Dagur - 13.02.1979, Blaðsíða 2

Dagur - 13.02.1979, Blaðsíða 2
s Smáauölvsinéar Bifreiðir Saab 99 árg. '71 tit sölu. Traustur bíll. Uppl. í síma 23964. Cltroen GS 220 club árg. '74 til sölu. Brúnn. Uppl. í síma 24293. Skoda Amingó 120 L til sölu, árg. 1977. Ekinn 28 þús km. Ný snjódekk fylgja. Greiðsla eftir samkomulagi. Uppl. í síma 24440 eftir kl. 18. Ford Escord árg. '77 til sölu. Uppl. í síma 61308 eftir kl. 4. Kaup I VII kaupa 1-2 tonna trillu. Uppl. í síma 25259 eftir kl. 19. Óska eftir að kaupa snjósleða. Aðeins vel með farinn og lítið ekinn kemur til greina. Sími 22266. Hitatúba óskast til kaups, með spíral fyrir neysluvatn, 14-16 kw. Listhafendur leggi inn nöfn sín og heimilisföng á afgreiðslu Dags fyrir næstu helgi. Rafmagnstúbur óskast til kaups. Þurfa að vera 12-15 kw. Tilboð óskast send blaöinu fyrir 20. febrúar. Atvinna Fullorðin reglusöm kona óskar að taka að sér heimili fyrir 1 eða 2 reglusama fullorðna menn gegn húsnæöi og fæöi. Tilboö sendist blaðinu fyrir 20 þ.m. merkt „Reglusöm". Ýmislegt Pfaff saumavél, helst teg. 1222 óskast til leigu í nokkrar vikur. Vélin verður aðeins notuð við heimilissaum. Bergþóra Egg- ertsdóttir sími 22505 Skála- gerði 5. Sófasett til sölu í góöu ástandi. Selst ódýrt. Uppl. í síma 24307 milli kl. 6 og 8 e.h. Yamaha 340 vélsleði árg. 1977 til sölu, einnig dráttarþota úr plasti aftan í sleða. Lúther Olgeirsson, Vatnsleysu, Fnjóskadal. Tvær notaðar Westinghouse 10 kw rafhitatúbur ásamt spólurofum og vatnshitastillum til sölu. Uppl. í síma 21597 eftir kl. 17. 14 tommu Hltachl sjónvarps- tæki til sölu. Svart, hvítt, tveggja og hálfs árs gamalt. Uppl. gefur Pálmi í Tónabúð- inni. Kartöfluupptökuvél til sölu (522) þriggja ára. Uppl. á Hlöðum sími 23100. Brno rifflll 30.06 tilsölu. Uppl. í síma 25259 eftir kl. 19. Tvö ný sóluð snjódekk til sölu, 13 tommu. Uppl. í síma 23473 eftir kl. 7 á kvöldin. Evenrud vélsleði árg. 1975 til sölu. Upplýsingar í síma 22789 Tvö hlaðrúm til sölu frá Stáliön. Uppl. í síma 22735 Peugeot skelllnaðra til sölu árg. 77. Uppl. í síma 22556 Ýmislegt Smábátafélagið Vörður heldur aðalfund sinn fimmtudaginn 15. febrúar kl. 8.30 e.h. í kaffi- stofu starfsmanna Akureyrar- bæjar við Tryggvabraut. Mætið vel og stundvíslega. Kaffiveit- ingar eftirfund. Stjórnin. Húsnæði Ég bíð tllboð í tveggja her- bergja íbúð er ég vil fá leigða sem allra fyrst í fjóra mánuði. Tilboöið hljóðar upp á 35.000 krónur. Listhafendur leggi inn nöfn sín og heimilisföng á afgreiðslu blaðsins merkt 470. Herbergi óskast tif leigu sem næst Iðnskólanum. Uppl. í síma 61223. Óska eftir að taka á leigu tvö herbergi eða litla íbúð. Fyrir- framgreiðsla ef óskað er. Uppl. í síma 21066 eftir kl. 19. Óska eftir 2ja herbergja íbúð sem fyrst. Upplýsingar gefur Margrét Sveinsdóttir í Sápugerðinni Sjöfn milli kl. 1 og 4 og á kvöld- on í síma 24393. (búð til leigu. Til leigu er fimm herbergja íbúð í Austurbyggð 13. Tilboð óskast. Uppl. í síma 22547. Haraldur Valsteinsson. ’Skemmtanirt Þorrablót veröur haldið að Freyjulundi laugardaginn 17. febrúar kl. 20.30. Miðapantanir og nánari upplýsingar í síma 32121,21189 og Litla-Dunhaga milli kl. 19 og 21 til fimmtu- dagsins 15. febrúar. Miðafjöldi takmarkaöur. Nefndin. Barnaöæsla Bamfósta óskast fyrir sex ára stúlku frá kl. 8-4. Upplýsingar í síma 24747 eftir kl. 4. 12-13 ára stúlka óskast til að vera úti með rúmlega eins árs gamlan strák tvo til þrjá tíma á dag. Nálægt Borgarhlíö fimm daga vikunnar. Uppl. í síma 24950 eftir kl. 7 á kvöldin. Sendibílastöðin viðurkennd Fjöldi sendibif reiða verður tak- markaður Á fundi bæjarráðs fyrir skömmu voru lögð fram tvö erindi frá Bílstjórafélagi Ak- ureyrar. í hinu fyrra var leitað eftir að bæjarstjórn viður- kenndi formlega tilveru og þegnrétt Sendibílastöðvarinn- ar s. f., sem hefur starfað und- anfarin 25 ár og i síðara erind- inu var óskað eftir meðmælum bæjarstjórnar til samgöngu- ráðuneytisins um takmörkun sendibifreiða í umdæmi Akur- eyrar. Bæjarráð lagði til að bæjar- stjórn viðurkenndi formlega til- verurétt Sendibílastöðvarinnar s. f. Einnig var það samþykkt að leggja til við bæjarstjórn að hún mælti með því við samgöngu- málaráðuneytið, að fjöldi sendi- bifreiða á Akureyri verði tak- markaður en þó svo að enginn, sem hefur haft aðalatvinnu af akstri sendibifreiða undanfarin ár verði sviptur henni með þessari takmörkun. Bæjarstjórn tekur málið til umfjöllunar á fundi sínum í dag. Styggar kindur í Gunnólfsvíkurf jalli Þistilfirði 5. febrúar. Hér í sveit eru störfin jöfn alla daga en bændur vita að hverju þeir ganga og kippa sér ekki upp við það, þótt þeir vinni helga daga sem virka. En þó gera menn sér dagamun með ýmsu móti, svo sem með heimsóknum hver til annars og um helgina var þorra- blót á Þórshöfn með hefð- bundnum hætti. Skemmtiatriði voru heimafengin og ekki bar á öðru en að fólk skemmti sér vel. I þessu sambandi má segja, að fólk skemmti sér og hlæi að vit- 2.DAGUR ieysunni og þar á ég við annál árs- ins, sem ég flutti nú í 26. sinn. Ég lýsi mörgu af því sem á liðnu ári hefur gerst, í einhverskonar spé- spegli og hef nú notað öll þau stíl- brögð, sem mér hafa hugkvæmst. Stundum hef ég haft annálinn í fomsögustíl, Laxnessstíl o.s.frv. Núna hafði ég hann í barnalegu sendibréfsformi. Þetta skemmtiefni er aðeins ætlað líðandi stund og telst ekki til bókmennta. Það sé ég ef mér verður litið á gömlu annál- ana mína og þá genghur alveg fram af mér. En sumt er ætlað fyrir augnablikið en annað lifir og er oftast sitt hvað. Á Þórshöfn gengur það fremur rólega. Nokkurt atvinnuleysi er, því flest byggist á fiskinum, sem hingað berst stopult, þó kemur Dagný öðru hverju með afla og bátar eru að reyna að fiska en gæftir eru nánast engar. Langnesingar fóru nýlega inn á Hvammsheiði á vélsleðum og fundu tvö hrútlömb við ána, rétt utan við Stóragljúfur. Lömbin voru heldur mögur en vel frísk og voru þau flutt til byggða. í Gunnólfs- víkurfjalli eru tvær kindur, sem ekki hefur tekist að ná. Ó.H. RÐSENDING TIL BÆNDA TIMANLEG PONTUN TRYGGIR TÍMANLEGA AFGREIÐSLU. Við viljum hvetja bændur, svo og aðra viðskiptamenn ókkar, sem hyggja'á búvélakaup á komandi vori og sumri, til að kanna nú þegar hugsanlega þörf sína og koma pöntunum til okkar sem fyrst. 1 MV= Massey Ferguson 2 HEYÞYRLUR •cltTp.v 3 BAGGAFÆRIBÖND 4 MJALTAVELAR 5 HEYHLEÐSLUVAGNAR oc ALFA-LAVAL 6 SLÁTTUÞYRLUR 7 ÁBURÐARDREIFARAR RAFMÓTORAR 1 og 3gja fasa jöTunn hp HEYVINNUVÉLAR □ 101 INTERNATIONAL HARVESTER OG VINNUVÉLAR LEITIÐ UPPLYSINGA HJA OKKUR áður en þér fesfið kaup annars sfaðar. 'S^VÉIADBLD I simi 21400 og 22997_■

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.