Dagur - 20.03.1979, Blaðsíða 4
Skákþing Norðlendinga:
Útgefandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
Skrifstofur Tryggvabraut 12. Akureyri
Ritstjórnarsímar: 24166 og 23207
Sími auglýsinga og afgreiöslu: 24167
Ritstjóri (ábm.): ERLINGUR DAVÍÐSSON
Blaöamaöur: ÁSKELL ÞÓRISSON
Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
Prentun: Préntverk Odds Björnssonar hf.
ísinn ógnar siglingum
Þegar þessar línur eru skráðar,
mánudaginn 19. mars, er hvöss
norðanátt fyrir öllu Norðurlandi og
einnig inn til landsins. Á veður-
kortum hefur verið brugðið upp
myndum af ísnum hér norðurund-
an. Sigling frá Horni og austur fyrir
Langanes, hefur undanfarna daga
verið talin varasöm að nóttu vegna
einstakra ísjaka. Meginísinn er þó
víðast allfjarri landi en ístungur
teygja sig alllangt suður, svo sem
við Horn, Skaga, Grímsey,
Rauðunúpa, Sléttu og Langanes.
Heildarmyndin gefur til kynna, að
ísinn nái venju fremur langt aust-
ur, enda er hann nú á reki suður
með Austurlandi og ísspangir nær
fastar við land á Langanesi.
í gær var ís á reki meðfram
Grímsey, fyrsti jakinn í augsýn frá
Ólafsfjarðarkaupstað og allir
netabátar frá Eyjafjarðarhöfnum
tóku upp net sín fyrir helgina
vegna ísreks og bíða átekta. Þótt
straumar hafi meiri áhrif á ísrekið
en vindar, má búast við að norð-
anáttin færi ísinn mjög nálægt
landi næstu dægur, ef ekki snýst
til annarrar áttar og að ís verði þá
orðinn landfastur á fleiri en einum
stað og stöðvi bæði siglingar og
torveldi sjósókn.
Þótt ís sé flest ár skammt undan
og oftast nokkur hætta á, að hann
reki upp að Vestfjörðum og norð-
austurströndinni, hafa mörg síð-
ustu ár borið önnur merki en
þessa óboðna gests, enda ekki
samgöngulaust, þótt ís teppi sigl-
ingar. En ástæða er til þess nú, ef
tími vinnst til, að flýta þeim að-
dráttum til norðlenskra hafna,
sem flutningaskip verða að ann-
ast, og nauðsynlegastir teljast.
Ýmsir þeir, sem ísaárin muna
best, telja íshættuna þá mesta,
þegar samfeld ísbreiða er komin
austur fyrir Melrakkasléttu, svo
sem nú er. En þótt í þessari
reynslu felist engin bjartsýni, er
þó algengara, þegar til lengri tíma
er litið en allra síðustu ára, að
hinar verstu spár rætast oft ekki
og allir vona, að í þeir spádómar
komi ekki fram.
En það eru ekki eingöngu sigl-
ingar og vöruflutningar, sem hér
um ræðir, heldur einnig fiskiveið-
ar, sem ísinn getur stöðvað með
litlum fyrirvara. Uppgripaafli að
undanförnu í fjölmörgum norð-
lenskum útgerðarstöðvum, ein-
hver sá mesti á síðari árum, er
bæði ómetanlegur og þakkar
verður,. Hann hefur látið vonir
rætast og gefið fyrirheit. En ef
veiðar stöðvast nú, verða afleið-
ingarnar ófyrirsjáanlegar. í von
um að allt fari betur en nú horfir,
hljótum við að taka því sem að
höndum ber og oft hafa menn ver-
ið verr undir það búnir en nú, að
mæta erfiðleikum.
Kvennasveit tekur þátt í
mótinu í fyrsta skipti
Skákþing Norðurlands var haldið
á Akureyri dagana 15.-18. mars.
Þátttakendur voru alls 68 víðs
vegar af Norðurlandi og er þetta
lang mesta þátttaka frá upphafi. 1
flokki fullorðinna voru 27 kepp-
endur og tefldu þeir 7 umf. eftir
Monrad-kerfi. I unglingaflokki
kepptu 35 og tefldu þeir einnig 7
umf. Nú var í fyrsta sinn keppt í
kvennaflokki á Skákþinginu og
tóku 6 konur þátt í mótinu.
Skákmeistari Norðurlands
varð Pálmi Pétursson með 510
vinn. Hlýtur hann rétt til að
keppa í Áskorendaflokki á Skák-
þingi íslands um páskana. Pálmi
er aðeins 14 ára að aldri þótt
kominn sé í fremstu röð skák-
manna norðanlands. Nr. 2 varð
Ólafur Kristjánsson með 5'/i vinn.
og nr. 3 Guðmundur Búason 5
vinn. Þessir skákmenn eru allir
frá Akureyri.
Unglingameistari Norðurlands
varð Ragnar Ragnarsson Akur-
eyri með 6V4 vinn., nr. 2 Jón H.
Björnsson Húsavík með 6 vinn.
og nr. 3 Jón Þórisson Ólafsfirði
með 5Vi vinn.
Kvennaflokkurinn á Skákþingi Norðlendinga. F.v. Arnfríð-
ur Friðriksdóttir, Hálsi, Svarfaðardal. Hún hlaut 9 vinninga
af 10 mögulegum og þar með fyrsta sæti. Svanfríður Hall-
dórsdóttir, Steinsstöðum, Öxnadal, (varð í öðru sæti),
Guðrún Björgvinsdóttir, Fyrirbarði, Fljótum (þriðja sæti),
Aðalheiður Eiríksdóttir, Sflastöðum, Glæsibæjarhreppi,
Ásrún Lúðvíksdóttir og Jóhanna Stefánsdóttir. Tvær hinar
síðastnefndu eru nemendur í Varnahlíðarskóla, Skagafirði.
Ingvar Gíslason alþm.:
ALÞINGISBREF
TIL DAGS
Um síðustu helgi, þ.e. á laugar-
dag og sunnudag 10. og 11. mars,
sátu 9 ráðherrar úr 3 ríkisstjóm-
arflokkum önnum kafnir við að
semja frumvarp til laga um efna-
hagsmál. Til hliðsjónar samningu
frumvarpsins höfðu ráðherramir
fyrst og fremst uppkast að efna-
hagslöggjöf, sem forsætisráðherra
hafði samið og kynnt í ríkisstjóm
og þingflokkum fyrir 4-5 vikum.
Umræður innan ríkisstjómar og
Alþingis um þetta uppkast Ólafs
Jóhannessonar hafa staðið síðan
og frægð þess borist um allt land.
Þótti flestum uppkastið skynsam-
legt, en til voru þeir, sem töldu að
því yrði að breyta í nokkrum
atriðum. Þurfti engum að koma
það á óvart. Uppkast Ólafs Jó-
hannessonar var lagt fram í ríkis-
stjóm til umræðu og breytinga,
það var „vinnuplagg" innan rík-
isstjómar og stjómarflokka og
hlaut að vera breytingum háð.
Ráðherramir 9, sem sátu við að
semja efnahagsmálafrumvarp
dagana 10. og 11. mars, urðu
ásáttir um að breyta ýmsu í upp-
kasti Ólafs. En niðurstaðan varð
þó sú að uppkastið var notað sem
meginstofn nýs frumvarps. Allt
voru þetta eðlileg vinnubrögð og
ábyrgum ráðherrum til sóma.
Þeir urðu ásáttir um það sunnu-
daginn 11. mars að standa sam-
eiginlega að flutningi þessa nýja
frumvarps. Það skyldi vera
grundvöllur aðgerða ríkisstjórn-
arinnar til lausnar helstu vanda-
málum efnahagslífsins. Allir, sem
hlut áttu að máli, sofnuðu á
sunnudagskvöld og vöknuðu á
mánudagsmorgun sælir í þeirri
trú að sambúðarvandinn í ríkis-
stjóminni væri leystur til nokk-
urrar frambúðar.
Veðrabrigði
En skjótt skipast veður í lofti.
Ráðherrar Alþýðubandalagsins,
Svavar Gestsson, Ragnar Amalds
og Hjörleifur Guttormsson, stóðu
að því ásamt ráðherrum hinna
flokkanna tveggja að semja og
samþykkja hið nýja frumvarp.
Þeir fóm að, eins og ráðherrar
hinna flokkanna, að boða til
fundar í þingflokki sínum. Þar
lögðu ráðherramir frumvarpið
fram, skýrðu efni þess, og mæltu
með flutningi þess og lögfestingu.
Fékk frumvarpið sæmilegar und-
irtektir í fyrstu hjá þorra þingliðs
Alþýðubandalagsins. En þá gerist
viðburður, sem ruglaði þing-
mennina í ríminu og gerði ráð-
herrunum óhægt um vik að
sannfæra félaga sína. Lúðvík
Jósepsson snérist gegn málinu
með þráhyggju og pexi um smá-
muni. Kom hann „drengjum"
sínum, ráðherrunum, mjög í opna
skjöldu. Hitt var alvarlegra að
kommaliðið úr ASÍ-stjóm undir
forystu Ásmundar Stefánssonar
hagfræðings hafði ráðist til inn-
göngu á fundinn og hóf árás á
frumvarpið og verk ráðherranna
þriggja. Tók Ásmundur strax að
segja fyrir verkum og urðu ráð-
herrarnir að hlýða. Skipun Ás-
mundar var sú að Alþýðubanda-
lagið skyldi standa fast gegn öll-
um breytingum á vísitölukerfinu.
Urðu ráðherramir miður sín fyrir
ofríki Ásmundar, játuðu á sig
„undanslátt" og „viðurkenndu"
að þeir hefðu „misskilið“ ýmis
„mikilvæg" atriði í frumvarpinu.
Urðu þær lyktir að ráðherrarnir
voru dæmdir til þess að fara á
ríkisstjórnarfund á mánudags-
kvöldið 12. mars með þau fyrir-
mæli að þeim hefði skjátlast, ASÍ
væri á móti frumvarpinu, og því
yrðu þeir að taka aftur stuðning
sinn við það, Ásmundur Stefáns-
son hefði neitunarvald i máli sem
þessu og því valdi yrðu ráðherrar
Alþýðubandalagsins að lúta, —
svo og þingflokkur þess.
Þessi uppákoma í Alþýðu-
bandalaginu þurfti að vísu ekki
að koma á óvart þeim, sem
þekkja til vinnubragða á þeim
bæ. Samt voru margir sakleys-
ingjar óviðbúnir þessum við-
brögðum. Menn höfðu búist við
því að Ragnar Amalds, Svavar
Gestsson og Hjörleifur Gutt-
ormsson væru fyllilega menn fyr-
ir sínu og létu ekki með góðu
kveða sig í kútinn. En vonir
manna um dug Alþýðubanda-
lagsráðherranna hafa ekki rætst.
Þeir hafa reynst leikbrúður ann-
arlegra afla, algerlega ósjálfstæð-
ir í athöfnum sínum sem ráð-
herrar.
Hvað verður um
stjórnarsam-
starfið?
Þegar þetta „Alþingisbréf" er
skrifað fimmtudaginn 15. mars,
er ef til vill erfitt að geta sér til um
framhald stjómarsamstarfsins.
Ég ætla heldur ekki að gerast
spámaður um það efni. En það
hlýt ég að segja, að ef þetta
stjómarsamstarf á að halda áf-
ram, þá verður að breyta sam-
búðarháttum stjórnarflokkanna.
Framsóknarmenn hafa forystu
fyrir stjómarsamstarfinu, og það
leiðir af sjálfu sér, að þeir verða
að tryggja sér forystuna til hlítar.
Það tekst ekki nema efnahags-
málastefna flokksins og þjóðfé-
lagsviðhorf verði virt og nái fram
að ganga í höfuðatriðum. Þetta
sjónarmið mitt er ekki sett fram af
neinum hroka, heldur af
nauðsyn. Alþýðubandalagið er
reikult í skoðun almennt talað og
þó verst í efnahagsmálum. Stefna
þess í efnahagsmálum er að láta
reka á reiðanum, þ.e.a.s. gera
ekki neitt. Slíkri „stefnu" hafna
Framsóknarmenn. Persónulega
legg ég mikla áherslu á að Fram-
sóknarmenn eigi ekki að vinna
það til ráðherrastóla að láta und-
an hentistefnu Alþýðubanda-
lagsmanna og undirlægjuhætti
ráðherra þeirra gagnvart hálf-
gerðum stjómleysingjaklíkum,
m.a. klíku Ásmundar Stefáns-
sonar hagfræðings.
Hvað merkir
„hægri“ og
vinetri?
Framsóknarmenn þurfa ekki til
annarra að leita hvað snertir
stefnumörkun í aðkallandi mál-
um. Þjóðfélagsstefna Framsókn-
arflokksins er skýr og auðskilin.
Hins vegar hefur gætt í flokknum
— afar lengi — linku í málflutn-
ingi til framdráttar framsóknar-
stefnunni. Framsóknarmönnum
hefur hætt til þess að meta meira
„sýnileg völd“ en útbreiðslu
kenninga. Það er gott svo langt
sem það nær. Fyrst og fremst er
þetta gott hvað með öðru. En
gallinn við það að ofmeta „völd-
in“ en vanrækja málflutninginn
er sá að áróður andstæðinga um
„stefnuleysi" „óskýra grundvall-
arstefnu" og annað af líku tagi
getur fest rætur í hugum fólks,
ekki síst ungs fólks, jafnvel allra
helst meðal ungra menntamanna,
sem taka orð alvarlega og velta
fyrir sér raunverulegri merkingu
þeirra. Oft er því t.d. haldið fram
að framsóknarstefnan sé „milli-
vegur“ eða sáttagerð“ milli „öfga
til hægri og vinstri“. Þetta er ekki
einasta hæpin kenning, heldur
miklu nær því að vera röng. Ef
hugtökin „hægri“ og „vinstri"
eiga sér samsvörun í raunveru-
leikanum, þá er framsóknar-
flokkurinn auðvitað vinstri
flokkur. Hins vegar er notkun
orðanna „hægri og vinstri" afar
villandi í pólitík, ekki síst nú á
tímun, og hefur ekki stjórnmála-
legt raungildi. Hér er um áróð-
ursorðalag að ræða, en ekki
fræðileg hugtök.
Flokkur alþýðu
og aamvinnu.
Framsóknarflokkurinn er að allri
gerð, stefnulega og sögulega, ís-
(Framhald á bls. 6).
4.DAGUR
1 kvennaflokki var tefld tvöföld
umferð. Sigurvegari varð Arn-
fríður Friðriksdóttir Hálsi Dalvík
með 9 vinn., nr. 2 Sveinfríður
Halldórsdóttir Eyjafirði með 8V4
vinn. og nr. 3 Guðrún Björgvins-
dóttir Skagafirði með 6 vinn.
Hraðskákmót Norurlands var
haldið strax að loknu Skákþing-
inu. Keppt var í flokki fullorð-
inna og unglingaflokki. I flokki
fullorðinna voru 30 keppendur og
tefldu þeir 9 tvöfaldar umferðir
eftir Monrad-kerfi. Sigurvegari
varð Ólafur Kristjánsson með
1316 vinn., nr. 2 Gylfi Þórhallsson
með 13 vinn. og nr. 3 Jón Björg-
vinsson með 12 vinn. Þeir eru allir
frá Akureyri.
f unglingaflokki voru 28 kepp-
endur. Þar sigraði Jón H. Björns-
son Húsavík með 15‘/2 vinn., nr. 2
Hrannar Jónsson Ólafsfirði með
13 vinn. og nr. 3 Ragnar Ragn-
arsson Akureyri með 1 lVi vinn.
Skákstjóri mótsins var Albert
Sigurðsson en hann er fráfarandi
formaður Skáksambands Norð-
urlands.
(Fréttatilkynning)
Fyrir miðju stendur sigurveigarinn f meistaraflokki Pálmi Pétursson, en hann hlaut
5'fi vinning af 7 mögulegum. Pálmi tapaði engri skák. T.v. er Ólafur Kristjánsson.
Hann hlaut annað sætið og varð hraðskákmeistari Norðlendinga. T.h. er Guð-
mundur Búason, sem varð þriðji f mestaraflokki.
Ferðafélag
Akureyrar
2. 25.3.
3. 31.3.
4. 8.4.
5. 14.-15.4.
6. 22.4.
7. 28.4.
8. 1.5.
9. 6.5.
10. 13.5.
11. 19.5.
12. 27.5.
13. 2.-3.6. ‘
14. 9.6.
15. 15.-17.6.
Skíðagönguferð um Staðarbyggðarmýrar.
Bíldsárskarð.
Skíðagönguferð á Glerárdal
Páskar í Lamba.
Þorvaldsdalur. Skíðagönguferð.
Kaldbakur. Göngu-eða skíðaferð.
Súlur.
Kötlufjall.
Möðrufellshraun.
Fjöruferð — Blómsturvellir.
Vaglafjall. Gönguferð.
Langanes með fuglaskoðun.
Dalvík — Ólafsfjörður. Kvöldferð.
Herðubreiðarlindir. Bræðrafell. Gengið á Herðubreið ef
18. 1.7.
19. 7.-8.7.
viðrar.
16. 23.6. Laxárdalur í S.-Þingeyjarsýslu. Gönguferð.
17. 30.6.-3.7. I Flatey og Fjörðu. Sameiginleg ferð með Ferðafélagi
Islands. Farið verður með báti frá Húsavík til Flateyjar
og í Fjörðu. Þaðan ganga þeir sem vilja um Keflavík og
Látraströnd til Grenivíkur, en aðrir geta farið samdægurs
með bátnum til Húsavíkur aftur.
Leyningshólar. Fjölskylduferð með leikjum og pylsu-
griHi.
Hvannastóð. Gæsadalur. Lúdent. Þrengslaborgir. Öku-
og gönguferð.
20. 10.7. Kleifarsteinar í Þorvaldsdal. Kvöldferð.
21. 11.-15.7. Bræðrafell. Gengið þaðan um umhverfið í tvo daga en
síðan í Öskju og sameinast hópnum úr 22. ferð.
13.-15.7. Herðubreiðarlindir. Svartá. Vaðalda. Askja
21.7. Barkárdalur. Héðinsskörð. Hjaltadalur. Gönguferð.
18.-22.7. Snæfellsnes. Breiðafjarðareyjar.
25. 26.7. Sögustaðir í Hörgárdal. Kvöldferð.
26. 28.7. Bleiksmýrardalur.
28.-29.7. Fjölskylduferð í Laugafell.
5.-7.8. Brúaröræfi.
9.-12.8. Gist í Tungnafelli. Farið þaðan á Arnarfell, í Vonarskarð
og e.t.v. fleira.
30. 17.-19.8. Lambahraun. Hofsjökull. Ásbjamarvötn.
31. 24.-26.8. Laufrönd.
32. 1.-2.9. Ásbyrgi. Hljóðaklettar. Hólmatungur.
33. 2.9. Örnefnaferð á Glerárdal.
34. 8.9. Berjaferð í Fellsskóg.
35. 22.-23.9. Haustferðir í Herðubreiðarlindir.
Skrifstofa félagsins er í Skipagötu 12, III. hæð, sími 22720. Frá 17.
mars til 26. maí verður hún opin kl. 18-19 kvöldið fyrir hverja auglýsta
ferð. Frá 31. maí til 20. september verður hún opin á mánudögum og
fimmtudögum kl. 18,30-20,00. Vegna þess hve erfitt hefur verið að útvega
bíla í ferðirnar, einkum fjallaferðir, er nauðsynlegt að panta með góðum
fyrirvara, enda má oft reikna með takmörkuðum sætafjölda. I helgar-
ferðir sumarsins skal taka miða í síðasta lagi á fimmtudagskvöld, en í
lengri ferðir með 14 daga fyrirvara, nema annað sé auglýst. I lengri ferðir
á vegum FFA er heitur matur, mjólk og kaffi eða te venjulega innifalið í
fargjaldi. Annað nesti og viðlegubúnað þurfa þátttakendur að leggja sér
til.
22.
23.
24.
27.
28.
29.
KA vann Þór
Á fimmtudagskvöldið léku KA of Þór í annarri deild í handbolta
Leikur þessi var mjög spennandi frá upphafi til enda, og var uppselt
í Skemmuna, en það hefur sennilega gerst aðeins einu sinni áður.
Fyrri hálfleikur var mjög jafn og lauk honum með jafntefli 9-9.
Þórsarar byrjuðu af fullum krafti í síðari hálfleik og gerðu tvö
fyrstu mörkin, en þá fór allt í baklás hjá þeim og KA menn jöfnuðu
og sigu framúr. Undir lok leiksins höfðu þeir náð 5 marka forustu,
en Þórsarar gerðu síðustu mörkin og iauk leiknum með sigri KA
20-19.
Þór tapaði í Reykja-
vík
ft
7
Z
N
ar og við Stromp. Á sunnudag
hélt keppnin síðan áfram og þá
var keppt í svigi á sömu stöðum.
Beður var ennþá mjög gott,
steikjandi sólskin og fjöldi fólks
í fjallinu. Að keppni lokinni fór
fram verðlaunaafhending vest-
an við Skíðahótelið og þar var
mótinu slitið. Keppendur á
mótinu voru frá 12 stöðum og
þar af einn útlendingur, norð-
maðurinn Finn Jagge. Fram-
kvæmdanefnd leikanna skip-
uðu Gísli Kr. Lórenzson, Krist-
inn Steinsson, Leifur Tómas-
son, fvar Sigmundsson og Her-
mann Stefánsson. Þá voru fjöl-
margir starfsmenn mótsins for-
eldrar akureyrskra keppenda á
mótinu.
Stórsvig
8 ára stúlkur sek.
Ásta Halldórsdóttir, Bolungarvík 70,4
Gemý Geirsdóttir, Reykjavík 72,7
Þorgerður Magnúsdóttir, Akureyri 72,9
9 ára stúlkur sek.
Kristín Hilmarsdóttir, Akureyri 68,2
Þóra Víkingsdóttir, Akureyri 68,6
Laufey Þorsteinsdóttir, Akureyri 69,2
8 ára drengir sek.
Kristinn Grétarsson, ísafirði 64,8
Jón M. Ragnarsson, Akureyri 66,4
Jón Halldór Harðarson, Akureyri 66,8
10 ára drengir sek.
Hilmir Valsson, Akureyri 84,74
Björn Gíslason, Ólafsfirði 88.45
Birkir Sveinsson, Neskaupsstað 88,81
10 ára stúlkur sek.
Guðrún Alfreðsdóttir, Siglufirði 88,53
Arna ívarsdóttir, Akureyri 91,82
Gréta Björnsdóttir, Akureyri 92,15
llárastúlkur sek.
Guðrún Magnúsdóttir, Akureyri 111.18
Berglind Gunnarsdóttir, Húsavík 121.31
Sigríður Gunnlaugsdóttir, ísaf. 122.02
Fótbolti
Ungur keppandi á Andrésar Andar leikunum á fullri ferð í stórsviginu á laugardaginn. Mynd: Ó. Á.
Körfuknattleikslið Þórs lék tvo leiki í úrvalsdeildinni i körfubolta
um helgina og tapaði báðum, og leika nú ekki í bráð nieira í þeirri
deild þar er þeir eru fallnir í fyrstu deild. Þeir töpuðu fyrst fyrir
KR-ingum, síðan fyrir fS með litlum mun.
Á laugardaginn léku Þór og KA æfingarleik í knattspvrnu og sigr-
aði KA með þremur mörkum gegn einu. Um síðustu helgi léku
einnig þessir aðilar saman og sigraði KA þá einnig með þremur
mörkurn gegn engu. Fyrirhugaðir eru slíkir æfingarleikir um hverja
helgi meðan veður leyfir.
Andrésar Andar leikarnir
voru settir í Akureyrarkirkju
á föstudagskvöldið eftir að
þátttakendur og fararstjórar
höfðu gengið fylktu liði í
gegn um bæinn, og upp að
kirkju. Á laugardagsmorgun-
inn hófst síðan keppnin í
steikjandi sólskini og blfð-
viðri í Hlíðarfjalli. Þar voru
mættir um 260 unglingar á
aldrinum 7 til 12 ára til að
reyna með sé í svigi og stór-
svigi. Þeir elstu kepptu í
brekkunni við Stromp en
hinir yngstu í Hjallabraut.
Fyrir þá sem ekki til þekkja
skal tekið fram að brekkur við
Hjallabraut eru ekki eins bratt-
Hilmar Valsson frá Akureyri varð
tvöfaldur sigurvcgari á Andrésar
Andar leikunum en hann sigraði
bæði í svigi og stórsvigi í sínum ald-
ursflokki.
DAGUR.5