöngur
fækka tekursumargestum.
Fara senn í fyrstu göngur
fullir menn á góðum hestum.
En þess má geta, að þótt hestar
séu góðir þá eru þetta ýkjur með
mennina. H.J.
Flauelsbuxur
eru komnar í öllum
stærðum
VERZLUNIN
sími23521
Frystikista óskast
Óska eftir að kaupa notaða, en vel með farna
frystikistu.
Uppl. í síma: 23207
Frá Geðverndarfélagi
Akureyrar
Almennur fundur í Geðverndarfélagi Akureyrar
verður haldin að Þingvallastræti 14, 5. október kl.
20.30.
Mánudagsfundirnir- hefjast mánudagskvöldið 9.
okt. á sama stað og síðastliðinn vetur kl. 8 e.h.
Mætum vel og stundvíslega.
Stjórnin
Söngfélagið Gígjan
Óskar eftir nýjum félögum í allar raddir.
Upplýsingar í símum 22099 og 23987 eftir kl. 6 e.h.
Eldri félagar sem vildu hefja starf á ný, eru hvattir til
að hafa samband við Gunnfríði Hreiðarsdóttur sími
21081 næstu kvöld
Eigendur Toyota
saumavéla
Sérfræðingur í viðgerðum á Toyota saumavélum
verður á Akureyri laugardag og sunnudag 7. og 8.
október að Skipagötu 12 III hæð, húsi verkalýðsfé-
laganna
Vélum veitt móttaka á sama stað og tíma
Toyota saumavélaumboðið á Akureyri
Brynjólfur Sveinsson hf.
sími23580
Kristniboðshúsið Zíon. Sunnu-
daginn 8. okt. sunnudagaskóli
kl. 11. Öll börn velkomin.
Fundur í Kristniboðsfélagi
kvenna kl. 4. Allar konur vel-
komnar. Samkoma kl. 20.30.
Ræðumaður Björgvin Jörgen-
son. Tekið á móti gjöfum til
kristniboðsins. Allir hjartan-
lega velkomnir. Biblíulestur
hvern fimmtudag kl. 9. Allir
velkomnir.
Fíladelfía Lundargötu 12. Al-
menn samkoma hvern sunnu-
dag kl. 20.30. Söngur, mússík,
ávörp, vitnisburður. Biblíu-
lestur á fimmtudögum kl.
20.30. Sunnudagaskóli hvern
sunnudag kl. 11 f.h. Öll börn
velkominn. Fíladelfía.
Hjálpræðisherinn. Aðalritari
Hjálpræðishersins, ofursti
Mílerin og frú ásamt nýja
deildarstjórahjónunum major
Guðmund Lund og frú,
heimsækja Akureyri.
Fimmtudaginn 5. okt. kl.
20.30. fagnaðarsamkoma fyrir
deildarstjórann og frú. Föstu-
daginn 6. okt. kl. 20.30. Sam-
koma komið og hlustið á söng,
vitnisburð og fl.
Sjónarhæð. Almenn samkoma
n.k. sunnudag kl. 17. Biblíu-
lestur á fimmtudag kl. 20.30.
Sunnudagaskóli í Glerárskóla
á sunnudag kl. 13.15. Verið
velkomin. Orð krossins ís-
lenskur kristilegur útvarps-
þáttur frá Monte Carlo á 205
m. eða 1466 Khz(miðbylgja) á
mánudagskvöldum kl.
23.15-23.30. Sjónarhæðar-
söfnuðurinn.
Gjafir og áheit. Til Akureyrar-
kirkju kr. 5.000, frá Brynjólfi
og Sigríði, kr. 3.000 frá Gerði
Tryggvadóttur, kr. 5.000 frá
N.N. Til Strandarkirkju kr.
1.000 frá R.G., kr. 1.000 frá
G.M., kr. 1.100 frá G.G. og kr.
5.000 frá N.N. Bestu þakkir.
Birgir Snæbjörnsson.
Akureyrarkirkja. Messað n.k.
sunnudag kl. 2 e.h. Sálmar
218, 342, 180, 201,7. B.S.
Minjasafnið á Akureyri er opið á
sunnudögum frá kl. 2-4 e.h. á
öðrum tímum tekið á móti
skóla- og áhugafólki eftir
samkomulagi, sími safnsins er
24162 og safnvarðar 24272.
Sunnudagaskóli Akureyrar-
kirkju er á sunnudaginn kem-
ur kl. 11 f.h. Öll börn eru
hjartanlega velkomin. Eldri
börn eru í kirkjunni og yngri
börn (innan skólaskyldu) í
kapellu kirkjunnar. Sóknar-
prestar.
I.O.O.F. 2 - I6OIO68V2 -9-1
Konur í Baldursbrá. Fundur
verður sunnudaginn 8. okt. kl.
3.30. Stjórnin.
□ Huld 59781047 IV/V. FjLst.
I.O.G.T. st. ísafold- Fjallkonan
nr. 1. Fundur fimmtudag 5
þ.m. kl. 8.30 e.h. í félagsheim-
ili templara Varðborg. Fund-
arefni: Víxla nýliða, rætt um
vetrarstarfið. Mætið vel og
stundvíslega. Æ.t.
Kvenfél. Akureyrarkirkju held-
uraðalfund í kirkjukapellunni
kl. 3 sd. sunnudaginn 8. októ-
ber n.k. Minnst verður 40 ára
afmælis félagsins. Nýir félagar
velkomnir. Stjórnin.
Lionsklúbburinn
Huginn. Fund-
ur fimmtudag-
inn 5. okt. kl.
12.15 á hótel
K.E.A.
Brúðhjón. Hinn 1. október voru
gefin saman í hjónaband í
Akureyrarkirkju ungfrú Auð-
ur Árnadóttir klínikdama og
Snæbjörn Sigurðsson húsa-
smíðanemi. Heimili þeirra
verður að Tjarnarlundi 15 e,
Akurevrí
Hugheilar þakkir til þeirra sem glöddu mig með
heimsóknum, gjöfum og skeytum á 80 ára afmœli
mínu 8. september s. I.
EIÐUR GUÐLAUGSSON
Hólsseli
Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma,
AUÐUR ÓLAFSDÓTTIR
Akurgerði 1 e, Akureyri
sem lést þann 26. september verður jarðsungin frá Akureyrar-
kirkju fimmtudaginn 5. október kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vildu
minnast hinnar látnu, er bent á Krabbameinsfélag (slands.
Kristján Jónsson
börn, tengdabörn og barnabörn
6.DAGUR