Dagur - 18.11.1980, Qupperneq 7
Bókavarðan
Bókavarðan, verzlun með gaml-
ar og nýlegar bækur, Skóla-
vörðustíg 20, Reyjavík, gefur
reglulega út bóksöluskrár yfir
notaðar bækur, íslenzkar og er-
lendar. Skrárnar eru flokkaðar
eftir efni: þjóðlegur fróðleikur,
saga, íslenzk fræði, íslenzkar
ævisögur, erlendar skáldsögur,
stjórnmál, náttúrufræði og
margt fleira.
Þeir sem þess óska geta fengið
skrána senda heim. Verðin eru, eins
og gefur að skilja, æði misjöfn. Al-
gengar bækur, ljóð og skáldsögur
kosta þetta 1-4 þúsund kr.
Nokkuð er það algengur mis-
skilningur, að allar gamlar bækur
séu dýrari en nýjar. Langflestar
eldri eldri bækur frá þessari og síð-
ustu öld eru þó talsvert ódýrari en
t.d. þýdd skáldsaga, sem út kemur
þessa dagana. Hinsvegar eru vissu-
lega margar eldri bækur æði fáséð-
ar og verða því dýrar, einkum ef
þær hafa auk þess sögulegt eða
mennimgarlegt gildi.
í þessari bóksöluskrá kennir
margra grasa: Hér er t.d. til söiu
Grútarbiblían svokallaða, sem
þannig er nefnd vegna meinlegrar
prentvillu í textanum, þegar
„harmagrátur“ verður fyrir mistök
„harmagrútur". Einnig eru hér
greindar ýmsar mjög gamlar og fá-
gætar bækur frá Hólum, Leirár-
görðum og Kaupmannahöfn. En
langflestar bækurnar kosta þetta
1500-10000 kr.
Alls eru rúmlega 1200 bækur í
skrá þessari og geta þeir sem óska
fengið hana senda frá verzluninni,
meðan upplag endist.
ÚR
UMFERÐAR-
LÖGUM:
53. gr. - ÞEGAR EK-
IÐ ER Á LJÓSATIMA,
SKULU VERA
TENDRUÐ LJÓS Á LÖG-
BOÐNUM LJÓSKERUM.
ÞEGAR ÖKUTÆKI ER
FEST EÐA TENGT AFT-
AN I ANNAÐ, NÆGIR,
AÐ AFTURLJÓS SÉU
TENDRUÐ Á ÞVl ÖKU-
TÆKI, ER SlÐAR FER.
Á ÖKUTÆKJUM MEGA
LJÓS, SEM LÝSA
FRAM, AÐEINS VERA
HVIT EÐA DAUFGUL.
★
63. gr. - Á VEGUM
SKULU RÍÐANDI MENN
HALDA SIG Á HÆGRI
HLUTA VEGARINS.
ÞEIM BER AÐ VlKJA
GREIÐLEGA TIL
HÆGRI FYRIR ÞEIM,
SEM Á MÓTI KOMA, EN
KLEYPA FRAM FYRER
SIG Á VINSTRI HÖND
ÞEIM, SEM FRAM FYR-
IR VILJA FARA.
EF VÆNTA MÁ UM-
FERDAR ÖKUTÆKJA
UM VEG, SKULU
ALDREI FLEIRI EN TVE-
IR MENN, EINKESTA,
RtÐA SAMHLIÐA NÉ
RlÐANDI MAÐUR
TEYMA FLEIRI EN TVÖ
LAUS HROSS. MÁ ÞÁ
ENGINN ANNAR RIÐA
HONUM SAMHLIÐA.
TAGLHNÝTING
HESTA OG STÓRGRIPA
ER BÖNNUÐ Á VEGUM.
-
Nýkomið:
Terylen-kápur
með vattfóðri.
Ullarkápur með hettum.
Blússur og mussur.
Ullartreflar fl.
Markaðurinn
;♦
TEIKN T STOFAN
STILLi
AUGLÝSINGAR-SKILTAGERÐ
TEIKNINGAR-SILKIPRENT
SUVIi:2
Bændurathugið
Eigum á hagstæðu verði nokkrar KUHN heytætlur
og fóðursíló.
■^VÉIADEILD
sími 21400 og 22997
Áhrifamikill
auglýs
©AOUll'
TRYGGVABRAUT12
AKUREYRI
■Hgn
Akureyringar
Munið að hafa greiða leið að sorpílátum ykkar.
Mokið snjó frá ílátunum eða breytið staðsetningu
þeirra þannig að sorphreinsunarmenn komist að
þeim, annars eigið þið á hættu að þau verði ekki
losuð.
BÆJARVERKFRÆÐINGUR.
Hundahreinsun 1980
Samkvæmt lögum nr. 7/1953, um hundahald og
varnir gegn sullaveiki, og samþykkt um hundahald
á Akureyri, frá 6. nóv. 1980, er hundahreinsun
ákveðin á Akureyri dagana 20.-22. nóvember 1980 í
Gróðrastöðinni (suðurdyr).
Hundaeigendum ber aö færa hunda sína til
hreinsunar og greiða leyfisgjald fyrir árið 1980, sem
er kr. 30.000. Fyrir hunda undanþegna leyfisgjaldi
er hreinsunargjald kr. 5.000. Við hreinsun ber
hundaeiganda að sýna kvittun fyrir greiðslu iðgj-
alds af ábyrgðartryggingu hundsins fyrir yfirstand-
andi ár.
Leyíishafar mæti með hunda sína sem hér segir:
Nr. A-1 til A-60 fimmtudag 20. nóv. kl. 13-16. Nr.
A-61 til A-150 föstudag 21. nóv. kl. 13-16. Þeirsem
koma með hunda til skráningar í fyrstasinn og aðrir
sem ekki geta mætt ofangreinda daga, mæti laug-
ardag 22. nóv. kl. 10-12.
Ath. Óhreinsaðir hundar geta verió hættulegir
heilsu manna, sérstaklega barna.
Árangur hreinsunar er betri ef hundarnir eru fast-
andi þegar hreinsun fer fram.
HEILBRIGÐISFULLTRÚINN,
AKUREYRI.
TILBOÐ
MÁNAÐARINS
Sirni (86) 2 38 30
VÖRUBÍLAR
( 3ENDIBÍLAR
RÚTUBÍLAR
0 g allir BÍLAR
Skúlagötu 40 — við Ksfnarbíó — Símar 15014 19181
....■!■■■!■............ Tl I ■IIIII II fl
DAGUR.7