Dagur


Dagur - 31.05.1979, Qupperneq 8

Dagur - 31.05.1979, Qupperneq 8
DAGUR Akureyri, fimmtudagur 31. maí 1979 Á æfingu. Hljómsveit Tónlistarsk og Sinfóníuhljómsveitin taka upp samstarf Áhugamannahljómsveit stofnuð á Akureyri SAMSTARF hefur verið ákveðið milli Sinfóníuhljóm- sveitarinnar í Reykjavík og Hljómsveitar Tónlistarskólans á Akureyri. Og hinn 1. júní er fyrirhugað að stofna af þessum tveimur greinum, Áhuga- manna-hljómsveitina. Vortónleikar Karlakórs Akureyrar á laugardag HINIR árlegu vortónleikar Karlakórs Akureyrar verða í Borgarbiói 1. júní kl. 19. Á söngskrá eru fimmtán lög, inn- lend og erlend, og er verkefnaval fjölbreytt að vanda. Frumflutt verða lög eftir tónskáldin Birgi Helgason á Akureyri og Jón Björnsson frá Hafsteinsstöðum í Skagafirði. Einsöng með kórnum syngja Eg- ill Jónasson, Hreiðar Aðalsteinsson og einn af heiðursfélögðum hans, og að líkindum fyrsti einsöngvari með kórnum, Jóhannes Jóhannes- son. Tvísöng með kórnum syngja Grétar Benediktsson og Halldór Þórisson. Söngstjóri er Guðmundur Jóhannsson, en undirleikari Ingi- mar Eydal á orgel og píanó og honum til aðstoðar Gunnar Gunn- arsson. Einnig leikur Óskar Péturs- son undir á harmoniku. Aðgöngumiðasala er í Bókabúð- inni Huld og við innganginn, en í Huld er einnig hægt að fá að- göngumiðum skipt milli daga. Tónleikarnir verða endurteknir á sama stað laugardaginn annan júní klukkan þrjú síðdegis, og á hvíta- sunnudag klukkan níu síðdegis. Kórinn vill benda styrktarfélög- um og öðrum þeim er á hann vilja hlýða, að aðeins verða þrennir samsöngvar á Akureyri á þessu vori. En nú þegar eru sameiginlegir tónleikar ákveðnir, þeir fyrstu í Víkurröst á Dalvík 3. júní og á Ak- ureyri 4. júní. Hefjast þeir kl. 17.00 á báðum stöðunum. Síðan verða tónleikarnir endurteknir í Hlégarði og Háskólabíói 9. og 10. júní. Sólóistar eru þessir: Garðar Cortes tenór, Ólöf Harð- ardóttir sópran, Gareth Mollison hom, Brian Carlile lágfiðla, Richard Kron kontrabassi. Stjórnendur eru: Brian Carlile og Michael J. Clarke. Hugmyndin að baki Áhuga- manna-hljómsveitarinnar er sú, að gefa frístunda-hljóðfæraleikurum úr öllum landshlutum kost á að koma saman á einskonar námskeið í samleik, þar sem æfð verður undir leiðsögn vanra stjórnenda efnis- skrá, sem síðan verður flutt opin- berlega. Tilgangurinn er fyrst og fremst að örva tónlistarstarfsemi áhuga- manna og þá ekki síst að gefa þeim færi á hljómsveitarleik, sem ekki eiga þess kost í sinni heimabyggð. Þessi starfsemi mun eingöngu byggjast á sjálfboðavinnu allra þátttakenda, einnig þótt um at- vinnumenn kunni að vera að ræða. Fjárhagslega ábyrgð á fyrirtækinu taka allir þátttakendur á sig að jöfnu hverju sinni. Þar sem í ár er um fyrstu tilraun í þessa átt að ræða, er að þessu sinni aðeins um samvinnu tveggja aðila að ræða Sinfóníuhljómsveitarinnar í Reykjavík og Hljómsveitar Tón- listarskólans á Akureyri. Ef til- raunin tekst vel, verður að ári aug- lýst eftir þátttöku víðar á landinu. >T /ní “r~ 1 nr Dll “P ii /11 l - \h & V— J JU # Kísiljárnið hækkar í verði Á þessum vordögum er hafin framleiðsla kísiljárns í Járn- blendiverksmiðjunni á Grundartanga. Er talið, að framleiðslan verði um 2000 lestir á mánuði með þeim eina ofni, sem nú er tilbúinn. Verðmæti framleiðslunnar á þessu ári er búist vlð að verði 2,3-5 milljarðar króna. Næsti ofn verður tekin í notkun á næsta ári og lækkar þá fram- leiðslukostnaður á hverja lest verulega. Verð á kísil- járni hefur farið hækkandi og lítur vel út með reksturinn, einnig vegna þess, að bygg- ingarkostnaður varð nokkru minni en áætlað hefði verið. Framieitt er á lager, en i júlí- mánuði mun Eimskip hefja flutninga kísiljárnsins úr landi og hráefnis til landsins. 0 Hlakkaði til alla vikuna Gamall og góður iðnaðar- maður á Akureyri hefur frá því sagt þegar hann, ungur og auralftilt, keypti fyrsta bflinn sinn, Ford Junior. I annað eins stórvirki hafðf hann ekki áður ráðist, enda kom honum ekki dúr á auga næstu nótt. Fyrsta árið, sem hann átti bíl- inn, hjólaði hann eftir sem áður í vinnu sína dag hvern, en ók bílnum á sunnudögum, og þá var mikil hátíð sagði hann og ég hlakkaði til alla vikuna. Þetta var mjög skynsam- legt hjá iðnaðarmanninum og mætti verða ýmsum fyrir- mynd nú, þegar í alvöru er talað um þörf á bensínsparn- aði. # Bflaflotínn þarf mikið bensín Benstnverð er orðið hátt á fs- landi, bílar margir, stórir og eyðslufrekir. Raddir heyrast um, að nú þurfl að fara að spara bensínið, og hefði fyrr mátt að því huga, að það þarf talsvert bensín á 80 þúsund bfla flota. Auk þessa er enn hærra bensínverði hótað, því þeir vilja fá sltt í Arabalönd- um, ekki síður en víð fyrlr fiskfnn. Góðhestakeppni og úrtökumót HESTAMANNAFÉLÖGIN Léttfeti og Stígandi i Skagafirði efndu sl. laugardag til úrtöku- keppni fyrir fjórðungsmót hestamanna, sem verður á Vindheimamelum 26.-27. júni. Hjá Léttfeta, þar sem einnig var góðhestakeppni, ásamt úr- tökumótinu, mættu 24 hross til Gamli bíllinn er happdrættisvinningur Hjálparsveit skáta endurnýjar bílaflotann HJÁLPARSVEIT skáta á Akureyri hefur keypt nýja og fullkomna GMC björgunar- bifreið. Bifreiðin er útbúin með drifi á öllum hjólum og er fullkomin björgunar- og sjúkrabifreið. Þá verður bif- reiðin einnig notuð við æfingar og ferðir á vegum sveitarinnar. Bifreið þessi er mjög dýr, og þess vegna eru skátarnir með all- ar klær úti til að afla peninga til kaupanna. Fyrir áttu þeir bifreið af tegundinni Internatinonal, og með drifi á öllum hjólum hyggjast nú nota hana sem happ- drættisvinning í happdrætti sveitarinnar. Dregið verður þann 17. júní, og sá heppni getur ekið bifreiðinni heim frá hátíðarhöld- um dagsins. Hún er í mjög góðu lagi, og að sjálfsögðu skoðuð af bifreiðaeftirlitinu. Á næstunni munu félagar Hjálparsveitarinn- ar ganga í hús og selja happ- drættismiða og eru bæjarbúar hvattir til að kaupa miða, og styrkja um leið star' björgunar- sveitarinnar. keppni, 9 í A-flokki (alhliða góðhestar) og 15 í B-flokki (klárhestar með tölti). I A-flokki varð efst Hrafnkatla Sveins Guðmundssonar, í öðru sæti varð Lyfting Ingimars Ingimars- sonar og í þriðja sæti varð Mjölnir Jóhanns Þorsteinssonar. í B-flokki varð röðin þessi: Há- feti Ingimars Jónssonar hlaut fyrsta sæti, þá Glotti Jónasar Sigurjóns- sonar og í þriðja sæti varð Flótti Finns Bjömssonar. Voru þeir jafnir að stigum, hestarnir í öðru og þriðja sæti. Dómarar hjá Léttfeta voru Guð- mundur Hermannsson, Jón Garð- arsson og Magnús Jóhannsson. 1 úrtökukeppninni hjá Stíganda, sem fram fór á Vindheimamelum, mættu 22 hross, 10 í A-flokki og 12 í B-flokki. Efstur í A-flokki varð Sorba Guðmundar Hermannssonar, Varmahlíð, þá Svaki Björns Sveinssonar, Varmalæk, þá Kol- skeggur Sigurðar Ingimarssonar, Flugumýri og í fjórða sæti varð Ringó frá Vatnsleysubúinu. í B-flokki var efstur Jarl Ásdísar Sigurjónsdóttur, Skörðugili, þá Þokki Sveins Jóhannssonar, Varmalæk, þriðji Öðlingur Stefáns Hrólfssonar á Keldulandi og fjórði Glanni Gísla Gestssonar. G. Ó. Fjörutíu þúsund matarskammtar Á SÍÐASTA ári voru afgreiddir um 40.000 þúsund matar- skammtar I mötuneyti Slipp- stöðvarinnar og 23.420 fengu sér kaffi og meðlæti, þar af fengu um 14.400 morgunkaffi. Mjög er farið að þrengja að mötuneyt- inu, enda fjölgar starfsmönnum fyrirtækisins jafnt og þétt. Nú er veríð að byggja nýtt hús norðan dráttarbrautarinnar og er mötu- neytinu ætlað pláss i þvi húsi. Karlakór Akurcyrar. Norðurmynd.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.