Dagur - 14.06.1979, Blaðsíða 7
Húsmæðr askól -
anum Óskslitið
Smábátahufnin á Akurcyri. Mynd: á.þ.
Wökkvi, ffélag siglingamanna:
Vinnur að bættri
hafnaraðstöðu
HÚSMÆÐRASKÓLANUM
Ósk á ísafirði var slitið í lok maí
og gerði skólastjórinn, Þorbjörg
Bjarnadóttir, grein fyrir vetr-
arstarfinu. Skólinn starfaði i
9 mánuði og voru haldin lengri
Frá Dýra
verndunar-
félaginu
Hundaeigendur eru alvarlega
minntir á, að hafa hunda sína aldrei
lausa úti, því óheimilt er að láta
hunda vera úti nema þeir séu í
bandi. Ennfremur ber að skrásetja
alla hunda í bænum og hafa þá
tryggða. (Samanber reglugerð um
hundahald á Akureyri).
•
Ökumenn: Nú fara lömbin og
ærnar að koma að vegaköntunum,
gætið þess því vel að keyra með
gætni, þegar þið sjáið dýr á eða við
vegina.
*
Það eru vinsamleg tilmæli til þeirra
húseigenda sem þegar hafa fengið
hitaveitu eða þegar þeir hafa fengið
hana, og hætt er að nota reykháfa
húsanna, að setja vírnet ofan á þá
svo fuglar komist ekki í þá, en
nokkur brögð eru að því hér, og
bíður þeirra þá venjulega slæmur
dauðdagi.
*
Til allra dýraeigenda, svo og al-
mennings: Sýnið öllum dýrum og
fuglum fyllstu umhyggju, þá verða
þau ykkar bestu vinir.
*
Kattaeigendur eru vinsamlega
beðnir að gæta vel katta sinna og
hafa þá í bandi þegar þeir eru úti.
Þetta er sérlega nauðsynlegt yfir
varptíma fuglanna, ekki síst þegar
ungarnir eru komnir úr hreiðrun-
um, en eru ófleygir. Ef kötturinn er
vaninn á, meðan hann er ungur að
vera í bandi, venst hann því fljót-
lega, enda dæmi um slíkt hér á
Ákureyri. Einnig er nauðsynlegt að
hafa kettina merkta, því svo oft
villast þeir frá heimilum sínum, og
er þá oftast hringt í Dýraverndun-
arfélagið og sagt frá óskila
heimilisköttum, sem ekki er hægt
að koma heim til sín, nema þeir séu
merktir.
og styttri námskeið í öllum
greinum heimilisfræða þ.e. hús-
stjórn, saumum og vefnaði og
sóttu 252 nemar þessi námskeið.
Auk þess sá skólinn um kennslu
stúlkna í Gagnfræðaskólanum á
ísafirði.
Starfsemi skólans var með sama
hætti og undanfarin ár og fram að
áramótum voru haldin námskeið í
ýmsum greinum matreiðslu og
handavinnu. Eftir áramót hófst 5
mánaða námskeið í hússtjórn með
sömu námsgreinum og kenndar eru
í 8 mánaða skólunum en styttri
kennsla í hverri grein. Nemendur á
þessu 5 mánaða námskeiði tóku
próf að námi loknu og á það koma
þeim til góða ef hugað er að fram-
haldsnámi í heimilisfræðum.
Hæstu einkunn á 5 mánaða nám-
skeiði hlaut Þórleif Friðriksdóttir
frá Höfða á Höfðaströnd og voru
henni veitt verðlaun úr Camillu-
sjóði.
Skólinn mun starfa með sama
hætti næsta vetur og eru þegar
farnar að berast umsóknir um 5
mánaða námskeið eftir áramót.
0 Loks kemur
pylsuvagn
f marsmánuði ákvað bæjar-
stjórn að fela bæjarstjóra að
auglýsa eftir umsóknum um
leyfi til að starfrækja pylsu-
vagn í miðbæ Akureyrar.
Ættu bæjarbúar þá, sam-
kvæmt furðulegri forsjá bæj-
aryfirvalda, að hafa fengið
pylsuvagn fyrir mitt sumar
AÐ ÞESSU sinni verða hátíða-
höldin á 17. júni í umsjá skáta-
félaganna á Akureyri. Hátíða-
höltHn hefjast kl. 8.00 með því
að fánar verða dregnir að húni.
Síðan munu 3 vagnar aka um
hin ýmsu hverfi bæjarins og
verða ýmsar þekktar ævintýra-
persónur á þessum vögnum, svo
sem Lína Langsokkur, kunn-
ingjar úr Kardemommubæ o.fl.
Á íþróttavellinum verður há-
tíðadagskrá eftir hádegi. Ræðu
dagsins flytur Ármann Kr. Einars-
son rithöfundur. Sýnt verður ný-
LAUGARDAGINN 26. MAl,
var haldinn aðalfundur í Sjó-
ferðafélagi Akureyrar. Þar var
nafni félagsins breytt í: Nökkvi,
félag siglingamanna. í lögum
félagsins segir m.a.: „Markmið
félagsins er að sameina þá aðila,
einstaklinga og félög, sem
áhuga hafa á hverskonar
skemmtisiglingum, sjósókn og
sjóíþróttum og vinna að hags-
stárlegt hópatriði, sem kalla mætti
Heimur í hnotskurn, 50 börn úr
skólakórum Akureyrar syngja.
Ýmsar keppnir í léttum dúr verða
háðar og Geysiskvartettinn
skemmtir. Sunnan og austan við
íþróttavöllinn verður Tívolí og
leiktækjasvæði og er þess vænst að
sem flest börn geti leikið sér þar.
Barnaskemmtunin sem verið hefur
á Ráðhústorgi, verður nú á Tívolí-
svæðinu, en þar verða skemmti-
atriði með vissu millibili. Einnig
verður þarna dýrasýning og gefst
þar gott tækifæri fyrir bæjarbörn
að sjá okkar algengustu húsdýr.
muna- og öryggismálum þeirra,
efla þekkingu á hverskyns sjó-
mannafræðum, auka samvinnu
og félagslyndi.
Því markmiði hyggst félagið ná
með því m.a.:
a) Vinna að bættri hafnarað-
stöðu.
b) Útvega félagsmönnum að-
stöðu til að byggja og geyma báta
og annan útbúnað.
Um kvöldið verður skemmtun á
Ráðhústorgi. Þar munu skátar færa
kvæðið „Sálin hans Jóns míns“ í
leikform, sungnar verða gamanvís-
ur, töframaður skemmtir og Gígj-
urnar syngja. Síðan verður dansað
á torginu og sér hljómsveitin
Jamaica um tónlistina. Sérstök
áhersla hefur verið lögð á að gera
þennan dag ánægjulegan fyrir
börn. Skátafélögin vænta þess þó
að sem flestir bæjarbúar finni eitt-
hvað við sitt hæfi í dagskránni og
vona að Akureyringar sameinist
um að gera dag þennan sem hátíð-
legastan.
c) Stofna þriggja manna örygg-
is- og fræðslunefnd, sem í samráði
við félagsstjórn efni til mámskeiða i
undirstöðuatriðum sjómennsku og
öryggismála.
d) Hlúa að unglingastarfi innan
félagsins.
Á hinum fjölmenna aðalfundi
var hrundið af stað undirskrifta-
söfnun, þar sem skorað er á bæjar-
stjórn að hún varðveiti hafnarað-
stöðu fyrir skip og smábáta við
Torfunef. í hinum nýju tillögum
sem liggja frammi er ekki gert ráð
fyrir neinni höfn við Pollinn,
þannig að þessi sterku einkenni
Akureyrar verða þurrkuð út vegna
reglustrikuákvarðana og fórnað á
altari blikkbeljunnar. Á sama tíma
leggja önnur bæjarfélög sig í líma
við að gera smáhafnir til þess að
auka fjölbreytni hins einhæfa
bæjarlífs. Þeir eru sennilega margir
sem enn muna trilludokkina þar
sem nú er bifreiðastæði B.S.O.
Væri nú ekki betra að endurvekja
eitthváð af því lífi sem þar var en að
færa enn meiri fórnir vegna hrað-
brauta og bílastæða sem standa auð
mestan hluta sólarhringsins?
Undirskriftasöfnun hefur farið
mjög vel af stað og hafa nær allir
sem tækifæri hafa haft til að skrifa
undir, gert það fúslega. Einnig er í
athugun að halda opinberan
borgarafund um málið.
I félaginu eru nú um 60 þátttak-
endur, og fer starfsemin fram í
gamla flugskýlinu við Höpfners-
bryggju.
Ræktunarfélag Norðurlands:
Tívolí við fþrótta-
völlinn á 17. júní
Þrastamóðir lftur eftir ungunum sinum.
Fundir um heyhirðingu
og heyverkun
Akveðið að verðlauna bændur
RÆKTUNARFÉLAG Norður-
lands hefur á undanförnum ár-
um lagt allmikla áherslu á bætta
heyhirðingu og heyverkun hjá
bændum. í framhaldi af því, sem
á þessum vettvangi hefur verið
unnið, er á vegum Ræktunar-
félagsins ákveðið að boða til
fræðslufunda um þetta efni fyrir
bændur á Norðurlandi. Verða
tveir fundir haldnir. Sá fyrri í
Félagsheimilinu við Hafralækj-
arskóla í Aðaldal 20. júní n.k. og
ætlaður bændum í Eyjafirði og
Þingeyjarsýslum. Seinni fund-
urinn verður daginn eftir 21. júní
í Félagsheimilinu á Blönduósi
og er fyrir bændur í Skagafirði
og Húnavatnssýslum. Fundirnir
byrja báða dagana kl. 2 e.h.
Fyrirlesarar á báðum fundunum
verða Óttar Geirsson, ráðunautur
hjá Búnaðarfélagi íslands og Bjarni
Guðmundsson, kennari á Hvann-
eyri. Auk þessa verða fyrirlesarar
úr heimabyggðum á hverjum stað.
Þá — hefur' Ræktunarfélagið
ákveðið að taka upp það nýmæli að
veita nokkrum bændum viður-
kenningu fyrir mjög góðan árangur
í heyverkun undangengin ár sam-
kvæmt mælingum, sem gerðar hafa
verið á heygæðum, á rannsóknar-
stofu.
Bændur- á -Norðurlandi -eru
hvattir til þess að mæta á þessa
fundi, hlýða á mál aðkomumanna,
segja frá sinni reynslu, miðla þekk-
ingu milli manna og fara til síns
heima með ný fróðleikskorn um
þessi undirstöðuatriði fyrir góðum
afurðum og hagkvæmum bú-
rekstri. stjörn Ræktunarfélags
Norðurlands
í Nökkva eru eftirtaldir í stjórn:
Vilhjálmur Ingi Árnason, for-
maður, sími 25925. Baldur Hall-
dórsson, varaformaður, sími 23700,
Guðmundur Steingrímsson, ritari,
sími 21450, Gýgja Möller, gjald-
keri, sími 22625, Guðmundur
Guðmundsson, meðstjórnandi,
sími 25622.
(Ur fréttatilkynningu)
Huginn gefur fé
NÝLEGA afhentu félagar í
Lionsklúbbnum Huginn, for-
svarsntönnum sumarbúðanna
við Vestmannsvatn, sumarbúð-
anna við Hólavatn og barna-
heimilisins við Ástjörn framlag
til reksturs og uppbyggingar
starfscminnar. Síðar er svo
fyrirhugað að afhenda barna-
deild Fjórðungssjúkrahússins
sinn skerf af söfnunarfé klúbbs-
ins á barnaári.
Eins og kunnugt er, er aðalfjár-
öflunarleið klúbbsins sala á jóla-
dagatölum og ljósaperum, og vilja
félagar þakka bæjarbúum frábærar
móttökur og stuðning til góðra
ýerka. Undanfarin ár hefur klúbb-
urinn einkum styrkt Vistheimilið
Sólborg og Fjórðungssjúkrahúsið,
en í tilefni barnaárs voru ofan-
greind verkefni valin.
DAGUR.7