Dagur - 04.12.1980, Síða 1

Dagur - 04.12.1980, Síða 1
TRÚLOFUNAR- HRINGAR AFGREIDDIR SAMDÆGURS GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI LXIII. árgangur. Akureyri, fimmtudagur 4. desember 1980 88. tölubiað mnnnnnHnannmHaHmmnnnnnnnHnnBHmnnHnHHHnHnnnnnnHnHnHnnnHnHí Vitann rak blikk- andi upp í fjöru „Það var mjög hvasst og mikið særok, en eina verulega tjónið varð á varnargarðinum, er grjót hrundi úr honum á um 20 metra kafia. Grjótið fór í innsigling- una og því þarf að breyta henni,“ sagði Ólafur R. Jónsson, sveit- arstjóri á Þórshöfn í viðtali við Dag um óveðrið sem gekk yfir austanvert landið á dögunum. „Lítill blikkljósviti var á garðin- um. Undirstöður hans kubbuðust í sundur, m.a. sverir bjálkar, og hann silgdi síðan blikkandi inn fjörðinn og lenti upp í fjöru. Þar blikkaði hann enn þegar menn komu að,“ sagði Ólafur ennfremur. Hann sagði að starfsmenn Vita- og hafn- armálaskrifstofunnar hafi gert ráð fyrir að bæta þyrfti í garðinn, en kvaðst sjálfur ætla að hann væri ekki rétt byggður — of þverhnípt- ur. Að sögn Sveins Eiðssonar, sveit- arstjóra á Raufarhöfn, varð ansi hvasst þar, en enginn Austfjarða- vindur, eins og hann komst að orði. Engar skemmdir urðu nema hvað jámplötur bognuðu þar sem þær voru í stafla á bryggjunni. Leikfélagið sýnir tvö verk í vetur Samlestraræfingar eru hafnar hjá Leikfélagi Akureyrar á Skáld-Rósu eftir Birgi Sigurðs- son og er ætlunin að frumsýna verkið upp úr mánaðamótum ja n; feb. Líklegt er að ekki verði sýnd nema tvö verk hjá L.A. í vetur og að seinna verkið verði gamanleikur, að sögn Theódórs Júlíussonar, sem ásamt Sunnu Borg í titilhiutverki og Gesti JónUssyni leika stærstu hlut- verkin í Skáld-Rósu. Hlutverk - eru samtals 22 en leikendur verða 15. Ekki verður ráðinn leikhússtjóri í vetur, en gert er ráð fyrir að þeir 3-4 leikarar sem verða fastráðnir gegni starfi hans til skiptis. Eftir áramót verður auglýst eftir leikhússtjóra sem á að taka til starfa næsta vor og einnig verða auglýstar stöður fast- ráðinna leikara, sem hefji störf næsta haust. Er gert ráð fyrir að þeir verði 8 talsins. Fjárhagsvandi L.A. hefur nú verið leystur að mestu leyti og 40 milljón króna skuldahali nærfellt út sögunni. Styrkir ríkis og bæjar hækka á næsta ári, ríkið hefur feilt niður um 20 milljóna króna skuld vegna launaskatts og söluskatts og 10 milljón króna skuld vegna líf- eyrissjóðs og félagsgjalda hefur verið breytt í langtímalán. Þá hafa ntargir einstaklingar og fyrirtæki fallið frá kröfum sínum, auk þess sem hagnaður af Kabarettinum hefur verið töluverður og raunar svo mikill, að unnt er að hefjast handa fyrir áramót. Síðasta sýning á Kabarettinum verður á föstudag, en hann hefur verið sýndur átta sinnum og nær alltaf fyrir fullu húsi og við miklar vinsældir. Nú fer jólaösin að byrja fyrir alvöru með tilheyrandi búðarrápi. Þessi beið í rólegheitum í kerrunni sinni við stöðumælana, rétt eins og alvöru bíll væri á ferð, meðan mamma skrapp inn í eina búðina i miðbænum. Ekki sakaði að skoða úrvalið í búðarglugganum á nieðan. Mynd: H.Sv. Kom blíða tíð — Ný hljómplata frá með kór Barna Akureyrar Innan skamms kemur út jóla- plata hér á Akureyri með söng og upplestri kórs Barnaskóla Akureyrar. Söngstjóri og org- anisti er Birgir Heigason, en platan er gefin út af Æskulýðs- sambandi kirkjunnar í Hóla- stifti og hefur formaður þess, séra Pétur Þórarinsson á Hálsi, haft umsjón með gerð plötunn- ar. Platan heitir „Kom blíða tíð —jólavaka heimilanna.“ Á þessari plötu er 12 jólalög, auk þess sem jólaguðsspjallið er lesið við undirleik flautu og orgels. Lesturinn annast Inga María Jóhannsdóttir og Svava Hauks- dóttir en flautuleikinn Fanný Tryggvadóttir. Um plötuna segir svo á umslagi hennar: „Hljómplatan Kom blíða tíð er sönn og hrein jólaplata. Hún er sönn hvað það snertir að boða hinn sanna jólaboðskap, — hún flytur gleðiboðskapinn um fæðingu Frelsarans. Platan er hrein hvað varðar sönginn. Söngurinn er flutt- ur af börnum, sem syngja af gleði. Þannig á söngur jólanna að vera, ferskur og gleðiríkur, án alls sem kallast getur prjál.“ Kór Barnaskóla Akureyrar er skipaður börnum á aldrinum 10-12 ára. Þetta er fjórða heila platan, sem frá kórnum kemur, en auk þess söng hann þrjú lög inn á plötuna „Unga kirkjan," sem Fálkinn og ÆSK gáfu út 1968. Fyrsta hljóm- platan með söng kórsins kom út fyrir jólin 1967 og er sú plata löngu uppseld. Platan var tekin upp í Akureyr- arkirkju á þessu ári og sá Pálmi Guðmundsson i Studio Bimbó á Akureyri um þá hlið og tók auk þess ljósmynd á plötuumsiagi. Kristján Kristjánsson hannaði um- Nokkrir af aðstandcndum plötunnar virða fyrir sér umslagið. Birgir Helgason, Pálmi slagið, sem var prentað í Valprent Guðmundsson og Pétur Þórarinsson auk þriggja mcðlima kórsins. Mynd: H. Sv. h.f. á Akureyri. Þórshöfn Útimarkaður Sólborgar Vistheimilið Sólborg heldur úti- markað við Ráðhústorg n.k. iaugardag 6. des. og föstudaginn og laugardaginn 12. og 13. des. undir kjörorðinu „Við getum líka unnið.“ Þar verða seldar ýmsar framleiðsluvörur heimil- isins s.s. kerti af ýmsum gerðum, skreytingar, gólfmottur, trévör- ur og alls konar jólavarningur. Þetta er í annað skipti sem Vist- heimilið Sólborg bryddar upp á þeirri nýbreytni að selja vörur sínar undir berum himni og hefur þetta framtak vakið athygli og ánægju bæjarbúa. Hagnaði af markaðinum verður varið til eflingar vinnuað- stöðu fyrir þroskahefta, en nú er í byggingu á vegum Styrktarfélags vangefinna og Vistheimilisins Sól- borgar húsnæði hér í bæ til reksturs vemdaðs vinnustaðar. Gert er ráð fyrir að starfsemi hefjist þar á sumri komanda. Bæjarbúar og nærsveitamenn eru hvattir til að sækja markaðinn og stuðla um leið að bættri vinnu- aðstöðu fyrir þennan hóp öryrkja. Orgeltónleikar Corveiras á Akureyri Spænski orgelleikarinn Ant- onio D. Corveiras heldur orgeltónleika í Akureyrar- kirkju á föstudags-, laugar- dags- og sunnudagskvöld og hefjast tónleikarnir allir kiukkan 20.30. Þetta er í fyrsta sinn sem Corveiras heldur tónleika á Akureyri, en hann er nú kennari við Tónlistarskóla Keflavíkur og við Tónskóla Þjóðkirkjunnar og starfandi organisti við Hallgrímskirkju. Hann hlaut tónlistarmenntun sína í Madrid, en stundaði einnig orgelnám í París. Mjög fjölbreytt efnisskrá er á þessum þremur tónleikum. Fundur um Blöndu Á sunnudag verður haldinn fundur á vegum Rafmagnsveitna ríkisins um málefni Blöndu- virkjunar. Fundurinn verður haldinn í Húnaveri og hefst klukkan 14. Iðnaðarráðherra og rafmagnsveitustjóri ríkisins mæta á fundinum og halda framsögu- ræður, en síðan verða almennar umræður. Fundurinn er öllum Fundur um íþrótta- og æskulýðsmál Ákveðið hefur verið að halda fundi í vetur um hin aðskiljanlegu málefni Akureyrarbæjar, bæði það er snertir ýmsar fram- kvæmdir hjá bænum sem og félagslega þjónustu. Fyrsti fund- ur í þessu skyni er ákveðin laug- ardaginn 6. des. n.k. og verður hann í fundarsal Framsóknar- félaganna í Hafnarstræti 90 og hefst klukkan 2 e.h. Umræðuefni á þessum fundi verður íþrótta- og æskulýðsmál hér á Akureyri. Ráðstefna Fjórðungssamband Norðlend- inga efnir til ráðstefnu um menn- ingarsamskipti á Norðurlandi á iaugardag. Ráðstefnan verður haldin að Hótel Varðborg og hefst kl. 13.30. Ráðstefnan er öllum opin sem áhuga hafa. öid Tónleikar Næstkomandi laugardag, 6. des- ember, halda þau Ólöf Kolbrún Harðardóttir — sópran, Garðar Cortes — tenór og Guðrún Kristinsdóttir píanóleikari óperu- opinn. 1AUGLÝSINGAR OG ÁSKRÍFT: 24167 - RITSTJÓRN: 24166 og óperettutónleika á vegum Tónlistarfélags Akureyrar, og hefjast tónleikarnir kl. 17 í Borg- arbíói. Jólabingó I.O.G.T. Hið árlega jólabingó I.O.G.T. verður haldið á Hótel Varðborg á föstudagskvöld næstkomandi og hefst kl. 20.30. Sérstaklega verður vandað til vinninga. Stjórnandi bingósins er Sveinn Kristjánsson. OG 23207Í

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.