Dagur - 29.05.1980, Blaðsíða 4

Dagur - 29.05.1980, Blaðsíða 4
Útgefandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS Skrifstofur: Tryggvabraut 12, Akureyri Fiitstjórnarsímar: 24166 og 23207 Sími auglýsinga og afgreiöslu: 24167 Ritstjóri (ábm.): HERMANN SVEINBJÖRNSSON Blaöamaður: ASKELL ÞÓRISSON Augl. og afgr.: JÖHANN KARL SIGURÐSSON Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf. Verðbólgu- íhald Margir óttast það nú mjög, að allar áætlanir ríkisstjórnarinnar varð- andi niðurtalningu verðbólgunnar fari út um þúfur. Það sem einkum veldur þessum ugg er vísitölu- hækkunin 1. júní, en þá eiga laun að hækka um rösklega 11 prósent. Eins og endranær koma ýmiss konar hækkanir í kjölfarið og má þar meðal annars nefna hækkun fiskverðs. Afleiðing hækkunar fiskverðs er svo, ef að líkum lætur, lækkun á gengi krónunnar, því útflutningsat- vinnuvegirnir verða að standa undir sér, að minnsta kosti. Síðan þarf að bæta ýmsum það upp, að þeir fá verðminni krónur milli handanna. Þannig gengur það koil af kolli og þannig hefur það gengið til undanfarin ár. Þrátt fyrir sjálfkrafa hækkun launa með breytingum á vísitöl- unni, eru margir á því máli, að sjaldan hafi almennir launþegar átt erfiðara með að láta endana ná saman en nú og það er staðreynd, að launþegar og sparifjáreigendur tapa mest á þeirri óðaverðbólgu, sem hér geysar. Þeir eru svo hins vegar til, sem beinlínis spila á þetta kerfi og safna fasteignum og öðrum fjármunum. Spillingin og óréttlætið samfara verðbólgunni verða tæpast afnumin nema með því að draga stórlega úr sjálfu meininu. Þjóðarlíkaminn er sjúkur og eins og með flesta sjúkleika eru orsakirnar margvíslegar, ekki síst hugarfarslegar. Hugarfars- breytingu þarf til að lækna verð- bólguna. Hún er nú orðið fyrst og fremst þjóðarsálsýki. Verðbólgan hefur varað lengi á íslandi. Það er ekkert nema íhalds- og afturhaldssemi að vilja óbreytt ástand, með áframhald- andi verðbólgu. Gæta þarf að- halds á fjöldamörgum sviðum, s.s. varðandi verðbætur á laun, hækkun búvöruverðs, fiskverðs, varðandi gengismál, ríkisfjármál, fjárfestingamál og fleira. Launaskrið er ekki eina orsök verðbólgunnar, síður en svo, en það er vissulega hluti af meininu. Allir viðurkenna að þeir sem minnst bera úr býtum verða að fá leiðréttingu sinna mála. Það hefur hins vegar sýnt sig á undanförn- um árum, að óraunhæf kjara- stefna veldur sífellt meiri verð- bólgu og sífellt meiri tilfærslu á peningum frá þeim sem minnst mega sín, til þeirra sem betur eru settir. Óraunhæf kjarastefna dregur úr líkunum á því, að lækka megi verðbólguna, og er ekkert annað en íhaldssemi. Akureyringar kunnu svo sannariega að meta góða veðrið í siðustu viku. Hitinn var um og yfir 20 gráður og mest fór hann í 24,6 gráður fimmtudaginn 22. maí, sem mun vera met í maímánuði. Það var litlu lakara að busla í Leirutjörn, heldur en að stunda sjóböðin í sólarlöndum þennan dag. Það er víst betra að fylgjast með og gæta velsæmisins. Æ, hvað eru þessir Ijósmyndarar að þvælast? Þetta er nú svo sem ekkert nýtt hér i Sundlauginni. Þeir eru svo gasalega frjálslyndir hérna. Ferlegt er að þurfa að vera í öllum þessum fötum í þessum hita! Kjamaskógur er mikill unaðsreitur og þangað flykkist fólk gjarnan á góðviðrisdögum. 4.DAGUR

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.