Dagur - 13.02.1979, Síða 8

Dagur - 13.02.1979, Síða 8
DAGUR RAFGEYMAR i BÍLINN, BÁTINN, VINNUVÉUNA VEUIÐ RÉTT MERKI Fjárhagsáætlun bæjarsjóðs Fjárhagsáætlun bæjarsjóðs liggur fyrir og er fyrrí umræða um hana í bæjarstjóm í dag. Blaðið bað Sigurð Óla Brynjólfsson, bæjarfull- trúa að greina frá helstu þáttum hennar og varð hann fúslega við þeim tilmælum. Tekjur Áætlað er að leggja á útsvör og að- stöðugjöld eftir sama álagningar- skala og á síðasta ári. Könnun bendir til þess að vænta megi að útsvarsupphæðin hækki með því móti um 60% og aðstöðugjald um 53%. Fasteignaskattar hækka veru- lega á milli ára vegna nýs fast- eignamats og vegna þess að ákveð- ið var að nýta álagningarheimildir til fulls eins og verið hefur að und- anförnu að síðasta ári undanskildu. Miklar sveiflur hafa verið á fast- eignasköttum vegna þess að fast- eignamatið hefir ekki verið látið fylgja verðlaginu nægilega reglu- bundið og stökkin því verið stærri en eðlilegt hefði verið. Undir liðn- um Aðrir skattar og tekjur eru langstærstu liðirnir gatnagerðar- gjöld og byggingarleyfisgjöld sem til samans eru áætluð verða 160 millj. kr. Aðrir tekjuliðir þarfnast ekki mikilla skýringa. Útgjöld All erfitt er að bera saman einstaka rekstrarliði í þessari áætlun og þeirri sem var gerð fyrir síðasta ár vegna þess að verið er að taka upp nýjan bókhaldslykil að tilmælum Sambands islenskra sveitarfélaga. Verða því allmiklar tilfærslur á milli flokka. Þannig er 17.5 millj. kr. framlag Akureyrarbæjar til Fjórðungssambandsins fært á lið- inn Yfirstjóm bæjarins en var áður fært undir liðnum Ýmis útgjöld. Félagsmál Undir liðnum félagsmál eru margskonar mál og eru þessi helst: Félagsmálastofnun með ýmsum þeim sérverkefnum sem undir hana falla svo sem fjárhagsaðstoð, vist- anir, heimilisþjónusta og fleira kostar samkv. áætlun 79 millj. kr. Dagheimili, leikskólar, skóladag- heimili og leikvellir fá um 160 millj. kr. til rekstursins. Framlög til sjúkratrygginga og atvinnuleysis- tryggingasjóðs eru áætluð 330 millj. kr. og hækka frá fyrra ári um 186 millj. kr.Til annara sjóða og stofn- anna er varið 100 millj. kr. Þar er stærsta upphæðin til Byggingasjóðs verkamanna eða 67 millj. kr. Dval- arheimilunum er veittur bygginga- styrkur að upphæð 17 millj. kr. Alls er liðurinn félagsmál um 700 millj. kr. Heilbrigðismál Stærstu liðimir í þessum flokki eru vegna tannviðgerða skólabarna eða 80 millj. kr. og rekstur læknamið- stöðvar og heilsuverndarstöðvar sem er 35,7 mill. kr. Fræðslumál og menningarmál Hlutur bæjarins í rekstri grunn- skólanna fimm (og þar með taldar framhaldsdeildir G. A.) er 320 millj. kr. en var 200 millj. kr. á síð- asta ári. Til reksturs Iðnskólans, hússtjómarskólans og námsflokka fara 52,5 millj. kr. og 53 millj. kr. er varið úr bæjarsjóði vegna Tónlist- arskólans. Til reksturs Amtbóka- safnsins og Héraðsskjalasafnsins fara 71,5 millj. kr„ til Náttúru- gripasafnsins 11,3 millj. kr„ til Minjasafnsins 10,2 millj. kr og eru þar af 2,7 millj. kr. vegna sérstakrar skráningar myndaplötusafns sem þangað var flutt á síðasta ári. Menningarsjóður fær4 millj. kr. og Húsfriðunarsjóður3,5 millj. kr. auk sérstaks framlags vegna Laxdals- húss að upphæð 8 millj. en þar af eru 6 millj. vegna síðasta árs. Gatnagerð — Skipulags- og byggingamál Þessir málaflokkar eru nú meira sundurgreindir en á sl. ári. Til skipulagsstarfa fara nú um 35 millj. kr. en 10 millj. kr. þar af koma væntanlega sem endurgreiðslur. Byggingaeftirlit, lóðarskrárritun og fasteignamat kostar um 49 millj. kr. og til að standa undir kaupum húsa vegna skipulags fara um 32 millj. kr. Til viðhaids gatna og holræsa verður varið 106 millj. kr. og til endurbygginga eldri gatna 140 millj. kr. Þá er áætlað að til gatna Ýmis útgjöld Aðalliðurinn í þessum flokki er framlag til reksturs strætisvagna samkvæmt samningi frá því í haust. Er gert ráð fyrir 49 millj. kr. vegna strætisvagnanna. Þá er liðurinn óvænt og óviss útgjöld bæjarsjóðs áætluð 40 millj. kr. sem er um 1 % af heildar útgjöldum bæjarsjóðs og hefir svo verið undanfarið. unum 73 millj. kr. Þessi liður var áætlaður 43 millj. á síðasta ári. Til að fyrirbyggja misskilning skal fram tekið að vextir af lánum bæj- arfyrirtækja svo sem hitaveitu, vatnsveitu og hafnarsjóðs eru ekki inn I þessum tölum. Afborganir lána verða um 175 millj. kr. á móti 93 millj. kr. á síð- asta ári. Styrkir til nokkurra menningarfé- laga eru 35 milljónir og er framlag til Leikfélags Akureyrar þar lang stærst eða 28 millj. kr. Alls er áætl- að til þessara málaflokka um 580 millj. kr. en á síðasta ári 340 millj. Ekki er þó um alveg sambæri- lega liði að ræða vegna tilfærslu. Hreinlætismál Til snjómoksturs eru áætlaðar 36 millj. kr. Til sorphirðingar og frá- gangs á sorphaugum fara 81 millj. kr en til annarar hreinsunar 73 millj. kr. I'þrótta- og æskulýðsmál Til sameiginlegrar stjórnunar og til reksturs sundlaugar, íþróttahúsa (annara en íþróttahúss við Glerár- skóla, sem er rekið sem skóla- mannvirki), íþróttasvæðis, skauta- svella og Skíðastöðvar í Hlíðarfjalli er varið úr bæjarsjóði um 68 millj. kr. En þess má geta að heildar- rekstur þeirra er áætlaður um 200 millj. kr. Þannig eru tekjur þeirra áætlaðar um 130 millj. kr. en þar af greiða skólarnir um 50 milljónir. Til reksturs Dynheima, félags- starfs út í hverfunum og æskulýðs- móta og svipaðrar starfsemi er var- ið um 25 millj. kr. Framlög til ÍBA, íþróttafélaga og félaga sem hafa með höndum æskulýðsstarf eru rúmar 30 millj. kr. Þar fær ÍBA mest 13 millj. kr. Til mannvirkjagerðar félaga eru áætlaðar 5 millj. kr. í formi véla- leigu. Til þessara málaflokka er í heild áætlaðar 125 milljónir kr. á móti 70 millj. kr. á síðasta ári. og holræsa í nýjum hverfum þurfi um 180 millj. kr. Til malbikunar gatna og gang- stétta verður varið 185 millj. kr. og til ýmissa verka t sambandi við gatnagerð og holræsi um 100 millj. kr. í þeim lið er stærsti þátturinn vegurinn í gegnum Miðbæinn frá Glerárgötu að Höfner. Alls fara því til gatna- og holræsagerðar um 815 millj. kr. samkv. áætluninni á móti 560 millj. kr. á síðasta ári. Eldvarnir — Fasteignir Gert er ráð fyrir óbreyttu rekstar- fyrirkomulagi hjá Slökkviliðinu og hækkar rekstur þess úr 88 millj. kr í 134 millj. kr á milli ára. Stærstu gjaldapóstarnir undir liðnum fasteignir eru viðhald og rekstur leiguhúsnæðis á vegum bæjarins sem kostar 34,5 millj. kr. og er þar af 7,5 millj. kr. vegna Samkomuhússins, þá fara 20 millj. til viðhalds vega og girðinga utan skipulagðra svæða. Tækniþjónusta húsameistara er áætluð kosta 37 millj. kr. en þar af koma aftur tekj- ur um 20 millj. kr. Fegrun og skrúð- garðar Helstu flokkarnir undir þessum lið eru: almenn fegrun og hirðing svæða en til þess verður varið rúm- um 50 millj. kr. Til Lystigarðsins 18 millj. kr. og til útivistarsvæðisins í Kjamaskógi 10 millj. kr. Til ung- lingavinnu og skólagarða eru áætl- aðar 21,8 millj. kr. auk 6 millj. kr. sem koma frá stofnunum Akureyr- arbæjar. Vextirog Mýbyggingar- . Vélakaup Mwrjjoilir Til nýbygginga og jarðakaupa er Gert er ráð fynr að vaxtagjöld t ráð fyrir frainlögum að upp- bæjarsjoðs verð. um 86 millj. kr. hæð 456 miUj. kr. ar a eru vextir af langtíma áætl- Stærstu framlögin eru þessi: Til Fjórðungssjúkrahússsbyggingar- innar 49 millj. kr„ til bygginga grunnskóla 90 millj. kr„ til svæðis- íþróttahúss 165 millj. kr„ til bygg- inga dagvistunarstofnana 66 millj. kr. og vegna bygginga leiguíbúða 24 millj. kr. Til kaupa á löndum fara 30 millj. kr. og er þar aðallega verið að mæta hugsanlegri útborgun vegna kaupa sem standa fyrir dyrum á Rangár- vallalandi. Til vélakaupa er áætlað að verja nær 125 millj. kr. Þar er stærsti lið- urinn kaup á snjótroðara fyrir Skíðamiðstöðina en hann kostar um 42 millj. kr. og er kominn. Þá er ætlunin að kaupa bifreið fyrir sorphreinsunina og er verð hennar áætlað 26 millj. kr. Jarðýta kostar 16 millj. og loftpressa um 13 millj. kr. Ýmis smærri tæki og litlir bílar verða keypt fyrir 27 millj. kr. Samtals Tekjur: þús. kr. Útsvör................................................ 1.830.000 Aðstöðugjöld............................................ 505.000 Skattar af fasteignum................................... 650.000 Jöfnunarsjóðsframlag.................................... 395.000 Aðrir skattar og tekjur................................ 209.000 Tekjur af fasteignum.................................... 125.000 Vaxtatekjur.............................................. 70.000 Ýmsar tekjur............................................. 37.000 Þús. kr. 3.821.000 Rekstrargjöld: GjÖld* þús. kr. Yfirstjórn bæjarins..................................... 187.650 Félagsmál............................................... 692.550 Heilbrigðismál.......................................... 139.000 Fræðslumál.............................................. 410.450 Menningarmál........................................... 142.500 Fegrun og skrúðgarðar.................................... 95.650 íþrótta-og æskulýðsmál.................................. 119.250 Eldvarnir............................................... 125.000 Hreinlætismál........................................... 190.500 Skipulags- og byggingamál............................... 106.100 Götur og holræsi........................................ 203.100 Fasteignir............................................... 72.950 Fjármagnskostnaður....................................... 85.900 Ýmisútgjöld.............................................. 97.150 Bein rekstrarútgjöld alls þús. kr. 2.667.750 Stofnkostnaður færður á rekstur: Félagsmál................................................. 7.500 Heilbrigðismál........................................... 24.800 Menningarmál.............................................. 2.500 Fegrun og skrúðgarðar..................................... 7.350 íþrótta- og æskulýðsmál................................... 6.400 Götur og holræsi........................................ 611.600 Fasteignir................................................ 6.000 Þús. kr. 671.150 Fært á eignabreytingar þús. kr.......................... 482.100 Samtals útgjöld: þús. kr. 3.821.000

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.