Dagur - 13.03.1979, Síða 1

Dagur - 13.03.1979, Síða 1
TRÚLOFUNAR- HRINGAR AFGREIDDIR SAMDÆGURS GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI DAGUR LXII. árg. Akureyri, þriðjudagur 13. mars 17. tölublað i\mut tdaMéW pappw Skákþing Norðurlands Skákþing Norðurlands hefst fimmtudag 15. mars kl. 14 i Félagsborg, starfsmannasal verk- smiðja SÍS Akureyri. Teflt verður í flokki fullorðinna og unglinga- flokki. Einnig verður teflt í kvennaflokki fáist næg þátttaka. Tefldar verða 7 umferðir eftir Monrad-kerfi. Sigurveg- ari í flokki fullorðinna hlýtur rétt til að tefla í Áskorendaflokki á Skákþingi íslands. Hraðskákmót Skákþings Norðurlands verður haldið sunnudag 18. mars í Félagsborg. * Hundar bíta börn Síðasta föstudag urðu árekstrar í bænum og á laugardaginn var ekið á handrið Glerárbrúar og sama dag var bílvelta skammt innan við bæ- inn. Ökumaður grunað- ur um ölvun. Hundar hafa bitið börn undanfarna daga, bæði á Ytri brekkunni og á Oddeyri. Þeir ganga lausir þótt bannað sé og ber hundaeigendum að hlýða betur settum regl- um. * Kirkjuvikan — Æskulýðskvöld Kirkjuvikan á Akureyri hófst á sunnudaginn. í kvöld, þriðjudag, leikur Jóhann Baldvinsson á T.vý-1 kirkjuorgelið, ávarp flytur Rún Halldórs- dóttir, nemi, félagar úr ÆFAK koma fram og barnakórar syngja Á morgun, miðviku- . dag, leikur Jakob Tryggvason á kirkjuorg- elið, Ingibjörg Siglaugs- dóttir fer með bæn, Sumarrós Garðarsdóttir les úr Píslarsögunni og séra Pétur Þórarinsson flytur predikun. RÆKJUNA Málmiðnaðarmenn að störfum í Slippstöðinni. Bygging verkmennta- skóla skammt undan „Fundurinn leggur rika áherslu á að nú þegar verði hafist handa um byggingu húsnæðis fyrir verklega kennslu í málmiðnaði á Akureyri svo og önnur þau mannvirki við Iðnskóla Akur- eyrar, sem þjóna því markmiði að stórefla verkmenntun í bæn- um.“ Þetta var hluti ályktunar fjöl- menns fundar um verkmenntun i málmiðnaði á Akureyri, en til hans boðuðu stjórnir Félags málmiðn- aðarfyrirtækja á Akureyri og Sveinafélag járniðnaðarmanna. Ingólfur Sverrisson, starfs- mannastjóri Slippstöðvarinnar, sagði í samtali við Dag, að fundur- inn hefði verið mjög gagnlegur fyrir alla aðila, þótt menn hafi greint á um hver ætti að hafa frumkvæðið í þessum efnum. Kom í því sambandi sú skoðun að hætta SYNJAÐ UM VEITINGAHUS Skipulagsnefnd bæjar- ins hefur borist fyrir- spurn frá byggingaraðil- um Verslunarmiðstöðv- arinnar við Sunnuhlíð 12 Glerárhverfi um, hvort heimilt yrði að reisa og reka veitinga- stað í verslunarhúsinu. Um er að ræða 250-300 sæta veitingahús, sam- kvæmt fyrirspurninni. Meirihluti skipulags- nefndar, fjórir menn af fimm, leggur til að er- indinu sé synjað og telur að starfsemi af þessu tagi eigi heima á miðbæjar- svæðinu. væri á að í þjóðþrifamáli eins og þessu teldi enginn sérstakur aðili sér skylt öðrum fremur að knýja á um að hafist skyldi handa Það kom fram á fundinum að ákveðið er að flytja Iðnskólann suður á gamla golfvöllinn og að e.t.v. yrði hafist handa við fram- kvæmdir í vor. Hinsvegar er stefnt að því að aðalbyggingarfram- kvæmdimar við verkmenntadeild- ina fari fram á næsta ári. í framsöguerindi Guðmundar Tuliníusar, yfirverkfræðings SIipp- stöðvarinnar, kom glöggt í ljós að einn helsti vaxtarbroddur iðnaðar í bænum er málmiðnaðurinn. Með skipulegu átaki er unnt á næstu ár- um að veita fjölda ungs fólks at- vinnu við áhugaverð störf í málm- iðnaði og treysta á þann hátt enn frekar en orðið er iðnað bæjarbúa. „Vegna veiða Rússa og Norð- menna í Barentshafi gengur illa að selja rækjuna. Það virðist vera ntikið framhoð af rækju á markaðinum og verðið lægra en það þyrfti að vera miðað við hráefnisverð. Engar horfur eru á að ástandið skáni, því nú berast fréttir af því að t.d. Rússar hafi ntiklar birgðir sem koma á markaðinn smám saman. Einnig eru til birgðir í Norður-Noregi. Þetta gæti e.t.v. boðað lægra verð í framtíðinni og um leið meiri erfiðleika að reka rækju- verksmiðjur hér á landi,“ sagði Jón Jónsson, framkvæmdsstjóri Rækjuvinnslunnar h/f á Skaga- strönd. Fintm bátar eru gerðir út á rækju frá Skagaströnd og má gera ráð fyrir að þeir verði búnir með kvót- ann urn miðjan mánuðinn. Eftir að kvótinn hafði verið minnkaður fékk Skagaströnd 373 tonn í sinn hlut og um s.l. mánaðamót voru eftir um 70 tonn. Aflahæstu bát- arnir eiga eftir að veiða 5 ti! 6 tonn. „1 haust og fyrst eftir áramótin var rækjan óvenju smá, en sú sem borist hefur á land í febrúar og mars er mun betri,“ sagði Jón að lokum. VÍSITÖLUÞAKINU LYFT Bæjarráð hefur samþykkt, að starfsmönnum Akureyrarbæjar verði greiddar verðbætur á laun frá 1. janúar sl. að telja. í álykt- un bæjarráðs segir, að verðbæt- ur á laun skuli greiðast í sam- ræmi við úrslit Kjaradóms nr.l 1979 og framkvæmd fjármála- ráðherra á þeim úrskurði. Þetta þýðir, að fullar verðbætur verða greiddar á öll laun, með þeim takmörkunum, sem settar voru með lögum fyrir jól. Samkvæmt úr skurði Kjaradóms bar að greiða félögum i BHM fullar verðbætur og ekki þykir fært annað en að láta hið sama ganga yfir félaga í BSRB. Akurcvrsku börnin á æfingu i kirkjunni s.l. laugardag. Mynd: á.þ. 600 SYNGJANDI BORN Landsmót íslenskra barnakóra verður á Ak n.k. laugardag Landsmót íslenskra barnakóra verður lialdið í annað skipti laugardaginn 17. mars n.k. og nú í íþróttaskemmunni hér á Akur- eyri. AIIs taka rúmlega 600 börn þátt í móti þessu og eru þau í 16 kórum. Flestir kóranna eiga um langan veg að sækja 4 koma úr Reykjavík, 3 úr Árnessýslu og 1 frá hverjum eftirtaldra staða: Rangárvallasýslu, Hafnarfirði, Seltjarnarnesi, Akranesi, Tálknafirði og Húsavík. Þrír kóranna eru héðan frá Akureyri þ.e.a.s. kór Barnaskóla Akur- eyrar, kór Lundarskóla og kór Glerárskóla. Vegna fjölda þátttakenda verður hópnum skipt á tvo gististaði, ann- arsvegar Lundarskóla og hinsvegar Hrafnagilsskóla, sem mun einnig sjá aðkomufólkinu fyrir fæði. Fyrsta Landsmót íslenskra barnakóra var haldið í Reykjavík árið 1977 og þótti takast mjög vel. Talsvert meiri þátttaka er nú, og er ánægjulegt að svo margir skuli vilja (Framhald á bls. 6). ILLA GENGUR AÐ SELJA

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.