Dagur - 06.08.1981, Blaðsíða 6
Akureyrarkirkja messað næst-
komandi sunnudag kl. 11 f.h.
Sálmar: 450, 186, 117, 42, 531.
B.S.
Hinn 18. júlf voru gefin saman í
hjónaband í Akureyrarkirkju
Ragnheiður Skúladóttir starfs-
stúlka Sólborg og Árni Valdi-
mar Kristjánsson, matreiðslu-
maður. Heimili þeirra verður að
Steinahlíð 2b, Akureyri.
Hinn 25. júlf voru gefin saman í
hjónaband í Akureyrarkirkju,
Hólmfríður Sigríður Kristjáns-
dóttir hjúkrunarfræðinemi og
Unnar Þór Lárusson tölvu-
fræðinemi. Heimili þeirra verð-
ur að Birkigrund 3, Akureyri.
Hinn 29. júlí voru gefin saman í
hjónaband í Akureyrarkirkju,
Linda María Maggin starfs-
stúlka og Finnbogi Unnsteinn
Gunnlaugsson verslunarmaður.
Heimili þeirra verður að Tjarn-
arlundi 17f Akureyri.
Brúðhjón. Fimmtudaginn 30
júlí voru gefin saman í hjóna-
band í Akureyrarkirkju brúð-
hjónin ungfrú Fanney Gerða
Gunnarsdóttir, hárskeri og
Hallgrímur Gísli Sverrisson,
vélstjóri. Heimili þeirra er Arn-
arsíða 4d.
Verð í sumarleyfi frá og með 10
ágúst til-3. september. Séra Pét-
ur Sigurgeirsson annast þjón-
ustu fyrir mig þennan tíma.
Birgir Snæbjörnsson.
Sjónarhæð
Heimsókn. Tuttugu manna
hópur frá Færeyjum heimsækir
Akureyri n.k. sunnudag 9.
ágúst. Hann kemur frá Reykja-
vík þtrr sem kristilegum ritum
hefir verið dreift. Þeir halda
eina samkomu að þessu sinni á
Sjónarhæð n.k. sunnudag kl.
20.30. Fararstjóri hópsins er
Zacharias Zachariasen. trúboði.
og mun hann tala á samkom-
unni. Verið hjartanlega vel-
komin og látið aðra vita af
heimsókn þessari.
Hjálpræðisherinn: Sunnudag-
inn n.k. kl. 20.30 almenn sam-
koma. Allir velkomnir. Krakkar
munið barnasamkomuna á
fimmtudögum kl. 17.30 í
Strandgötu 21. Kvikmynd og
fleira á dagskrá.
Munið sumarmótið. Sjálfsbjörg
Akureyri minnir félaga sína á
áður auglýst sumarmót Sjálfs-
bjargarfélaganna í Laugar-
brekkuskóla dagana 14,-16
ágúst. Væntanlegir þátttakend-
ur þurfa að láta skrá sig í síðasta
lagi mánudaginn 10. ágúst á
skrifstofu félagsins sími 21557,
sem veitir nánari upplýsingar.
Sjálfsbjörg.
Frá Ferðafélagi Akureyrar.
9.-14. ágúst. Fjallabaksleið
syðri. Sprengisandur, Land-
mannalaugar, Eldgjá, Fjalla-
baksleið, Kjölur. 15-16. ágúst.
Laugafell. Lambahraun, Gráni.
Ferð fyrir alla fjölskylduna.
Þorleifur Ananíasson
Kristján Arngrímsson
GUNNAR VARD
MEISTARI
„Nei, blessaður vertu, ég átti
alls ekki von á því að sigra“
sagði Gunnar Gunnarsson
Golfklúbbi Akureyrar í samtali
við DAG, en Gunnar varð um
helgina fslandsmeistari í 3.
flokki í golfi er fslandsmótinu
lauk á Hólmsvelli í Leiru rétt
hjá Keflavík.
„Ég var með 23 I forgjöf þegar
mótið hófst, en mér skilst að nú
verði ég lækkaður í forgjöf 16. Ég
átti hinsvegar besta hring upp á
83 högg og það skilst mér að
samsvari 13 í forgjöf" sgði
Gunnar.
— Gunnar var mjög liðtækur
knattspyrnumaður sem lék með
KA þar til í fyrra að hann
meiddist illa, og þá sneri hann sér
að golfinu. Hann byrjaði þó ekki
að stunda íþróttina að kappi fyrr
en í sumar, og má til gamans geta
þess að fslandsmótið var aðeins
annað mótið sem hann tekur þátt
í á sínum ferli. Er óhætt að segja
að margur hefur fengið verri
byrjun.
Gunnar hafði forustuna í
keppninni allt frá upphafi, mest
fjögur högg ersíðustu 18holurnar
voru eftir. Magnús Magnússon
GR saumaði þá stíft að honum og
þegar einni holu var ólokið mun-
aði aðeins einu höggi á þeim.
Gunnar gaf hinsvegar ekkert eft-
ir, lék síðustu holuna á þremur
höggum eða einu undir pari -—
setti niður 8 metra pútt — en
keppinauturinn lék á 5 höggum.
Gunnar sigraði því með þriggja
högga mun, lék á 352 höggum,
Magnús á 355 höggum og síðan-
var þriðji maður 20 höggum þar á
eftir. Sigur Gunnars var sá eini
sem kom í hlut Akureyringa á ís-
landsmótinu 1981.
A lúðar þakkir sendi ég til allra þeirra sem á marg-
vislegan hátt glöddu mig 90 ára þann 23. júlí s.l. og
gerðu mér daginn ógleymanlegan. Verið þið öll
góðum guði falin.
SOFFÍA JÓHA NNESDÓTTIR URÐUM.
Eg sendi vinum og vandamönnum mínar bestu
kveðjur ogþakkirfyrir heimsóknir og aðra vinsemd
mér sýnda á 90 ára afmœli mínu 28. júlí s.l. Sér-
stakar kveðjur og þakkir til Gyðu hjúkrunarkonu
og a/ls annars starfsfólks á Kristneshœli.
VIGFÚS VIGFÚSSON
Þökkum auðsýnda samúð vegna andláts föður okkar
KRISTJÁNS SIGURBJÖRNSSONAR
frá Eyri Glerárhverfi.
Börnin.
Móðir okkar
RAGNHEIÐUR KRISTIN KRISTJÁNSDÓTTIR,
frá Sveinseyri,
Norðurbyggð 23, Akureyri
andaðist að Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri þann 31. júlí.
Jarðarförin fer fram föstudaginn 7. ágúst kl. 13.30 frá Akureyr-
arkirkju. Þeir sem vildu minnast hennar láti sjúkrahúsið njóta
þess.
Sigríður Matthíasdóttir,
Þórunn Matthíasdóttir,
Guðmundur Matthíasson.
Maðurinn minn og faðir okkar
ALFREÐ ÁSMUNDSSON,
frá Hlíð, Ljósavatnshreppi,
Lögbergsgötu 5, Akureyri,
lést 30. júlí á Sjúkrahúsi Húsavíkur.
Jarðarförin fer fram frá Þóroddsstaðakirkju laugardaginn 8.
ágúst kl. 2 e.h.
Dagrún Jakobsdóttir
og börn.
Gunnar með sigurlaunin.
K A í topp-
baráttu
Annað kvöld, föstudag kl.
20,00, fer fram leikur í 1. deild
íslandsmótsins hér á Akureyri
sem er geysilega mikilvægur
fyrir þau lið sem þar eigast við,
en það eru KA og íslands-
meistarar Vals.
Frammistaða KA í 1. deiidinni
í sumar hefur gert það að verkum
að liðið er allt í einu komið í hóp
allra efstu liðanna, og sigur gegn
Val í leiknum á morgun myndi
skjóta liðinu upp að hlið efstu liða
deildarinnar. Sennilega hafa fáir
reiknað með því í vor að K A yrði I
baráttu um íslandsmeistaratitil-
inn, en það er staðreynd. Er fólk
hvatt til þess að styðja við bakið á
KA nú þegar lokabaráttan í
deildinni er að hefjast.
Þór fer suður
Þórsarar halda suður til Reykja-
víkur og mæta Víking í Laugar-
dalnum á laugardag kl. 14.
Tekst Elmari Geirssyni að
leiða KA til sigurs?
• Til
blaðburðar-
barna
Nú eigið þið öll að hafa feng-
ið bréf frá afgreiðslu Dags.
Munið að keppnin hefst í dag.
Tilboð óskast í þennan bíl
sem er árgerð 1978.
Upplýsingar gefur Þórir Áskelsson,
Norðurgötu 53, Akureyri.
Nýkominn
hákarl
A
KAUPFELAG EYFIRÐINGA
’öéKjörbúdir
X!
6 - DAGUR - 6. ágúst 1981