Dagur - 21.08.1980, Síða 4
BAGUR
Útgefandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
Skrifstofur: Tryggvabraut 12, Akureyri
Ritstjórnarsímar: 24166 og 23207
Sími auglýsinga og afgreiðslu: 24167
Ritstjóri (ábm.): HERMANN SVEINBJÖRNSSON
Blaðamaöur: ÁSKELL ÞÓRISSON
Augl. og afgr.: JOHANN KARL SIGURÐSSON
Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf.
Um skattamál
Eins og endranær að lokinni
álagningu skatta spinnast miklar
umræður um álagðan tekju- og
eignaskatt, prósentur og pró-
sentustig, skattpíningu og fleira,
og sýnist sitt hverjum eins og
gengur. Menn deila um það hvort
heildarálagning hafi hækkað eða
lækkað, hvaða hópar þjóðfélags-
jns fari nú verst út úr sköttunum.
Rifist er hatrammlega í fjölmiðl-
um um einfaldar staðreyndir, að
því er virðist, en þær teygðar og
togaðar, allt eftir því hvort menn
eru í eða styðja stjórn eða
stjórnarandstöðu. Almenningi er
lítill greiði gerður því hann er litlu
nær. Enn sem fyrr er villugjarnt í
frumskógi skattalaga og -reglna,
enda virðast allar breytingar horfa
til þess að gera kerfið flóknara og
flóknara fyrir allan almenning að
skilja, þrátt fyrir það að breyting-
arnar séu gerðar til einföldunar.
Almenningur þekkir hinsvegar
regluna um það, að fyrst kemur
lýgi, síðan haugalýgi og síðast
prósentureikningur og hann er
verstur, því það er hægt að gera
hann svo sannfærandi.
Hver og einn getur á auðveldan
hátt komist að því, hve hátt hlutfall
hann greiðir í skatta og útsvar.
Þegar verðbólgan brenglar allt
verðskyn og það er haft í huga, að
um eftirágreidda skatta er að
ræða, þá er einfaldasta og réttasta
viðmiðunin sú, að bera saman
tekjur og þá fjárhæð, sem greidd
er til ríkisins, sama ár og teknanna
er aflað. Með því móti eru bornar
saman sambærilegar tölur og
með þessari aðferð er hægt að
leita samsvörunar við staðgreidda
skatta erlendis. Það skyldi þó ekki
koma í Ijós, að hlutfall beinna
skatta er ekki svo ýkja hátt hér á
landi, miðað við þá velferð sem
flestir búa við.
Ekki er við því að búast, að öll
kurl komi strax til grafar varðandi
álagningu skatta í ár, þar sem
orðið hefur mikil kerfisbreyting í
skattamálum. Þegar unnið var að
þessari kerfisbreytingu var gert
ráð fyrir einhverri aukningu á
tekjuskatti og ennfremur hækkun
eignaskatts, fyrst og fremst hjá
einstaklingum í atvinnurekstri.
Þetta ætti því ekki að koma nein-
um mjög á óvart, eins og ætla
mætti af öllum látunum í stjórnar-
andstæðingum þessa dagana.
Skattkerfisbreytingin miðar
fyrst og fremst að því, að láta það
fólk greiða skatta sem hefur til
þess greiðslugetu, fremur en
ungt fólk með ung börn á fram-
færi sínu, sem er að koma sér upp
heimilum.
4.DAGUR
VIÐTAL VIÐ BJARNA ARTHURSSON, FORSTÖÐUMANN KRISTNESHÆLIS:
Móttöku deild fyrir
áfengissjúklinga
— mwrnwm.,
Svalirnar voru upphaflega ætlaðar til þess að berklasjúklingar gætu legið úti undir beru lofti.
Um síðustu áramót tók við starfi
forstöðumanns á Kristneshæli
Bjarni Arthúrsson, en hann
gegndi áður starfi fulltrúa
skattstjóra á Egilsstöðum.
Bjarni er fæddur og uppalinn á
Akureyri, sonur Arthúrs Guð-
mundssonar fyrrum innkaupa-
stjóra KEA og konu hans. Dag-
ur ræddi við Bjarna um Krist-
neshælið og bað hann fyrst að
segja frá upphafi stofnunar
þess:
— Upphafið að stofnun Krist-
neshælis er að finna í Heilsuhælis-
félagi Norðurlands, en á almenn-
um borgarafundi á Akureyri 22.
febrúar 1925 var félagið stofnað að
tilhlutan Sambands norðlenskra
kvenna. Árið 1918 byrjuðu kon-
urnar að safna fé, sem renna átti til
heilsuhælisbyggingar og var það
fyrsti vísir þess, sem síðar leiddi til
byggingar Kristnesheilsuhælis, eins
og það hét í upphafi. Hornsteinn
Kristneshælis var lagður 25. maí
1926 og 1. nóvember 1927 afhenti
Heilsuhælisfélagið ríkinu hælið
fullbúið og tilbúið til rekstrar. Fé-
lagið hafði þá lagt fram um helm-
ing byggingarkostnaðar, en ein-
staklingar, fyrirtæki og félög af-
ganginn. Kostnaðaráætlun
Guðjóns Samúelssonar sem hljóð-
aði upp á 512 þúsund krónur stóðst
nokkurn veginn alveg.
Menn lögðu nótt
við dag
Mjög mikið sjálfboðaliðastarf
var unnið við bygginguna og Iögðu
menn nótt við dag, slíkur var eld-
móður fólks að sjá háleita hugsjón
verða að veruleika. Við vígslu
Kristneshælis sagði Guðmundur
Björnsson. landlæknir, m.a. um
þetta sérstæða framtak: „Bygging
Kristneshælis er mesta furðuverk
sem unnið hefur verið á hinni nýju
landnámsöld."
En það var fleira sem var merki-
legt við bygginguna, því Kristnes-
hælið hefur frá upphafi verið hitað
með heitu jarðvatni frá Reykhúsa-
laug. Var hælisbyggingin því fyrsta
stórhýsið á íslandi sem hitað var
með vatni sem ekki var sjálfrenn-
andi og markaði það nokkur tíma-
mót á sinn hátt.
Þó að berklar. eða hviti dauði
eins og þeir voru nefndir, hafi verið
fyrir hendi í landinu frá landnáms-
tíð. þá náðu þeir ekki hámarki sínu
fyrr en á árunum 1930-1940. Árið
1976 útskrifaðist svo síðasti berkla-
sjúklingurinn frá Kristneshæli og
höfðu þá frá upphafi verið inn-
lagðir 2294 berklasjúklingar.
Þegar fór að hilla undir það að
berklum yrði útrýmt á íslandi
fékkst heimild stjórnvalda til að
taka aðra sjúklinga en berklasjúk-
linga inn á hælið og það mun hafa
verið um 1960 sem slíkt leyfi fékkst.
Nú eru þar um 70 langlegusjúk-
lingar, flestir vegna ellihrörnunar.
Einnig hafa verið teknir inn áfeng-
issjúklingar, en þeir hafa oftast
dvalið þar mjög skamman tíma.
Nýjungar í rekstri
— Eru einhverjar nýjungar fyr-
irhugaðar í rekstri Kristneshælis?
— Undanfarin ár hafa verið
uppi raddir um að opna þar mót-
tökudeild fyrir áfengissjúklinga, en
engin slík deild er til á Norður- og
Austurlandi þó svo að þörfin sé
brýn. Á hælinu er fyrir hendi hús-
næði sem hentar mjög vel fyrir
móttökudeild áfengissjúklinga.
Bjarni Arthúrsson.
Þess vegna var það, að 11. mars s.l.
sendi ég heilbrigðisráðuneytinu
greinargerð um stofnun og rekstur
slíkrar móttökudeildar. Aðeins
viku síðar, eða 18. mars, fékk ég
svarbréf ráðuneytisins um að það
væri sammála því að þessi deild
yrði sett á laggirnar í Kristnesi. Hér
var því ekki um vafstur og þvæling
málsins að ræða heldur var það af-
greitt snarlega með góðum orðum
um frekari fyrirgreiðslu. Vonast ég
til að geta opnað þessa deild fyrir
næsta sumar.
— Hvert verður verksvið þessar-
ar deildar?
— er meðal fyrir-
hugaðra bygginga
í rekstri
Kristnesshælis
— Hún mun gegna svipuðu
hlutverki og deildin við Klepps-
spítala, þ.e. að taka við drukknum
mönnum, sem þarfnast þjónustu á
vettvangi læknis- og hjúkrunar-
fræða, sem heimili og lögregla geta
ekki veitt. { öðru lagi að veita stað-
góða fræðslu um alkóhólisma og
þau ráð sem tiltækileg eru í barátt-
unni við sjúkdóminn og 1 þriðja lagi
að hjálpa sjúklingum til að taka
ákvörðun um hvað rétt sér að gera
eins og á standi.
Einnig má nefna, að ég hef mik-
inn áhuga á að stofna dagspítala á
Akureyri, en það mál er á frumstigi
ennþá. Dagspítali er, eins og nafnið
ber með sér, staður þar sem
sjúklingar dvelja á daginn og fá
læknisaðstoð og hjúkfun, en eru
heima hjá sér á kvöldin og um
nætur. En eins og ég sagði áður er
málið á frumstigi og ekki rétt að
ræða það nánar.
Eins og lítið
sveitarfélag
— Hvernig gengur daglegur
rekstur Kristneshælis fyrir sig?
— Það má ef til vill segja, að
hann líkist að nokkru rekstri lítils
sveitarfélags. Upp á borðið koma
til dæmis mál varðandi gatnagerð,
viðhald gatna og skólplagna, hita-
veitumál, byggingamál, mál varð-
andi skrúðgarða og barnaheimili
og fleira, sem va'rðar þann þéttbýl-
iskjarna sem er að Kristnesi. Það
mál sem heitast brennur í dag
varðar heitaveituna, því þegar
Hitaveita Akureyrar fór að dæla
heitu vatni úr borholum sínum við
Laugaland tók vatnsrennsli úr
laugum Kristneshælis að minnka.
Nú er svo komið að ekkert vatn
fæst úr okkar laugum í landi
Reykhúsa og sáralítið úr Kristnes-
laug. S.l. sumar lét hitaveitan bora
skammt frá Reykhúsalaug, en það
sem þar kemur nægir ekki til. Því
höfum við þurft að kynda mikið
með olíu og var olíunotkun á síð-
asta ári vegna þessa 115 tonn. Má
því segja, að verði ekki fundin
lausn á húshitunarmálum okkar
fyrir haustið horfi verulega illa í
vetur, ekki síst vegna þess, að ill-
framkvæmanlegt er að bæta við
olíukyndingartækjum.
Kristneshæli. —
Mynd: H. Sv.
-— Þú nefndir byggingamál,
hvernig hefur þeim verið háttað upp
á síðkastið?
— Á síðustu árum hefur verið
byggt nokkuð mikið á vegum
Kristneshælis og eru þar nú 19
starfsmannaíbúðir auk 22ja her-
bergja fyrir starfsstúlkur. Ekki er
þó allt starfsfólkið búsett á staðn-
um, heldur er nokkur hluti þess
búsettur á Akureyri. Nokkuð mikið
viðhald og eftirlit þarf að hafa með
starfsmannaíbúðunum og sjá þrír
iðnaðarmenn um allt viðhald á
fasteignum hælisins, auk þess að sjá
um nýbyggingar og mannvirkja-
gerð.
Mig langar til að nefna'Jtér að-
eins skrúðgarðana og skógræktina
umhverfis Kristneshælið. Garð-
arnir voru í upphafi skipulagðir af
Jóni Rögnvaldssyni, garðyrkju-
ráðunaut Akureyrarbæjar, en
skógræktin, sem er á 27 hektörum
friðaðs lands, er fyrst og fremst
verk Eiríks Brynjólfssonar, fyrrver-
andi forstöðumanns. Slík garðrækt
og trjárækt held ég að sé einsdæmi
fyrir opinbera stofnun á íslandi og
eiga höfundarnir mikið lof skilið
fyrir þetta brautryðjendastarf.
Varðandi reksturinn sem við
nefndum áðan má geta þess, að þar
er rekin verslun og bókasafn, sem
telur tæp 5 þúsund bindi.
Lágur rekstrar-
kostnaður
— Hvað kostar rekstur svona
fyrirtækis?
— Ég reikna með að rekstur á
yfirstandandi ári kosti um 550
milljónir króna, en þar af fara ríf-
lega 70% í launagreiðslur. Mjög
óveruleg aukning hefúr orðið á
rekstrarkostnaði Kristneshælis
milli ára, sé miðað við framfærslu-
vísitölu. Ég held að það sé ekki á
neinn hallað þó ég segi, að rekstur
hælisins sé ódýrastur slíkra stofn-
ana. Þannig kostaði rekstur hvers
sjúkrarúms rösklega 14 þúsund
krónur 1979, en á næst ódýrustu
stofnuninni nam kostnaðurinn um
20 þúsundum. Stafar þetta fyrst og
fremst af því, að launakostnaður
hér er lægri en víðast annars staðar,
fyrst og fremst vegna þess, að aldrei
hefur fengist viðurkenning á því, að
langlegusjúklingar sem hér dveljast
þurfi sömu hjúkrun og hliðstæðir
sjúklingar annars staðar. Hjá hlið-
stæðri stofnun í Reykjavík, að Há-
túni 10, er ríflega 100% fleira
starfsfólk, en svipaður fjöldi sjúkl-
inga.
Heimild er fyrir 44 starfsmönn-
um, en vegna þeirrar þróunar sem
orðið hefur í vistunarmálum starfa
hér yfirleitt um 60 manns. Það er
36% umfram heimildir en á Alþingi
eru starfsmenn 122% fleiri en
heimiluð stöðugildi.
Brýnast að fyrir-
byggja sjúkdóma
— Hver telur þú að verði brýn-
ustu viðfangsefnin í heilbrigðis-
þjónustunni á næstu árum og ára-
tugum?
— Hlutfall heilbrigðisþjónustu
af þjóðarframleiðslu fer stöðugt
vaxandi. Nefna má til gamans, að
ég hef heyrt því fleygt, að árið 2000
muni um helmingur íbúa hins
vestræna heims starfa hjá heil-
brigðisstofnunum, sem hafi það
hlutverk að hjúkra og lækna hinn
helminginn. Að slepptu þessu
gamni má nefna, að hlutfall heil-
brigðisþjónustu er nú um 1% af
vergri þjóðarframleiðslu hér á
landi, sem er lægsta hlutfallið á
Norðurlöndunum og svipað því
sem er í Finnlandi. Ýmsir erlendir
sérfræðingar hafa spáð því, að
hlutur heilbrigðisþjónustu í flest-
um löndum muni staðnæmast við
10-12% af vergri þjóðarframleiðslu.
Mikill árangur hefur náðst i
heilbrigðisþjónustunni hér á und-
anförnum áratugum. En það er
ekki nóg að minnka ungbarna-
dauða og missa svo börnin í um-
ferðarslysum eða í fang eiturlyfja-
neyslu. Það er heldur lítil huggun
að vita að við höfum auknar líkur á
að verða 90 ára, ef það líf sem við
fáum til viðbótar er háð tengslum
við flösku með næringu í æð og
súrefniskerfi spítala. Gæði lífsins
skipta jafn miklu, ef ekki meiru, en
lengd þess.
Á næstunni verðum við að beina
kröftum okkar meira að því að at-
huga, hvaða sjúkdómar taka
stærstan toll í mannslífum og valda
mestri andlegri-, félagslegri- og
líkamlegri þjáningu. Við verðum
að finna orsakirnar og beita fyrir-
byggjandi aðgerðum.
„Bygging Kristneshælis er mesta furðuverk sem unnið hefur verið á hinni nýju landnámsöld<(
Skúli Flosason:
Um Leiruveg
Fyrir nokkrum árum flutti Ingimar
Óskarsson vísindamaður, erindi í
útvarpið um Glerárgilið, gróðurfar
þess og fegurð. Gat hann þar
nokkurra sjaldgæfra plantna sem
óvíða eða hvergi fyndust á landinu
nema þar í gilinu.
Það er mikill fengur í því að fá að
heyra slíka menn flytja svo fræð-
andi og mannbætandi fyrirlestra.
Og nú ættu Akureyrarbúar og aðrir
seni undanfarin ár hafa veitt þessu
iandsvæði hin verstu svöðusár með
vélum og rusli, svo liggur við land-
níðslu. að bæta það tjón á náttúr-
unni með betri umgengni og lag-
færingu á spilltri jörð.
Víða er svo landinu gerspillt með
tilgangslausum skurðum og vegar-
lagningu.
Varla er litið svo í blað eða
hlustað á fjölmiðla að ekki sé
minnst á mengun, þar sem milljóna
þjóðir eru að kafa í eigin affalli.
Nýlega hefur verið sagt frá svifi
sem nærist á mengun og vex með
ógnarhraða. breiðir sig yfir vötn og
strandlengjur, spillir drykkjarvatni
og eyðir fiskistofnum.
Svo voðalegt er þetta svif að ótt-
ast er að það kunni að breiðast út
um heiminn.
Takmarkalaus græðgi neysluþjóð-
félaganna. á gæðum jarðar, sýnist
vera ein höfuð orsök þessa.
Og ef til vill er sá tími kominn að
landið okkar óspillt. í lofti og legi,
sé okkar dýrmætasta eign.
Og okkar fengsælasti atvinnu-
vegur verði uppgræðsla og verndun
fyrir landníðslu.
Vangaveltur um ofanskráð koma
manni í hug eftir að hafa hlustað á
þátt í útvarpinu um „Leiruveginn"
svokallaða, þar sem annar við-
ræðuaðili vildi fá veginn yfir Leir-
una. Virðist sá aðili dyggur fulltrúi
landníðslu og mengunar og ekki
nóg með það, heldur á að leggja
veginn eftir endilöngum Vaðlareit.
Þetta er nú ein af þeim hörmungar
skrifborðsáætlunum sem gerðar
hafa verið.
Nú er Vaðlaskógur alveg að
komast á það vaxtarskeið að hægt
er að opna hann öllum almenningi
til ánægju, hvíldar og fegurðar. En
þá finna landníðslumenn strax ráð
til að útiloka alla veru í þessum reit.
Því það vita allir að eftir að að-
alþjóðvegur með öllum sínum
þungaflutningum, hefur verið
lagður eftir endilöngum reitnum
verður engum manni vært þar
vegna óþrifa af ryki, olíumengun
og hávaða. Já hávaða, sem er nú
talinn stór mengunarvaldur í
streitu nútímans. Bara það eitt
nægði til að banna þjóðvegalagn-
ingu um reitinn.
Minni einnig á þá ræktunar-
menn sem ruddu brautina með
ræktun huga og handar og þá sví-
virðingu sem minningu þeirra er
sýnd með svona ákvörðun fyrir að-
eins 4-6 km.
Og það er ekki gott til eftir-
breytni fyrir ungmenni landsins ef
þau eiga von á því, að komi þau á
fót gróðurreitum, sé hætta á að eftir
svo sem 40 ár komi niðurrifsmenn
með ýtur og ryðji gróðrinum burt
fyrir örfáa metra.
Um lífríki Leirunnar er ég ekki
fróður en eins og bent var á í áður-
nefndum útvarpsþætti verður það
slæm röskun á legu landsins, að
leggja veginn þarna austur yfir,
nógu ljótur er nú garður sá sem
fyrir er.
Ég hef hlustað á verkfræðing frá
Vegagerð ríkisins staddan í Vaðla-
reit orða það svo: Þó að vegur yrði
lagður um reitinn yrði það aldrei
„ideal“ vegur, eins og hann orðaði
það, vegarstæðið byði ekki upp á
það.
Þá talaði fulltrúi vegarins í áður-
nefndum útvarpsþætti um að leiðin
myndi styttast, einnig að hann
myndi borga sig á svo og svo
skömmum tíma. Læti og peninga-
græðgi komin strax í spilið, og
manni skildist að þetta ætti að
þjóna bílnum.
Einu sinni hélt maður að bíllinn
ætti að þióna manninum.
Góðir vegagerðarmenn endur-
skoðið þið nú áætlanir ykkar og
finnið nýtt vegarstæði, því sá sann-
leikur sem hulinn var ykkur í gær,
getur verið í hvers manns vitund,
áður en sól er af himni í kvöld.
„Við byggjum“
Um næstu helgi halda
Kiwanisklúbbarnir á íslandi
sitt árlega umdæmisþing á Ak-
ureyri. Þetta er tíunda þingið
sem klúbbarnir halda, síðan
þeir urðu sjálfstætt umdæmi
innan alþjóðahreyfingar Kiw-
anis. Þingið munu sækja rúm-
lega 350 manns. Umdæmis-
stjóri íslenska Kiwanisum-
dæmisins er Hilmar Daníels-
son, framkvæmdastjóri á Dal-
vík. f tilefni af þinginu ræddi
blaðið við Hilmar í gær.
Hver eru megin verkefni um-
dœmisþingsins sem haldið verður á
Akureyri um nœstu helgi?
Umdæmisþing er aðalfundur
heyfingarinnar. Þar gefur um-
dæmisstjórn skýrslu um störf sín,
málefni hreyfingarinnareru rædd
og þingið kýs embættismenn í
umdæmisstjórn. Á þessu þingi
verður ennfremur tekin ákvörðun
um ráðstöfun á söfnunarfé K-
dagsins, sem haldinn er þriðja
hvert ár og verður nú í október
n.k. Þessu fé hefur á liðnum árum
verið ráðstafað til styrktar geð-
sjúkum.
Hverjir eru erlendu fulltrúarnir
og hvað eru þeir að gera?
Erlendir gestir þingsins eru
Allen M. Duffield og kona hans,
sem eru fulltrúar alheimsstjórnar
Kiwanis og Christof Schaertlin og
kona hans, sem eru fulltrúar
Evrópustjórnar Kiwanis. Auk
þeirra koma tveir fulltrúar bresku
Hilmar Daníclsson.
klúbbanna, sem umdæmisstjórn
bauð til þingsins og eru þeir hér
fyrst og fremst til að kynna sér
störf hreyfingarinnar á íslandi.
Hver eru markmið og tilgangur
Kiwanishreyfingarinnar?
Kiwanis hreyfingin er alþjóð-
legsamtök þjónustuklúbba, sem i
eru menn, er stefna vilja að því að
bæta samfélagið. Félagar eru
menn úr ýmsum stéttum, sem af
fúsum vilja hafa tekist á hendur
ábyrgðarstörf í samfélaginu.
Kiwanis hreyfingin á rætur sínar í
tuttugustu öldinni. Fyrir félögum
Kiwanis hreyfingarinnar vakir að
láta gott af sér leiða og njóta fé-
lagsskapar hver við annan.
„Við byggjum" eru einkunnar-
orð Kiwanis hreyfingarinnar.
Undir merki þessara orða hefur
hreyfingin eflst og orðið æ
þekktari með árunum.
Hafa ísl. Kiwanisklúbbar náið
samstarf við erlenda Kiwanis-
klúbba?
Almennt er varla hægt að segja
að svo sé. í allmörgum tilfellum
eiga þó klúbbar hér vináttuklúbb
erlendis og þá frekast á Norður-
löndunum. f þeim tilfellum er
skipst á heimsóknum og héðan
hafa farið hópar unglinga og
dvalið á heimilum Kiwanisfélaga
í Noregi og við tekið á móti þeim.
Persónuleg kynni við erlenda
Kiwanisfélaga eru hinsvegar al-
geng og samskipti þeirra vegna.
Get ég nefnt sem dæmi, að er
sonur minn Daníel var við skíða-
þjálfun í Austurríki s.l. vetur var
hann þar í umsjá Kiwanisfélaga
sem ég hitti á Evrópuþingi í
Innsbruck í júní í fyrra.
Verðið þið varir við aukinn
áhuga á starfi Kiwanis eða verðið
þið varir við félagsdeyfð?
Hreyfingin er ung á Islandi
meðlimir innan hennar í miklum
meirihluta ungir menn. Áhugi
klúbbfélaga er almennt mikill þó
finna megi að sjálfsögðu undan-
tekningar frá því. Hreyfingin
hefur lagt lið margskonar líknar
— menningar — og æskulýðs-
störfum sem ég held að almenn-
ingur meti mikils.
Að lokum?
Ég vona að þetta 10. umdæm-
isþing sem haldið er hér á Akur-
eyri takist vel og auki kynni al-
mennings á störfum hreyfingar-
innar og efli þau góðu tengsl inn-
an Kiwanisfjölskyldunnar sem
fyrir hendi eru.
DAGUR■5
HefUr þú spurt á
Húsavík?
Viö eigum nánast allt sem þú þarfnast til húsbygginga,
jafnt áhöld sem efni.
w byggíngarvörur
HUSaVÍk. Sími (96) 41444