Dagur - 09.10.1980, Page 1

Dagur - 09.10.1980, Page 1
TRÚLOFUNAR- HRINGAR AFGREIDDtR SAMDÆGURS GULLSMIÐiR , SIGTRYGGUR & PÉTUR ' AKUREYRI LXIII. árgangur. ^mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmammmm■ Akureyri, fimmtudaginn 9. október 1980 ammmimmmmmmmammm 71. tölublað REYKJAHLIÐARÞORP: Líklegt að neysluvatns lagnir séu allar ónýtar Drykkjarvatn verður að sjóða vegna gerlagróðurs I umbrotahrinum í Mývatns- sveit sem hófust í árslok 1975 hitnaði neysluvatnið í Reykja- hlíðarþorpi í 19° C. Að sögn kunnugra er þetta töluvert meiri hiti en rörin eru gerð fyrir að þola, miðað við þann þrýsting sem er á vatninu. Taldar eru líkur á að flest, ef ekki öll, neysluvatnsrör úr plasti á þýttbýlissvæðinu séu ónýt. brátt fyrir hitann var neyslu- vatnið nothæft, en við athuganir í ágúst kom í ljós að gerlagróður hefur stóraukist og nú er fólki ráðlagt að sjóða vatnið áður en það er drukkið. Jón lllugason, fréttaritari Dags í Mývatnssveit, sagði að land hefði hækkað um ’/jQ metra á því svæði sem vatnsbólið er. Vatnið í brunninum grynntist að sama skapi og í sumar var brunnurinn dýpkaðurogstækkaður. Rennslið jókst og bar ekki á öðru en neysluvatn væri nægjanlegt. Eftir að framkvæmdum lauk var tekið sýni af vatninu og þá kom í Ijós að það var ódrykkjarhæft. „Siðan í ágúst höfum við orðið aðsjóða allt okkar neysiuvatn. Til þess að hægt sé að drekka það hef ég t.d. kælt það í ísskápnun," sagði Jón. „Hingað á að koma höggbor, sem nú er í Kröflu, og á hann að leita að nýju vatnsbóli fyrir okkur. Mér skilst að það verði fljótlega.“ Það er af plaströrunum að segja að vart hefur orðið leka úr þeim. Jón sagði að verulegar lýk- ur væru á því að skipta þyrfti um öll rörin. Það er ekkert smá- ræðisverefni fyrir íbúa i Skútu- staðahreppi ef í ljós kemur að grunur manna um að rörin séu ónýt verði staðfestur. Mikil hálka Þrátt fyrir erfiða færð á Akur- eyri í gærmorgun gekk umferðin klakklaust fyrir sig og að sögn lögreglunnar varð aðeins einn árekstur í gær. Mikil hálka var víða á götum bæjarins og í ná- grenni hans. í úthverfum var oft svo mikið kóf að gangandi jafnt sem akandi áttu erfitt með að komast leiðar sinnar. Veðrinu slotaði er leið á gærdaginn. Við hjólbarðaverkstæði mynd- uðust miklar biðraðir óþolinmóðra ökumanna, sem vildu losna við sumardekkin hið fyrsta svo þeir gætu ekið um göturnar án þess að lenda í vandræðum. Mikil veðurhæð var sunnanlands ogfuku bílar þar út af vegum. Aðrir sluppu naumlega eins og tveir flutningabílar sem voru lagðir af stað áleiðis til Akureyrar. Af öðrum þeirra fuku einangrunarkápur fyrir hitaveituna, sem voru á toppi bíls- ins, og var haft eftir bílstjóranum að það hefði komið í veg fyrir að bíllinn valt. Hinn bíllinn var einn- ig með samskonar farm á toppi og skar bílstjórinn á böndin er héldu kápunum niðri til að bjarga bílnum frá þvi að velta. Kápurnar fuku út í veður og vind og átti að vitja þeirra í dag eða á morgun þegar bílstjór- amir komast aftur á sömu slóðir. Mynd: á.þ. LISTILLA Á GÖNG GEGN UM MÚLANN — segir Vegamálastjóri. Fljótlega verður gerð könnun á möguleikum í samgöngubótum við Ólafsf jörð — Við munum fara í vettvangs- könnun í lok þessa mánaðar eða byrjun nóvcmber og skila síðan lauslegu áliti um mögulegar samgöngubætur við Ólafsfjörð fyrir endurskoðun vegaáætlun- ar, sagði Jón Birgir Jónsson, yfirverkfræðingur hjá Vegagerð ríkisins, í viðtali við Dag, en Hey og hlaða brunnu Húuvík, 7. októher. í nótt brann hey og hlaða á bænum Borgartúni í Ljósa- vatnshreppi. Eldsins varð vart um klukkan 10.30 í gær- kveldi. Slökkviliðið á Húsa- vík var kallað á vettvang og menn úr byggðinni komu að til hálpar. Allt hey bóndans, Arnórs Benediktssonar, var í hlöðunni og eyðilagðist það að mestu. Mikið brunatjón varð á hlöð- unni. Öðrum húsum á bænum, svo og búfé, tókst að bjarga, þrátt fyrir mikið hvassviðri. Ekki er vitað um eldsupptök. Þ. J. Rauði krossinn safnar þingmenn kjördæmisins fóru fram á það fyrr á þessu ári, að athugaðir yrðu möguleikar á úrbótum í samgöngumálum Ólafsfirðinga, meðal annars varðandi hugsanleg göng í gegnum Múlann eða vegsvalir, þ.e. yfirbyggingu vegarins á verstu stöðunum — Það hefur tvívegis verið veitt fé til að kanna möguleikann á gerð þekju yfir veginn í Múlanum, þar sem hann er verstur, en ekki orðið úr þessari könnun ennþá. Þing- mennirnir fóru því fram á að allir möguleikar á samgöngubótum yrðu athugaðir, m.a. gerð jarð- gangna, því nauðsynlegt er að gera þennan veg öruggari á einhver hátt, sagði Stefán Valgeirsson, er hann var inntur eftir þessu máli. I viðtölum við Jón Birgi og Snæ- björn Jónasson, vegamálastjóra, kom fram, að göng í gegn um Múlann yrðu mjög dýr og þau lang lengstu sem gerð hefðu verið hér á landi. Vegsvalir yrðu einnig mjög dýrar, því treysta þyrfti undirstöður og siðan steypa súlur eða jafnvel heilan vegg undir þekjuna. — Mérlístfremurþunglegaáað gera göng þarna í gegn. Bergið er slæmt og mikið af millilögum, auk að leyti. Bæjarbúar eru hvattir til að taka vel á móti þeim sem safna og láta fé af hendi rakna. þess að um er að ræða mikla vega- lengd, sagði vegamálastjóri í viðtali við Dag. Siglufjarðargöngin eru um 800 metrar á lengd en miklu lengri göng þyrfti í gegnum Múl- ann. Eins og kunnugt er búa Ólafs- firðingar við mjög ótryggt ástand í vegamálum, svo ekki sé meira sagt. Vegurinn um Ólafsfjarðarmúlann getur verið stórhættulegur. bæði vegna skriðufalla og snjóflóða- hættu, auk þess sem vegurinn mjókkar sífellt Ólafsfjarðarmegin vegna hruns. BJARNARFLAG JAFNOKI KRÖFLU? Verið er að endurbyggja gufuaflsvirkjunina í Bjarnarflagi Þann 17. þessa mánaðar er stefnt að því að verði almennur söfn- unardagur á Akureyri fyrir Afríkusöfnun Rauða krossinn. Þá verður gengið í hús og tekið verður við fjárframlögum við stærstu verslanir bæjarins. Safnað verður fé á vegum Rauða krossins wm annars staðar á landinu um svip- Fegrunarnefnd Húsavíkur verðlaunar Fegrunarnefnd Húsavíkur hefur veitt viðurkenningu fyrir fegrun umhverfis. Hjónin Friðný Stein- Vonir standa til að gufuafls- virkjunin í Bjarnarflagi geti komist í notkun um næstu mán- aðamót. Virkjunin stöðvaðist í Kröfluumbrotum fyrir einum tveim árum og hefur ekki fram- leitt neitt rafmagn síðan. Knút- ur Otterstedt, rafveitustjóri, sagði að á sínum tima hefði framleiðsla gufuaflsvirkjunar- innar mest verið 3 megavött, en hann vildi engu spá um hve miklu hún myndi skila út í kerfið grímsdóttir og Jónas Geir Jóns- son, Álfhóli 6, fengu viðurkenn- ingu fyrir fallegan garð og snyrti- legt hús og hjónin Sólveig Þránd- ardóttir og Jón Þorgrímsson, Garðarsbraut II, fengu viður- kenningu fyrir endurbætur á gömlu húsi. Þetta er í fyrsta skipti sem slíkar viðurkenningar eru veittar á Húsavík, en fyrirhugað er að það verði gert árlega fram- vegis. þegar yfirstandandi viðgerð lýk- ur. „Við vitum ekki nákvæmlega hve rnikið umframmagn af gufu er þarna á ferðinni. Það er háð því með hversu miklum afköstum Kísiliðjan gengur." sagði Knútur. „Mér skilst að Kísiliðjan sé ekki starfrækt með fullum afköstum nú, en hversu mikil rafmagnsfram- leiðslan verður er ekki hægt að segja." Enduruppbygging gufuafls- stöðvarinnar hefur staðið yfir í einar þrjár vikur, en áður hafa starfsmenn Laxárvirkjunar unnið við að koma húsinu í viðunandi ástánd. Til samanburðar framleiðir Kröfluvirkjun nú uni 5 megavött og hefur gert það lengi. Eins og fyrr sagði framleiddi þessi litla gufu- aflsstöð í Bjarnarflagi 3 megavött þegar best gekk hér áður fyrr og Dagur hefur hlerað að ætlunin sé að tvöfalda framleiðslugetuna, þannig að litla stöðin í Bjarnarflagi framleiði meira en Kröfluvirkjun. Fréttabréf Nýkomið er út fyrsta hefti af Fréttabréfi sem gefið er út af Kf Húnvetninga, Sölufélagi A,- Húnvetninga og Starfsmannafé- lagi samvinnumanna í A.- Hún. Er bréfið með sama heiti og eldra bréf sem samvinnufélögin á Blönduósi gáfu út áður, en broti þess og útliti hefur verið breytt, jafnframt því sem útgáfan er nú í höndum Félagsmálanefndar, sem er samstarfsnefnd þessara þriggja félaga. Efni þessa fyrsta bréfs er fjölþætt og lofar góðu um fram- haldið. Ábyrgðarmaður er Árni S. Jóhannsson kf.stj. Þá er nýlega komið út Frétia- bréf Kf. Héraðsbúa á Egilsstöðum sem Jón Kristjánsson félags- málafulltrúi ritstýrir. Efnið er margvíslegar fréttir af starfsemi félagsins og frásögn af aðalfundi Sambandsins.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.