Dagur - 20.02.1979, Blaðsíða 5
Útgefandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
Skrifstofur Tryggvabraut 12, Akureyri
Ritstjórnarsímar: 24166 og 23207
Sími auglýsinga og afgreiöslu: 24167
Ritstjóri (ábm.): ERLINGUR DAVÍÐSSON
Blaðamaður: ÁSKELL ÞÓRISSON
Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf
Leiðréttinga
óskað
Forystugreinar eða leiðarar dag-
blaðanna í Reykjavík eru lesnar á
hverjum morgni nema á mánu-
dögum, en þá eru lesnar forystu-
greinar landsmálablaða, eins og
það er kallað, en það eru blöð sem
út eru gefin utan Reykjavíkur. Allt
er þetta góðra gjalda vert og rétt-
lætinu ætti að vera fullnægt hvað
hin ýmsu blöð á landsbyggðinni
snertír. En það vill svo til að eitt
blað á landinu Dagur á Akureyri
kemur út tvisvar í viku og í útvarpi
er aðeins lesin forystugrein úr
öðru blaðinu. Staðan er því þann-
ig, að ríkisútvarpið les alla leiðara
dagblaða og vikublaða nema
annan hvorn leiðara Dags og hef-
ur hver vísað af sér þegar leiðrétt-
ingar hefur verið óskað.
Um mál þetta gerði blaðstjórn
Dags ályktun á aðalfundi sínum
nú eftir áramótin, þar sem óskað
er leiðréttingar. Er þess að vænta,
að útvarpsráð leiðrétti híð fyrsta
þá mismunun, sem enn hefur ekki
fengist en virðist sjálfsagt réttlæt-
ismál.
í framhaldi af þessu vill blaðið
minna á, að það og fleíri blöð
landsbyggðarinnar gerðu á sínum
tíma ákveðna tilraun til þess að fá
sinn hluta af ríkisstyrk til blaða,
greiddan beint til blaðanna. Al-
þingismenn flæktu mál þetta á Al-
þingi og gerðu úr því óskapnað,
Ríkisstyrks njóta dagblöðin í
Reykjavík og hefur ekki annað
heyrst en þau hafi fengið sítt. öðru
máli gegnir um blöð þau, sem
gefin eru út á öðrum stöðum. Til
þeirra fer ríkisstyrkurinn ekki be-
ina leið, heldur í gegn um stjórn-
málaflokkana. Stundum hefur
verið sagt, að hún sé löng, leiðin
til keisarans. Hún er getur einnig
orðið löng, leiðin frá höfuðborg-
inni út á landsbyggðina og svo
hefur það orðið um ríkisstyrkinn til
Dags fyrir árið 1978, því hann er
ókominn enn. Hann hefur ein-
hvers staðar stöðvast í kerfi því,
sem alþingismenn bjuggu til, því
ekki náði sú ósk vikublaðanna
fram að ganga, að fá ríkisstyrkinn
greiddann milliliðalaust. Er þeirri
ósk nú beint til alþingismanna í
Norðurlandskjördæmi eystra,
sem ásamt fleirum bjuggu til
krókóttan veg fyrir ríkisstyrk til
blaða á landsbyggðinni, að þeir
athugi hvar umferðatruflunin hef-
ur orðið og hvort þeir finni þá ekki,
ríkisstyrkinn til Dags frá síðasta
ári og sendi hann með fyrstu ferð,
því tæplega hafa peningarnir far-
ist í pósti eða lent í höndum
vondra manna. Það vill svo til,
þrátt fyrir velgengni Dags, að
blaðið þarf á sínu að halda, þótt
það lifi hvorki né deyi vegna ríkis-
styrks.
Haustið 1975 tók öldungadeild Menntaskólans á Akureyri til
starfa. Árið áður var slík deild innan Námsflokka Akureyrar og
þeir nemendur sem þar stunduðu nám, héldu áfram i öldungadeild
MA. Nokkrir þeirra nemenda útskrifuðust voríð 1977. Þess má og
geta að örfáir höfðu áður lokið námi frá MA samkvæmt lögum um
öldungafræðslu, án þess að reglubundin kennsla komi til. Stór
hópur innritaðist f deildina fyrsta haustið og síðan hafa um 25 til
30 innritast á hverju hausti. Á þessu námsári hafa innritast um 35
nemendur. Eins og gefur að skilja hafa ekki margir lokið stú-
dentsprófi frá deildinni, en s.l. vor voru þeir tiu talsins, og í vor
útskrifast þeir fyrstu sem hófu nám um leið og deildin tók til starfa.
Fjöldi nemenda ákveður á
hvaða kjörsviðum er hægt að
kenna hverju sinni. f upphafi var
boðið upp á náttúrufræðikjörsvið
og málakjörsvið, en síðan fyrsta
haustið hefur ekki verið næg að-
sókn að neinu kjörsviði nema
málasviðið, en nýir nemendur
hafa ekki hafið nám við náttúru-
kjörsviðið siðan haustið 1975.
Á málakjörsviði eru kenndar
12 námsgreinar og einni færri á
náttúrufræðikjörsviði. Kennt er í
hverri námsgrein að jafnaði tvis-
var í viku og þá 80 mínútur í senn.
Fyrstu tímarnir hefjast kl. 18.15
og kennslu líkur á ellefta tíman-
um. Nemendur eru frjálsir að þvi
hve margar greinar þeir velja, en
sökum þess hve nemendurnir
hafa verið fáir, hefur ekki verið
unnt að bjóða upp á valgreinar og
því kennt meira í kjarnafögum en
Kennslustund í þýsku
Öldunqadeild M.A. sött heim
Bolli
Gústafsson:
„Talað við
laufgað tré“
Sýning Iðunnar
Ágústsdóttur
f Gallery Háhóli
Nemendurnir stunda
námið af miklum áhuga
segir Magnús Kristinsson, kennslustjóri
Ljúft er mér að verða við þeirri
ósk ritstjóra Dags, að fara nokkr-
um orðum um sýningu Iðunnar
Ágústsdóttur að Gallerí Háhóli,
en hún hófst að kvöldi föstudags-
ins 14. febrúar si.. Fór vel á því,
að Iðunn skyldi velja afmælisdag
móður sinnar, Elísabetar Geir-
mundsdóttur, til þess að opna
fyrstu málverkasýningu sína, en
sem kunnust er var Elísabet fjöl-
hæf listakona. Mér er ekki kunn-
ugt um, að Iðunn hafi stundað
listnám, en arfurinn að heiman
leynir sér ekki, þar sem hún hefur
fylgst með listiðkun móður sinn-
ar, meðan hennar naut við. Eru
tengslin Ijós í táknrænum mynd-
um, eins konar dulúðugum
skáldskap, sem rekja má til áhrifa
Einars Jónssonar myndhöggvara
á þá, sem fengust við högg-
myndagerð og útskurð. Hef ég á
tilfinningunni, að svo hafi því
verið háttað um Elísabetu Geir-
mundsdóttur að einhverju leyti.
Hinar dulúðugu pastelmyndir
Iðunnar hafa yfir sér kvenlegan
þokka, en hins vegar efast ég um,
að þetta viðfangsefni njóti sín til
fulls, nema í höggmyndum eða
unum hans Ásgríms úr Húsa-
fellsskógi. Iðunn ólst upp í Inn-
bænum í grennd við Gróðrar-
stöðina og gamla garða í Fjör-
unni, þar sem limmiklir meiðir
setja hlýjan svip á umhverfið. Er
augljóst að þetta sérstæða og
hugljúfa svið hefur haft sterk
áhrif á hana. Sýnir hún þarna
allmargar skógarmyndir. Yfir
þeim hvílir þokki og þá ekki síður
í vetrarmyndunum. Mér kom í
huga á þessari sýningu, að sú
grein myndlistar, sem nefnd er
leiktjaldagerð og er ekki öðrum
greinum óæðri, þótt oft sé tjaldað
til skamms tíma, mundi liggja vel
fyrir Iðunni. Auk pastelmynd-
anna, sýnir hún þarna litlar túss-
teikningar, sem eru vel gerðar og
leiða í ljós, að hún byggir á góðri
undirstöðu, því örugg teikning er
grundvöllurinn.
Meðfæddir hæfileikar Iðunnar
Ágústsdóttur leyna sér ekki, þeg-
ar sýningin á Háhóli er skoðuð og
vissulega er ástæða til. að hún
leggi alúð við að þroska þá. Óska
ég henni fararheilla. —
Sýningu Iðunnar lýkur að
kvöldi 25. febrúar n. k.
„Ég tel að deildin hafi gefið ákaf-
lega góða raun. Flestir nemend-
anna virðast hafa gaman af að
stunda námið, þó hinu sé ekki að
leyna að fyrir flesta er það mjög
erfitt“, sagði Magnús Kristins-
son, kennslustjóri öldungadeildar
MA. „Margir eru með fjölskyldu
og heimili og vinna þar að auki
úti. Það er áberandi að nemend-
umir stunda námið af miklum
áhuga og eru ánægðir með að hafa
fengið möguleika til frekara
náms“.
- Slunda nemendurnir námið
betur en þeir sem eru í vngri deild-
unum?
„Já, og það er ef til vill ekki
óeðlilegt að svo sé. Það er langt
síðan þetta fólk var í skóla og fyrir
það er námið tilbreyting frá
amstri hins daglega lífs. En ég vil
líka taka það fram að tímasókn er
minni hjá því en hjá yngri deild-
unum. Það leiðir af sjálfu sér að
námsþreytan verður ekki eins
mikil og hjá krökkunum sem
þurfa að sitja í rúmlega 30
kennslustundum í viku. Þar að
auki er í öldungadeildinni lítið
úrtak úr hverjum aldurshópi og
það verður að reikna með því að
þeir nemendur hafi miklu meiri
áhuga en gerist og gengur í við-
komandi aldurshópi. f yngri
deiidum MA er úrtakið hins veg-
ar miklu stærra.
- Er námið i öldungadeiidinni
frjálst?
„Ef mönnum hentar ekki að
hafa ákveðinn fjölda greina geta
þeir fækkað við sig. f upphafi
velja nemendurnir yfirleitt þær
greinar sem þeir hafa mestan
áhuga á og sjá síðan til. Ég hef
tekið þá stefnu að ráðleggja nýj-
um nemendum að taka sem fæst-
„f mörgum tilvikum er þetta
fólk sem hefur ekki átt kost á
námi eða hefur lokið lands- eða
gagnfræðaprófi og oft er það svo
að við fáum gamla nemendur úr
menntaskóla sem hafa hætt námi
af ýmsum ástæðum. Ég hef dæmi
um fólk sem ég kenndi í MA fyrir
mörgum árum og var þá latt og
áhugalaust, en kemur nú uppfullt
af áhuga og dugnaði. Það er
gaman að sjá hvernig einstakl-
ingar geta breyst með árunum.
Nemendur öldungadeildarinn-
ar eru í rauninni mun kröfuharð-
ari gagnvart kennurunum en
nemendur yngri deildanna. Þeir
stunda námið oft svo vel að
kennararnir mega eiga von á
ýmsum spurningum, sem aldrei
hafa borið á góma í kennslu hjá
yngri flokkunum. En þeir gera
líka miklar kröfur til sjálfs sín og
vilja kunna hlutina til hlítar.
Hvað kennaranum viðvíkur er
það mikilsvert að á hann sé
hlustað og að útskýringar fari
ekki inn um annað eyrað og út
um hitt“.
„ Hvað um árangur i cinstökum
greinum?
„Mér virðist að árangur i
tungumálum og sögu sé yfirleitt
mun betri en í yngri flokkunum,
enda má ætla að fólkið hafi við-
haldið þekkingu sinni í þessum
greinum með lestri bóka eða dvöl
erlendis. En þá verð ég aftur að
nefna, að fólk getur ráðið fjöida
námsgreina og að það er horfið
sem ekki gat verið með. Hins
vegar virðist mér sem nemendur
öldungadeildar eigi erfiðara með
raungreinarnar, sem er að mörgu
leyti eðlilegt".
hrjúfara efni. Er nokkur hætta á
væmni, þegar það er sett fram í
litum. í landslagsmyndum Ið-
unnar þykir mér skemmtileRast,
þegar hún lætur veðrið njóta sín,
lætur ljós og skugga leika sér í
skýjafari af léttri leikni. Það er
ekki algengt, að íslenskir málarar
velji sér skóglendi að viðfangsefni
og liggja næsta eðlilegar ástæður
til þess. Þó má ekki gleyma hrísl-
ar greinar í upphafi, því námið er
strembið fyrir flesta. Margir sem
hefja nám í öldungadeildinni
hætta því strax eða þegar líður á
fyrstu önnina. Ástæðurnar eru
eflaust margvíslegar - sumir hafa
ekki þann tíma sem til þarf og hjá
Námið hefur
vakið áhuga
á framhaldsmenntun, segir
Steinunn Sigurðardóttir
Hvernig starfar
Öldungadeild
Menntaskólans?
upphaflega ráð fyrir að Ijúka
náminu á fimm árum, enda voru
tvö ung böm á heimilinu þegar
hún byrjaði og það þríðja bættist i
hópinn skömmu síðar. Þegar leið
á námið komst hún að raun um að
vel hefði verið hægt að Ijúka stú-
dentsprófinu á fjórum ámm.
„Ef ég hefði skipulagt námið
betur í upphafi hefði ég átt að
geta tekið stúdentsprófið í vor.
Næsti vetur verður því auðveldur,
en þá verð ég bara með tvö fög",
sagði Steinunn. „Námið í öld-
ungadeildinni hefur óneitanlega
vakið áhuga manns á að læra
meira, en það er erfitt á Akureyri.
Við höfum mikinn áhuga á að fá
norður framhaldsnám, því erfitt
er fyrir marga að fara að læra í
Reykjavik".
Húsmæður eru í meirihluta i
deildinni og er Steinunn ein
þeirra. „Af því ég er „bara" hús-
móðir get ég ráðið nokkuð mikið
sjálf á hvað tíma dagsins ég nota
til náms. Því er ekki að heilsa með
marga af mínum skólafélögum,
sem eru í fullri atvinnu. Þrátt fyrir
það standa þeir sig eins og hetj-
ur“.
Hvaða ráðleggingar vildi
Steinunn gefa þeim sem hafa
áhuga á að hefja nám í öldunga-
deildinni? „Ef fólk er að hugsa
um þetta í alvöru ætti það að
skipuleggja námið betur en ég
gerði. Það verður líka að gæta
þess að taka ekki of mikið i einu.
Síðast en ekki síst verður öll fjöl-
skyldan að standa með manni. Ef
svo er verður námið auðvelt. Sem
betur fer hefur fjölskylda mín
hvatt mig, og á það ekki síst við
um synina sem eru 10 og 12 ára
gamlir".
Verð fertugur þegar
þessu lýkur Steinþór Oddsson
• ' . .. . ..x-*.-"-
Menntaskólinn á Akureyri.
gerist hja yngri deudum skólans.
Þess skal líka getið að fæðin hefur
haft þau áhrif að nemandi sem
t.d. ætlar sér að stunda nám i til-
tekinni grein getur að jafnaði
hafið nám annað hvert ár.
Fjöldi kennslustunda, miðað
við námsefni, er mun minni en í
yngri deiidum skólans - allt að
helmingi minni þar sem farið er
með tvöföldum hraða. Afleiðing-
in er sú að nám í öldungadeild-
inni byggist að verulegu leyti á
sjálfsnámi. Hverju námsári er
skipt í tvær annir: haustönn og
vorönn, og hverjum námsáfanga
lýkur með prófum sem haldin eru
i lok annarinnar þ.e. í janúar og
maí. Það er þvi ekki hægt að tala
um lokapróf í þeirri merkingu
sem flestir leggja í það orð.
Miðað er við að nýir nemendur
í öldungadeild MA hafi gagn-
fræðapróf eða landspróf, en hins
vegar eru engin viss inntökuskil-
yrði önnur en þau að viðkomandi
sé orðinn 21. árs. Talið er að
fjögur ár sé stystur eðlilegur
námstími, nema viðkomandi hafi
því meiii undirbúningsmenntun.
örfáir hafa lokið stúdentsprófi á
þremur árum, en það er algengt
að fólk ætli sér fimm til sex ár, en
ekki er ætlast til að nemendur láta
líða meira en sjö ár milli fyrsta og
síðasta prófsins.
Af hverju fara menn og konur í
öldungadeild? Yfirleitt mun
ástæðan sú að viðkomandi vilji
auka menntun sína og er það
sannarlega næg ástæða. Vitað er
um þrjá nemendur sem lokið hafa
stúdentsprófi frá öldungadeild
MA og stunda nám á háskóla-
stigi, en fyrir flesta er erfitt að
yfirgefa heimahagana og halda i
aðra landshluta til að hefja fram-
haldsnám. Af þeim sökum er
uppi mikill áhugi meðal nem-
enda að fá menntastofnanir á
framhaldsstigi í bæinn.
1 lok þessarar kynningar á öld-
ungadeildinni má geta þess að af
þeim 75 nemendum sem stunda
nám í henni eru 17 karlmenn.
Meðalaldurinn er rétt í kringum
30 ár og fer lækkandi.
Magnús Kristinsson.
öðrum er áhuginn ekki nægur.
Þeir, sem eftir sitja eru ákveðnir í
að ná settu marki - þetta verður
úrvalshópur sem gefst ekki svo
auðveldlega upp“.
- Hvað gelur þú sagl mér um
aðsóknina?
„Stærsti hópurinn innritaðist
fyrsta haustið og síðan hafa inn-
ritast árlega 25 til 30 manns. Að-
sóknin eykst hægt og sígandi og
t.d. hafa á þessu námsári innritast
35 nemendur. Hinu er ekki að
leyna að hópurinn má ekki
minnka mikið frá því sem nú er.
Ef nemendum fækkaði gætum
við ekki kennt hverja grein eins
oft og við gerum nú“.
- Hvað er að segja um menntun
þeirra sem hefja nám i deildinni?
Steinunn Sigurðardóttir er komin
ögn lengra áleiðis á menntabraut-
inni.en Steinþór. Hún hóf nám i
öldungadeildinni haustið 1975 svo
þetta er fjórði veturinn. Alls er
hún búin að afla sér um 100
punkta, en nauðsynlegt er að hafa
fengið 132 punkta til að Ijúka
stúdentsprófi. Steinunn gerði
Stcinunn Sigurðardóttir ásamt bömum sinum.
Steinþór Oddsson, starfsmaður
Landssímans hóf nám i öldunga-
deildinni haustið 1976 og gerír ráð
fyrir að Ijúka stúdentaprófi
haustið 1981. Hann hefur þegar
nælt sér f 76 punkta og er með
stúdentspróf i norsku, islensku,
ensku og þýsku. í. vetur leggur
Steinþór stund á sögu, bók-
menntir og Ifffræði.
Steinþór vinnur vaktavinnu og
kemur það óhjákvæmilega í veg-
fyrir að hann geti sótt tíma að
vild. „Ég ætlaði t.d. að fara í
stærðfræði í haust, en allir tím-
arnir hófust um klukkan sex og
því tók ég líffræðina í staðinn".
- Hvað olli þvi að þú hófst nám í
öldungadeildinni?
„Ég held að það hafi alltaf búið
í mér að halda áfram námi og ég
hef ekki orðið fyrir vonbrigðum
með þessa ákvörðun. Námið er
að visu erfitt og maður má helst
ekki missa af nokkurri kennslu-
stund. Hvað fjölskyldulífið varð-
ar, breytist það ekki mikið. Mað-
ur horfir ekki eins mikið á sjón-
varp og áður og serh dæmi get ég
nefnt að ég sá víst ekki nema tvo
þætti af honum Kládíusi. Mér er
sagt að það hafi verið þeir blóð-
ugustu. Nú, ég verð víst fertugur
þegar þessu lýkur - en þá er allt
framundan.
Ég vildi koma á framfæri sér-
stöku þakklæti til kennaranna.
Þeir hafa lagt á sig mikið og gott
starf til að gera okkur fært að
stunda námið, sem fer aðeins
fram á kvöldin".
Steinþór vinnur á ritsfmanum
4.DAGUR
DAGUR.5