Dagur - 06.10.1981, Side 8
Akureyri, þriðjudagur 6. október 1981
mmm
■HWI
ÚTTEKT Á LÖG-
REGLUSTÖDVUM
f þessum mánuði verður gerð út-
tekt á öllum lögreglustöðvum
landsins. Verkið er unnið á veg-
um Landssambands lögreglu-
manna og dómsmálaráðuneytis-
ins.
Það eru þeir Þorsteinn Pétursson,
lögreglumaður á Akureyri og Þor-
grímur Guðmundsson. lögreglu-
maður í Reykjavík, sem munu aka
hringinn í kringum landið og gera
úttektina.
Þorsteinn Pétursson sagði að
víða um land væri ástand lögreglu-
stöðva bágborið og nefndi sem
dæmi að á einum stað væri lög-
reglustöð í bíiskúr og á Seyðisfirði
var byggingin ekki traustbyggðari
en svo að hún fauk s.l. vetur eins og
mönnum er í fersku minni. „Við
munum kanna jafnt aðstöðu lög-
reglumanna og ástand fangaklefa,“
sagði Þorsteinn.
Refalæður að
Böggvisstöðum
Nú er unnið að byggingu nýs
skála við minkabúið að
Böggvisstöðum á Dalvík. í hon-
um verða vistaðar refalæður,
sem eru þær fyrstu sem búið fær.
Gert er ráð fyrir að í skálanum,
sem er 2.300 m2 að stærð, verði
pláss fyrir um 300 refalæður.
Fyrstu 150 læðurnar koma frá
Grenivík um miðjan desember.
Þess má geta að nú eru um 3000
minkaeldislæður í búinu að
Böggvisstöðum. AG.
Aflaskipið Sigurður á leið í slipp. Myndin var tekin seint um kvöld. Mynd:áþ.
SKÁK-
FELAG
AKUR-
EYRAR
INÝTT
HÚSNÆÐI
„Við höfum verið í miklum hús-
næðisvandræðum og það hefur
staðið allri starfssemi félagsins
mjög fyrir þrifum“ sagði Karl
Steingrímsson formaður Skák-
félags Akureyrar í samtali við
DAG, en Skákfélagið flytur n.k.
laugardag í nýtt húsnæði að
Strandgötu 19b.
„Við óskuðum eftir því að fá
þetta húsnæði keypt af bænum, en
fengum ekki“ sagði Karl. „Við
fengum það hinsvegar leigt til
nokkurra ára og það mun valda
byltingu í allri starfssemi okkar að
flytja þar inn.“
— Félagar í Skákfélagi Akur-
eyrar eru um 100 talsins, og er
óhætt að segja að helmingur þeirra
sé vel virkur og taki þátt í starfinu.
Mikil gróska hefur verið í öllu starfi
félagsins þrátt fyrir húsnæðisvand-
ann, og er ekki að efa að starfs-
semin á eftir að aukast mjög er flutt
verður í hið nýja húsnæði.
Bannað að slátra full-
orðnu fé á Kópaskeri
Starfsmenn Sauðfjárveikivarna
ríkisins ákváðu fyrir skömmu
að tæplega 600 ám úr Keldu-
hverfi skyldi slátra á Húsavík í
stað Kópaskers eins og venja er.
Að sögn Ólafs Friðrikssonar,
kaupfélagsstjóra á Kópa-
skeri,er þetta gert til að reyna
að stemma stigu við útbreiðslu
riðu. Riða er vel þekkt vestan
Jökulsár, en hefur enn ekki náð
fótfestu austan ár.
„Enn er leyft að slátra lömbum
af riðusvæðinu í sláturhúsinu á
Kópaskeri, en talið er að smit ber-
ist ekki milli lamba,“ sagði Ólafur.
Hann kvað skiptar skoðanir vera
um gagnsemi þessa banns, og tók
það fram að í rauninni vissu menn
ekki hvað riða væri né heldur hvem
ig hún bærist á milli kindanna.
Riða leggst eingöngu á fullorðið fé.
í skeyti sem barst frá Sauðfjár-
veikivörnum segir: „Vegna
riðuvarna hefur verið ákveðið að
öllu fullorðnu fé úr Keldunes-
hreppi verði lógað á Húsavík. Til
nánari útskýringar skal þess getið
að heimila má að þessu sinni lógun
á veturgömlum hrútum á Kópa-
skeri fyrir tímamörk sem sett verða
varðandi kjöt á hrútum nema unnt
sé að fá þeim lógað á Húsavík fyrir
sett tímamörk. Varasemi skal þó
gæta við slátrun þeirra á Kópa-
skeri. Þetta gildir þó í engu tilfelli
um kindur sem hafa riðuveikiein-
kenni. Þær má alls ekki flytja til
Kópaskers.
Þessi ákvörðun er tekin í þeim
tilgangi að efla varnir Norðaustur-
lands og er þess vænst að þeir sem
verða fyrir óþægindum af völdum
hennar taki henni með skilningi.“
Þess eru dæmi að bændur í
Kelduhverfi hafi misst fjölmargar
ær úr þessari veiki, sem er einnig
þekkt víðar á landinu. Veiki þessi
er svo skæð að fé hefur verið alveg
skorið niður á einstaka bæ hér á
landi.
TRESMKMR FOR-
DÆMAINNFLUTNING
Fundur í Trésmiðafélagi Akureyrar, sem haldinn var á dögunum,
lýsti yfir miklum áhyggjum yfir þeim mikla samdrætti, sem orðið
hefur í byggingu íbúðahúsnæðis á Akureyri. Jafnframt fordæmdi
fundurinn „hömlulausan innflutning fullunninar trévöru — hús-
gagna, innréttinga og tilbúinna húsa.“
í frétt frá Trésmiðafélagi Ak-
ureyrar, kemur fram að fyrir
nokkrum árum var á Akureyri
blómleg húsgagnaframleiðsla,
sem að mestu er aflögð í dag.
Fundurinn skoraði því á þing-
menn kjördæmisins að beita sér
fyrir því að grundvöllur inn-
lendrar húsa- og húsgagnafram-
leiðslu verði efldur, t.d. með nið-
urfellingu tolla af hráefni og vél-
um.
„Fundurinn skorar á bæjar-
stjórn Akureyrar og þingmenn
kjördæmisins að greiða fyrir og
stuðla að uppbyggingu atvinnu-
tækifæra á Akureyri og Norður-
landi öllu, þannig að ávallt verði
þar næg atvinna.“
Einnig hvatti fundurinn alla
Norðlendinga til samstöðu um
Blönduvirkjun og beindi þeirri
áskorun til bæjarstjórnar Akur-
eyrar að hún beitti áhrifum sínum
til að knýja á um Blönduvirkjun.
„Það er skoðun trésmiða á Akur-
eyri að slík virkjun stuðli mjög að
fjölgun atvinnutækifæra í bygg-
ingaiðnaði og iðnaði á Norður-
landi, einnig í hinum ýmsu
þjónustugreinum.“
„Fundurinn bendir á að orku-
frekur iðnaður er nauðsyn til
fjölgunar atvinnutækifæra og
uppbyggingu fjölbreytts iðnaðar
sem víðast."
—
• Einkennileg
afstaða
Á Landspítalanum liggur ung-
ur maður, sem tllheyrír
söfnuði Votta Jehova, þungt
haldinn af bráðahvítblæði, en
fær ekki blóðgjöf af trúar-
ástæðum. í reykvísku blaði
segir Einar Sigurbjörnsson,
prófessor, að sú túlkun Votta
Jehova, að neita blóðgjöf
bygglst á ákaflega frumstæð-
um mannskilningi. „Ég held að
Vottar Jehóva byggi þennan
misskilnlng sinn á þeirri
skoðun Gamla Testamentisins
að sálin sé í blóðinu og þess
vegna álíti Vottar Jehóva að
þeir séu að gefa af sinni eigin
sál þegar þeir gefa blóð og
þyggja af sál annarra þegar
þeir þiggja blóð.“ .... „Við
lútherskir menn teljum að
þessi túlkun Gamla Testa-
mentisins á blógjöfum sé eitt
af því sem Kristur hafi afnum-
ið,“ sagði Einar. Þess eru
dæmi erlendis frá að fólk úr
þessum söfnuði hafi látist
vegna þess skilnfngs sem
lagður er í blóðgjöf ina.
• Ætlaheild-
salar.......
Sá orðrómur er á kreiki í bæn-
um að nokkrir heiidsalar á Ak-
ureyri hafi í hyggju að stofna
og starfrækja stórmarkað.
Ástæðan mun vera sú að stöð-
ugt fækkar viðskiptavinunum
og er skemmst að minnast
þess að Kaupfélag verka-
manna hætti starfsemi og
Bjarni í Bjarnabúð leigðí KEA
húsnæði sitt. Sem sagt: við-
skiptavinirnir hverfa og þá er
ekki um annað að ræða en
að drífa sig af stað og fara að
selja í smásölu.
• Enginupp-
gjafartónn
„Það kemur fram í Degi að
e.t.v. hætti þetta fyrirtæki
starfsemi. Það er ekki rétt og
ekkert bendir í þá átt. Fyrir-
tækið hefur og mun selja allar
tryggingar áfram og hefur
staðið við og mun standa við
allar sínar skuldbindingar,"
sagði Halldór Jónsson, fram-
kv.stj. Norðlenskrar trygging-
ar vegna klausu í Smáu og
stóru fyrir helgi, en sú klausa
var tekin upp úr Visi og var
dregin ályktun af ummælum
Halldórs og Erlendar Lárus-
sonar, forstöðumanns Trygg-
ingaeftirlits ríkisins.
Halldór sagði að e.t.v. væru
væntanlegar einhverjar minni-
háttar breytingar á félaginu.
Hins vegar verður fundur
hluthafa innan tíðar og þá
verða málefni fyrirtækisins
rædd gaumgæfilega og m.a.
sú staðreynd að ekkl hefðl tek-
ist að auka hlutafé í fyrirtækinu
þrátt fyrir útboð. „Það er verið
að vinna í þessum málum eins
og er og stutt í að liggi fyrir nið-
urstaða," sagði Halldór.