Dagur - 30.07.1981, Blaðsíða 2

Dagur - 30.07.1981, Blaðsíða 2
Auglýsing Hvað ffær ffólkið fyrir ffélagsgjöldin? skrifstofustjóra Þegar talað er um launþegafélög kemur mönnum gjarnan fyrst í hug samningar og verkföli, því það er við slíkar aðstæður sem málefni launþega eru helst í fjölmiðlum. Stéttarfélög launþega eru þó starfandi árið um kring og starfsemi þeirra er fjármögnuð af félagsgjöldum aðila. Mjög er mismunandi hvað menn sýna stéttar- félaginu sínu mikinn áhuga og margir vita þessvegna ekkert hvernig því fé er varið sem þeir greiða í félagsgjöld. Ása Helgadóttir skrif- stofustjóri hjá Félagi verslunar- og skrifstofufólks á Akureyri var því spurð þeirrar spurningar sem er fyrirsögn á þessu spjalli: Hvað fær fólkið fyrir félagsgjöldin sín? „f fyrsta lagi er náttúrulega rekin skrifstofa til að fólk geti á hverjum tíma fengið upplýsingar um allt varðandi launakjör og samninga" segir Ása. „Svo er það lífeyrissjóð- urinn, en hann tryggir yngra fólki lán og eldra fólki lífeyri. Öll af- greiðsla L.V. fyrir bæjarbúa varð- andi sjóðinn fer gegnum skrifstof- una á Akureyri og það fer býsna mikill tími í þá hlið starfseminnar. Ánægja með orlofs- húsin Orlofsmálin eru líka verulegur þáttur í starfi skrifstofunnar, eink- um á sumrin. Félagið er með þrjú orlofshús á sínum vegum í sumar og tvo tjaldvagna sem notið hafa mikilla vinsælda. Því miðurkomast aldrei allir sem vilja. Hinsvegar Ása Helgadóttir. bendir ánægjan með þessi orlofs- hús og aðsóknin í þau eindregið til þess, að félagsmenn telji þeim fjár- munum vel varið sem fara í að gera þeim sumarleyfið ánægjulegra. Þessvegna hefur verið brotið upp á því, að gefa félagsfólki kost á ferð til Krítar á næstunni sem félagið greiðir niður. Loks má nefna að fyrirhugað er að koma á fjöl- skylduferðum innanlands ef fé- lagsmenn sýna því áhuga. Við telj- um að slíkar ferðir séu vel til þess fallnar að auka kynni meðal fé- lagsmanna og efla samkennd. Dagpeningar til foreldra veikra barna Þá er það sjúkrasjóðurinn, en hann var stofnaður með lögum frá 1. maí 1979. Eftir að hann var stofnaður hafa þeir félagar sem ekki njóta réttinda samkvæmt veikindagrein samninganna notið verulegra bóta. Þessi sjóður hefur sannarlega bætt úr brýnni þörf. Félagið greiðir til dæmis foreldri sem verður að vera yfir veiku barni sínu og missir niður laun, dagpen- inga. Reynslan hefur sannað nauð- syn þessarar tilhögunar og þetta hefur komið sér vel fyrir marga. Loks má nefna þá nýbreytni varðandi sjúkrasjóðinn, að þurfi félagsmenn að vera í nuddi eða annarri slíkri heilsurækt fá þeir greiddan helming kostnaðarins með því að framvísa vottorði frá lækni um þörf fyrir slíka meðferð." Ungt fólk áhugasamt Ása Helgadóttir hefur starfað á skrifstofu verslunar- og skrifstofu- fólks síðan árið 1974, fyrst í hluta- starfi en nú um 2ja ára skeið í fullu starfi. Er þetta lifandi starf í þeim skilningi að félagsmenn séu í tengslum við skrifstofuna sína? Koma til dæmis margir þangað í eigin persónu? „Já, mjög margir. Algengast er að fólk grennslist eftir upplýsing- um um laun, samninga og lífeyris- sjóðsmál. Það sem mér þykir kannski skemmtilegast er hvað það kemur mikið af ungu fólki hingað til mín. Það er mjög áhugasamt og vakandi um sín mál og mér finnst það lofa góðu upp á framtíð félagsins“ segir Ása Helgadóttir. Stéttarbarátta fyrr og nú - Rætt við Ólaf Aðalsteinsson sem hefur verið í stéttarfélagi í 58 ár Ólafur Aðalsteinsson gekk í verkalýðsfélag þegar hann var sextán ára gamall og hefur jafnan látið sig miklu skipta málefni síns stéttarfélags síðan þá. Hann fæddist 1907 og er því sjötiu og fjögurra ára gamall. Samt er hann enn virkur í fé- lagsmálum og á fimmtíu ára af- mæli Félags verslunar- og skrif- stofufólks var hann gerður að heiðursfélaga. Hann er spurður um starf í stéttarfélagi fyrr og nú. „Það sem réði afstöðu manns á árum áður var atvinnuleysið" segir hann. „Þá fengu menn tæpast vinnu nema gegnum vinskap, frændsemi eða pólitík. Ég var býsna róttækur í þá daga, sem var eðlilegt, því þeir sem hugsuðu eitt- hvað sáu í hendi sinni hver hörm- ung það var þegar hraustir menn sem vildu vinna, fengu það ekki. Á þessum árum var baráttan oft ákaflega hörð og kom jafnvel til átaka. Þetta var kannski fleiri vikna barátta fyrir fimm til tíu aurum á tímann. Svo voru menn látnir gjalda þess að vera starfandi í verkalýðsfélagi og fengu síður vinnu en aðrir. Þetta ástand ríkti þar til 1940, en þá kom herinn og með honum breyttist allt. Urðu að undirskrifa lög Alþýðuflokksins Þegar eftirspurn verður eftir vinnu fara félögin að fá meira fram og frá þessum tíma er eiginlega ekki hægt að segja annað en að al- þýða manna hafi haft það sæmi- legt, þótt það sé svo sem ekkert til að dást að. En fátæktin var svo gífurleg hér áður, að fólk komst kannski ekki til kirkju vegna klæðaleysis, — það átti ekkert mannsæmandi utan á sig. Við slík- ar aðstæður var ekki nema eðlilegt að myndaðist kjarni af kommún- istum í verkalýðsbaráttunni, þótt Ólafur Aðalsfeinsson. þeir væru náttúrlega ekkert annað en róttækir jafnaðarmenn. Verka- lýðsfélagið Eining hét áður Verka- mannafélag Akureyrar og var stofnað af róttækum. Síðar stofn- uðu jafnaðarmenn annað verka- mannafélag og atvinnurekendur gleyptu við því til að þurfa ekki að ráða kommúnista. Fyrra félagið var aldrei í Alþýðusambandi Islands því þá fengu félög ekki að vera í því nema undirskrifa lög Alþýðu- flokksins, eða því sem næst. Þetta ástand ríkti í mörg ár, þó áhugi væri mikill hjá ýmsum að sameina fé- lögin, sem tókst á endanum. Fyrsti formaður hins sameinaða félags var Marteinn Sigurðsson. Við þetta skapaðist meiri styrkur gagnvart atvinnurekendum og upp úr þessu fór kjarabaráttan að hafa meiri áhrif og gera meira gagn.“ Úr öskustónni Árið 1964 fer Ólafur að starfa sem lagermaður en hafði áður ver- ið ófaglærður verkamaður. f fram- haldi af því gengur hann í Félag verslunar- og skrifstofufólks og hefur lengst af verið í stjórn þess félags eða varastjórn síðan. „Þegar ég gekk í félagið var starfsemin lömuð því það hafði ekki úr neinu að spila. Formanni þess var lagt til lasts hvað lítið starf væri unnið þótt ekki væri til fé til neins. Ég lagði þá til að félagsgjald yrði 1 % af launum og það var sam- þykkt, — þótt merkilegt megi virð- ast. Úr þessu rís félagið algerlega úr öskustónni og jafnframt vex sam- hugur félagsmanna þegar þeir sjá að unnið er af fullum krafti. Upp úr því hefur starfsemin verið góð. Fé- lagið eignast húsnæði og ræður starfsmann, Ásu Helgadóttur, sem hefur verið einstök í þessu starfi. Ég efast um að hægt hefði verið að fá duglegri manneskju. Aldrei pólitísk átök í þessu félagi hefur aldrei komið til pólitískara átaka og er hægt að hrósa því fram yfir flest önnur félög sem ég þekki til hvað þetta snertir. Sú umræða sem farið hefur fram í þessa átt í blöðunum í Reykjavík undanfarið þar sem reynt er að gera Björn Þórhallsson og Magnús L. Sveinsson tortryggilega með því að blanda stjórnmálaskoðunum þeirra inn í umræðu um kjaramál er að mínu mati alveg út í hött. Ég er búinn að vinna með þessum mönnum um árabil og veit að þeir vinna af heilindum. Hvað félagið okkar héma á ^Akureyri snertir, vil ég taka fram til gamans af því kvennabaráttan hef- ur verið í umræðunni upp á sið- kastið, að í stjórninni hjá okkur eru fjórar konur og fjórir karlar. Auk þess er formaðurinn kona svo aug- ljóst má vera að þetta félag er í takt við tímann" sagði Ólafur Aðal- steinsson. „Ekkert félag er betra en þeir sem eru í því‘ ‘ „Það er alltof algengt að fólk sýni þeim félögum sem það er í lítinn áhuga. Oft er sagt „Af- hverju ætti ég að vera að mæta á þessa fundi?" En það er auðvitað deginum Ijósara, að ef enginn mætir, er ekkert gert. Ekkert félag er betra en þeir sem eru í því og ég held að mér þyki svona vænt um féiagið okkar hér á Akureyri af því það er svo gott fólk sem þar starf- ar.“ Það er Halldóra Vilhjálms- dóttir sem gefur stéttarfélaginu sínu þennan vitnisburð þegar hún er beðin að lýsa því hvaða viðhorf hún hafi til þess. Halldóra starfar hjá fyrirtækinu Höldur h.f. og er í Félagi verslunar- og skrifstofu- fólks á Akureyri. Hún var spurð hvort hún yrði mikið vör við þá starfsemi sem fer fram á vegum félagsins. „Maður verður lítið var við starfið fyrr en maður fer að kynna sér það, en þá kemur manni líka á óvart hvað þar er mikið gert, og hvað það er vel gert. Mér finnst ekkert stofnanalegt við þetta fé- lag. Mannlegi þátturinn er I önd- vegi. Það hafa verið haldin margvísleg námskeið, svo sem um félagsmál, tryggingamál og holl- ustuhætti á vinnustöðum. Einnig var Dale Carnegie námskeið hér í fyrra. Mér finnst þetta félag hafa komið miklu til leiðar fyrir félagsmenn sína og það mættu gjarnan vera fleiri virkir í starfinu innan þess. Að vísu tekur félags- starfsemi mikinn tíma ef vel á að vera, en hún er líka bæði skemmtileg og þroskandi" segir Halldóra Vilhjálmsdóttir. Halldóra Vilhjálmsdóttir. Kolbeinn Sigurbjörnsson. Sjálfstæðis- barátta hin nýja — Er launabaráttan öðruvísi á landsbyggðinni en á Stór- Reykjavíkursvœðinu? Þessari spurningu er beint til Kolbeins Sigurbjörnsson- ar stjórnarmanns í Félagi verslunar- og skrifstofufólks á Akureyri og fyrrverandi formanns. „Hún er einna helst frá- brugðin að því leyti, að á minni stöðum verða hlutirnir per- sónulegri" segir hann. „Menn veigra sér fremur við að beita mikilli hörku og rétturinn þess- vegna oft ekki sem vera skyldi. Þess má þó geta að á upp- gangsstöðum er gjarnan nokk- uð um yfirborganir. Oftast er þó unnið í samræmi við heildar- samninga landsamtakanna." — Hvernig mynclirðu skil- greina hlutverk félagsins í dag og stöðu þess? „Hlutverkið er eitt og eilíft, — að standa vörð um hagsmuni félagsmanna og kappkosta að efla sífellt og bæta hag félagsins Eitt er víst, að naumast mun verða þurrð á verkefnum á næstunni. Staða félagsins í dag er sterk og félagsandi er góður. Hitt er annað mál, að innan heildar- samtaka, bæði verslunarmanna og ASÍ, ætti jafn öflugt félag og FVSA að láta miklu meira til sín taka. Sú hugsun er áleitin hjá stjórnarmönnum, að eitt af því sem fælir fólk frá þátttöku í fé- lagsstörfum verkalýðsfélaga, sé hræðsla um að samningamál og þessháttar séu einungis orðin á færi sérfræðinga. Þetta er mikill misskilningur. Þótt þessi mál séu að vísu orðin nokkuð þvæl- in er engum manni vorkunn að setja sig inn í þau svo að gagni megi verða.“ — Framtiðarmarkmið? „Það sem heitast brennur á verslunarmönnum nú er sú staðreynd, að þjóðfélag okkar virðist komið út í slíkan víta- hring alltof flókinna laga og reglugerða og að sá burðarstólpi sem verslun er sé að bresta. Það skiptir ekki máli hvort átt er við atvinnurekendur eða launþega innan stéttarinnar. Hagsmunir allra eru í húfi að verslunin haldist í landinu en flytjist ekki á erlendar hendur. Þessa bar- áttu má kalla sjálfstæðiábaráttu hina nýju“ segir Kolbeinn Sigurbjörnsson. 2 - Viðskiptf & verzlun

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.