Dagur - 13.03.1979, Blaðsíða 8

Dagur - 13.03.1979, Blaðsíða 8
DAGUR Akureyri, þriðjudagur 13. mars RAFGEYMAR [ BÍLINN, BÁTINN, VINNUVÉLINA VEUIÐ RÉTT MERKI Sigurður Þ. í smábátahöfninni á Akureyri. Mynd: á.þ. Nýr bátur til Dalvíkur Á laugardaginn var sjósettur 4,6 tonna bátur frá Baldri Halldórssyni á Hlíðarenda. Eigendur bátsins, sem fer til Dalvíkur, eru þeir Þorgils Sig- urðsson, Þorgils Gunnlaugs- son og Ragnar Jónsson. Bát- urinn hlaut nafnið Sigurður Þ. Bolur bátsins er úr plasti, en það gerist sífellt algengara að skrokkar smábáta séu úr þessu efni, enda þarf það lítið viðhald og er mjög sterkt. Sigurður Þ. er með 30 hestafla SAAB vél, útbú- inn til línu og handfæraveiða. Að sögn Baldurs Halldórsson- ar, kostaði báturinn tilbúinn um 8 milljónir króna. Á Hlíðarenda eru í smíðum fleiri bátar af svip- aðri stærð en bolir þeirra koma frá ýmsum Evrópulöndum, t.d. er von á tveimur bolum frá Dan- mörku á næstunni. ískapp- leikar Um he Igina fóru fram ískapp- leikar hestamanna á Akureyri. Keppt var í gæðingaskeiði, 150 metra skeiði nýliða og 200 metra skeiði. Alls voru skráðir 17 kcppendur með 25 hesta, fáir féllu úr keppni eða mættu ekki. Ekki var leyft að hver hestur fengi að keppa nema í einni gre- in, þar sem mátti búast við kulda eða misjöfnu veðri. Helstu úrslit urðu þessi: Gæðingaskeið: 1. Björn Þorsteinsson, Alda 6v. brún, Eyfirsk 71 stig. Eigandi: sami. 2. Jón Matthfasson, Gráskeggur 9v. eyf. 68 stig. Eigandi: sami. 3. öm Grant, Grettir, 7v. grár eyf. Eig: sami 55 stig. (Framhald á bls. 2). Nær 100 hlutu viðurkenningu hjá Samvinnutryggingum Á laugardaginn hélt Klúbburinn öruggur akstur á Akureyri fjöl- mennan fund í Lóni. Formaður- inn, Ævar Hjartarson bauð gesti velkomna en Kári Johansen stjórnaði fundi. Guðmundur Þorsteinsson, erindreki Um- ferðarráðs, flutti erindi um um- ferðarmál og sýndi myndir. Barn í vændum á Siglu- firði Síðar í vikunni frumsýnir Leik- félag Siglufjarðar leikritið Barn í vændum eftir norska leikrita- höfundinn Sverrir Gram. Þetta er fyrsta verkefni félagsins síðan það sýndi Selurinn hefur mannsaugu fyrir þremur árurn. Leikritið verður sýnt a.m.k. 4 sinnum í Nýja bíói og ef veður- guðirnar verða leikurunum hlið- hollir verður e.t.v. farið í leik- ferð. „Þetta er gamanleikrit sem fjall- ar um unga stúlku er á von á barni og vill ekki láta vita um faðerni þess,“ sagði Signý Jóhannesdóttir, formaður Leikfélags Siglufjarðar. Alls taka 6 leikarar þátt í leikrit- inu, en leikstjóri er Jónas Tryggva- son. Með stærstu hlutverk fara þau Aðalbjörg Þórðardóttir, Birgir Ingimarsson og Harpa Gissurar- dóttir. Sigmundur Björnsson, forstöðu- maður Samvinnutrygginga afhenti við þetta tækifæri viðurkenningar fyrir tjónlausan akstur. Hlutu 66 ökumenn viðurkenningu fyrir tjónlausan akstur í fimm ár, 30 fyrir I0 ár, einn fyrir 20 ár og einn fyrir tjónalausan akstur í 30 ár. Við þetta tækifæri kvaddi Sig- tryggur Símonarson, mjólkurbíl- stjóri sér hljóðs, gagnrýndi fyrir- komulagið um verðlaun og viður- kenningar fyrir tjónalausan akstur og taldi, að betri leiðir þyrfti að finna. En þeir sem ekið hafa án tjóna í I0 ár fá skyldutrygginguna ókeypis, ennfremur fyrir 20 og 30 ára tjón- lausan akstur, verðlaunaárin. 0 Töpum milljarði Um langt árabil hefur lýsis- framleiðsla úr þorska- og ufsalifur farið ört minkandi vegna þess að verð þykir o< lágt. Þetta kom fram á ráð- stefnu verkfræðingafélags- ins sem haldin var um fyrri helgi. Þar kom einnig fram að ekki virðist óraunhæft að ætla að þjóðarbúið missi af a.m.k. milljárði kr. vegna vanhirtrar lifrar. Og gæti sú tala verið miklu hærri ef unn- ið væri meira meðalalýsi heldur en nú er gert. • Lifrar- bræðslur ekki notaðar Lifrarbræðslur eru nú um borð í nokkrum togurum en eru hvergi notaðar og virðist vænlegra til árangurs að safna lifrinnl um borð í fiski- skipum, ísa hana (plastpoka, tunnur eða ker og vinna Iffr- ina síðan í landí. Þetta út- heimtir auðvitað aukna vinnu og einnig verður að vera að- staða í landi til að vinna lifr- ina. Þá kom fram að lausn þessara mála væru tiltölu- lega fáar en fullkomnar lýsis- bræðslur í landi og að flytja þá hráefnið milli staða. • Kjörfólks aldrel verið betri Núverandi ríkisstjórn tókst að koma í veg fyrir stöðvun atvinnuveganna á fyrstu valdadögum sínum og þar með var atvinnuleysi bægt frá. Kaupmáttur launa hjá þeim, sem miðlungstekjur hafa og lægri hefur verið tryggður að fullu í samræmi við kjarasamninga þá frá 1977, „sólstöðusamning- ana“ margnefndu. Kjör alls almennings hafa ekki á öðr- um tíma verið betri hér á landi en þau eru nú. # Hjöðnun En jafnframt þessu hefur tek- ist að hamla verulega gegn verðbólgunni. Sem dæmi um það hækkaði vísitala fram- færslukostnaðar um 24 stig á síöasta hálfa ári ríkisstjórnar Geirs Hallgrímssonar, en að- eins um rúm 11 stig á fyrsta hálfa ári núverandi stjórn- valda. # Hvaðtæklvlð? í stefnuræðu sinni á Alþingi f haust sagði Ólafur Jóhann- esson, forsætfsráðherra m.a.: Ég held að ég geti sagt, án þess að það séu innantóm orð, að við viljum stjórna fyrir fólkið og með fólkinu ... Gengi þessarar stjórnar er því ekki síst undir þvf komið, að henni takist að fylgja þeirri leiðarstjörnu. Og menn geta spurt sjálfa sig: Ef þessarl stjórn tekst það ekki, hvað þá? Þessi orð virðast eiga jafn- vel við og vera í fullu gildi nú, eins og þá og það hafa ef- laust margir fundið er þeir hlustuðu á umræður frá Al- þingi um vantraust sjálf- stæðismanna og hinn mis- heppnaða málflutning þeirra þar. Góður afli Arnars HU Skuttogarinn Arnar HU hefur frá áramótum landað um 730 tonnum á Skagaströnd og sl. föstudag var togarinn í 6. veiði- ferðinni, en hann var væntan- legur til hafnar í þessari viku. „Þetta er mjög góður fiskur, sem togarinn hefur komið með á land. Minnst hefur 71% af þorskinum farið í stærsta flokkinn, en meðal- talið frá áramótum er rétt undir 80%,“ sagði Sveinn Ingólfsson, framkvæmdastjóri. „Togarinn hef- ur haldið sig á Vestfjarðamiðum, enda er búið að loka nær öllum veiðisvæðum úti fyrir Norður- landi." Gáfu F.S.A. heilalínurita Á laugardaginn afhentu Kiwanismenn á Ákureyri og ná- grenni Fjórðungssjúkrahúsinu heilalínurita, en það var keypt fyrir ágóða af sölu K-lykilsins á s.l. ári. Tækið mun koma í góðar þarfir á Fjórðungssjúkrahúsinu, m.a. veita aukið öryggi í með- ferð geðsjúkra og þeirra sem hafa orðið fyrir höfuðmeiðslum. Kíwanismenn á Akureyri fengu 2 milljónir króna í sinn hlut til tækjakaupa fyrir geðdeild Fjórð- ungssjúkrahússins, en eftir að sam- ráð hafði verið haft við lækna á sjúkrahúsinu var ákveðið að kaupa tæki sem hentaði sem flestum deildum. Það kom fram er Kiwanismenn- irnir afhentu tækið að það kostaði 7 milljónir króna, en norðlenskir Kiwanismenn lögðu sjálfir fram 5 milljónir svo gjöfin mætti vera veglegri. Ólafur Jensson flytur ávarp I tilefni gjafarinnar. Mynd: á.þ.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.