Dagur - 09.04.1981, Blaðsíða 6
KVIkHfW
Borgarbfó sýnir klukkan níu
hina stórkostlegu mynd Fass-
binders, Hjónaband Mariu
Braun. María er kornung
stúlka, þegar hún giftist Her-
mann Braun. Þetta er á fjórða
ári heimsstyrjaldarinnar, og
Hermann er að fara á vígvöll-
inn. Þau eru gefin saman í
skyndi og eiga hálfan dag og
heila nótt saman. Við stríðslok
er Hermann sagður týndur, og
Maria er sú eina sem-trúir því að
hann sé á lífi og neitar að gefa
upp vonina um að hann komi
aftur.
ÞAð er rík ástæða til að hvetja
alla til að sjá þessa mynd, því
þetta er sannkallað snilldarverk
— ein albesta mynd Fassbind-
ers. Áhorfendum skal bent á, að
í lokin, eftir alla textarununa
um leikendur og aðra aðstand-
endur, kemur skýring á persón-
um myndarinnar, en þær eiga
sér fyrirmyhdir í hinu raun-
verulega þjóðfélagi þótt mynd-
in sé að öðru leyti skáldskapur.
Því skulum við sitja kyrr dálítið
lengur en venjulega.
Klukkan ellefu sýnir bíóið svo
myndina Með dauðann á hæl-
unum, spennandi mynd með
Kalla Bronson í aðalhlutverki.
í Nýja bíói standa nú yfir sýn-
ingar á myndinni Greifarnir.
Þetta er bráðskemmtileg amer-
ísk mynd með Perry King og
Sylvester Stallone í aðalhlut-
verkum. Segir frá fjórum leður-
töffurum sem eru vinir í blíðu
og stríðu. Aðaláhugamálin eru
kvenfólk og bílar, og kemur
ýmislegt spennandi upp á í þvi
sambandi.
Vorvörurnar frá Steffens
Nýjasta tíska í barna
og unglingafatnaði
Verslunin Ásbyrgi
Sænskir sýna á Húsavík
Um næstu helgi sýnir hópur
áhugaleikara frá Södertálje í
Svíþjóð leikrit á Húsavík. Leik-
ritið, sem heitir Ævintýri Tuma
Búnir að
losa Narfa
{ gærmorgun tókst starfsmönn-
um við borinn Narfa að losa
borstangirnar, sem festust á 800
m. dýpi. Að sögn Sveinbergs
Laxdai, fréttaritara Dags á
Svalbarðsströnd, munu bor-
mennirnir fara að vinna við að
fóðra holuna og víkka hana efst
en skápar hafa myndast í henni
og þeim verður að loka áður en
lengra er haldið.
Borinn var kominn niður í tæpa
1300 metra og er ætlunin að bora
eitthvað dýpra í þeirri von að heita
vatnið fari nú að streyma upp.
Starfsmenn Narfa þorðu ekki að
spá neinu um hvenær borun lyki.
„Það er hart undir Ströndungum"
sem sést best á því að stundum
hefur borinn aðeins farið tæpa 2
metra niður á einni vakt. En þegar
Glaumur boraði var enn harðara
undir, því hann fór allt niður í 4 cm
á vaktinni.
litla, er byggt á sögunni Tom
Saweyer, eftir Mark Twain.
Hópurinn mun einnig sýna
leikritið í Norræna húsinu í
Reykjavík.
Einar Njálsson á Húsavík sagði
að sænsku leikararnir yrðu hér á
landi frá 9. til 14. þ.m. og hann
bætti því við að Ævintýrið um
Tuma litla væri tilvalin fjölskyldu-
sýning, sem væri sett saman í tilefni
af norrænu málaári, sem var á s.l.
ári. Svíarnir fengu styrk frá Nor-
ræna áhugaleiklistarsambandinu
til fararinnar.
Leikritið verður sýnt í íþróttasal
barnaskólans á Húsavík n.k. laug-
ardag kl. 15 og kl. 17. Sýningin í
Norræna húsinu verður á mánu-
daginn. Með leikurunum kemur
blaðamaður og ljósmyndari og
munu þeir semja frásögn af fs-
landsförinni fyrirsænsk blöð.
„Auk þess að leika hérna munu
leikararnir heimsækja ýmsar
menningarstofnanir í Reykjavík s.s.
Leiklistarskóla fslands og Kjar-
valsstaði. En hér á Húsavík munu
þeir m.a. heimsækja Skarðaborg í
Reykjahreppi, sem er fjárbú. Þeir
fá að fara á hestbak og reyna að
átta sig á hvernig er lifað I íslenskri
sveit,“ sagði Einar Njálsson að
lokum.
Firmakeppni
K.R.A.
Frimakeppni K.R.A. í innanhúsknattspyrnu verður
haldin helgina 24 og 25 apríl n.k. Óheimilt er að tvö
eða fleiri fyrirtæki sameinist um lið.
Þátttöku tilkynningar ásamt þátttökugjaldi kr.
400,00 fyrir hvert lið, skulu hafa borist fyrir kl.
18.00, 15. apríl næstkomandi til undirritaðra.
Jónas Karlesson, verkfræðistofu Sigurðar Thor-
oddsen, Glerárgötu 36. Símar 22543 og 22592, eða
til Þóroddar Hjaltalín, Sjöfn. Sími 21400.
K.R.A.
mm
Fíladelfía Lundargötu 12.
Fimmtudag 9. kl. 20.30
bíblíulestur. Sunnudag 12.
sunnudagaskóli kl. 11 f.h.
Skírnarsamkoma kl. 17. All-
ir hjartanlega velkomnir.
Fíladelfía.
Hjálpræðisherinn. Við minnum
á samkomurnar á föstudags-
og laugardagskvöld kl. 20.30
og á Pálmasunnudag kl. 17,
þar sem kapt. Daniel Ósk-
arsson og frú stjórna og tala.
Hljóðfæraleikur og fjöl-
breyttur söngur. Munið
sunnudagaskólann kl. 13.30.
Allir velkomnir.
Kiwanisklúbburinn Kaldbakur.
Fundur n.k. fimmtu-
dag 9. apríl (í dag) kl.
19.15 í Kiwanishús-
inu. Ath. röng aug-
lýsing í síðasta blaði.
n Huld 5814107—IV./V.—2—
Kökubasar verður haldinn
laugardaginn 11. apríl kl.
14.00 að Laxagötu 5.
Kvenfélagið Hjálpin.
Vistheimilið Sólborg
auglýsir
Til sölu er sambyggð trésmíðavél, Emco-Star
Super meó öllum fylgihlutum, (bandsög, hjólsög
10”, fræsari, rennibekkur) 8. stk. handlaugar í
borði (tvær stærðir) 2. stk. heitavatnsgeymar. 4.
stk. sjúkrarúm (barna).
Notað timbur, 2”x6” og 2"x4” 2 stk. laxeldiskör. 2
stk. Singer hraðsaumavélar. Upplýsingar í síma
21757.
Árbók Akur-
eyrar komin út
Út er komin hjá Bókaforlagi
Odds Bjömssonar Árbók
Akureyrar 1980. í bókinni er
gerð grein fyrir því helsta sem
gerðist á sl. ári í máii og
myndum. Fréttir ársins eru
raktar og í bókinni em lengri
greinar um einstaka mála-
flokka, sem ofariega voru á
baugi i bænum. Lokakafli
bókarinnar er uppsláttarkafli
þar sem ýmsum upplýsingum
um stofnanir og þjónustu á
Akureyri er raðað saman í
stafrófsröð.
í fréttatilkynningu frá forlag-
inu segir að fyrirhugað sé að gefa
Árbók Akureyrar út á hverju ári,
ef viðtökur verða góðar. Árbók
Akureyrar er 168 blaðsíður. Hún
er sett, prentuð og bundin í
Prentverki Odds Björnssonar.
Tvennir gestatónleikar
Norðlendingum gefst nú kostur
að hlýða á hina ágætu strengja-
sveit Tónlistarskólans í Reykja-
vík, þegar hún leikur á tónleik-
um í Akureyrarkirkju laugar-
dagskvöldið 11. apríl kl. 20.30.
Stjórnandi er Mark Reedman.
Á þessum vetri hefur Tónlistar-
skólinn I Reykjavík haldið upp á 50
ára starfsafmæli með mörgum
tónleikum, sem vakið hafa verð-
skuldaða athygli fyrir fjölbreytni
og gæði.
Daginn eftir, sunnudaginn 12.
apríl, leikur Friðrik Már Baldurs-
son á fiðlu, ásamt Snorra Sigfúsi
Birgissyni á píanó I sal tónlistar-
skólans á Akureyri, og hefjast
tónleikarnir kl. 20.30. Friðrik Már
lýkur einleikaraprófi frá skólan-
um á þessu ári.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 83., 86. og 91. tbl. Lögbirtinga-
blaðs 1980 á Oddagötu 11, Akureyri, þingl. eign
Guðjóns E. Jónssonar fer fram eftir kröfu Guðjóns
Steingrímssonar hrl. og Gunnars Sólnes hrl., á
eigninni sjálfri miðvikudaginn 15. apríl n.k. kl.
17.00.
Bæjarfógetinn á Akureyri
FERÐABÍLL
Til sölu er G.M.C. Rally-Wagon árgerð 1974.
Fyrst skráður í október 1975, ekinn aðeins 122, þús
km. Einn eigandi. Verð Ca 50-55. þús. Góð kjör ef
samið er strax. Uppl. í síma 33134.
Eiginmaður minn,
KONRÁÐ JÓHANNSSON,
gullsmlður,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 14. apríl
klukkan 13.30.
Svava Jóstelnsdóttir
og börn hlns látna.
Maðurinn minn, faðir, sonur og bróðir,
VALDIMAR PÁLSSON,
Hjallalundl 17k, Akureyri,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju laugardaginn 11. apríl kl.
13.30.
Helga Jónatansdóttir,
Ragnheiður Valdimarsdóttir,
Páll Vlglússon,
Ragnheiður Valdlmarsdóttlr,
örn Pálsson,
Baldur Pálsson.
Móðir okkar og tengdamóðir,
GUÐRÚN MAGNÚSDÓTTIR,
Dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri,
áður til heimllis að Aðalstræti 54,
verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju, föstudaginn 10. apríl kl.
13.30. Þeir, sem vildu minnast hinnar látnu er vinsamlega bent á
Dvalarheimilið Hlíö eða Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Börn og tengdabörn.
6. DAGUR