Dagur - 09.04.1981, Qupperneq 1
Fermingar-
gjafir
f MIKLU
LIRVALI
GULLSMieiR
, SIGTRYGGUR &
' AKUREYRI
64. árgangur
FJÁRHAGSÁÆTLUN
SAMÞYKKT EINRÓMA
Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar
fyrir árið 1981 var samþykkt
einróma á bæjarstjórnarfundi á
þriðjudag.
Nokkrar minniháttar breytingar
voru gerðar frá frumvarpinu og var
áætlunin síðan samþykkt með at-
kvæðum allra bæjarfulltrúa. Lítur
því út fyrir að allir bæjarfulltrúar
hafi talið þetta góða fjárhagsáætl-
un, miðað við aðstæður, en Sjálf-
stæðismenn höfðu áður lýst yfir
vissri andstöðu við frumvarpið.
Helstu breytingar sem gerðar
voru samkvæmt lillögum bæjar-
ráðs voru þær, að hækkað var
framlag til hönnunar dagvistunar-
stofnunar nyrst við Byggðaveg,
sundlaugar í Glerárhverfi, slökkvi-
stöðvar og skrifstofuhúss bæjarins.
Ennfremur var tekið upp framlag
til tækjageymslu í Hlíðarfjalli.
Samtals námu þessar hækkanir 800
þúsundum króna, eða 80 milljón-
um gkr.
Niðurstöðutölur fjárhagsáætlun-
ar Akureyrarbæjar eru því rösklega
102 milljónir króna, eða 10,2
milljarðar gkr.
Virkjunarmálin:
Mikilvægum upp-
lýsingum stungið
undir stól
Litið við í
Breiðholti
sjá opnu —
SÚLAN LANDAR Á GRENh
VfK NÆSTU VIKURNAR
— Forráðamenn Kaidbaks hafa í hyggju að kaupa nýtt skip
Samkvæmt þessum endurskoð-
uðu niðurstöðum Orkustofnunar,
sem ekki hafa fengist birtar til
þessa, eru rannsóknamiðurstöður
um Blönduvirkjun taldar. öruggast-
ar og rannsóknir á Fljótsdals-
virkjun og Sultartangavirkjun s.l.
sumar hafa ekki haggað þeirri
staðreynd, að Blönduvirkjun er
hagkvæmust. í niðurstöðum Orku-
stofnunar segir:
„Meginniðurstöður athugan-
anna eru þær, að virkjunarleið 1,
sem hefst á Blönduvirkjun, sé hag-
kvæmust í öllum tilvikum nema
einu, — því að orkufrekur iðnaður
rísi upp á Reyðarfirði, en þá er
hagkvæmust virkjunarleið nr. 4,
sem hefst á Fljótsdalsvirkjun. Þetta
á við hvort heldur sem reiknað er
með Kröfluvirkjun eða ekki.“
í þessari skýrslu Orkustofnunar
Heldur hefur ræst úr atvinnumálum
Grenvíkinga. Að sögn Sverris
Leóssonar, útgerðarmanns á Akur-
eyri, mun Súlan EA, að loknu
þorskveiðibanni, hefja veiðar fyrir
Kaldbak á Grenivík. Gengið var frá
samkomulagi þar að lútandi í gær.
Gert er ráð fyrir að Súlan komi með
fyrsta þorskfarminn til Grenivfkur
eftir páska.
Að sögn Knúts Karlssonar
framkvæmdastjóra Kaldbaks,
munu þær uppsagnir, sem búið var
að senda um 60 starfsmönnum fyr-
irtækisins, falla sjálfkrafa úr gildi
þegar fiskur berst í húsið. Knútur
sagðist vera ánægður með að Súlan
skyldi landa hjá Kaldbaki næstu
vikurnar en benti á að það væri
hætt við að vinna yrði stopul þar
sem aðeins eitt skip fiskaði fyrir
frystihúsið, en reynt verður eftir
föngum að dreifa vinnslunni.
Knútur sagði einnig að ekki væri
von á að fleiri skip fengjust til að
landa afla sínum hjá frystihúsinu.
Um tíma voru vonir um að Hákon
ÞH landaði afla á Grenivík, en
skipið er nú vélvana á Akureyri.
Samkvæmt þeim uppiýsingum,
sem blaðið aflaði sér í gærkvöldi,
eru forráðamenn Kaldbaks að
vonum fegnir að Súlan muni afla
fyrir frystihúsið, en það breytir hins
vegar ekki ráðagerðum um kaup
•Kaldbaks á nýju skipi. Rætt hefur
verið um 200 til 300 tonna skip í
þessu sambandi og hafa forráða-
menn Kaldbaks haft á orði að rétt
væri að athuga möguleika á að
komast í raðsmíði á slíkum skipum.
Ástand eins og það sem skapað-
ist á Grenivík er ekki með öllu
óþekkt á þeim slóðum. I fyrra fóru
heimabátarnir á arðbærari veiðar
fyrir sunnan, rétt eins og nú, en slíkt
myndi ekki gerast ef fyrirtækið
gerði sjálft út það — eða þau —
skip sem öfluðu hráefnis fyrir það.
Iðnaðarráðherra beftir öllum brögðum til að næsta
stórvirkjun verði í Fljótsdal
Virkjunar- og stóriðjumál taka
nú sífellt furðulegri stefnu undir
forystu Hjörleifs Guttormsson-
ar, iðnaðarráðherra. Þannig
hefur komið í ljós, að hann hefur
legið á uppiýsingum um hag-
kvæmni virkjana, sem Orku-
stofnun lagði fram 18. febrúar
s.l. Þá hefur hann falið staðar-
valsnefnd um orkufrekan iðnað
að gera bráðabirgðaálit um kís-
ilmálmverksmiðju á Reyðar-
firði. Allar aðgerðir ráðherrans
virðast miða að því, ljóst en þó
einkum leynt, að næsta stór-
virkjun verði í Fljótsdal í
tengslum við stóriðju á Reyðar-
firði, algjörlega óháð því sem
hagkvæmast er fyrir þjóðar-
heildina.
frá 18 . febrúar s.l. segir ennfremur,
að enn bendi ekkert til þess að
rannsóknir við Fljótsdalsvirkjun og
Sultartangavirkjun 1980 raski for-
sendum um virkjanir þær, sem
gengið er út frá í þessari athugun.
Eins og allir vita tekur undir-
búningur stóriðju mörg ár, en svo
virðist sem Hjörleifur Guttormsson
ætli sér að þröngva stóriðju inn á
Reyðfirðinga með það sama. Ekki
er enn útséð með það hvernig
flokksbræður Hjörleifs taka þess-
um stóriðjudraumum hans og
hvernig almennt verður litið á þær
aðferðir sem hann beitir pólitískum
frama sínum í Austurlandskjör-
dæmi til framdráttar.
KRAFLA:
Þrjátíu megavött í ár?
Búið er sækja um leyfi til að bora
3 holur í suðurhlíðum Kröflu og ef
yfirvöld gefa grænt ljós verða
a.m.k. 2 holur komnar i gagnið um
næstu áramót. Búið er að bora
eina holu f hlíðinni og gefur hún
ástæðu til að ætla að svæðið sé
álitlegt. Rafmagnsframleiðsla
Kröfluvirkjunar er nú tæplega 12
megavött og ef tekst að koma
tveimur holum í notkun fyrir ára-
mót, má gera ráð fyrir að fram-
leiðslan geti aukist um rúmlega
helming frá því sem nú er.
í Kröflu er ein vélasamstæða,
sem getur framleitt allt að 30
megavöttum, þegar næg gufa
er fyrir hendi, er á dagskrá að
bæta annarri vélarsamstæðu við
og auka framleiðsluna um helm-
ing. „Ef þær holur, sem boraðar
verða í sumar, líkjast eitthvað
þeirri sem búið er að bora í suð-
urhlíðarsvæðið, þá ættum við að
geta nálgast það að fullnýta fyrri
samstæðuna," sagði Gunnar Ingi
Gunnarsson, tæknifræðingur í
Kröflu í samtali við blaðið. „Við
ættum að geta látið a.m.k. tvær
þeirra blása í mánaðartíma, tengt
og tekið í notkun á þessu ári.“
En líður þá á löngu þar til se-
inni vélarsamstæðan verður tekin
í notkun? Gunnar Ingi sagði að ef
holurnar þrjár tækjust vel þá
teldu Kröflumenn sig á grænni
grein. Upp úr því væri rétt að
hefja undirbúning að niðursetn-
ingu á vélarsamstæðunni.
Þær raddir hafa heyrst að
sunnan að rétt sé að flytja ónot-
uðu vélasamstæðuna við Kröflu
suður í Svartsengi og var Gunnar
spurður um það mál. Hann kvað
ráðamönnum í Kröflu ekki hafa
borist bréf um þetta frá réttum
yfirvöldum og sagði að á flutningi
vélasamstæðunnar væru ýmsir
annmarkar. T.d. er búið að setja
niður ýmsan búnað vegna henn-
ar, sem ekki er hægt að flytja ef
samstæðan fer á flakk suður á
land. Gunnar minnti einnig á
könnun sem gerð var á sínum
tíma um hagkvæmni þess að
flytja samstæðuna suður, en þar
kom það fram að hagkvæmara
væri fyrir eigendur Svartsengis að
kaupa nýjar vélar, en hugsa ekk-
ert um að fá tæki úr Kröflu.
Trillurnar
öruggur
vorboði
Á laugardaginn voru settar
fram fyrstu trillurnar í Hrísey á
þessu ári. Að sögn heimamanna
er sjósetning smábátanna
nokkuð öruggur vorboði, en
trillusjómennirnir hafa íhugað
málið svo vandlega áður en
bátar þeirra fara á flot, að það
er tæplega hætta á að Vetur
konungur minni á sig eftir það.
Á laugardag voru settar fram
fimm trillur og fara 2 þeirra á
grásleppu, en 3 ætla að reyna
færið.
Nýr skrúðgarðyrkju-
maður
Tvær umsóknir bárust um starf
skrúðgarðýrkjumanns við Lysti-
garðinn. Annar umsækjandinn dró
umsókn sína til baka og var skrúð-
garðyrkjunefíid sammála um að
veita Axel Knútssyni, Keflavík,
starfið frá og með 1. maí n.k.
Rætist úr atvinnumálum Grenvíkinga:
AUGLYSINGAR OG ASKRIFT: 24167 - RITSTJORN: 24166 OG 23207