Dagur - 10.04.1979, Qupperneq 1
Fermingargjaflr í
miklu úrvali.
GULLSMIÐIR
, SIGTRYGGUR & PÉTUR
' AKUREYRI
DAGTJR
LXII. árg.
Akureyri, þriðjudagur 10. apríl 1979
25. tölublað
Unda'ieto 1 pappu
Samið við
flugmenn
Fyrir helgina var samið
við flugmenn. Hækkaði
kaup þeirra um 20-22%
og er kaup flugstjóra í
hæsta flokki nú 1,4 millj.
kr. á mánuði. Alþingi
ætlaði að grípa í taum-
ana og leysa hina þrálátu
og lítt skiljanlegu flug-
mannadeilu, sem svo var
nefnd, með bráða-
birgðalögum. Samning-
ar þessir við íslenska
flugmenn eru lítt skilj-
anlegir venjulegu fólki.
Frá lögreglunni
Fimm voru teknir fyrir
meinta ölvun við akstur
um helgina, en alls 46 frá
áramótum, sem er hærri
tala en áður hefur orðið
á þessum fyrstu mánuð-
um ársins á Akureyri.
Bifreið var stolið á
Oddeyri á mánudags-
nótt. Hún var ólæst og
lykillinn í svisslásnum.
Fjórir menn voru þarna
að verki og hlupu allir er
lögreglan kom á vett-
vang. Tveir sluppu en
tveir náðust og voru yf-
irheyrðir í gær. Þá
kveiktu tveir piltar í
gamla Harðbak. Eldur-
inn var fljótt slökktur og
piltamir náðust. Brotist
var inn í útibú KEA í
Grænumýri á föstudags-
kvöld.
*
Elttblað
Vegna frídaga í þessari
og næstu viku kemur út
eitt blað hvora vikuna.
Skilafrestur auglýsinga í
blaðið í næstu viku er til
kl. 19 þriðjudaginn 17.
apríl.
Meirihluti skipulagsnefndar vill að fyllt verði upp f Dokkina á Torfunefi og vegurinn lagður þar yfir. Minnihluti nefndarinnar vili hins vegar varðveita hafnarmannvirki á
Torfunefi að mestu. Mynd: á.þ.
NÝTT deiliskipulag
MIÐBÆJARINS
Afgreitt frá bæjarstjórn
í bessum mánuði?
Skipulagsnefnd Akureyrar sendi
í síðustu viku tillögur sínar að
nýju deiliskipulagi miðbæjarins
til bæjarstjórnar til afgreiðslu
og standa vonir til að þær verði
afgreiddar frá bæjarstjórn í
þessum mánuði. Eftir að bæjar-
stjórn hefur samþykkt nýtt
deiliskipulag að miðbæ Akur-
eyrar verða skipulagstillögurnar
sendar skipulagsstjóm og fé-
lagsmálaráðherra til staðfest-
ingar. Hinar nýju tillögur
skipulagsnefndar em byggðar á
skipulagstillögum sem arkitekt-
amir Haraldur V. Haraldsson
og Svanur Eiriksson hafa unnið
að siðan haustið 1976.
1 tillögum skipulagsnefndar er
gert ráð fyrir að meginumferðar-
gata gegnum bæinn verði Glerár-
gata sem tengist Drottningarbraut
á uppfyllingu neðan Samkomu-
húss. Meirihluti skipulagsnefndar
(3) vill að fyllt verði upp í Dokkina
á Torfunefi og vegurinn lagður þar
yfir. Minnihluti nefndarinnar (2)
vill hins vegar varðveita hafnar-
mannvirki á Torfunefi að mestu og
sveigja götu örlítið til vesturs.
Þá leggur skipulagsnefnd til að
Skógræktarfélag Eyfirðinga:
Vill stórauka plöntu-
f ramleiðslu næstu ár
Á vegum Skógræktarfélags Ey-
firðinga vom samtals 12.000
plöntur gróðursettar á siðasta
ári og félagið afhenti 26 þúsund
plöntur á ýmsum aldri til ein-
staklinga og félaga. Unnar vora
um 1900 vinnustundir á útivist-
arsvæðinu í Kjarna og unglingar
frá vinnuskóla Akureyrar unnu
um 2500 vinnustundir í Kjarna-
skógi á s.l. ári.
Þetta kom fram á 49. aðalfundi
félagsins, sem haldin var á dögun-
um. 1 skýrslu framkvæmdastjóra
segir að unnið hafi verið að skjól-
beltarækt á fimm stöðum í Glæsi-
bæjarherppi, en samningur hefur
verið gerður við Skógrækt ríkisins
um að félagið annist ræktun skjól-
belta í héraðinu. Á síðasta ári var
gróðursett í um 900 m og mikill
áhugi er fyrir áframhaldandi fram-
kvæmdum.
Á fundinum voru lagðar fram
tillögur að framkvæmdaáætlun
fyrir Skógræktarfélag Eyfirðinga
árin 1979-1984. Tillögumar voru
Páskar í Hlíðarfjalli
Eins og venjulega um páskana
verður mikið um að vera í
Skíðamiðstöðinni í Hlíðar-
fjalli. Sú hefð hefur komist á
að páskarnir em aðal hátíð
skíðamanna, bæði þeirra er
æfa íþróttina með keppni fyrir
augum og einnig þeirra er
stunda skiðin sér til ánægju og
heilsubótar. Undarfarin ár
hafa skíöaáhugamenn hvaðan
æva af landinu streymt í Hlíð-
arfjall og hefur þar verið mikið
um manninn.
A skírdag verður parakeppni í
svigi fyrir böm 12 ára og yngri, og
fer sú keppni fram í Hjalla-
brekku. Á föstudaginn langa
verður parakeppni 13-16 ára við
Stromp. Á páskadag verður
hringur sem er ca 6 km langur og
aftur til baka. Þá verður á páska-
dag einnig páskamót í stórsvigi
fyrir 12 ára og yngri, og á annan
dag páska verður páskamót í
sömu grein fyrir 13-16 ára. öll
mót hefjast kl. 11.30 og fer
skráning i þau fram á skrifstofu
skíðahótelsins sama morgun og
keppnimar verða.
Skíðalyfturnar verða í gangi frá
kl. 09.00 til 18.00 alla dagana og
eru áætlunarferðir í fjallið kl.
09.00, 10.00, 11.00, 12.30, 13.30,
14.30 og 15.30. 1 bæinn verða svo
ferðir kl. 13.00, 14.00, 15.00,
16.00, 17.00 og 18.15 síðasta ferð.
ræddar, en endanlegt samþykki
bíður betri tíma. Markmiðið með
áætluninni er að til sé stefna sem
fylgja má til lengri tíma í ræktun-
armálum.
í tillögunum er m.a. gert ráð fyrir
að útivistarsvæðið í Kjarna stækki
um 50-70 ha. til N.V. og vonir
standa til að hægt verði að reka
vettvangsskóla í Kjarna. Tilgangur
og markmið hans er að gefa
grunnskólanemendum kennslu í
líffræði og náttúrufræði. í áætlun-
inni er gert ráð fyrir að framleiðsla
Gróðrastöðvarinnar í Kjarna árið
1984 verði 100.000 til 110.000
plöntur á ári. Hvað skjólbeltin
varðar, segir í áætluninni að haldið
verði áfram við beltin að Einars-
stöðum, Ásláksstöðum, Hraukbæ
og Dagverðareyri og hafnar fram-
kvæmdir að Grísará, Klauf,
Knarrabergi og Búðamesi.
Til langs tíma hefur verið ósk
skógræktarmanna að fá stórt og
samfellt svæði til skógræktar. Á
siðustu árum hefur áhugi þeirra
einkum beinst að Laugalands- og
Þelamerkursvæðinu, en erfitt er að
stækka þá reiti sem nú eru í eigu
félagsins.
Hafnarstræti verði gert að göngu-
götu sem tengist Ráðhústorgi og
nýju torgsvæði framan við Búnað-
arbankann. Göngusvæðið verði allt
hellulagt en þó verði leyfð tak-
mörkuð bílaumferð norður Hafn-
arstræti og til austurs sunnar Ráð-
hústorgs. Brekkugötu verði lokað
við Ráðhústorg og ný gatnamót
verði gerð milli Brekkugötu og
Oddeyrargötu austan Oddfell-
ow-húss. Þá verði Gránufélagsgötu
lokað við Glerárgötu en umferð
innan miðbæjarsvæðisins verði um
Skipagötu (austan Nýja bíós),
Geislagötu, Laxagötu og Smára-
götu norður í Glerárgötu. Verði á
þessum götum leyfð tvístefna en
engin bílastæði. Þá er lagt til að
íþróttavöllurinn verði færður 10 til
15 metra til suðurs til að fá meira
göngusvæði við norðausturhom
vallarins.
Eitt af megineinkennum tillagna
skipulagsnefndar eru stórbættar
gönguleiðir til og frá miðbæ, og að
tekið verði fullt tillit til fatlaðra við
allt umferðarskipulag. Einnig er
ráð fyrir því gert að útivistarsvæði í
miðbænum verði aukin og bætt,
bæði til að fegra miðbæinn og auka
honum aðdráttarafl. Til þess að
vinna þessi verk nefnir skipulags-
nefnd í tillögum sínum að bæjar-
sjóður leggi árlega fram fé til að
(Framhald á bls. 2).
Segja upp
samningum
Starfsmannafélag Akureyrarbæj-
ar hefur tilkynnt uppsögn á gild-
andi kjarasamningi milli Akur-
eyrarbæjar og S.T.A.K. frá 1. júlí
að telja. Hjúkrunarfélag Islands
hefur einnig sent bæjaryfirvöld-
um bréf þar sem tilkynnt er upp-
sögn á kjarasamningi milli Akur-
eyrarbæjar og félagsins frá 1. júlí
nk. að telja. Bæði félögin sendu
„kröfugerð með tilkynningunum.