Dagur - 14.06.1979, Side 5
Útgefandi: ÚTGAFUFÉLAG DAGS
Skrifstofur Tryggvabraut 12, Akureyri
Ritstjórnarsimar: 24166 og 23207
Sími auglýsinga og afgreiðslu: 24167
Ritstjóri (ábm.): ERLINGUR DAViÐSSON
Blaöamaður: ÁSKELL ÞÓRISSON
Augl og afgr : JÓHANN KARL SIGURÐSSON
Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf
Samvinnumál
Enn eru í fullu gildi þau markmið,
sem samþykkt voru af eyfirskum
bændum og samvinnumönnum á
Öngulsstöðum 3. mars 1906 og
síðan hafa verið leiðarljós sam-
vinnumanna við Eyjafjörð. En þau
eru eftirfarandi: Að útvega*félags-
mönnum góðar vörur og ná hag-
felldum kaupum á þeim. Að efla
vöruvöndun og koma innlendum
vörum í sem hæst verð. Að sporna
við skuldaverslun og óreiðu í við-
skiptum. Að safna fé í sjóði til
tryggingar fyrir framtíð félagsins.
Að stuðla að útbreiðslu og eflingu
sams konar félaga hér á landi og
koma sér í samvinnu við þau, og
að síðustu: Að efla þekkingu
manna á samvinnufélagsskap og
viðskiptamálum.
Kaupfélaq Eyfirðinga, sem ný-
lega hélt aðalfund sinn, hefur orðið
öflugur félagsskapur samvinnu-
manna vegna þess hve samstilltur
hann hefur ætíð verið um markmið
og leiðir og að félagið hefur átt
afburða forystumenn. Félags-
menn eru rúmlega hálft sjöunda
þúsund í 25 félagsdeildum, full-
trúar á aðalfundi 234 og stjórnun
félagsins fullnægir betur lýð-
ræðishugmyndinni en flest önnur
félagsform.
Það gefur hugmynd um umfang
viðfangsefna, að fastráðnir starfs-
menn eru rúmlega sjö hundruð
talsins, í verslun, iðnaði og þjón-
ustugreinum og er þá starfsfólk í
sameignarfélögum ekki meðtalið
og launagreiðslur, beinar og
óbeinar, voru hátt á þriðja milljarð
króna á síðasta ári, en heildarvelta
nam 26,3 milljörðum króna.
Þótt Kaupfélag Eyfirðinga sé
fjárhagslega styrk stofnun, ekki
síður en félagslega, var rekstur
þess þungur á síðasta ári. Smá-
söiunni voru þau takmörk sett
með opinberum ráðstöfunum, að
á henni varð taprekstur. Tvær
gengisfellingar og skerðing
álagningar áttu þátt í taprekstri
smásöluverzlunar KEA og eflaust
annarra kaupfélaga.
Sjaldan hefur verið jafn
skuggalegt útlit í landbúnaðar-
málum og nú og snertir það
rekstur kaupfélagsins mjög í okk-
ar mikla landbúnaðarhéraði. Of-
framleiðsla búvara og hin ill-
ræmda afstaða Sjálfstæðis- og
Alþýðubandalagsmanna á Al-
þingi, þegar þeir á síðustu þing-
dögum komu í veg fyrir lántöku
Framleiðsluráðs með ríkisábyrgð
til að bæta stöðu bænda, leggst
að sjálfsögðu þungt á kaupfélög-
in.
Það er þó verulegur styrkur
bændastéttarinnar, að hún nýtur
öflugra samvinnufélaga, bæði hér
og um land allt. Mun það sannast
nú, eins og ætíð áður.
Minning
Jórunn Sigurbjörnsdóttir
F. 3. júlí 1925 * Dáin 30. maí 1979
Kveðja til ömmu
Kiknar undan byrði glœsikona
gátu engir lœknað hennar kvöl?
Komst ei af í heimi sannra vona
sárt við syrgjum, stutt var hennar dvöl.
Þá síst er von er stutt í sorg og trega
og sárast mest þeir bestu falla frá
en seinna sést að þyngst er oft að vega
á vogarskálum lífsins, ást og þrá.
Þú varst svo blíð og hláturmild í hjarta
hvar sem varst, við fundum birtu ogyl
börnin voru von þín mest og bjarta
betri kona verður aldrei til.
Neytendur vilja að sjálfsögðu hafa verðmerkingu á spunavöru. Mynd: á.þ.
Neytendasamtökin á Akureyri:
Algengasf að kvartað
Hve oft var gott að vera hjá þeir heima
hve hlýtt var bros og mikil mildin þín
og eitt er vist þér aldrei munum gleyma
með tárum kveðjum, elsku amma mín.
Þín mynd mun lifa langt þó líði árin
lengstan veg uns seinna sjáumst við
vitum vel að siðar gróa sárin
Guð þig geymi ogfœri Ijúfan frið.
Barnabörn.
sé yfir spunavöru
í SÍÐASTA mánuði opnuðu
Neytendasamtökin á Akureyri
og nágrenni (NAN) skrifstofu
Drykkjusýki algengariá
islandi en í U.S.A.?
DAGANA 7. og 8. júní var
haldin á Akureyri ráðstefna fyrir
þá sem mæta vandamálum
drykkjusjúklinga í störfum sín-
um. Ráðstefna sem þessi var
einnig haldin í Reykjavík og
voru í undirbúningsnefnd Stefán
Jóhannsson félagsráðunautur,
Guðmundur Einarsson fram-
kvæmdastjóri Hjálparstofnunar
kirkjunnar, Björgvin Magnús-
son skólastjóri og sr. Bragi
Friðriksson prófastur.
Til þessarar ráðstefnu var boðið
hingað til lands sr. Gordon R.
Grimm, framkvæmdastjóra við
Hazelden Foundation í Minnesota
í Bandaríkjunum, sem er ein af
elstu og reyndustu stofnunum
vestanhafs, sem starfa að málefn-
um drykkjusjúkra.
Passíukórinn:
Sr. Gordon R. Grimm.
Til ráðstefnunnar var boðið full-
trúum frá sálfræðingum, læknum,
prestum og félagsmálastofnun, svo
og fulltrúum frá AA-samtökunum
og Al-Anon, sem er félagsskapur
aðstandenda drykkjufólks.
Mörg erindi voru flutt á ráð-
stefnunni og fjallaði Gordon R.
Grimm m.a. um sálgæslu meðal
drykkjusjúkra og aðstandenda
þeirra, orsakir og eðli drykkjusýki
og hið andlega og siðferðilega við-
horf. Eftir hvert erindi var fundar-
mönnum skipt í umræðuhópa og
einnig sátu fyrir svörum fulltrúar
frá AA-samtökunum og Al-Anon.
Sr. Gordon R. Grimm var
spurður að því hver munur væri á
aðstæðum drykkjufólks hér á landi
og í Bandaríkjunum. „Svo virðist
sem drykkjusýki sé útbreiddari hér
á íslandi en í Bandaríkjunum,
miðað við fólksfjölda, og ég held að
hér sé miklu meiri skortur á aðstoð
við drykkjusjúklinga og fjölskyldur
þeirra frá hendi þjóðfélagsins." Sr.
Gordon R. Grimm sagði ennfrem-
ur að presta hér skorti marga
hverja þekkingu til að bregðast rétt
við vandamálunum og þeim
möguleikum sem fyrir hendi eru til
hjálpar. „Presturinn er oft fyrsti
aðilinn sem leitað er til og þá fyrst
og fremst vegna skilnaðar hjóna. Á
þessu þarf að verða breyting ásamt
fleiri möguleikum á meðferð fjöl-
skyldunnar. Eins og er virðast
AA-samtökin standa nokkuð ein-
mana að þessum mikilvæga þætti,
en í Bandaríkjunum er aftur á móti
um fleiri möguleika að ræða með
hvers kyns hópvinnu."
Guðmundur Einarsson sagði að
menn hefðu lýst yfir ánægju sinni
með þessa ráðstefnu og þau mál-
efni sem þar voru rædd. „Von
okkar er að áframhald megi verða á
þessum ráðstefnum og menn finna
að þetta mál hefur meðbyr, þannig
að fordómar gagnvart þeim eru á
hröðu undanhaldi.“
Sjöunda starfsárinu lokið
SJÖUNDA starfsári Passíu-
kórsins er nýlega lokið. Kórinn
hélt ferna tónleika á því
starfsári, tvenna jólatónleika í
samvinnu við Hljómsveit Tón-
listarskólans, aðra í Akureyrar-
kirkju og hina í Víkurröst Dal-
vík, og flutti Gloría eftir Vivaldi.
Það var endurflutningur á því
verki en Passíukórinn frumfiutti
Gloria hér á landi á Tónlistar-
dögum 1975.
29. apríl flutti kórinn „Árstíðirn-
ar“ eftir J. Haydn í íþróttaskemm-
unni á Akureyri á „Tónlistardög-
um“ sem þá voru haldnir. Fékk
kórinn mjög góða dóma fyrir
flutninginn á þessu verki, en auk
hans tóku þátt í flutningnum 42
hljóðfæraleikarar og 3 einsöngvar-
ar svo alls tóku yfir 100 manns þátt
í uppfærslunni. Síðan hélt kórinn
suður yfir heiðar og flutti „Árstíð-
irnar“ í Háskólabíói 6. maí við
góðar undirtektir áheyrenda og
gagnrýnenda.
Á nýbyrjuðu starfsári er ráðgert
að flytja Messu í F-moll eftir Anton
Bruchner, sem er verk fyrir ein-
söngvara, hljómsveit og kór, samið
árið 1867-68, Páskaoratoriu
(Kommt eilet und Laufet) eftir J. S.
Bach, samin árið 1736 og Via
Crucis eftir F. Liszt, en Liszt lauk
við verkið í Budapest 1879.
I Passíukórnum á Akureyri eru
nú um 50 manns og er hver sem
áhuga og ánægju hefur af söng
velkominn í kórinn, einkum þó
tenórar og bassar. Æft er á mið-
vikudagskvöldum kl. 8 fram að
miðjum júní í sumar, en aftur
verður byrjað af fullum krafti
fyrsta laugardag í september og æft
tvisvar í viku á gamla sal Mennta-
skólans.
Stjórn Passíukórsins skipa:
Sæbjörg Jónsdóttir, Páll Bergsson,
Aðaíbjörg Jónsdóttir, Elínborg
Loftsdóttir og Hildur Bergþórs-
dóttir, en stjórnandi er Roar Kvam.
(Fréttatilkynning)
að Skipagötu 18. Þar getur fólk
fengið leiðbeiningar, upplýsing-
ar um rétt þeirra sem neytenda
og fengið aðstoð ef það telur sig
hafa verið hlunnfarið í viðskipt-
um. Fram til þessa hafa Neyt-
endasamtökin nær eingöngu
starfað í Reykjavík.
Á blaðamannafundi, sem sam-
tökin efndu til 11. júní, kom fram
að margir halda þessi samtök vera
árás á verslanir og kaupmenn. En
því fer fjarri. Samtökin gera ein-
ungis það sem hver og einn getur
gert ef vilji er fyrir hendi; tala við
viðkomandi aðila og fá leiðréttingu
sinna mála. Munurinn er sá að
NAN hafa samtaka mátt á bak við
sig.
Við ráðleggingar og leiðbeining-
ar varðandi kaup á ýmsum vörum,
hafa samtökin stuðst við saman-
burðarrannsóknir, sem neytenda-
samtök í nágrannalöndunum hafa
framkvæmt og birt í sínum ritum,
þar sem slíkar rannsóknir hafa ekki
verið gerðar hér á landi.
Á blaðamannafundinum kom
fram að hjá samtökunum hér eru
kvartanir vegna spunavöru einna
algengastar. Kaupandi vill að
sjálfsögðu fá vitneskju um t.d.
hvernig á að hreinsa ákveðna flík,
hvort hún hleypur eða lætur lit.
Víða erlendis er slík meðferðar-
merking lögboðin.
Samkvæmt reglugerðarákvæði í
lögum er kaupmönnum skylt að
verðmerkja þá vöru sem er til sýnis
í verslunargluggum. Nýlega var
gerð könnun á 30 verslunum mið-
bænum og var niðurstaðan sú að 8
verslanir höfðu enga eða ónóga
verðmerkingu.
Nú eru um 3300 félagar í sam-
tökunum á Akureyri. Samtökin
þarfnast peninga til útgáfustarfs-
semi og hafa félagsgjöld verið not-
uð til þess. Eitt fréttabréf er komið
út núna og annað væntanlegt í júní.
NAN stefna að því að koma sér
upp nokkurs konar heimildasafni
með upplýsingum um vörutegund-
ir svo neytendur geti fengið flestar
þær upplýsingar sem hægt er að
veita.
Passíukórinn hélt f jóra tónleika á starfsárinu.
Starfskynning:
Jón Sigurðarson, framkvæmdastjóri, kynnir
störf verkfræðinga
Til að geta hafið verkfræðinám er
nauðsynlegt að hafa lokið stú-
dentsprófi úr raunvísindadeild
menntaskóla, eða hafa lokið
námi í tæknifræði.
Ekki er ráðlegt að leggja stund
á verkfræði öðruvísi en að hafa
góð tök á stærð- og eðlisfræði.
Þessi tvö fög eru hornsteinar
námsins. í verkfræðiskólum er
aukin áhersla lögð á nám í
stjórnunar- og viðskiptafræðum,
enda eru þau augljóslega nauð-
synleg fyrir þá sem skipuleggja
framkvæmdir og stýra þeim.
Samkvæmt námsskrá tekur 4
ár að ljúka B.S. prófi í verkfræði
frá Háskóla íslands — oft tekur
þó námið lengri tíma. Við H.I. er
hægt að ljúka prófi í eftirtöldum
greinum verkfræði: Byggingar-,
véla-, rafmagns og skipaverk-
fræði. Einnig er hægt að ljúka
fyrrihluta náms í efnaverkfræði
(2 ár) við Háskóla íslands.
Flestir þeirra sem ljúka verk-
fræðinámi á íslandi halda er-
lendis til framhaldsnáms. Al-
gengast er að frekari menntunar
sé leitað í Danmörku, Svíþjóð eða
Bandaríkjunum.
Vilji menn stunda aðrar verk-
fræðigreinar en þær sem kenndar
eru við H.I., verður það að gerast
við erlenda háskóla.
Atvinnumöguleikar verkfræð-
inga á Islandi eru góðir. All-
margir ísl. verkfræðingar starfa
erlendis og því má segja að
atvinnumöguleikar eru ekki ein-
vörðungu bundnir við ísland.
Verkfræðingar eru vel laun-
aðir. Algeng mánaðarlaun fyrir
40 stunda vinnuviku eru frá 400
til 600 þúsund krónur. Tölu-
verður hópur verkfræðinga hefur
hærri laun en þetta, þá einkum
þeir sem vinna við stjórnun fyrir-
tækja.
Starfssvið verkfræðinga er
ákaflega yfirgripsmikið. Margir
vinna á verkfræðistofum við
hönnum mannvirkja og skipu-
lagningu framkvæmda, aðrir eru í
forsvari fyrir og bera ábyrgð á
framkvæmdum ýmiskonar.
Nokkuð stór hópur verkfræðinga
vinnur hjá hinu opinbera eða í
stærri fyrirtækjum við gerð ýmsra
áætlana svo og skipulagningu.
Segja má að flestir sem hafa lokið
verkfræðiprófi hafi fundið starf
við sitt hæfi.
Jón Sigurðarson.
Innanhússmót U.M.S.E.
Þann 14. apríl s.l. var haldið
innanhúsmót UMSE í frjálsum
íþróttum, var það haldið í
íþróttahúsinu í Glerárhverfi.
Fjölmargir keppendur voru á
mótinu frá sjö sambandsfélög-
um. UMF Svarfdæla var stiga-
hæst á mótinu með 33.5 stig.
Mótstjóri var Vilhjálmur
Björnsson.
Úrslit urðu þessi:
Telpnaflokkur
Langstökk án atrennu
I. Ingveldur Ólafsdóttir, Dagsbrún
2.19.
Hástökk með atrennu
I. Ingigerður Júlíusdóttir Svarfað-
ardal 1.28.
Kvennaflokkur
Langstökk án atrennu
1. Hólmfríður Erlingsdóttir Skriðu-
hreppi 2.54.
Hástökk með atrennu
1. Guðrún Emelía Höskuldsdóttir
Reyni 1.43.
Sveinaflokkur
Langstökk án atrennu
I. Þórir Sigurgeirsson Skriðuhr.
2.86.
Þrístökk án atrennu
1. Jóhannes Kolbeinsson Fram-
tíðin 8.63
Hástökk án atrennu
1. Jóhannes Kolbeinsson Framtíð-
in 1.63
Hástökk með atrennu
1. Jóhannes Kolbeinsson Framtíð-
in 1.63.
Karlaflokkur
Langstökk án atrennu
1. Stefán Magnússon Möðruv. sókn
2.91
Þrístökk án atrennu
1. Stefán Magnússon Möðruv. sókn
8.91.
Hástökk án atrennu
1. Felix Jósafatsson Reynir 1.43.
Hástökk með atrennu
1. Ólafur Sigurðsson Svarfaðardal
1.73.
Stigahæstu einstaklingar:
Telpnaflokkur. Ingigerður Július-
dóttir Svarf.dal. 6 stig.
Kvennaflokkur. Guðrún Höskulds-
dóttir Reyni 8 stig.
Sveinaflokkur. Jóhannes Kolbeins-
son Framtíðin 18 stig.
Karlaflokkur. Stefán Magnússon
Möðruv. sókn 12 stig.
Marka-
kóngur
Akur-
eyrar
Reglugerð um knatt-
spyrnustyttu, sem gefin er
af Bílaleigu Akureyrar.
• Styttan er árlega veitt þeim
knattspyrnumanni er flest
mörk skorar í innanhéraðs-
mótum KRA, þ.e.a.s. Vor-
móti, Akureyrarmóti og
Haustmóti.
% Leiki hinir ýmsu aldurs-
flokkar misjafnlega marga
leiki, skal reikna út hlutfall
skoraðra marka pr. leik.
Fáist ekki niðurstaða með
þeim hætti, skulu mörk eða
hlutfall skoraðra marka í
útileikjum ráða. Að öðru
leyti skal styðjast við reglu-
gerð KSl um knattspyrnu-
mót, þar sem fjallað er um
markahlutfall.
g Til þess að vera kjörgengur
skal leikmaður leika a.m.k.
helming af leikjum liðsins í
innanhéraðsmótum KRA.
• Mörk skoruð í leikjum þar
sem leikskýrslur berast ekki
á tilsettum tíma, reiknast
ekki með.
0 Styttan vinnst aldrei til
eignar, en getur veist sama
leikmanni oftar en einu
sinni. „Markakóngur“ varð-
veitir styttuna í eitt ár, en fær
verðlaunapening til eignar.
Leikir Þórs í 2. deild
15. júní Magni — Þór
22. júní Þór — Selfoss
29. júní ÍBÍ — Þór
6. júlí Þór — FH
13. júlí Þróttur — Þór
21. júlí Þór — Austri
28. júlí Fylkir — Þór
10. ágúst UBK — Þór
18. ágúst Þór — Magni
25. ágúst Selfoss — Þór
1. sept. Þór — ÍBÍ
9. sept. FH — Þór
Leikir KA í 1. deild
16. júní Víkingur — KA
24. júní ÍBK — KA
29. júní KA — Fram
8. júlí KA — KR
14. júlí Valur — KA
20. júlí KA — ÍA
27. júlí KA — Feyenoord
29. júlí Haukar — KA
2. ágúst ÍBV — KA
10. ágúst KA — Víkingur
18. ágúst Þróttur — KA
22. ágúst KA — ÍBK
1. sept. Fram — KA
9. ágúst KR — KA
16. sept. KA — Valur
Leikir Magna í 2.deild
15. júní Magni — Þór
23.júní Fylkir — Magni
30. júní Magni — Reynir
7. júlí UMK — Magni
14. júlí Austri — Magni
20. júlí Magni — Selfoss
28. júlí Magni — ÍBÍ
1. ágúst Magni — FH
11. ágúst Magni — Þróttur
18. ágúst Þór — Magni
25. ágúst Magni — Fylkir
1. sept. Reynir — Magni
8. sept. Magni — UMK
4.DAGUR
DAGUR.5