Dagur - 22.09.1981, Side 8
BAGUE
Akureyri, þriðjudagur 22. september 1981
Bilaperar
■ ciecTAR
6-12 og 24 volta TEGUIHHR
SAMLOKUR
fyrir og án
peru
Jón Hlöðver við nýja pípuorgelið. Það lætur ekki mikið yfir sér, en á vafalaust eftir að
koma að góðum notum f framtiðinni. Mynd: áþ.
Sá fyrsti sem
fær pípuorgel
Saga
Húsa-
víkur
Nýlega er komin út Saga Húsa-
víkur, 1. bindi. Aðalhöfundur
verksins, Karl Kristjánsson
fyrrum alþingismaður lézt 1978,
áður en handrit hans var fullbú-
ið til prentunar, en Kristján
Karlsson og Ingimundur Jóns-
son hafa séð um útgáfu þessa
bindis.
Fyrsti kaflinn er mikil ritgerð
eftir Sæmund Röngvaldsson og
heitir Húsavík fyrri tíma, með
undirfyrirsögninni: Verslun,
brennisteinsnám og kirkja. Er hér
fjallað rækilega um efni sem lítið
hafa verið rannsökuð fyrr. Húsatal
nefnist langur þáttur, þar sem lýst
er hverju húsi í kaupstaðnum og
víða vikið að sögu eldri húsa. Þá
eru þættir um prestsetrið og gamlar
hjáleigur þess og um jarðir sem
lagðar hafa verið til kaupstaðarins
og sagt frá fólki sem þar bjó. Yfir-
leitt er mikil persónusaga í bókinni,
svo sem þættir af svetarstjórnar- og
bæjarstjórnarmönnum. læknum,
prestum, sýslumönnum og bæjar-
stjórnarmönnum. læknum, prest-
um, sýslumönnum og bæjarstjór-
um. Alllangir þættir eru um Kaup-
félag Þingeyinga og um Funda-
félag Húsvíkinga, merkilegt félag,
sem átti á sínum tíma drjúgan hlut
að framfaramálum kauptúnsins.
Ýmsir fleiri kaflar eru í bókinni.
Hún er prýdd miklum fjölda
mynda af fólki, mannvirkjum og
staðháttum.
Tónlistarskólinn á Akureyri
hefur eignast pípuorgel og mun
vera fyrsti tónlistarskóli lands-
ins sem á slíkan grip. Orgelið,
sem var keypt af popparanum
góðkunna Karli Sighvatssyni,
hefur fjórar raddir — þ.e. fjórar
gerðir af pípum. Það var smíðað
í Austurríki 1977 af þekktum
orgelsmið, Gerhard Hradepzky.
Sá hinn sami er nú að smíða
orgel fyrir Langholtskirkju.
„Karl Sighvatsson notaði þetta
orgel ákaflega lítið, en það keypti
hann þegar hann var við nám í
Austurríki og flutti hljóðfærið með
sér heim 1979,“ sagði Jón Hlöðver
Áskelsson, skólastjóri Tónlistar-
skólans þegar hann sýndi blaðam.
Dags hljóðfærið. „Við þennan
skóla hefur verið rekin mjög öflug
orgeldeild og nokkrir nemendur
Rauði kross Islands hefur þegið
boð ferðaskrifstofunnar Útsýn-
ar um afslátt á ferðum lífeyris-
þega í nokkrum tilteknum ferð-
um til Spánar í vetur. Er öllum
lífeyrisþegum, jafnt félögum
Rauðakrossins sem öðrum, gef-
inn kostur á 500 króna afslætti
frá auglýstu verði Útsýnar í
fjórum sex vikna ferðum til
Costa del Sol. Brottfarardagar
héðan hafa farið í framhaldsnám í
orgelleik. Sumir hverjir eru nú
orgelleikarar við kirkjur. Þetta
hljóðfæri mun vafalaust koma til
góða tónlistarstarfi í landinu þegar
fram í sækir.“
Á þessu orgeli er nú aðeins eitt
hljómborð, en Jón sagði litlum
vandkvæðum háð að bæta við öðru
hljómborði og tveimur viðbótar-
röðum af pípum. f hljóðfærinu eru
eitthvað á 3ja hundrað pípur. Hver
pípa er handsmíðuð eins og raunar
hljóðfærið allt. Pípuorgelið verður í
nýjum tónleikasal, sem nú er verið
að innrétta í húsnæði skólans.
Skólasetning Tónlistarskól Akur-
eyrar verður n.k. föstudag kl. 17 í
Akureyrarkirkju, en ekki í dag eins
og sagði í síðasta blaði. Skólasetn-
ingunni var frestað af óviðráðan-
legum ástæðum.
eru 22. október, 3. desember, 14.
janúar og 25. febrúar.
í gildi ersérstakur50% afslátturá
innanlandsflugi ellilífeyrisþega,
sem gerir eldra tolki utan af landi
hagstæðara að nota sér þessi kjör.
Upplýsingar um þessar ferðir
fást hjá umboðsmanni Útsýnar á
Akureyri, Aðalsteini Jósepssyni í
Bókval, og um afslátt í innanlands-
flugi hjá Ferðaskrifstofu Akureyrar
við Ráðhústorg.
Afsláttur fyrir aldraða
— innanlands og í sólarlandarferðum
Smábátahöfn á Siglufirði
september eins og venjulega, en
þá er eins og þeir vakni af dvala.
Nú á að fara að ganga endan-
lega frá togarabryggjunni, en
krikarnir voru ófrágengnir.
Stórgrýti verður sprengt einhvers
staðar utan úr fjalli og grjótgarðar
gerðir' sitt hvoru megin við
bryggjuna. Þá eru að hefjast fram-
kvæmdir við innri höfnina. Þar
verður búinn til grjótgarður í norð-
ur frá þeim stað, þar sem stálþilið
endar í fullri hæð. Þar eiga smærri
dekkbátar og trillur að liggja. Ann-
ars skilur það raunar enginn maður
hvernig stóð á því, að skorið var
ofan af stálþilinu, sem búið var að
reisa með miklum myndarbrag.
Gárungarnir segja raunar að ef
veður hefði leyft, hefði verið skorið
ofan af öllu þilinu. Það sem eftir
stendur kemur nú að góðum notum
sem smábátalægi. S.B.
Siglufjörður 15. scptembcr
Starfsmenn Vita- og hafnar- komnir á staðinn og eru að hefja
málaskrifstofunnar eru nú framkvæmdir, — um miðjan
I þessum krika í innri höfninni á Siglufirði er nú verið að hefjast handa við gerð
smábátahafnar. Grjótgarður kemur út frá stálþilinu, þar sem það er í fullri hæð.
Stálþilið náði á sínum tíma alveg út á enda á uppfyllingunni, en síðan var skorið ofan
af því og erfiðlega hefur gengið að fá skýringar á þvl, hvers vegna það var gert. Mynd
H.Sv.
fp T MT n f 1 úTT
11 ílll j Lb S _ Jju_
§ Sérhæfðir
lögregluskór
Eins og framkemur á forsíðu
þessa blaðs hefur Dómsmála-
ráðuneytið ákveðið að kaupa
500 pör af „Sérhæðum" lög-
regluskóm frá Þýskalandi, og
eiga verðir laganna á landi
voru að íklæðast þessu
skótaui sem er af gerðinni
MANZ.
f viðtalinu við Hjalta
Zóphóníasson deildarstjóra í
Dómsmálaráðuneytinu kemur
fram að ein af ástæðum þess
að skórnir eru keyptir frá
Þýskalandi sú, að hér sé um að
ræða „sérhæft" skótau, og þá
vitum við það.
£ Leynilög-
regluskór?
En hvernig skyldu „sérhæfðir
lögregluskór" iíta út? Við
fengum nokkra menn til þess
að velta því máli fyrir sér yfir
helgina, og komu niðurstöður
þeirra í gærmorgun frá svefn-
vana hugsuðunum. Voru uppi
margar tilgátur um hvers konar
skór hér væru á ferðinni, og
skulu nokkrar raktar hér.
Einn hugsuðurinn áleit það
nokkuð víst, að hér væri um að
ræða svokallaða „leynilög-
regluskó", skó sem væru út-
búnir ýmsum tólum og tækjum
s.s. talstöðvum, blikkljósum,
handjárnum og taktmæli. Taldi
þessi „hugsuður að tllkoma
þessa skótaus á fótum ís-
lenskra lögreglumanna myndi
valda byltingu hérlendis í allri
löggæslu.
£ „Tilgengnir“
skór?
Frá einum kom fram tilgáta um
að „sérhæfðu skórnir" væru
búnir að gangast undir sér-
stakt próf í MANZ-verksmiðj-
unum þýsku. Þeir væru orðnir
„tilgengnir" (samanber að
pípur eru tilreyktar og bifreiðar
tilkeyrðar). Var það álit þessa
„hugsaðar" að með þessum
nýja skóbúnaði mætti nýta
lögreglumenn í götulögreglu
fram á tíræðisaldur, gangan
væri svo mun léttari og
átakaminni.
En sú tllgáta sem kom okkur
mest á óvart, og olll reyndar
nokkru uppnámi er hún var sett
fram, var að hér væri um að
ræða gamlar þýskar birgðir af
skóm frá stríðsárunum, svo-
kallaða SS skó. Benti þessi
sami vlðmælandi okkar á að
SS stæði sennilega í þessu til-
felli fyrir „special service" og
værl það sökum þess að á tá
þeirra væri stálhlíf sem gjarn-
an væri beitt f návígi. Sagðist
þessi „hugsuður“ óttast mest
að íslenska lögreglan myndi
taka upp nýjar aðferðlr í sam-
skiptum sínum við almenning
um leið og hún væri komin
með þessa skó á fæturna.
NÝ GLÆSILEG
BIFREIÐ
í ,,FLOTANN“
Flugbjörgunarsveitinni á Akur-
eyri bættist nýlega glæsileg bif-
reið í flota sinn. Er hér um að
ræða bifreið af gerðinni FORD
ECONOLINE 350.
Fyrir voru í flota sveitarinnar
tveir snjóbílar og tveir bílar á hjól-
um, Dodge Weepon 1942 árgerð og
„Rússajeppi“. Er ekki að efa að
með tilkomu nýja bílsins er sveitin
mun betur í stakk búin en áður að
sinna útköllum.
Myndin sýnir er Árni Björnsson
framkvæmdastjóri Bílasölunnar
h/f (lengst til vinstri) afhendir Birni
Sigmundssyni varaformanni Flug-
björgunarsveitar Akureyrar lykl-
ana að nýju bifreiðinni. Til hægri á
myndinni er Stefán Baldursson, en
hann sér um bifreiðakost Flug-
björgunarsveitarinnar. Ljósmynd
gk'-
Flugbjörgunarsveitin á Akureyri: