Dagur - 30.10.1980, Side 5
r'kkar
ídum
bálk-
rð og
sisstíl
, sem
hinar
sem
tdi í
si án
ífæra
betr-
þess^
iyrn-
með
:an á
refsi-
miði
ði. Á
dyrn-
kap-
Þörf
hinu
atan-
ning-
-dag-
t um
;nsær
;r úr
út í
ndur
‘áum
nlagt
5am-
full-
5ð til
grár.
með
ann-
:rgi í
um-
Þeim
emir
iúsi“
fgrös
sem
ílaðs
sekir
æðr-
uppi
’rein
isað-
urn
5ASEMD
öllum með tölu verið vikið eða
bolað frá.
Við leggjum áherslu á, að við
hörmum þessar óréttmætu og
óvenjulegu ásakanir í garð full-
trúa á aðalfundi kjördæmisráðs,
sem að öllu leyti fór vel og
drengilega fram. Þess skal og get-
ið að tillögur uppstillinganefndar
samþykkti kjördæmisráð ein-
róma.
Stjórn kjördœmisráðs.
Athugasemd
ritstjóra
Enn reyna sjálfstæðismenn að
leggja á borð þær blekkingar að ein-
ingsé í Sjálfstæðisflokknum. Það voru
jú flokksbundnir sjálfstæðismenn sem
höfðu við þau orð að þeir væru nánast
orðlausir af undrun og reiði og að
annarlegar hvatir hafi legið að baki
þeirri ákvörðun að endurkjósa alla
fulltrúa í flokksráð, nema einn (ef
kjördæmisráði fellur þetta orðalag
betur). Það vildi bara svo til að heim-
ildamenn blaðsins viðhöfðu þau orð
að honum hefði verið vikið úr flokks-
ráði. Að öðru leyti er þetta ekki svara
vert. Sjálfstæðismenn kusu að koma
þessum ágreiningi á framfæri í Degi,
væntanlega kjósendum flokksins til
upplýsingar. Þeir hefðu hæglega get-
að neilað að svara spurningum Dags.
Þeir minna nokkuð á andófsmenn
austantjalds, sem ekki vilja i einu og
öllu lúta flokksvélinni. Sjálfstæðis-
menn hafa hingað til verið hrifnir af
andófsmönnum. cn það er vísl ekki
sama hver flokksvélin er sem þeir eru
að andmæla.
andi
kjör-
tkks-
iæmi
októ-
verð-
aðal-
æðis-
i. Að
kjör-
'andi.
3ara“
u sér
starf-
5ana-
tnum
vorki
held-
nnar-
:iðar-
um á
öður-
egg)a
ndar-
töður
þessa
iþingi
r því
ndúr-
aftur
ildrei-
i hafi
8 var
rúa í
i að
hefði
Úlfur Ragnarsson.
fæðið. Vonandi er það í sæmilegu
lagi. Hitun og loftræsting virtist
mér að væru í lagi.
Mér var sagt að samkvæmt
reglunum væri heimsóknatími
einu sinni í viku. Hvað sem því
líður var mér, lækninum, ljúflega
veitt undanþága frá þeirri reglu
margsinnis. Slík frjálshyggja er
þeim til sóma sem hlut eiga að
máli og er í ætt við boðskap hans
sem vill að fangar séu heimsóttir.
Eini langdvalarfangin sem ég
sinnti á þessum stað, bar öllu
starfsfólkinu mjög vel söguna.
Hann kvaðst finna í því nokkurt
mótvægi við annmarkana sem
fyrr hefur verið getið. Starfslið
fangelsis ræður mestu um hvort
vist sé þolanleg. Og vafalaust kysi
starfsliðið föngunum fegurra og
mannúðlegra umhverfi ef það
réði einhverju í þeim efnum.
Þessi greindi maður bar merki
heilsuspillandi umhverfisáhrifa,
einkum á geðsmunum. Orðinn
einrænn og kominn úr tengslum
við ytra lífið. Honum sveið sár-
lega að sjá hvorki gróður né dýr
og fá ekki að fylgjast með árs-
tíðaskiptum í náttúrunni hvað þá
meira.
Þegar ég sé þær mann-
skemmdir sem eiga sér stað í
fangelsum eflist sá grunur minn
að fangelsin í núverandi mynd séu
smánarblettur á þjóðfélagi okkar
og að allt réttarkerfið þarfnist
rœkilegrar endurskoðunar í anda
miskunnar og mannúðar. Frelsis-
svipting um stundarsakir getur
verið ill nauðsyn, en langir
fangelsisdómar með vistun á
þeim stöðum sem á okkar dögum
eru sagðir viðunandi, hafa í för
með sér varanlegar mann-
skemmdir. Bæði frá sjónarmiði
einstaklings og þjóðfélags eru
þessar mannskemmdir óæski-
legar. Mannleg og efnahagsleg
verðmæti fara forgörðum. Of oft
gleymist að jafnframt þeim sem
dœmist sekur dœmast oft saklausir
aðstandendur til andlegs og efna-
hagslegs hruns án þess að hafa til
saka unnið.
Eigi það að falla í hiut okkar á
Akureyri að hafa hér í hjarta
bæjarins fyrsta kvenfangelsi Is-
lands, hvernig væri þá að gera
það með þeirri reisn sem okkur
sæmir?
Ég minnist umhverfisbyltingar
sem varð í geðsjúkrahúsum. Þau
voru fyrst þegar ég kom þar inn,
svipuð fangelsunum okkar núna.
Alger bylting hefur nú orðið og
raunverulegur heimilisbragur
kominn á víðast, þó að betur
megi.
Samskonar bylting þarf að
verða í fangelsunum. Það er af
illri ómannúðlegri hefð sem haldið
er fast í Ijótleikann. Engin lög
krefjast grárrar málningar,
gluggaleysis og járngrinda. Kon-
ur voru það sem einkum komu í
kring byltingunni í geðsjúkrahús-
unum. Hér býðst norðlenskum
konum tækifæri til að sýna hvað í
þeirn býr og leita lausnar sem er
íðilgóð — ekki bara viðunandi!
Mynd úr Plasteinangrun h.f.
í viðtali við Val Arnþórsson, sem birtist
I siðasta blaði, kom mynd úr Plastiðj-
unni Bjargi, en með viðtalinu átti að
koma mynd úr Plasteinangrun h.f.
Prentvilla er einnig í viðtalinu. Á einum
stað stendur „stólbræðsla" en á að vera
stálbræðsla. Hlutaðeigandi eru beðnir
velvirðingar á þessum mistökum.
Leiðrétting
Nokkur oró féllu niður í niður-
lagi frásagnar af kabarettsýn-
ingu í Sjálfstæðishúsinu um síð-
ustu helgi. Síðasta málsgreinin
átti að vera svo:
Svo er hér að lokum ein spurning
til þeirra sent að sýningunni
standa: Hvernig væri að láta t.d.
Húsvíkinga og Ólafsfirðinga, svo
einhverjir séu nefndir. njóta gam-
ansins? Það eru áreiðanlega ,,ösku-
karlar" á þessum stöðum sent gætu
staðfært og santið \'iðeigandi texta.
með hæfilega góðlátlegu skensi um
ntenn og málefni á þessunt stöðum.
Hvernig væri að hugleiða þetta
Sunna?
ARTHUR !
BOGASON
Norðurhjaratröllið:
TIL TEXAS!
Norðurhjaratröllið, eða lyft-
ingarmaðurinn Arthur Boga-
son, er nú á förum til Dallas í
Texas, en þar mun hann iðka
eftirlætisíþrótt sína kraft-
lyftingar, en Arthur á
Evrópumet í réttstöðulyftu í
yfirþungaflokki.
Arthur tjáði blaðamanni
íþróttasíðunnar að hann yrði
þarna a.m.k. í vetur en eins gæti
farið að hann yrði þarna í eitt til
tvö ár. Það færi eftir fjárhagn-
um og hvernig géngi á mótum.
Þá sagði Artur að það hefði
verið nefnt við sig þarna að
vestan að gerast atvinnumaður í
íþróttinni en eins og er hefði
hann ekki áhuga á slíku. Blaðið
mun birta fréttir af gengi Art-
hurs eftir því sem þær berast.
Á föstudagskvöldið geta
handboltaunnendur séð
„erkifjendurna" Þór og
KA leika i íþrótta-
skemmunni kl. 20.30.
Þessir aðilar hafa ekki
leikið saman opinber-
lega á þessu hausti og
þvi ekki vitað um styrk
liðanna. Það verður því
gaman að sjá viðureign
þeirra og vonandi fyllast
áhorfendapallarnir í
skemmunni.
Á laufardaginn leikur
svo Þór í körfuboltanum
og andstæðingarnir að
þessu sinni eru Grind-
víkingar. Leikurinn
hefst klukkan 3.
Lítið er vitað um
styrk hinna siðarnefndu
en þeir hafa bæði tapað
og unnið leiki á þessu
hausti,
Það er því full ástæða
til að fjölmenna í
skemmuna á laugar-
daginn og hvetja Þór til
sigurs.
65 ára
Þórsarar eru hvattir til að fjöl-
menna á 65 ára afmælisfagnað
félagsins sem haldinn verður að
Hótel KEA föstudaginn 14. nóv.
n.k. Miðasalan verður í íþrótta-
húsi Glerárskóla laugardaginn
I. nóv. n.k. milli kl. 10-12 og
14-16. — Stjórnin.
Fyrsta hnitkeppnin
Á laugardaginn var haldið
fyrsta mótið í tvíliðaleik í
hnit í vetur. Keppt var í
kvenna og karlaflokki.
Keppendur voru 22.
í kvennaflokki spiluðu lil úr-
slita Jakobína Reynisdóttir og
Elín Sigurjónsdóttir á móti Ás-
dísi Þorvaldsdóttur og Oddnýju
Friðriksdóttur. Jakobína og
Elín reyndust sterkari og
sigruðu þvi í kvennaflokki.
í karlaflokki léku lil úrslita
Kári Árnason og Kristinn Jóns-
son á móti Gísla Bjarnasyni og
Guðmundi Blöndal. Kári og
Kristinn sigruðu eftir spenn-
andi leik.
Ú.A. sigraöi í firmakeppni
Nýlokið er firmakeppni KRA knattspyrnu. Að þessu sinni tóku 16
fyrirtæki í mótinu. Keppt er nteð útsiáttarfyrirkomulagi, þannig að það
lið sem tapar tveimur leikjunt er úr keppninni. Til úrslita léku lið
Útgerðarfélags Akureyrar og lið KEA. Ú.A. sigraði með þremur
mörkum gegn engu, og er þvi firmameistari þessa árs. Liðið tapaði
engum leik.
Gylfi Viðar Haraldur Garðar
Fjórir af tíu í landsliðinu
Um helgina fer fram í
Reykjavík Norðurlandamót
í lyftingum unglinga. ís-
lenska landsliðið er skipað
tíu mönnum og þar af eru
fjórir Akureyringar. Það eru
Viðar Eðvarðsson. Haraldur
Ólafsson og tvíburarnir
Garðar og Gylfi Gísiasynir.
Eins og sést á þessu er
„standardinn" í lyftingum
hér á Akureyri ntjög hár eða
hærri en í nokkurri annarri
íþróttagrein. Það verður
spennandi að sjá hvernig
þessum piltum gengur' á
rnótinu, en af þessum fjórum
á Haraldur mikla möguleika
á því að hreppa Norður-
landatitil. í næsta blaði
verður sagt frá mótinu.
DAGUR.5