Dagur - 12.12.1978, Síða 6
NÝ SENDING AF
Valgeir Sigurðsson:
UM MARGT AÐ SPJALLA
I þessari fjölbreyttu og skemmtilegu
bók, birtast 15 viðtalsþættir Valgeirs
Sigurðssonar blaðamanns við
merka, núlifandi fslendinga, sem allir
hafa eitthvað sérstakt, fræðandi og
skemmtilegt í pokahorninu. Viðmæl-
endur Valgeirs eru: Einar Kristjáns-
son, Hannes Pétursson, Indriði G.
Þorstensson, Kristján frá Djúpalæk,
Rósberg G. Snædal, Broddi Jó-
hannesson, Eysteinn Jónsson, Guð-
rún Ásmundsdóttir, Jakob Bene-
diktsson, Sigurður Kr. Árnason,
Anna Sigurðardóttir, Auður Eiríks-
dóttir, Auður Jónasdóttir, Stefán Jó-
hannsson, Þorkell Bjarnason. í bók-
inni birtast myndir af öllum viðmæl-
endum Valgeirs, og í bókarlok er
mannanafnaskrá.
Verð kr. 6.480.
Sidney Sheldon:
ANDLIT I SPEGLINUM
I fyrra var það „Fram yfir miðnætti"
og nú kemur „Andlit í speglinum".
Þessi nýja ástarsaga eftir Sidney
Sheldon er þrungin hrollvekjandi
spennu sem heldur lesandanum
hugföngnum allt til óvæntra sögu-
loka. Metsöluhöfundurinn Sidney
Sheldon kann þá list að gera sögur
sínar svo spennandi að lesandinn
stendur þvf sem næst á öndinni
þegar hámarkinu er náð . . .
Hersteinn Pálsson þýddi.
Verð kr. 6.600.
Þjóðsagnasafn Odds Björnssonar
ÞJÓÐTRÚ
OG ÞJÓÐSAGNIR
Sígild og góð bók í nýrri og aukinni
útgáfu. Bók, sem ætti að vera til á
hverju íslenzku heimili, ungum sem
öldnum til ánægju.
Verð kr. 9.600.
Erlingur Davíðsson:
NÓI BÁTASMIÐUR
Endurminningar Kristjáns Nóa Krist-
jánssonar, sem í daglegu tali gengur
undir nafninu Nói bátasmiður. Hann
er mjög sérstæður persónuleiki sem
gaman er að kynnast. Hér segir Nói
bátasmiður frá ýmsum atvikum lið-
innar ævi, hefir sérstök orðatiltæki á
hraðbergi og kallar ekki allt ömmu
sína.
Verð kr. 6.840.
SKOÐAÐ í SKRÍNU
EIRIKS Á HESTEYRI
Jón Kr. Isfeld bjó til prentunar.
Eiríkur (sfeld á Hesteyri í Mjóafirði
fæddist 8. júlí 1873. Á yngri árum
sínum skráði hann mikið af þjóðsög-
um og ævintýrum, sem birtast (
þessari bók.
Bókin skiptist í eftirfarandi kafla:
Dularfull fyrirbrigði — Övættir —
Reimleikar, svipir o. fl. — Ævintýri —
Sögur ýmiss efnis — Draumar —
Slitur úr Dagbók.
Þetta er kjörin bók fyrir þá sem unna
þjóðlegum, islenskum fróðleik.
Verð kr. 6.480.
Ragnar Þorsteinsson:
SKIPSTJÓRINN OKKAR
ER KONA
Hér kemur hressileg íslenzk sjó-
mannasaga, 10. bókin eftir hinn
ágæta rithöfund Ragnar Þorsteins-
son, sem kunnur er fyrir sínar raun-
sönnu lýsingar á sjómennsku hér við
land. Hér segir frá svaðilförum og
mannraunum og björgun úr sjávar-
háska. En jafnframt er þetta hugljúf
ástarsaga.
Verð kr. 4.200.
Ingibjörg Sigurðardóttir:
ÓSKASONURINN
Sumir rithöfundar njóta margvíslegr-
ar viðurkenningar og verðlauna fyrir
ritstörf sín. Aðrir njóta hylli almenn-
ings. Ingibjörg Sigurðardóttir á sér
stóran hóp lesenda, sem fagnar
hverri nýrri skáldsögu frá hennar
hendi.
Verð kr. 4.200.
Þorbjörg frá Brekkum:
STÚLKAN
HANDAN VIÐ HAFIÐ
Óttar hefur örðið fyrir mikilli ástar-
sorg og ætlar sér svo sannarlega
ekki að láta ánetjast á ný. En þegar
Sandra kemur óvænt eins og nýr
sólargeisli inn í líf hans, þá blossar
ástin upp. Þau reyna að bæla niður
ofsalegar og heitar tilfinningar sínar
og verða að berjast við margskonar
erfiðleika áður en hin hreina og
sanna ást sigrar að lokum.
Verð kr. 4.200.
BYGGINGAVÖRUDELD
Veggfóðri og veggdúk
EINNIG
CONTRY
HOUSE VEGGSTRIGI
Akureyrarkirkja messað n. k.
sunnudag kl. 5 (Ath. breytt-
an messutíma) Sálmar nr.
69, 67, 70, 460, 74. P. S.
Ljósavatns og Lundarbrekku-
sóknir Aðventukvöld n.k.
sunnudagskvöld kl. 21 í
Stórutjamarskóla. Fjölbreitt
dagskrá. Sóknarprestur.
I.O.G.T. stúkan Ísafold-Fjall-
konan no. 1 jólafundurinn
verður haldinn fimmtudag-
inn 14. þ.m. kl. 8.30 í félags-
heimili templara Varðborg.
Fundarefni. Vígsla nýliða.
Kosning embættismanna
jóladagskrá. Mætum öll
stundvíslega og munið eftir
jólapakkanum. Æ.t.
Hálsprestakall Aðventukvöld
verður n.k. sunnudagskvöld
17. desember kl. 21 í Stóru-
tjamarskóla. Hljóðfæraleik-
ur, söngur, helgileikur og
séra Birgir Snæbjömsson
flytur hugvekju. Sóknar-
prestur
Sunnudagaskóli Akureyrar-
kirkju verður n. k. sunnudag
kl. 11 f. h. Sýndar verða
kvikmyndir. Öll börn vel-
komin. Sóknarprestur.
Hjálpræðisherinn. N.k. sunnu-
dag kl. 17 samkoma, „Við
syngjum jólin í garð“. Fjöl-
breytt dagskrá og mikill
söngur. Allir velkomnir.
ARHADIICILU —
Brúðhjón. Sl. laugardag voru
gefin saman í hjónaband í
Akureyrarkirkju brúðhjónin
ungfrú Valgerður Stefáns-
dóttir afgreiðslustúlka og
Jón Matthías Magnússon
vinnuvélastjóri Smárahlíð
22a.
□ Rún 597812177-jólaf.
I.O.O.F. Rb 2 = 12812138 Vi =
Atkv.
□ Huld 597812137 VI 2
I.O.O.F. 2 - 16012158 Vi\
Lionsklúbburinn Hængur jóla-
fundur á hótel K.E.A. föstu-
daginn 15. desember kl.
19.15 Stjómin
Kiwanisklúbburinn Kaldbakur
jólafundur fimmtudaginn
14. desember að Hótel
K.E.A. kl. 19.15 Takið kon-
umar með. Stjómin.
I.O.G.T.Bingó föstudaginn 15.
desember n.k. kl. 21 í Hótel
Varðborg. Góðir vinningar.
M.a. kjötskrokkur, hangi-
kjöt, sykur, smjörlíki, laufa-
brauð, egg, ávextir, saltfisk-
ur o.m.fl. Verið velkomin.
Nefndin.
GJAFIR 06AHE1T
Gjafir til Akureyrarkirkju: frá
E. B. L. kr. 5.500 og frá
Gerald Hasier Aðalsteins-
,syni kr. 3.000. Bestu þakkir.
Birgir Snæbjörnsson.
Innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
eiginmanns míns, föður og bróður
RAGNARS VALTÝS ÁRMANNSSONAR
María Guðmundsdóttir, Maríanna Ragnarsdóttir
Maríanna Valtýsdóttir, Magnús Sumarliðason
Sigurbjörg Ármannsdóttir, Þórarinn Hrólfsson
og aðrir vandamenn.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug, við andlát og
jarðarför bróður okkar
JÓNASAR MARINÓS HÁLFDÁNARSONAR
Ólafía Hálfdánardóttir
Guðrún Hálfdánardóttir
Margrét Hálfdánardóttir
Rannveig Hálfdánardóttir
Sveingerður Benediktsdóttir
og aðrir vandamenn.
Innilegar þakkir fyrir vináttu og hlýhug við andlát og jarðarför
eiginmanns míns, föður og afa.
STEFÁNS HALLDÓRSSONAR
vélstjóra Akureyri
Sérstakar þakkir til Oddfellow bræðra og starfsmanna Akureyr-
arbæjar, vélaverkstæðisins Atla og fyrrverandi samstarfsmanna
á Hjalteyri.
Kristín Eggertsdóttir
börn og barnabörn.
Maðurinn minn,
MAGNÚSJÓNSSON
fyrrv. bóndi Hrafnsstaðakoti, Dalvík
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 9. desember 1978
Jarðarförin fer fram frá Dalvíkurkirkju iaugardaginn 16. des.
1978 kl. 14.00
Laufey Þorleifsdóttir
BÓKAFORLAG ODDS BJÖRNSSONAR • AKUREYRI