Dagur


Dagur - 21.07.1981, Qupperneq 6

Dagur - 21.07.1981, Qupperneq 6
I MöAruvallaklaustursprestakail. Guðsþjónusta að Möðruvöllum n.k. sunnudag 26. júlí kl. 2 e.h. Guðsþjónusta í Skjaldarvík sama dag kl. 4 e.h. Þar predikar Ólafur Jóhannsson stud theol. Sóknarprestur. Laufáskirkja. Guðsþjónusta n.k. sunnudag kl. 2 e.h. Pétur Þorsteinsson guðfræðinemi predikar. Heimsókn frá Vest- mannsvatni. Sóknarprestur. Akureyrarkirkja. Messað n.k. sunnudaginn 26. júlí kl. 11 f.h. Ólafur Jóhannsson guðfræði- nemi predikar. Sálmar nr. 50, 365, 183, 37, 367. P.S. Lögmannshliðarkirkja. Messað n.k. sunnudaginn 26. júlí kl. 2.00 e.h. Ólafur Jóhannsson guðfræðinemi predikar. Sálmar nr. 50, 365, 183, 37, 367, P.S. Fíladelfia Lundargötu 12. Þriðjudag 21. bænastund kl. 8.30. Fimmtudag 23. biblíulest- ur kl. 8.30. Sunnudagur 26. al- menn samkoma kl. 8.30. Allir velkomnir. Hjálpræðisherinn. Sunnudag- inn 26. júlí kl. 20.30 almenn samkoma. Söngur og vitnis- burður. Allir velkomnir. Ferðafélag Akureyrar. 31. júll til 3. ágúst, Herðubreiðarlindir og Askja. 1.-8. ágúst, Brúaröræfi. St. Georgsgildið. Ath. bjóðum fötluðum aðstoð við að heim- sækja landsmót skáta í Kjarna- skógi laugardaginn 1. ágúst kl. 14-17. Þeir sem vilja þiggja þetta góða boð eru beðnir að hafa samband við skrifstofu Sjálfsbjargar sem gefur allar nánari upplýsingar mánudag- inn 27. og þriðjudaginn 28. júlí kl. 13-17 í síma 21557. Sjálfs- björg félag fatlaðra á Akureyri og nágrenni. Framlög og gjafir til NLFA í júní mánuði 1981. Steindór Pálmason kr. 60.000,- Kaup- félag Eyfirðinga kr. 100.000,- Iðja félag verksmiðjufólks kr. 10.000,-. Alúðar þakkir fyrir rausnarlegar gjafir. Náttúru- lækningafélag Akureyrar. * Góðfúsleg tilmæli til al- mennings, ungra sem aldinna: Sýnið öllum dýrum og fuglum fyllstu nærgætni, þá verða þau ykkar bestu vinir. Dýravcrndunarfélag Akureyrar. Sænsku SHW barnavagnarnir og kerrurnar eru komnar aftur. Póstsendum. Brynjólfur Sveinsson hf. Einingarfélagar Eins dags skemmtiferð fyrir aldraða Einingarfélaga verður farin frá skrifstofu félagsins Skipagötu 12, sunnudaginn 9. ágúst n.k. Farið verður um Dalvík, Ólafsfjörð, Siglufjörð, Hóla í Hjaltadal og ekið Skagafjörð heim. Nánari upplýsingar um ferðina verða veittar á skrifstofu félagsins. Símar: 23503 og 21794. Ferðanefnd Einingar. Dagana 26. júlí-2. ágúst verður umferð um útivistarsvæðið f Kjarnaskógi takmörkuð vegna Landsmóts skáta. Skógræktarfélag Eyfirðinga «t Þökkum innilega samúö og vinarhug við andlát og útför fööur okkar og afa FRIÐJÓNS RÓSANTSSONAR. Guð blessi ykkur öll. Fyrir hönd systkina og annara vandamanna. Hetgl Friðjónscon. „Ef allir Húsvíkingar væru eins og hann Hákon Aðalsteinsson og verslunarmanni á Húsavik. Myndina tók Viðar af Hákoni gteti ég vel hugsað mér að setjast að fyrir austan,“ sagði þegar hlé varö á verslunarstörfum, en sá sfðarnefndi seiur kunningi blaðsins þegar hann sá myndina af Hákoni, grinista hverjum sem hafa vill bensfn og olfur af ýmsu tagi. ÍSLANDSMÓTMD í HESTAÍÞRÓTTUM fslandsmót í hestaíþróttum verður haldið á Melgerðismel- um í Eyjafirði dagana 25.-26. júlí n.k. Hestamannafélögin Léttir, Þráinn og Funi sjá um mótið, sem er fjórða íslands- mótið í hestaíþróttum sem Ný Ijóðabók Út er komin ljóðabók eftir Hjört Bjömsson frá Vökuvöllum sem nefnist: Tvö ljóðakver — Þúfna- kollar — gaman og alvara. Hjörtur er austfirskur að ætt. Hann bjó um árabil á Akureyri og í nágrenni og var lengstan hluta starfsævi sinnar verkamaður. Efni bókarinnar er fjölþætt og spannar yfir hálfa öld. Höfundurinn er nú búsettur í Dal- bæ, heimili aldraðra, Dalvík. haldið er og jafnframt það fjöl- mennasta. 84 hafa látið skrá sig til keppni; 52 fullorðnir og 32 unglingar. Þeirra á meðal eru allir bestu knapar landsins. Má því búast við fjölmenni á Melgerðismelum um þessa helgi. Aðstaða þar til móts- halds er mjög góð og tjaldstæði ágæt. I hestaíþróttum er lögð áhersla á samspil knapa og hests og það er knapinn sem er dæmdur á mótum, en ekki hesturinn, eins og gert er á hefðbundnum hestamannamótum. Verða bæði knapar og hestar því að vera í góðri þjálfun og hestarnir vel tamdir, ef sýningin á að takast vel. Dagskrá mótsins er þannig í stórum dráttum að á laugardags- morguninn kl. 9 verður mótið sett á Bakkavelli. Þar verður m.a. keppt í hlýðnikeppni, tölti og gæðinga- skeiði. Á Melavelli sama dag er t.d. keppt í fjórgangi og tölti. Um kvöldið er dansleikur í Sólgarði. Á sunnudag á Bakkavelli verða m.a. úrslit í fjórgangi, tölti og fimm- gangi. Einnig verður keppt í víða- vangshlaupi og hindrunarstökki og þar fer fram gæðingaskeið, seinni sprettur. Klukkan 17.30 á sunnu- dag verður verðlaunaafhending og mótsslit. Mikið er til af kartöflum Hjörtur Bjömsson. Samkvæmt upplýsingum yfir- matsmanns garðávaxta Eðvalds B. Malmquist, þá er töluvert eftir af kartöflum frá í fyrra. Samkvæmt hans tilmælum hefur verið ákveðið að selja 2. flokk af kartöflum. í þeim flokki verða sömu afbrigði og undanfarið í 1. flokki, en geta verið útlitsljótar kartöfiur, án þess að vera skemmdar. Nú er sá tími kominn að geymsluþol kartaflna er í lágmarki. Því er nauðsynlegt, að sem Veikur hlekkur í heil brigðisþjónustunni Kona nokkur austan úr sveitum á Norðurlandi eystra átti frátekinn tíma hjá ákveðnum sérfræðingi hér í bæ, en það mér liggur við að segja ófyrirgefanlega atvik átti sér stað í Þjónustumiðstöð lækna á Akur- eyri, að starfsfólki þess staðar urðu á slæm mistök. Láðist þeim algjörlega að til- kynna framlengdan frítíma ákveð- ins sérfræðings. Áðurnefnd kona gerði sér ferð austan að landi er- indisleysu þrátt fyrir niðurskrifað nafn, heimilisfang og símanúmer hennar hjá viðkomandi lækna- þjónustumiðstöð. Konan mætir á fyrirfram ákveðnum tíma, tilkynnir nafn sitt að venju og segist eiga tíma hjá umræddum sérfræðingi. Fékk hún þá frekar þunnt svar, að læknirinn væri ekki við, og var ekki svarað neinu orði kvörtunum í sambandi við óþarfa ferð alla leið austan af landi til að hitta þennan sérfræðing. Mætti hafa það til athugunar að starfsfólk þessa staðar sýndi a.m.k. ögn meiri kurteisi þegar það tekur á móti fólki sem er komið svo langt að, þó það geri sér ekki þá fyrirhöfn eða yki eigi á útgjöld bæjarins með upphringingu varðandi sumarfrí læknis. 7615-5844 skemmstur tími líði frá því að kartöflurnar eru teknar úr geymslu framleiðandans og þar til þeirra er neytt. Það er því ráðlegt fyrir neyt- endur að kaupa aðeins 2!ó kg í einu og geyma kartöflumar á köldum stað. Talið er að uppskeran hafi verið um 170 þúsund tunnur á síð- ast liðnu hausti, það er með því allra mesta sem uppskeran hefur orðið hér á landi. Rýrnun verður töluverð en íslenskar kartöflur munu verða á markaðnum að minnsta kosti út júlí. Margir stór- framleiðendur hafa mjög góðar kartöflugeymslur, þar sem þeir geta stjórnað hita- og rakastigi. Kart- öflurnar geta litið vel út í geymslum á þessum tíma, en þegar þær hafa verið flokkaðar, settar í poka og sendar á markað, er geymsluþolið ákaflega takmarkað og því fljótar að skemmast. Margir árekstrar Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni á AJcureyri urðu sex árekstrar á Akureyri s.l. sunnudag. Bíll ók út af Ólafsfjarðarvegi hjá Árskógi. Fjórir voru í bllnum og slösuðust allir eitthvað. Það kom fram hjá lögreglunni að skyggni var gott þegar árekstramir urðu á Ak- ureyri og erfitt að gera sér grein fyrir hver kann að vera ástæðan fyrir þessum umferðaróhöppum. 6.DAGUR

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.