Dagur - 02.10.1979, Blaðsíða 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
, SIGTRYGGUR & PÉTUR
' AKUREYRI
DAGUR
LXII. árg.
Akureyri, þriðjudagurinn 2. október 1979
64. tölublað
Nýtt rækju-
stríð?
Hreppsnefnd Kópaskers
hefur sent Ólafi Jóhann-
essyni, forsætisráðherra,
skeyti þar sem hann er
beðinn að hlutast til um,
að rækjukvóti þeirra á
Axarfirði verði ekki
skertur. En nýlega var
ákveðið að rækjukvót-
inn þar yrði minnkaður
úr 1000 lestum í 540
lestir.
*
Vatnsveitan á
Raufarhöfn
V atnsveituframkvæmdir
á Raufarhöfn eru nú að
komast á lokastig, og
verður hægt að tengja
hana um rniðjan þennan
mánuð. Framkvæmd-
irnar hafa tafist vegna
veðurfars og verkfalla.
*
Námskeið í Es-
peranto
Svo sem nokkra síðast-
liðna vetur verður á vetri
komanda haldið nám-
skeið fyrir byrjendur í
Esperanto á vegum
Námsflokka Akureyrar
og Félags Esperantista.
Próf að loknu þessu
námskeiði haldið í byrj-
un maí gildir sem val-
greinarpróf við Mennta-
skólann.
Þeir, sem gerast vilja
þátttakendur í þessu
námskeiði, gefi sig fram
við Bárð Halldórsson
(sími 21792) eða Jón
Hafstein Jónsson (sími
24270).
Þátttakendur verða
kallaðir saman mánu-
daginn 8. okt. kl. 17 í
húsi Menntaskólans,
Möðruvöllum, og verður
þá gengið frá stunda-
skrá.
*
Aðalfundur
Framsóknarfé-
lags Eyfirðinga
verður haldinn n.k.
föstudag á skrifstofu
flokksins í Hafnarstræti
90. Fundurinn hefst kl.
21.
Slippstöðin:
Hönnuð ný gerð togara
Húsvíkingar hafa sýnt málinu áhuga
„VIÐ ÁTTUÐUM okkur á því í vor að fyrirtækið þyrfti að vera
sveigjanlegt í sambandi við verkefni og geröum ráð fyrir að það
yrði eftirspurn eftir litlum togurum. Því var slíkt skip hannað.
Síðan hafa starfsmenn Slippstöðvarinnar unnið við að kynna
ýmsum aðilum skipið, sem er 46 metra langt,“ sagði Gunnar
Ragnars, forstjóri Slippstöðvarinnar h/f.
1 síðustu viku komu forráða-
menn útgerðarfélagsins Höfða
h/f á Húsavík í Slippstöðina og
skoðuðu teikningar að togaran-
um. Höfði h/f gerir út togarann
Júlíus Hafsteen ÞH. Fleiri hafa
heimsótt Slippstöðina og skoðað
teikningar af nýja skipinu, en
enginn hefur enn pantað skip.
Gunnar sagði að undanfarið
hefði verið nóg að starfa í SIipp-
stöðinni, en nú er hvað mest að
gera í viðgerðarverkefnum og
verður svo frameftir vetri. Hins
vegar er útlitið ekki jafnbjart í
nýsmíðinni. Unnið er að smíði
skips fyrir Hilmi h/f á Fáskrúðs-
firði og er áætlað að afhenda
skipið eigendum eftir áramót.
Hvað þá tekur við í nýsmíðinni er
óljóst í dag. Verið er að leita eftir
kaupendum að „Flakkaranum",
því ætlunin var að halda áfram
með hann eftir áramótin.
„Það er orðið bráðnauðsynlegt
fyrir Slippstöðina að fá nýtt
verkefni. Við hefðum þurft að
panta tæki og hefja undirbúning
að smíðinni," sagði Gunnar
Ragnars, framkvæmdastjóri
Slippstöðvarinnar að lokum.
I
I
I
I
I
1
I
I
I
I
Reykurinn
frá Krossa-
nesi
skaðlegur?
HAFIN ER uppsctning á „soðkjarnatæki“ við Krossanes-verk-
smiðjuna. Er það fyrsti liðurinn í mengunarvörnum verksmiðjunnar.
Eru þetta turnar sem reykurinn er leiddur inn í og þar sprautað yfir
hann vatni.
H
'
„Þegar teikningarnar af nýbygg-
ingunum við Krossanesverk-
smiðjuna komu fram, voru þær
ekki lagðar fyrir heilbrigðisnefnd,
og komust við að þessum fram-
kvæmdum fyrir tilviljun," sagði
Sigurður Bjarklind, heilbrigðisfull-
trúi Akureyrar. „Við skrifuðum
þeim því bréf og kröfðum þá sagna
um hvað væri að gerast og hvernig
þeir ætluðu að efna gefin loforð.“
Gert var samkomulag milli
Krossanesverksmiðjunnar og heil-
brigðisnefndar Akureyrar í fyrra,
þar sem samþykkt var að ákveðnar
úrbætur yrði að gera varðandi
reykmengun frá verksmiðjunni.
Skyldi uppsetning hreinsitækja
hafin á þessu ári og lokið árið 1980.
1 bréfi heilbrigðisnefndarinnar
til verksmiðjunnar er það og ítrek-
að að allar breytingar sem fram-
kvæmdar verða, skuli gerðar sam-
kvæmt fyrirmælum heilbrigðis-
nefndar.
„Menn hafa lengi skákað í því
skjólinu, að þarna væri um skað-
lausa mengun að ræða,“ sagði Sig-
urður Bjarklind, „en allt bendir nú
til þess að svo sé ekki. Liklegt er að í
reyknum séu efni sem vitað er með
vissu, að eru krabbameinsvaldandi.
Enn hefur reykurinn frá Krossa-
nesverksmiðjunni þó ekki verið
mældur.
Verksmiðjustjórnin hefur verið
erfið viðureignar og það er eins og
hún álíti þessa verksmiðju eitthvert
óskabarn Akureyrar, og geti þar af
leiðandi farið sínu fram án þess að
spyrja aðra,“ sagði Sigurður.
Sigurður sagði einnig að réttast
væri að veita verksmiðjustjórninni
ákveðinn frest, og hafi þeir ekki
uppfyllt kröfurnar innan þess tíma,
þá sé ekki um neitt annað að ræða
en lokun verksmiðjunnar.
Þess má svo að lokum geta að í
gangi er prófmál varðandi lokun
verksmiðja á Suðurnesjum. Þar
hafa bæði heilbrigðisnefnd og
Heilbrigðiseftirlit ríkisins krafist
lokunar, þar sem ekki séu neinar
(Framhald á bls. 7).
Reykurinn frá Krossanesi stígur upp og yfir bæinn. Mynd: C.M.
Verð á gærum:
Geta ekki selt skinnin
nema verðinu sé breytt
„ÉG HELD að séu allir bjart-
sýnir á að ráðamenn viðurkenni
þau mistök, sem þarna hafa átt
sér stað og þetta verði leiðrétt,
sagði Borgþór Konráðsson hjá
Iðnaðardeild SÍS um nýja
gæruverðið, sem 6-manna
nefndin ákvað fyrir skömmu.
Hækkun á hrágæruin frá fyrra
ári nemur alls um 66% ef reikn-
að er í dollurum, en 135% ef
rciknað er í íslcnskum krónum.
Bergþór sagði að þegar verðið
var auglýst hefði Iðnaðardeildin
MENNT ASKÓLINN
SETTUR (10O. SINN
MENNTASKÓLINN á Akur-
eyri var settur í 100. sinn í gær
á Sal. Þann 1. október voru
liðin rétt 99 ár síðan Stefán
sýslumaður Thorarensen setti
skólann á Möðruvöllum, þar
sem þá voru 35 lærisveinar.
Skólameistari var Jón A.
Hjaltalín. í vor verður haldið
hátíðlegt 100 ára afmæli skól-
ans. Þá er ætlunin að komi út
saga norðlenska skólans í 3
bindum. Ritstjóri þess verks er
Gísli Jónsson, yfirkennari, en
auk hans skrifa söguna Stein-
dór Steindórsson, frá Hlöðum,
fyrrverandi skólaineistari, og
TtyggFÍ Gíslason, núverandi
skólameistari.
í vetur eru skráðir 580 nem-
endur í skólann, þar af 80 í öld-
ungadeild, sem nú hefur 5.
starfsár sitt undir stjórn Magnús-
ar Kristinssonar, kennslustjóra.
Kennt er á 5 sviðum í skólanum:
málasviði, félagsfræðisviði, nátt-
úrufræðisviði, eðlisfræðisviði,
viðskiptasviði og tónlistarsviði.
í Menntaskólanum á Akureyri
er nú starfandi námsskipunar-
nefnd, en verkefni nefndarinnar
er að kanna með hvaða hætti
skólinn geti sem best þjónað
hlutverki sínu sem miðstöð fram-
haldsmenntunar á Norðurlandi.
verið að sýna skinnavörur í Kaup-
ntannahöfn. Eftir að nýja verðið
var gert opinbert var ekki hægt að
taka við pöntunum en það hefði
hækkað vöruna uni allt að 40%.
„Samkvæmt nýja verðinu má
reikna með að Sútunarverksmiðjan
kaupi gærur fyrir 2,3 milljarða
króna og þegar verðið var ákveðið
var ekki haft neitt samband við
kaupandann. Ég held að þetta
þætti skrýtinn viðskiptamáti, ef
hann tíðkaðist víðar," sagði Berg-
þór.
1 þessum mánuði koma helstu
viðskiptavinir Iðnaðardeildar upp
til íslands og sagði Bergþór að enn
hefði ekkert heyrst i þeim um hvað
þeir væru tilbúnir að greiða, en það
væri Ijóst að þeir myndu ekki geta
greitt það verð sem upp væri sett.
Stöðin á Hólum
lögð niður
í ÞESSUM mánuði verður
símstöðin á Hólum í Hjalta-
dal lögð niður og verða sím-
notendur tengdir við stöðina
á Sauðárkróki. Þetta er liður
í hagræðingu Pósts og síma.