Dagur - 09.10.1980, Blaðsíða 2

Dagur - 09.10.1980, Blaðsíða 2
Smáaugfýsingar Sala■ Til sölu, notuð snjódekk á felgum stærð 600x15. Uppl. í síma 24295, milli kl. 7 og 8, á kvöldin. Til sölu, sem nýr Silver-Cross kerruvagn. Uppl. í síma 22818. Til sölu 170 lítra Ignis kæli- skápur, einnig stór kerruvagn, hvorutveggja vel með farið. Uppiýsingar í síma 24818. Nýkomið til dæmis: hús- bóndastólar með skemli, síma- stólar, kringlótt sófaborð og eins og tveggja manna svefn- sófar og margt, margt fleira. Væntanlegt skatthol. Bíla- og húsmunamiölunin, Hafnar- stræti 88, sími 23912. Nokkrar tunnur af síldarúr- gangi til sölu til skepnufóðurs. Vil kaupa dráttarvél, helst dísel, þó ekki skilyrði og jeppakerru. Uppl. í síma 33137. Til sölu húsgögn, í barna eða unglingaherbergi. Uppl. í síma 22855. Til sölu er trillubáturinn Guö- rún E.A. 144. Bátur og tæki í fyrstaflokks ástandi. Uppl. gef- ur Jóhannes Magnússon. Grtmsey síjni 73119. Til sölu er Suzuki, A.C. 50. árg ’78. Uppl. í síma 21341. tHúsnæðii Lítil 3ja herbergja íbúð við Munkaþverárstræti til sölu. Getur verið laus fljótlega. Upplýsingar f síma 25341. iBifreióir Til sölu Mazda 323 árg. '78 sjálfskiptur, 3ja dyra ekin ca. 40 þús. km. Uppl. í síma 23289. wBarnagæsjaM Hver vill gæta 2ja barna í Seljahlíð tvisvar í viku. Þriðjud. kl. 21-23 og Fimmtud. kl. 18-20. Uppl. í síma 23823. Pjónusta Tökum að okkur hreingerning- ar á íbúðum, stigahúsum, veit- ingahúsum og stofnunum. Hreinsum teppi og húsgögn með háþrýstitæki og sogkrafti. Sími 21719 og 22525. Tökum að okkur alhliða tré- smíðavinnu — úti og inni — til dæmis skápa og útihurðir. GÚstaf Njálsson, sími 21108 og Kjartan Guðmundsson, sími 25220 eftir klukkan 18. Atvinna 28 ára gamlan vinnu. Margt kemur til Uppl. í síma 23603. mann vantar greina. Ása, Signý - og Helga Fyrir skömmu skrifaði ég smágrein í þetta blað, þar sem ég m.a. minntist á hreinar götur í fallegum bæ, ruslið við söluopin í þeim sama, viðhorf íbúanna til þessa, og svo blómareitinn okkar í malbikinu við Byggðaveg 98.-----Fyrir tveim dögum var ég við hann staddur sem oftar. Þá komu þar að tvær litlar stúlkur. Þær tóku glaðlega undir, er ég bauð þeim (auðv. alveg frítt!) góðan dag! Og þær brugðust líka skjótt og fúslega við, þegar ég spurði, hvort þær vildu hjálpa mér til þess að hreinsa úr blómabeðun- um umbúðasnepla og annað rusl. Og þær reyndust fimar og einkar liprar við verkið,-----enda að koma beint úr leikfimi! „Ég heiti Heiða“, og „ég heiti Hrefna", voru svörin, sem ég fékk, þegar ég gaf minni venjulegu, þingeysku for- vitni lausari tauminn.-----Gott verk, skjótt lokið og litlar stúlkur horfnar.------En ég vil þakka ykkur, Heiða og Hrefna-----líka í nafni blárra blóma-----og marg- litra, sem ekki sáu sólina þann daginn, fyrr en þið komuð. Einhver hefði nú bara snúið upp á sig, við þessa „frekju í kallinum“. Ég hefi líka reynslu af því. Hvernig stendur á því, að mér kemur nú í hug gamla sagan um Ásu, Signýju og Helgu? Þið munið sjálfsagt söguna, krakkar! Ég er farinn að gleyma einu og öðru, en í huga mínum er Helga starfsöm, góðviljuð og hjálpfús, þótt „höfð væri útundan“. En systur hennar, Ása og Signý, miklar með sig, hortugar og kappkostuðu að angra Helgu litlu. Þær grýttu frá sér gull- um sínum hvar, sem var og hentu bara fötum sínum frá sér á kvöldin, til þess að geta skipað: „Lagaðu til, stelpa! Komdu með fötin mín, druslan þín!“----En hvemig fór svo, hvernig skipaðist í framtíð- inni? Hverja viljið þið taka til fyrirmyndar? Svo var líka karl í koti sínu, sem átti 3 sonu. Mig minnir að þeir væru líka eitthvað mishjálpfúsir, mislánsamir, eins og systurnar þrjár. Reynslan, sem ólygnust er, segir okkur: „Eins og þú sáir, muntu uppskera." — Á „úti- göngu“ minni í dag, fyrir hádegið, lá leið mín neðan frá Tjaldstæðis- skúmum, upp gangstíginn sunnan við Húsmæðraskólann. Ennþá var flosgræn ábreiða túnsins eftir þetta unaðsríka sumar. En á þessari leið minni upp að Byggðavegi, taldi ég rúmlega 40 pappahylki undan Floridana! Þetta eru svo sem ekki ósnotrar smáfernur, bragðgott og MJög mikil þátttaka í THULE-tvímenningnum Fyrsta umferð af þremur í Thule- 6. Stefán Vilhjálmsson — Skákmenn — Skákmenn Haustmót Skákfélags daginn 15. okt. n.k. Hvammi. Stjórnin. Akureyrar, kl. 20.00 í hefst miðviku- Skátaheimilinu tvímenningskeppni Bridgefélags Guðm. V. Gunnlaugss. 131 Akureyrar var spiluð sl. þriðju- 7. Páll Pálsson — dagskvöld. Spilað er í 3 riðlum 12 Frímann Frímannsson 130 para, sem er góð þátttaka. 8. Stefán Ragnarsson — Röð efstu para er þessi: Stig. Pétur Guðjónsson 9. Adam Ingólfsson — 130 1. Stefán Sveinbjömsson Hörður Steinbergsson 130 Sigurður Búason 148 10. Rafn Sigurðsson — 2. Gunnar Sólnes — Reimar Sigurpálsson 129 Ragnar Steinbergsson 3. Ólafur Ágústsson — 145 Meðalárangur er 110 stig. Grettir Frímannsson 144 Önnur umferð verður spiluð að 4. Júlíus Thorarensen — Félagsborg kl. 20 á þriðjudag 14. Sveinn Sigurgeirsson 141 okt. Keppnisstjóri er Albert Sig- 5. Arnald Reykdal — urðsson. Gylfi Pálsson 134 E7ýö*2^fW*ig(So Dansskóli Heidars Ástvaldssonar % Innritun verður í Alþýðuhús- inu sími 23595 og í síma 21125, mánudaginn 13. okt- óber og þriðjudaginn 14. okt- óber frá kl. 13-19 báöa dag- ana. Börn yngst 4ra ára, hjón, einstaklingar, byrjendur og framhald. Unglingar, allir nýjustu diskó- dansarnir, Reggae og fleiri. Harpa Pálsdóttir, Heiðar Ástvaldsson. með bætiefnum innihaldið, en frá- leitt að þær prýddu græna flostepp- ið! Ja, þetta fannst mér,-----en „svo er margt sinnið sem skinnið.“ Þeim hefði e.t.v. fundist þetta hæfileg „skreyting" Ásu, Signýju og eldri karlssonum? Fyrir átta dögum síðan gekk ég þessa sömu leið og taldi þar þá um 50 hvít plasthylki, mörg brotin og tætt, líklega undan einhverjum „bætandi" gæðadrykk! En vantar ekki í þessa drykki eitthvert ann- arskonar bætiefni, uppeldislegt, til menningarauka? Hverjir hafa verið hér á ferð? Eru það þær Ása, Signý, eldri bræð- umir i Koti------og þeirra fylgd- arlið? Ja, ekki hefur það verið Helga og yngsti karlsson------og ég vona — — ekki Heiða eða Hrefna. Gott mannlíf og hamingja bygg- ist mjög á tillitssemi við náungann. samferðafólkið, og náttúru lands- ins, og skyldur við umhverfið. Hvernig er það með ykkur, bömin góð, ykkur, unga stúlka — — með skugga undir augum--------- hrausti strákur-----farinn að æfa lyftingar-----hver er ykkar fyrir- mynd? Viljið þið „taka til hendi" að fegra ykkar góða bæ-------eða „prýða“ græna völlinn skrani, torg og stéttir flöskubrotum? Það veitur á miklu um svar ykkar og viðbrögð. Ég minnist oft með gleði sam- verustunda við lok kennaraferils míns með „2. bekk 1 2. stofu." Með slíkum hópi væri gaman, á þessum dýrðarríku haustdövum, að ganga um úti og sjá fegurðina,------sjá verksummerki og kynnast við- brögðum.-------Hvað á að gera, til þess að vinna gegn og sigra vaxandi hneigð til að óprýða og skemma? Einn kennari með hóp sinn úr einni stofu, hvort sem er í B.A., G.A. eða M.A. gæti komið af stað öflugri vakningu til góðs í þessu efni, og því fremur, sem fleiri stæðu saman. „Brekknakoti", 24. sept. ’80. Jónas Jónsson. Leiðrétting I viðtali við Jóhannes Haraldsson, starfsmann Sláturhússins á Dalvík, sem birtist í Degi fimmtudaginn 2. okt. var hann sagður sláturhúss- stjóri. Það er ekki rétt. Sláturhúss- stjórinn heitir Kristinn Guðmundsson og er beðist vel- virðingar á þessum mistökum. TEIKN v STOFAN AUGLYSINGAR-SKILTAGERÐ TEIKNINGAR-SILKIRRENT SÍMi: 2 57 57 2.DAGUR

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.