Dagur - 08.10.1981, Page 8
ERFIÐLEIKAR
í SAMGÖNGUM
NORDANLANDS
fyrrahaust var afgreiðslutími
símastöðvarinnar á Dalvík
styttur. Um svipað leiti var
símasjálfsali settur upp utan
dyra, en hann þjónaði ekki
lengi. Hjalpaðist allt að: Tæki
klefans voru e.t.v. ekki nógu
góð, umgengni var slæm og
hinn dalvíski vetur var varla
tekinn með í reikninginn.
Síminn hefur verið ónothæfur
síðan í fyrra, en nú á að gera
þar bragarbót á og innan tíðar
á að vera hægt að hringja úr
kiefanum hvert á land sem er.
Arsæll Magnússon, umdæmis-
stjóri, sagði að búið væri að gera
umbætur á hurðarbúnaði klefans
og einnig væri búið að steypa stétt
við hann. Myndin af klefanum var
tekin fyrir tilkomu stéttarinnar.
„Það er rétt að drátturinn er orð-
inn óeðlilega langur, en nú er málið
sem sagt komið í heila höfn og ég
vona að þessi sjálfsali eigi eftir að
þjóna Dalvíkingum vel. Þeir verða
líka að aðstoða okkur og það er
eindregin ósk frá mér til Dalvík-
inga að fara vel með tækin sem eru
mjög dýr,“ sagði Ársæll.
Vetur konungur er genginn í
garð á Norðurlandi. Það hefur
ekki farið framhjá neinum að
undanförnu, og hafa þeir ekki
hvað síst orðið varir við það sem
hafa hugsað sér að ferðast flug-
leiðis eða á landi.
Vélar Flugleiða komust ekki
neina áætlunarferð frá Reykjavík til
Akureyrar frá sunnudagsmorgni og
þar til síðdegis í gærog biðu um 140
manns eftir því að gæfi til flugs
suður. í Reykjavík beið álíka stór
hópur eftir flugi til Akureyrar.
Hjá Flugleiðum fengust þær
upplýsingar að flogið hefði verið til
Sauðárkróks á þriðjudag, og til
Húsavíkur s.l. mánudag.
Landleiðin frá Akureyri til
Bæjarstjórn ákvað á fundi s.l.
þriðjudag að opna innkeyrsluna að
bensínstöð Hölds við Tryggva-
braut. Síðar er ætlunin að breyta
innkeyrslunni og gera hana þannig
úr garði að erfitt verði fyrir öku-
menn að aka út á Tryggvabrautina
þessa leið. Breytingin verður gerð á
Lionsklúbbur Akureyrar
gengst n.k. sunnudag fyrir fjöl-
skylduhátíð í Sjálfstæðis-
húsinu, og verður spilað bingó,
auk þess sem fjölmörg skemmti-
atriði verða á boðstólum.
Húsið verður opnað kl. 14, en
skemmtunin hefst hálftíma síðar.
Bingóvinningarnir eru sérlega
glæsilegir og má nefna myndsegul-
bandstæki, litasjónvarp, 10 gíra
Reykjavíkur hefur verið fær stór-
um bílum til þessa, en á þriðjudag
varð öxnadalsheiðin ófær fólksbíl-
um. Hún var rudd í gær. Þá varð
Ólafsfjarðarmúlinn einnig ófær á
þriðjudag en var opnaður í gær.
Vaðlaheiðin er lokuð og sömuleiðis
Fljótsheiðin en sæmilegt færi að
sögn þar fyrir austan.
Starfsmaður Vegagerðarinnar á
Akureyri sem DAGUR ræddi við,
sagði að þessi ófærð á vegum að
undanförnu væri mun fyrr á ferð-
inni en undanfarin ár. Óhætt mun
að taka undir orð hans, enda hefur
veturinn hafið innreið sína á
Norðurlandi fyrr en menn eiga að
venjast og ollið miklum skaða.
Nægir að minna á að í Eyjafirði
eiga kartöflubændur um 500 tonn
af kartöflum undir snjó.
kostnað Hölds. Að þessu sinni
a.m.k. verður ekki frekar átt við
kantsteininn við Tryggvabraut, en
eins og kunnugt er vilja verslunar-
eigendur neðar við götuna að
skipulaginu verði breytt þannig að
bifreiðar megi stöðva norðan við
verslanirnar.
reiðhjól og flugferðir fyrir tvo til
Reykjavíkur og til baka.
Háðfuglinn Jörundur stjórnar
bingóinu og skemmtir einnig gest-
um. Af öðrum skemmtiatriðum má
nefna tískusýningu, atriði frá
Dansskóla Sigvalda og leik hljóm-
sveitar Karls Jónatanssonar. Kaffi-
veitingar verða gegn vægu gjaldi.
Hér er á ferðinni tilvalin
skemmtun fyrir alla fjölskylduna,
en öllum ágóða af skemmtuninni
verður varið til líknarmála.
KANTURINN
ER FARINN
Lionsklúbbur Akureyrar:
Fjölskyldubingó
og skemmtiatrídi
VERKALYÐSFELAGIÐ EINING
Undirbýr samningagerð
Verkalýðsfélagið Eining hélt
almennan félagsfund fyrir
helgi. Á fundinn mættu 60 til
70 manns. Þar voru gerðar
ýmsar samþykktir, þar á meðal
um hvaða atriði beri að leggja
aðaláherslu á í komandi
samningagerð.
Fundurinn samþykkti að bæta
yrði kjör þeirra lægst launuðu,
draga úr of löngum vinnutíma
fólks og tryggja umsaminn
kaupmátt launa. f öðru lagi að
það væri ófrávíkjanleg krafa að
nýir samningar taki gildi 1. nóv.
Aðeins þannig væri unnt að koma
í veg fyrir að samningar dragist á
langinn og launafólk tapi um-
talsverðum fjárhæðum á drætti
samninga. í þriðja lagi væri
nauðsynlegt að knýja á um
nokkrar félagslegar réttarbætur
fyrir vinnandi fólk. Félagið legg-
ur auk þess fram sérkröfur á
hendur einstökum atvinnurek-
endum og innan einstakra starfs-
greina. Loks fer félagið fram á að
tekið verði tillit til samninga við
Járnblendifélagið, íslenska ál-
félagið og fleiri fyrirtæki í kom-
andi samningagerð og almennir
samningar færðir til samræmis
við þá að sem mestu leyti.
Fundurinn gerði ályktun þess
efnis að samþykkt væri að mæla
með samfloti félaga innan
Verkamannasambands fslands
og annarra þeirra félaga, sem
sömu hagsmuna hafa að gæta
varðandi kröfugerð er lítur að at-
vinnurekstrinum i landinu. Jafn-
framt samþykkti fundurinn að
allar þær kröfur, sem snúa að
ríkisvaldi verði á vegum A.S.Í. og
lögð var áhersla á að styrkur
samtakanna fælist í samtaka-
mættinum.
Kuldarnir aö undanförnu hafa sett sitt mark á blóm i görðum — og fólk klæðist
kuldaskóm. Mynd: á.þ.
a
% Lítill áhugi
eða hvað?
Það kemur fram í frétt á þessari
síðu að 60 til 70 manns hafi
mætt á félagsfund Einingar,
sem haldinn var fyrir helgi. Á
þessum fundi voru teknar
ákvarðanir um stefnuna í kom-
andi samningaviðræðum svo
Ijóst má vera að fundurinn
skipti hreint ekki litlu fyrir hinn
almenna félagsmann Einingar.
Félagsmenn Verkaiýðsfélags-
ins Einingar skipta þúsundum
og samkvæmt upplýsingum
þeim sem smátt og stórt hefur
aflað sér er það algengt að
nokkrar hræður mæti á mlkil-
væga fundi. Forysta Einingar
er eflaust hæf og kann vel tll
verka, en það myndi vart saka
þó hinn almenni félagsmaður
sýndl starfi félagsins meiri
áhuga, og fylgdlst betur með
starfi stjórnarinnar, „væri virk-
ur“ eins og það heitir á
nútímamáli. Stjórnir félaga,
hvaða nafni svo sem þau nefn-
ast, hafa gott af heilbrigðri
gagnrýni, en hana er ekki hægt
að setja fram nema hafa hug-
mynd um hvað er að gerast í
félaginu.
# Erfittað
halda uppi
starfsemi
En það er ekki bara í Einingu
sem gengur llla að fá fólk á
fundi. Eflaust á mikið vinnu-
álag sinn þátt í þvf að fólk
kemur ekkl, en hrein og klár
E7
leti á sjálfsagt sinn þátt í því.
Glöggur maður stakk eitt sinn
upp á því að skemmtikraftar á
borð við Ómar væru a.m.k.
fengnir á aðalfundi í hinum
ýmsu félögum þvf þá væri
máski hægt að „trekkja".
# Reynsla
ísfirðinga
j blaðinu ísfirðingur, sem gefið
er út f Vestfjarðakjördæmi,
segir frá þvf að um þessar
mundir sé 10 ár liðin frá sam-
einingu Eyrarhrepps og (sa-
fjarðar. Ekki gekk þessi
samefning átakalaust fyrir sig
á sínum tíma, en fróðlegt er að
sjá hvað blaðið segir um þann
tfma sem liðin er: „Á þessum
10 árum hefur ísafjörður vaxið
og dafnað meir en í annan tíma
og reyndar má segja að bærinn
hafi tekið algjörum stakka-
skiptum á þessu tímabili... —
Síðar segir: Samstarf á ýmsum
sviðum hefur orðið íbúum hins
nýja kaupstaðar til mikils hag-
ræðis og má til dæmis nefna
skólamál, félagsmál, heil-
brigðis og hreinlætfsmál og
samgöngumál að ógleymdum
atvinnumálunum. Samelning
ísafjarðar og Eyrarhrepps get-
ur orðlð öðrum sveitarfélögum
á íslandi leiðarljós, að þvf
marki að ná fram hagræðingu
og samheldni íbúa samliggj-
andi byggðarlaga. Slík sam-
einlng getur, þegar fram í
sækir minnkað skattbyrði íbú-
anna og eytt tortryggni og
hrepparíg.11