Dagur - 09.09.1980, Blaðsíða 4
©AGUR
Útgefandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKrifstofur: Tryggvabraut 12, Akureyri
Ritstjórnarsímar: 24166 og 23207
Simi auglýsinga og afgreiðslu: 24167
Ritstjóri (ábm.): HERMANN SVEINBJÖRNSSON
Blaöamaður: ÁSKELL ÞÖRISSON
Augl. og afgr : JÖHANN KARL SIGURÐSSON
Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf.
Málamiðlun í
landbúnaðarmálum
Af ályktunum Stéttarsambands
bænda má ráða, að bændur eru
manna fúsastir til að viðurkenna
þau vandamál sem nú er við að
etja í búvöruframleiðslu- og mark-
aðsmálum landbúnaðarins. Þeir
eru reiðubúnir að taka á sig þær
byrðar, sem eðlilegt og sanngjarnt
má telja og jafnvel umfram það,
þegar þess er gætt að þetta er ekki
einungis vandamál bændanna
einna, heldur allra landsmanna.
Það er ekki mikill eðlismunur á
því, þegar annars vegar fæst ekki
nógu hátt verð fyrir útfluttar land-
búnaðarvörur og útflutningsbætur
eru greiddar og þegar hins vegar
fást ekki nægilega margar krónur
fyrir útfluttar sjávarafurðir og
gengið er fellt. Munurinn liggur ef
til vill fyrst og fremst í því, að
markaðsvandamál sjávarútvegs-
ins hafa ávallt verið leyst jöfnum
höndum, eins og gengisfellingar
undanfarinna ára bera vitni um, en
markaðs- og söluvandamál land-
búnaðarins hafa hlaðið utan á sig.
Að þessu leyti er ólíku saman að
jafna. Þessi uppsafnaði vandi í
sölu- og markaðsmálum landbún-
aðarins er hins vegar ekki bænd-
um að kenna, því þeir hafa fyrir
löngu gert sér grein fyrir þessum
vanda og bent á nauðsyn þess að
hann yrði leystur.
Meðal þess sem gripið hefur
verið til í baráttunni gegn offram-
leiðslu landbúnaðarafurða eru bú-
markskerfi og 200% skattur á
kjarnfóður. Mörgum bændum
fannst sem verið væri að bera í
bakkafullan lækinn, að leggja fóð-
urbætisskattinn ofan á búmarks-
kerfið. Aðrir eru hins vegar þeirrar
skoðunar, að fóðurbætisskattur sé
heppilegasta lausnin til að
stemma stigu við offramleiðslunni.
Á aðalfundi Stéttarsambandsins
var fundin eins konar meðallausn,
sem gengur út á það, að bændur
greiða ekki 200% skattinn nema
farið sé fram úr tilteknum skammti
kjarnfóðurs fyrir hverja afurðaein-
ingu og miðist afurðamagn við
framleiðslukvóta hvers bús. Séu
kjarnfóðurkaupin innan þessa
marks greiðist ekki nema 33,3%
skattur á kjarnfóður.
Áður hefur verið bent á það í
Degi, að heppilegast væri að taka
upp skömmtun á fóðurbæti miðað
við afurðaeiningu og skattleggja
síðan umframmagnið. Stjórnvöld
geta vart gengið fram hjá þessum
vilja Stéttarsambandsins. Gert er
ráð fyrir nokkuð mildari aðgerð-
um, en eftir sem áður þurfa bænd-
ur að taka á sig stærstan hluta
þessa vanda. Hins vegar ræður
verðbólgan miklu um markaðs-
vandamál landbúnaðarins og
sjávarútvegsins og hún er þjóðfé-
lagslegt vandamál sem allir verða
að sameinast um að leysa.
Halldór Sigurðsson:
Fjölskylduhátíð
í Hörgárdal
Kynslóðabil, hvað er það? Já
svona hefðu menn getað spurt,
þeir er staddir voru á íþrótta-
svæðinu að Melum Hörgárdal
sunnudaginn 24. ágúst sl. en þar
fór fram fjölskylduskemmtun
með fjölbreyttu sniði.
Undanfarin ár hefur Umf.
Skriðuhrepps staðið fyrir
skemmtun fyrir alla fjölskylduna,
annað hvort við sundlaug Þela-
merkurskóla eða á íþróttasvæði
félagsins. Að þessu sinni var
skemmtunin á íþottasvæðinu.
Það var hátíðleg stemmning á
íþróttavellinum er fjölskyldurnar
tóku að streyma að, íslenski fán-
inn blakti við hún og fjölbreytt
músik hljómaði yfir hátíðarsvæð-
inu. Formaður ungmennafélags-
ins, Anton Þórisson bauð menn
velkomna og setti síðan sam-
komuna með nokkrum orðum.
Hátíðin hófst síðan með helgi-
stund er sr. Þórhallur Höskulds-
son sóknarprestur að Möðruvöll-
um flutti. Var þetta ákaflega há-
tíðleg stund er ungir sem gamlir
sátu þétt saman inni í fallegu
rjóðri við hlið íþróttavallarins og
hlustuðu á orð prestsins.
Eftir helgistundina hófust hinir
ýmsu leikir. Fyrstkepptu 11 og 12
ára krakkar í 400 m. hlaupi, var
þar hart barist um fyrstu sætin
enda þarna á ferð börn í fullri
þjálfun eftir æfingar sumarsins.
Hófst nú keppni í starfshlaupi þar
sem hlaupa átti með hjólbörur
meðsandií nokkurn spöl, hlaupa
grindahlaup, hjóla á reiðhjóli,
svippa og gera ýmis fleiri atriði.
Tókst mönnum misjafnlega vel
upp svo sem vænta mátti var t.d.
verulega gaman að sjá ráðunaut
og myndarlega húsmóður þjóta
svippandi yfir þveran völlinn.
Hófst nú keppni í pokahlaupi og
voru í fyrsta riðli hópur af mynd-
arlegu kvenfólki, bæði háar og
grannar, stuttar og þéttar og allt
þar á milli. Gekk hlaupið frá-
bærlega vel hjá þeim flestum, en
sumar áttu þó nokkuð erfitt með
að halda jafnvæginu og vildi efri
hluti líkamans stundum leita
óeðlilega mikið niður á við.
Höfðum við nokkrir félagar
verulega gaman af að horfa á
þessar föngulegu meyjar burðast
við að komast áfram í poka sín-
um, en glottið hvarf fljótt af vör-
um okkar er við uppgötvuðum að
við vorum sjálfir í næsta riðli. Við
röðuðum okkur nú við rásmarkið
með spenntar taugar og stengda
poka og er skotið reið af geyst-
umst við af stað á stökki. Var
keppnin mjög hörð og mátti varla
á milli sjá er fyrstu menn komu í
mark eftir vel útfært hlaup, en við
hoppuðum með mikilli tækni og
léttleika. Ekki áttu þó allir í riðl-
inum jafn létt með að komast í
mark og var greinilegt að sá er
síðastur kom í mark var sýnilega
nokkuð þungur í pokanum.
Er pokahlaupið var afstaðið
hófst keppni í svokölluðu
þrífótahlaupi og er mér sagt að
það hafi tekist ljómandi vel, allir
er þátt tóku í hlaupinu hafi kom-
ist í mark þó svo að misstórir
væru bundnir saman en undirrit-
aður var svo þreyttur eftir poka-
hlaupið að hann lá upp í loft og
gat þar af leiðandi ekki fylgst
með. Var nú knattspyrnuleikur
næst á dagskrá. I öðru liðinu áttu
að vera feður en börn þeirra í
hinu. Var þó nokkuð mikill ald-
ursmunur á þeim yngsta og þeim
elsta en ekki virtist það skipta
máli er út í leikinn var komið.
Sáust mjög góð tilþrif hjá mörg-
um knattspyrnukappanum og
barnaliðið sýndi marga frábæra
takta sem lofar góðu í framtíð-
inni. En þó þeir ungu væru góðir
þá duldist það engum að augu
áhorfenda beindust ekki síður að
þeim eldri er ekki höfðu komið í
knattspyrnu í mörg ár og sýndu
nú gamla og góða takta. Voru
menn sérlega hrifnir af mark-
verðinum er hann kastaði sér
eldsnöggur milli stanganna og
hirti næstum alla bolta er þangað
komu. Fyrir framan sig hafði
hann líka afbragðs varnarmenn
bæði bakverðina sem voru sér-
lega léttir á sér og áttu það til að
bjarga á línu er aðgangsharðir
unglingar sóttu að markinu, eins
voru miðverðirnir tveir sterkir, þó
annar þeirra væri bæði í jakka og
með bindi sem gjarnan flaksaðist
í allar áttir. Þá stöðvuðust margar
sóknarlotur drengjanna á honum,
var hann sem klettur í vörninni.
Sóknarlína gömlu mannanna var
einnig frísk og létt leikandi og sá-
ust þar gjarnan hjólhestaspyrnur
og fleira glæsilegt í þeim dúr.
Dómari leiksins átti líka sinn þátt
í því að gera leikinn eftirminni-
legan en hann átti það til að reka
tærnar í boltann við vissar að-
stæður og höfðu menn grun um
að hann væri að reyna að hjálpa
barnaliðinu en ekki held ég að
þeim hafi verið mikil hjálp í þeirri
aðstoð.
Síðasta atriðið á vellinum var
siðan boðhlaup en þátt tóku i því
allir sem enn höfðu krafta til að
hlaupa. Var verulega gaman að
sjá yngstu krakkana hlaupa. ein-
beitt og ákveðin í því að láta sinn
hlut ekki eftir liggja. Þau allra
(Framhald á bls. 6).
Gamli reykháfurinn
í fyrra var aldrei um frí-
dag að tala. En í sumar
þegar heyönn var að
mestu lokið, tóku dóltir
okkar og tengdasonur að
sér heimilið og ýttu okkur
af stað í 6 daga frí.
Það var dásamlegt.
Við fórum hægt þvíonargt
var að sjá og skoða.
Við fórum um blóm-
legar og vel byggðar
sveitir og við fórum um
aðrar ekkert síður fallega
grónar, þar sem byggð var
því nær eydd.
Á einum stað stóð
reykháfur mikill uppi en
hús voru önnur fallin.
Mér fannst hann vera
að hrópa eitthvað og þeg-
ar ég gáði betur að, sýnd-
ist mér hann vera að
springa af frásagnarþörf.
Ég fór að hlusta og mér
fannst ræða hans vera
eitthvað á þessa leið:
Ég er einn, ég er einn ég er allsber og argur
ég er engum til gagns, ég er fallandi hró.
Sú var tíð. hún er liðin, mig lofaði margur
ég var lífæð þess húss, þar sem fólkið mitt bjó.
Nú er tækniöld runnin og taðeldar dauðir
og trúlega elskast við rafarmagns yl.
Fallegu bæirnir fallnir og auðir
og fólkið að streitast við kynslóðabil.
Margt sé ég í skuggsjá er hími ég hljóður
húsfreyju unga með roða á kinn.
Eldinn sem snarkar og aldraða móður
æðaber hönd strýkur tóskapinn sinn.
Axlirnar signar og bakið svo bogið
brjóstin svo slök sem að tólf hafa sogið.
Hina þá ungu með útþanið mitti
því ár er nú síðan hún vininn sinn hitti.
Ég sá fyrstur af öllum á höfuð og hendur
einhvers hraustasta manns sem að skónum hér sleit.
Ég var vitni þann dag er hans sonur var sendur
suður skörðin, að menntast í fjarlægri sveit.
Ég sá húsfreyju unga sem hóstaði blóði
ég sá horaðan líkama hvíldina fá.
Ég sá baráttu og trú sem ég lýsi ei í ljóði.
Ég sá lífið og gleðina sigrinum ná.
Oft heyrði ég gengið um göngin þar forðum
ég get þvi ei lýst í svo fátækum orðum
hve allt var þá notað með einstakri snilli
ofið og spunnið og prjónað á milli.
Ég hlustaði á grát og ég hlustaði á sönginn
og hlustaði á barnsfætur þjóta inn göngin.
Varlega orðaðar váfréttir heyrði
vissi að úr hjarta þess syrgjandi dreyrði.
Þarna sem fjölin er, þarna! var kista
þarna stóð borðið, til hægri á lista
ausa og ýmislegt hékk.
Rokkarnir þeirra við rúmgafla stóðu,
rúður í kveldskini fallega glóðu.
Klukka á gaflinum gekk.
Þetta er liðið og öldin er önnur
eldhúsið rústir og baðstofan sprek.
Nú bjástrar hér enginn við bala og könnur
byttan sú arna er sprungin og lek.
Nú fá allir sín laun eftir ærgildiskvóta
og æxlun er fjarstýrð af þingmanna her.
Hér er auðn. hér er þögn, hér er einskis að njóta.
ég er aumur og hrjáður og sprunginn og ber.
Gnúpufelli 23. ágúst 1980.
Ingibjörg Bjamadóltir.
FEGURSTU GARÐARNIR Á AKUREYRI
Áslaug Einarsdútlir og Haraldur Helgason, Goðabyggð 2. Eilja Karlesdóttir og Aðalgeir Finnsson, Langholti 24. Ingibjiirg Hallvarðsdóttir og Halldór Þorstcinsson, Hólsgerði 3.
Fegrunarfélag Akureyrar hefur
að undanförnu gengist fyrir
skoðun á görðum bæjarbúa og
umhverfi fyrirtækja. í samráði
við dómnefnd félagsins var
ákveðið að veita eftirtöldum að-
iluin viðurkenningu fyrir feg-
urstu garða Akureyrar árið
1980.
Áslaug Einarsdóttir og Haraldur
Helgason Goðabyggð 2, Ásta
Jónsdóttir og Ólafur Sigmundsson,
Háalundi 11, Ingibjörg Hallvarðs-
dóttir og Halldór Þorsteinsson,
Hólsgerði 3, Hrefna Sigursteins-
dóttir og Steinberg Pálsson,
Kringlumýri 21, Éilja Karlesdóttir
og Aðalgeir Finnsson, Langholti
24.
Eitt fyrirtæki, Mjólkursamlag
KEA við Súluveg, hlaut viður-
kenningu fyrir snyrtilegt umhverfi.
en eins og flestum er kunnugt var
gertstórátak í umhverfismálum þar
nú í vor.
Formaður fegrunarfélags Akur-
eyrar er Sigurður Bjarklind, én
aðrir í stjórn eru Brynjar Skarp-
héðinsson, Gestur Ólafsson, Jó-
hannes Sigvaldason og Haukur
Árnason. Dómnefnd skipuðu:
Ebba Ólafsdóttir, Helga Pálsdóttir
og Guðlaug Þorsteinsdóttir.
Hrcfna Sigurstcinsdóttir og Steinberg Pálsson, Kringliimýri 21.
Góður árangur:
Þórsarar komnir
í fyrstu deild
Þórsarar gulltryggðu annað
sætið í annarri deildinni og
jafnframt fyrstu deildar sæti
þegar þeir sigruðu Hauka frá
Hafnarfirði á föstudags-
kvöldið.
Réttara sagt voru það Sel-
fyssingar sem hjálpuðu þeim
við það á laugardaginn þegar
þeir tóku stig af Þrótti. Þrátt
fyrir það að tvær umferðir eru
eftir hafa Akureyrarfélögin tek-
ið afgerandi forustu í deildinni.
KA hefur tryggt sér sigur í
deildinni, því fari svo að þeir
tapi báðum sínum leikjum, sem
eru eftir og Þór vinni sína, verða
þau jöfn að stigum, en sam-
kvæmt Iögum KSÍ telst það lið
sigurvegari í annarri deild sem
hefur betra markahlutfall. Mjög
svo ólíklegt verður að telja að
Þórsurum takist að ná því
markahlutfalli sem KA hefur.
Það er því mjög mikil gleði fyrir
alla knattspyrnuunnendur á
Akureyri og nágrenni að bæði
liðin skuli flytjast i fyrstu deild
og er ekki að efa að knattspyrn-
an í bænum mun færast á mun
hærra plan.
Þá er það einnig mikið fjár-
hagslegt atriði fyrir bæði liðin
að þau leiki í sömu deild.
Þrátt fyrir sigur Þórs á Hauk-
um á föstudaginn, voru þeir
mjög heppnir að fá bæði stigin í
leiknum.
Strax á fyrstu mín. leiksins
fengu Haukar gullin marktæki-
færi sem þeir annað hvort
klúðruðu, eða Eiríkur mark-
maður Þórs varði snilldarlega.
Þegar blásið var til leikhlés var
staðan jöfn. ekkert mark hafði
verið skorað. Á fimmtu mín.
síðari hálfleiks kom fyrir leið-
inlegt atvik í leiknum þegarNói
Bjömsson danglaði t einn
Haukaleikmanninn og var hon-
um réttilega vísað af leikvelli.
Eftir það spiluðu Þórsarar ein-
um færri, en þá fyrst fóru þeir
líka að berjast.
Á 10. mín. var skotið að
marki Hauka af löngu færi,
boltinn fór í fósturjörðina og
boppaði upp í þverslána og út.
Þá var skallað að marki en í
stöng, og síðan björguðu Hauk-
ar í horn.
Á 25. mín. var Hafþór einn að
berjast við þrjá Haukaleikmenn
rétt innan við vítarteig Hauka.
Þá var hann felldur og dómar-
inn dæmdi vítaspyrnu eftir að
hafa ráðfært sig við línuvörð-
inn. Árni Stefánsson fyrirliði
Þórs fékk það erfiða hlutverk að
taka vítaspyrnuna, en honum
brást ekki bogalistin og skoraði
af öryggi.
Með þessu marki var sigur
Þórs i höfn því fleiri urðu ekki
mörkin, enda marktækifærin fá.
Markmenn beggja liðanna
voru góðir, svo og þeir Þórarinn
og Árni í vörn Þórsara.
KA sigraði Austra
TVÖ - NÚLL
KA fór til Eskifjarðar á
laugardaginn og léku við
Austra, sem eru nú þegar
fallinn í þriöjudeild.
Leikið var á malarvelli. en
slíkir vellir hafa ekki verið KA
sterka hlið. Enda fór svo að í
fyrri hálfleik tókst þeim ekki að
skora, þrátt fyrir mikla pressu. í
síðari hálfleiknum tókst hins
vegar markakóngnuni Óskari
Ingimundarsyni tvisvar að
koma boltanum í netið, og það
urðu úrslit leiksins: tvö niörk
gegn engu.
Eftir gangi leiksins hefði sig-
urinn getað orðið ennþá stærri.
Staðan í annarri deild
KA og Þór í
efstu sætunum
1. KA .......
2. Þór ......
3. Þróttur . ..
4. ÍBÍ.......
5. Haukar .. .
6. Selfoss ... .
7. Fylkir . . . .
8. Ármann . .
9. Völsungur
10. Austri . . . .
16 12
16 10
16
16
16
17
16
16
16
17
55-11 27 stig.
30- 13 23 stig.
22-22 18 stig.
31- 33 16 stig.
27-33 15 stig.
24-36 15 stig.
26-22 14 slig.
24-31
19-28
16-46
13 stig.
13 slig.
8 stig.
Eins og sjá má er Austri fallinn en baráttan uni næst neðsta sætið er á
milli Völsungs, Ármannsog Fylkis. Völsungar eiga eftir erfiða leiki, við
ÍBÍ og KA. Ármann á eftir KA og Austra, og Fylkir Þór og Þrótt.
Ámi Njálsson.
Árni Njálsson hefur verið
þjálfari Þórs í sumar. Hann
hcfur náð mjög góðum árangri
með Þórsliðið, og komið því í
fyrstu deild. Mynd þessi var
tekin af Árna á einni vetraræf-
ingu félagsins. Mynd Ó.Á.
Ámi Stefánsson var fvrirliði
Þórs á þessu kcppnistímahili.
Hann er m.a. vítaskytta fé-
lagsins, og fékk það erfiða
hlutverk að taka vítaspyrnuna
í leik Þ<»rs og Hauka, en það
mark tryggði Þórsurum fyrstu
deildar sæti á næsta ári. Mvnd
Ó.Á.
Ámi Stefánsson.
4.DAGUR
DAGUR.5