Dagur - 25.03.1982, Side 1
MIKIÐ
ÚRVAL
FERMINGAR-
GJAFA
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
65. árgangur
Akureyri, fimmtudagur 25. mars 1982
34. tölublað
For
blóð-
ugur
heim
— saumaður
daginn eftir
Yfirleitt fer mjög gott orð af
starfsfólki Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri fyrir lipurð
og gætni í garð sjúklinga. Eitt-
hvað hefur vakthafandi læknir
aðfararnótt sunnudagsins 14.
mars þó verið illa fyrir kall-
aður, því hann gerði ekki að
blóðugu höfði eins sjúklings
sem þangað kom, vegna orð-
askipta sem honum féllu ekki.
Umræddur sjúklingur, ungur
maður, var að skemmta sér á
skemmtistað í bænum þetta
kvöld, fékk glas í höfuðið og var
lögreglan fengin til að aka honum
upp á sjúkrahús, eftir að hann
hafði fengið klút yfir höfuðið til
að draga úr blóðrennsli. Pegar
upp á sjúkrahús kom vöktu starfs-
stúlkur vakthafandi lækni og hann
kom fram og spurði hvað gengi að
manninum. Með blóðugar um-
búðir á höfðinu svaraði hann því
til að hann hefði fengið gat á haus-
inn og eftir einhver frekari orða-
skipti, að varla héldi læknirinn að
það væri táin, sem hrjáði hann.
Lækninum mun ekki hafa líkað
framkoma mannsins, sem var eitt-
hvað við skál, og sendi hann fram
á gang til að bíða. Þetta líkaði
sjúklingnum ekki og bað um að
hringt yrði í lögregluna og hún
engin til að keyra sig heim. Eitt-
hvað voru starfsstúlkurnar ósáttar
við þessa málalyktan, því þær
drógu að hringja í lögregluna.
Eftir nokkra bið ítrekaði sjúkling-
urinn beiðni sína og þá kom lög-
reglan og ók honum heim.
Daginn eftir fór hann aftur upp
á sjúkrahús og þá voru saumuð 10
spor í sárið.
Við höfðum samband við Pál
Torfa Önundarson sem var vakt-
hafandi læknir umrædda nótt.
Hann kannaðist við málið og
sagði:
„Við læknar höfum enga heim-
ild til þess að segja neitt um svona
mál þannig að ég gef enga opin-
bera yfirlýsingu um það. Ef
maðurinn á eitthvað sökótt við
lækna þá er það landlæknir sem er
fulltrúi almennings gagnvart
læknum og við hann á þá að tala.
Annað vil ég ekki segja um þetta
mál.“
Fjórðungssamband Norðlendinga um steinullarverksmiðjuna:
Norðlendingar einhuga um
verksmiðjuna á Sauðárkróki
Fjórðungssamband Norðlend-
inga hefur ítrekað stuðning
sinn við að steinullarverk-
smiðja rísi á Sauðárkróki og
kemur það fram í bréfi fram-
kvæmdastjóra sambandsins,
Áskels Einarssonar, til fjöl-
miðla.
í bréfinu segir meðal annars:
„Norðlendingar standa einhuga
um steinullarverksmiðju á Sauð-
árkróki. Á fjórðungsþingi Norð-
lendinga, sem haldið var á Húsa-
vík 3.-5. september 1981 var al-
gjör einhugur um að styðja ein-
dregið hugmyndir Steinullarfé-
lagsins hf. um steinullarverk-
smiðju á Sauðárkróki. Lagði
þingið áherslu á, að nefnd sú sem
skipuð var til að fjalla um málið á
vegum iðnaðarráðherra, hafi
komist að þeirri niðurstöðu, að á
grundvelli byggðarlegra og þjöð-
hagslegra sjónarmiða bæri að
staðsetja steinullarverksmiðju við
Sauðárkrók. Ennfremur að ljóst
væri, að staðarval verksmiðjunn-
ar myndi ekki hafa áhrif á rekst-
urskostnað hennar í samanburði
við staðsetningu annars staðar. Á
fundi Fjórðungsráðs Iðnþróun-
arnefndar í febrúar 1980, sém
haldinn var á Sauðárkróki, var
ákveðið að Fjórðungssamband
Norðiendinga gerði uppbyggingu
steinullarverksmiðju á Sauðár-
króki að sameiginlegu máli, sem
allar byggðir Norðurlands stæðu
saman um, sem upphafi að stærri
iðnþróun í fjórðungnum.“
Þá segir í bréfinu að lögð hafi
verið rík áhersla á að uppbygging
jarðefnaiðnaðar á Suðurlandi og
steinullarverksmiðju á Sauðár-
króki væru aðskilin verkefni.
Bent er á að Steinullarfélagið hafi
átt allt frumkvæði og hugmyndir
um steinullarverksmiðju fyrir
innanlandsmarkað og því sé með
öllu fráleitt að Jarðefnavinnslan
eigi rétt á því að draga til sín og
njóta ávaxtanna af brautryðj-
endastarfi Sauðkrækinga, þegar
þeirra eigin áætlanir um útflutn-
ing hafi reynst ónothæfar.
„Fjórðungssambandið undir-
strikar að með staðsetningu stein-
ullarverksmiðju á Sauðárkróki er
ekki verið að bregða fæti fyrir
atvinnuuppbyggingu á Suður-
landi, sem er best sett allra
landshluta varðandi jarðefni og
orkuöflun í landinu . . . Steinull-
arfélagið hf. hefur ekki tekið
neinn möguleika frá Sunnlend-
ingum eða öðrum til að hefja
vinnslu steinefna til útflutnings,"
segir að lokum í bréfi fram-
kvæmdastjóra Fjórðungssam-
bands Norðlendinga.
Á föstudaginn lýkur viðgerð á Úðafossi, en skipið kom ti! Akureyrar fyrir hálfum mánuði. Slippstöðin h.f. hafði tekið
að sér að ljúka verkinu á hálfum mánuði, og að sögn Gunnars Ragnars mun sú áætlun standast. Starfsmenn Slippstöðv-
arinnar skiptu m.a. um hluta af birðingi skipsins eins og sjá má af myndinni sem Ársæll tók fyrr í vikunni.
Sérstakt
fétil
Ó-veganna
Fram kom á Alþingi, þings-
ályktunartillaga um 10 milljóna
króna fjáröflun til Ó-veganna
svokölluðu utan vegáætlunar.
Skulu 6.9 milljónir í Óshlíðar-
veg og 0.1 milljón í rannsóknir
vegna vegarins um Ólafsfjarð-
armúla.
Vegagerðin hefur lagt til að 2.5
km löng göng verði gerð í Ólafs-
fjarðarmúla og vegurinn lagfærð-
ur beggja vegna og er kostnaður á
verðlagi í águst 1981 áætlaður 80
milljónir króna. Heimamenn
telja að göngin þurfi að vera veru-
lega miklu lengri, a.m.k. sem
nemur um 700 metrum. Áður-
nefndri fjárhæð verður varið til
frekari rannsókna í Múlanum í
sumar.
„Bremsunefnd“ hafnaði fastráðningu tæknimanns á Akureyri:
„Mun beita mér fyrir því að
hann verði fastráðinn“
- segir Ingvar Gíslason menntamálaráðherra og hefur starfið nú verið auglýst
Búið er að auglýsa stöðu tækni-
manns ríkisútvarpsins á Akur-
eyri og er gert ráð fyrir að hann
hefji starf í vor. Svo getur farið
að starfsmaðurinn verði laus-
ráðinn í upphafi a.m.k., því
ráðninganefnd ríkisins
„bremsunefnd“, hafnaði þeirri
ósk Ríkisútvarpsins að fastráða
tæknimann sem hefði aðsetur á
Akureyri. í samtali við Dag
sagði Ingvar Gíslason mennta-
málaráðherra, að hann myndi
ræða þessa niðurstöðu nefnd-
arinnar við Ragnar Arnalds
fjármálaráðherra, og beita sér
fyrir því að starfsmaðurinn yrði
fastráðinn.
„Ég mun gera hvað ég get til
þess að starfsemi Ríkisútvarpsins
geti hafist á Akureyri á eðlilegum
tíma,“ sagði Ingvar. Forráða-
menn Ríkisútvarpsins hafa iagt á
það áherslu að dagskrárgerðar-
maður og tæknimaður hæfu störf í
vor. Jónas Jónasson hefur verið
sterklega orðaður við starf dag-
skrárgerðarmannsins, en líkur
eru á að tæknimaðurinn verði frá
Akureyri. Þegar þessi starfsemi
hefst í vor verður brotið blað í
sögu Ríkisútvarpsins.
Ingvar Gíslason sagði að
„bremsunefndin“ hefði eflaust
tekið mið af því aðhaldi sem hið
opinbera hefur reynt að gæta í
nýráðningum. „En það er Ijóst að
það verður e.t.v. að lausráða
manninn til að byrja með,“ sagði
Ingvar.
Nefndin sgaði m.a. í greinar-
gerð með synjuninni, að enn væri
óljóst hvernig starfsemi Ríkis-
útvarpsins á Akureyri yrði háttað,
og meðan svo sé hafni hún þessu
erindi.
Hörður Vilhjálmssfn fjármála-
stjóri Ríkisútvarpsins, sagði að
stofnunin hefði sent ýtarlega
greinargerð með umsókn sinni til
nefndarinnar. M.a. var bent á
samþykktir fjórðungsþinga og
niðurstöðu nefndar, sem skipuð
var til að fjalla um starfsemi
Ríkisútvarpsins á Akureyri. Þar
var mælt með ráðningu dagskrár-
gerðarmanns og tæknimanns.
„Ég taldi að sú greinargerð, sem
héðan fór, hefði verið fullnægj-
andi til að sannfæra ráðninga-
nefndina um að fastráða mann í
þetta starf. En þessi nefnd er ekki
kölluð „bremsunefnd" fyrir ekki
neitt,“ sagði Hörður Vilhjálms-
son að lokum.