Dagur - 09.12.1980, Blaðsíða 4

Dagur - 09.12.1980, Blaðsíða 4
DAGUR Útgefandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS Skrifstofur: Tryggvabraut 12, Akureyri Ritstjórnarsímar: 24166 og 23207 Sími augiýsinga og afgreiðslu: 24167 Ritstjóri (ábm.): HERMANN SVEINBJÖRNSSON Blaöamaöur: ÁSKELL ÞÓRISSON Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf. Fjölskylduvernd Nýlega hafa tveir þingmenn Framsóknarflokksins, Haraldur Ólafsson og Alexander Stefáns- son, lagt fram tillögu til þings- ályktunar um stefnumörkun í fjöl- skylduvernd, þar sem gert er ráð fyrir að skipuð verði nefnd til þess að undirbúa löggjöf um sam- ræmda stefnu í málum er varða eflingu og vernd fjölskyldunnar með tilliti til mikilvægis hennar fyrir þjóðfélagið og gera henni kleift að sinna vel uppeldis- og umönnunarhlutverkum sínum. Að undanförnu hefur orðið vart töluverðs áhuga stjórnmálaflokka á svokallaðri fjölskylduvernd, eða fjölskyldupólitík eins og svo hefur verið nefnd. Samband ungra framsóknarmanna reið á vaðið í þessu efni og síðan hafa fleiri komið í kjölfarið. Er það vel, að þessum málaflokki skuli nú loks sýndur sá sómi og áhugi sem honum ber. Heimili og fjölskylda eru sá grunnur, sem framtíð hvers og eins er á reist og það skiptir miklu máli að sá grunnur sé traustur. í greinargerð með þingsálykt- unartillögunni segir meðal annars á þessa leið: „Við mótun stefnu í fjölskyldumálum skal miðað við að vernda fjölskylduna og efla hana svo hún geti sinnt mikilvæg- um hlutverkum sínum til gagns fyrir land og lýð. Kanna þarf hvort einhver ákvæði laga og reglu- gerða beinlínis stuðli að því að sundra fjölskyldum eða geri þeim erfitt fyrir að halda saman. Þar verður að athuga tryggingamál, framfærsluskyldu, dagvistarmál, skólatíma, sifjalöggjöf. Þá verður að kanna atvinnumál og vinnu- tíma. Vinnumarkaðurinn er kröfu- harður og vinnutími hentar ekki ætíð vel fjölskyldulífi og til athug- unar er, hvort sveigjanlegur vinnutími getur að einhverju leyti auðveldað fjölskyldulíf. Skattamál og launamál hafa veruleg áhrif á fjölskylduna og þarf að athuga rækilega hvernig stefnumörkun í þeim málum hefur áhrif á fjöl- skyldugerð og möguleika fjöl- skyldna til að lifa góðu og heil- brigðu lífi. Húsnæðismál eru stór liður og áhrifamikill sem taka þarf til athugunar í þessu sambandi. Möguleikar til íþróttaiðkana og frístundastarfs snerta fjölskyldur mjög mikið og stefnumörkun í þeim málum af hálfu opinberra aðila getur haft veruleg áhrif á fjölskyldulíf.“ í lok greinargerðarinnar segir: „Vinna verður að því að skapa börnum og unglingum góð uppeldisskilyrði og tryggja félagslegt öryggi barnafjöl- skyldna. Heimili og fjölskylda eru sá grunnur, sem framtíð hvers og eins er á reist. Það skiptir miklu að sá grunnur sé traustur.“ Draumur undir hauststjörnum ný Ijóðabók Guðmundar Nýkomin er á bókamarkaðinn ofangreind bók frá hendi Guð- mundar Frímanns, en hann hefir ekki sent frá sér ijóðabók, hvorki frumsamin ljóð né þýdd, síðan 1957, ef frá er talið ljóðakverið Kvœðið um Kofahlíð og tveimur betur, er út kom 1973 í mjög tak- mörkuðu upplagi. í undirtitli kallar höfundur bókina mennsk ljóð, og vissulega eru þau það, en vísast vill hann gefa í skyn með þessum undirtitli, að ljóðin séu ort samkvæmt íslenskri skáld- skaparhefð, þar sé engin æra- tobbakvæði né heldur nokkra spéspeki að finna, eins og hann kemst að orði í eftirmála, er hann kallar Að síðustu, og gefur þar í skyn, að nú sé ekki framar ljóða að vænta frá sinni hendi. Aldrei skyldi maður segja ald- rei, á hér við. Satt er það að vísu, að ekki bætir Guðmundur Frím- ann nýjum streng í skáldhörpu sína, hvað frumortu ljóðin snertir. Ffann fágar þar smíðisgripi úr líku efni og fyrr, en á listfenginni eru engin afturfararmerki, þar sem honum tekst best upp: Glóðafok sumarsólar sindrar og glitrar um alla jörð. Dynbjörg og hulduhólar halda ennþá um dalinn vörð. í kyrrðinni til þín kem eg, Kofahlið min, i hinzta sinn. Hamingjuheillaður nem ég hyldusöng þinn. Sit ég hér einn að sumbli, sólveig áfenga að vörum mér ber. Inni í kofans kumbli krœkUyngshœgindi bý ég mér. Strýkur um vallgróna veggi vorgolan mjúkhent, en búin lil alls, greiðir glettin úr skeggi Grávíði karls. Þannig dansa fyrstu vísurnar í Kvœðinu um Kofahlíð upp í fang lesanda Draums undir haust- stjörnum. Og hvaða orðsmiður Guðmundur Frímann fyllist ekki sárri öfund að geta ekki gripið á þennan hátt í strenginn og G.Fr. gerir í lokaer- indi kvæðisins Kveðið á Breiða- mýri: Áfram, áfram skal haldið. Frá enginu sumarfríða einmana og hrœrður held ég, hef ekki neins að biða. Hvað vildirðu, vorgrœna engi? Hvað vakli mér Ijóð á tungu? Mýkl gróandi moldar? Mildi konunnar ungu? Enn vil ég nefna Sumarkveðju og Draum undir hauststjörnum sem góðgripi, en öfundsveróasta kvæðið af hinum frumsömdu er mér Fiðlarakvæði. Þar finnst mér kannske þráðurinn renna næmast spunninn upp á snælduna. Ann- ars eru það þýddu ljóðin, sem skera úr um það, að Guðmundur Frímann á ekki og má ekki binda skáldfák sinn nú við stall, þó að þonum þyki árin þyngja sig í spori. Andinn er auðsæilega vel vopnfær enn. Vel má það vera rétt hjá G.Fr., að hann muni ekki með nýjum frumortum kvæðum kveða snjallar um lík efni og fyrr en hann hefir þegar gert, en hann getur auðsæilega enn fært okkur úr smiðju sinni nýja og.nýja kjör- gripi þýddra ljóða, eða hver vildi hafa misst af þýðingu hans á Vísu fíflsins eftir Tom Kristensen, Silfri eftir Walter ue la.Mare eða Húsinu við veginn éftir Sam Walter Foss? svo að dæmi sú nefnd. Orðfærni og 'smekkvísi Guðmundar Frímanns og leikni hans í meðförum ríms og hátta gerir hann óvenjuvel ;búinn, til góðra þýðingastarfa, sýnist mér.. Af nógu er að taka,. en ekki margir til verka í því útfærslu-' starfi á andlegu sviði. Bragi Sigurjónsson. >- • Aldnir hafa orðið Öldungaþættir Erlings Davíðsson- ar, f.v. ritstjóra á Akureyri, eru í níunda skiptið komnir fram á sjónarsviðið, 270 bls. bók með endurminningaþáttum tveggja kvenna og fimm karla, roskins fólks, sem fætt er á árunum 1892- 1917, sem hefur frá mörgu athygl- isverðu að segja. Erlingur bjó þessum bókum sín- um þegar í upphafi mjög fast form, nokkuð sérstætt, og heldur fast við það, hann byrjar hvern þátt með 2-3ja bls. upphafsoTðum, æviferils- yfirliti viðmælandans og saman- þjöppuðum höfuðatriðum þáttar hans. Því næst gefur Erlingur við- mælanda sinum nokkuð lausan tauminn, að sönnu innan vissra takmarka, og virðist sjálfur lítið við sögu koma. Er það gagnstætt ýms- um öðrum höfundum slíkra bóka, sem troða látlaust fram í sviðsljósið með spurningum og vangaveltum. Hjá Erlingi fá þættirnir sterkan persónulegan blæ viðmælendanna og er slíkt höfuð kostur. Eins og jafnan áður teflir Erlingur fram fólki úr röðum al- þýðunnar, mönnum, sem lítið hafa látið á sér bera og af öðrum verið hóflega hossað. Þetta fólk lumar þó á mörgu eftirtektarverðu, fágætu og fróðlegu. Merkilegir atburðir koma í ljós með litríkum, jafnvel heillandi svipmyndum úr þjóðlíf- inu, sérstæð tiltök manna við hinar ólíkustu aðstæður, eftirminnileg lífsreynsla, fyrirbæri og skoðanir, sem vinningur er að kynnast. í heild er hér um að ræða yfirgrips- mikið minningasafn úr þjóðlífi ís- lendinga á fyrstu þrem fjórðungum þessarar aldar. Þátttakendurnir eru: Katrín Guðmundsdúttir frá Furufirði á Ströndum vestur, Eggerl Ólafsson í Laxárdal, Þistilfirði, Hannes Jóhannsson, Bárufelli í Glerár- þorpi, Akureyri, Stefán Sigfússon frá Heiði í Mývatnssveit, Sigurður G. Jóhannesson, kennari í Eyjafirði og á Akureyri, Agústa Tómasdöttir frá Suður-Vík í Mýrdal og Leópold Jóhannesson í Hreðavatnsskála, Barðstrendingur að uppruna. Ekki vil ég gera upp á milli þátt- anna og þeirra, sem þar koma fram. Þeir hafa hver til síns ágætis nokk- uð og eru þættir þessir í heild gott framlag til þjóðlegra fræða. bóka- útgáfan Skjaldborg á Akureyri gefur bókina út og þetta ritsafn allt ogniun halda því áfram, enda vin- sældir þess miklar og vaxandi. Er þegar farið að huga að endurútgáfu fyrstu bindanna, sem nú eru upp- seld. Eitt hnýt ég um í þessari góðu bók og öllum hinum fyrri i ritsafn- inu: Nafnaskrá er engin, en slík viðbót gefur fróðiegum ritum stór- aukið gildi. Ætti útgáfan að „halda upp á“ tíu ára afmæli ritverksins með ítarlegri mannanafnaskrá fyrir öll bindin og svo áfram fyrir hvert einstakt, sem síðar kemur. Þeirri viðbót yrði vel fagnað af fróðleiks- unnandi lesendum. Erlingur Davíðsson. Á tæpum áratug hefur Erlingur sent frá sér, auk ritsafnsins Aldnir hafa orðið, fjórar bækur (Jóa norska, Konuna frá Vínarborg, Nóa bátasmið og MiðHshendur), allar í heild gott framlag, þ.e. 13 bœkur alls. Spyrja mætti því úthlutunar- nefnd listamannalauna hvers svo afkastamikill og vinsæll rithöfund- ur eigi að gjalda, að hafa ekki komist þar á blað. Eru þeir kannski verðugri, sem hafa „ungað út“ nokkrum svonefndum Ijóðmælum, sumurn lítt skiljanlegum, eða höf- undar að skáldsagnarugli og ritum um kynferðisafglöp og ýmislega glæpatilburði? Við hvað er miðað? Ég hygg að við íslendingar stöndum nú í nokkurri hættu með menningu þjóðarinnar fyrir lát- lausan straum af óvönduðum og hættulegum erlendum ruslbókum, svo að full þörf væri að á verðlauna einkum þá rithöfunda, sem semja bækurá fögru íslensku máli, bækur um göfugar hugsjónir og fögur lífsviðhorf. Hinuni, sem nefna mætti andlega vanskapninga, ætti að benda á önnur æskilegri störf með því að strika yfir nöfn þeirra af listamannaskránum, allt eins þó að þeir haldi sjálfir að þeir séu verð- launaverðir. Bókaútgáfan Skjaldborg á Ak- ureyri leggurhöfuðáherslu á útgáfu góðra íslenskra bóka. Henni sé þökk fyrir það. Jóhannes Óli Sœmundsson. að vera það sem að er stefnt í ræktun fjárins hvað þessar afurð- ir áhrærir, ætti enda líka að gefa bóndanum mestan og bestan arð. Þessi voru helstu atriði í óskum iðnaðarmanna: Þeir vildu ull með hreinum litum; hvítum, svörtum, mórauðum og gráum. Einkum lögðu þeir áherslu á hvíta ull. Ullin átti að vera þel- mikil með ekki alltof grófu togi og óskemmd af húsvist og sem minnst í henni af mori og skít. Forðast skyldi mjög gula ull og reyna að útrýrpa illhærum. Ull af tvílitu fé, mislit ull, er ónýtanleg enda í lágu verði. Er því áríðandi að fækka sem kostur er tvílitu fé, en fram kom á fundinum að á undangengnum árum hefur þessu fé fjölgað að miklum mun — um allt að hundrað prósent á fáum árum. Hvað varðar gærur er óskin fyrst og fremst sú að fá hvítar gærur óskemmdar. Svartir blettir í gærum af tvílita fé eru til mikillar óþurftar og ber því allt að sama brunni að snúa sem bráðast þeirri þróun við sem verið hefur undanfarið og fækka flekkóttu og skræpóttu fé. I lokin er því hér áskorun til bænda, nú í hönd farandi fengitíð, að spara til muna þá hrúta sem gefið hafa og líkur eru á að gefi tvílit lömb en nota, eftir þvt sem kostur er, vel hvíta hrúta og reyna eftir mætti að útrýma sterkgulum lit úr fénu. Þá er ástæða til að hvetja til vetr- arrúnings, eftir því sem tök eru á og vanda alla meðferð ullar. Ef þetta fer allt eftir verðmæti ullar til íslenskra bænda geta stóraukist áallra næstu árum. „. , L, UMSJÓN: JÓHANNES SIGVALDASON Bunaðarþattur----------------------------------- Meira af hvítri ull — minna af tvílitu fé Dagana 14. og 15. nóv. s.l. var haldinn á Akureyri ráðstefna um sauðfjárrækt, einkum það er sneri að ull og gærum og um fram- leiðslu og sölu á ullar- og skinna- vörum. Þarna voru saman komnir fulltrúar bænda, ráðunautar þeirra bæði hjá Búnaðarfélagi ís- lands og úr hinum ýmsu héruð- um, rannsóknamenn og fulltrúar flestra þeirra fyrirtækja í landinu sem vinna úr og versla með ull og gærur. Til þessarar ráðstefnu var boð- að af Búnaðarfélagi íslands í samvinnu við Rannsóknastofnun landbúnaðarins og aðila ullar- og skinnaaiðnaðarins og þeirra er þessar vörur selja. Búnaðarmála- stjóri, Jónas Jónsson, stjórnaði fundi og greindi frá því í upphafi að tilgangur fundarins væri að fá ofangreinda aðila til að skiptast á skoðunum, en e.t.v. hefur sam- band þeirra verið minna en æski- legt er. Úr þessu væri hugmyndin að bæta. Þarna voru flutt erindi um stefnu í sauðfjárrækt, rannsóknir með sauðfé einkum það sem sneri að ull og gærum, um ullar og skinnaiðnað og óskir þessa iðn- aðar um það hvernig hráefhið er ekki rúm til að rekja stefnur í ætti að vera. Þá voru flutt erindi sauðfjárrækt, gamlar eða nýjar, ei um hvemig sölu á umræddum heldurrannsóknarniðurstöðurení vörum er háttað. I þessum pistli stórum dráttum ættu óskir hans Sporthúsiö hefur nú flutt sig unt sct í Hafnarstræti 94 og er nú þar scm Cesar var sinu gamla húsnæði. Fyrirtækið er nú rekið af Rögg h.f. en cigendur að því eru Jón áður. Á myndinni eru Sigbjöm Gunnarsson eigandi og Gunnar Gunnarsson verslun- Bjamason, Bjarki Tryggvason og Herbert Ólason. Á myndinni eru Bjarki Tryggva- arstjóri. son og Jón Bjamason og á milli þeirra cr Emilia Kristín. Vlismótið í judó Iþróttir um helgina: Óhagstæð úrslit Það voru heldur óhagstæð úrslit í boltaleikjum helgar- innar fyrir okkur Akureyr- inga. Á föstudagskvöldið byrjuðu Þórsstúlkur á að tapa fyrir toppliðinu í fyrstu deild kvenna, Fram. Þórs- strákarnir fóru í mjög erfiða keppnisferð um helgina í handbolta. Fyrst kepptu þeir við Tý í Vestmannaeyjum og töpuðu og síðan við HK og töpuðu einnig. Staða þeirra í deildinni er mjög slæm og ekkert nema fall blasir við þeim ef þeir fara ekki að vinna leiki. Körfuboltamenn félagsins kepptu einnig fyrir sunnan um helgina og unnu Grindvíkinga, en töpuðu síðan á einni körfu fyrir Keflavík. Veitt úr Grétars- sjóði Nýlega fór fram veiting úr minningarsjóði Grét- ars Kjartanssonar, en sá sjóður styrkir árlega efnilega lyftingarmenn. Að þessu sinni var það Norðurlandameistarinn Haraldur Ólafsson sem fékk styrk úr sjóðnum, og er hann mjög vel að því komin. í fyrra fékk Arthur Bogason styrk úr sama sjóði. Guðmundur Ö. vann bikarinn Á laugardaginn var haldið Ýlismótið svokallaða í Judó, en það dregur nafn sitt af hinum forna miðsvetrarmán- uði Ýli. Keppendur á mótinu voru 15, mótsstj'óri Hjalti Þorsteinsson og dómari Guðmundur Kr. Guðmunds- son form. JRA. Keppt var um veglegan bikar sem gefin var af Sporthúsinu og var nú keppt um hann í annað sinn. Jón Hjaltason vann þennan bikar í fyrra, en hann vinnst fyrir flest stig í glímunum. Að þessu sinni var það Guðmund- ur Öm Halldórsson sem vann bikarinn en hann keppti í létt- asta flokki. I 70 kg flokki voru fjórir keppendur og í þeim flokki var um að ræða einvígi á milli bræðranna Jóns og Þor- steins Hjaltasonar, en þeir hafa báðir hlotið íslandsmeistaratit- il. Þeir kepptu til úrslita í flokknum eftir að hafa lagt alla andstæðinga sína. Glíma þessi var mjög spennandi og við- burðarrík, en að lokum mátti Þorsteinn hætta vegna meiðsla sem hann fékk í glímunni. Úrslit í 70 kg flokki urðu því þessi: 1. Jón Hjaltason 2. Þorsteinn Hjaltason og í 3. sæti varð Kristján Halldórsson. í flokki 60 til 70 kg var mikil og hörð keppni. Það kom hins vegar í ljós að Brynjar Aðalsteinsson var sterkastur og í úrslitaglímu keppti hann við Kristján Frið- riksson og sigraði Brynjar á YOUKO. Annars urðu úrslit þessa flokks þessi að í 1. sæti varð Brynjar Aðalsteinsson, 2. Kristján Friðriksson og 3. Broddi Magnússon. í fiokki undir 60 kg. sigraði Guðmundur Halldórsson eftir að hafa unnið Ásgeir Þor- bjömsson í úrslitaglímu og sig- raði Guðmundur á YOUKO. í þessum flokki voru sjö keppendur. Úrslit urðu þessi: 1. Guðmundur Halldórsson 2. Ásgeir Þorbjörnsson, 3.-4. Gylfi Jónsson og Helgi Erlendsson. Kristján Halldórsson og Jón Hjaltason. Á myndina vantar Þorstein Hjaltason, sem varð frá að hverfa vegna meiðsla. Sigurvegarar í 60-70 kg flokki. Frá vinstri: Broddi Magnússon, Kristján Frið- riksson og Brynjar Aðalsteinsson. Sigurvegarar í lcttasta flokki. Frá vinstri: Gylfi Jónsson, Ásgeir Þorbjörnsson og Guðmundur Ilalldórsson sem jafnframt varð stigahæstur og hlaut Ylisbikarinn til varðveislu í eitt ár. 4.DAGUR

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.