Dagur - 08.07.1982, Qupperneq 5
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
RITSTJÓRNARSlMAR: 24166 OG 24167
SlMI AUGLÝSINGADEILDAR OG AFGREIÐSLU: 24222
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARM.: HERMANN SVEINBJÖRNSSON
BLAÐAMENN: ÁSKELL ÞÓRISSON OG GYLFI KRISTJÁNSSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: JÓHANNES MIKAELSSON
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT H.F.
Niðurrifsstarfsemi
Stjórnarandstæðingar með Morgunblaðið í
broddi fylkingar og Dagblaðið og Vísi í kjölfar-
inu hafa gert mikið veður út af viðskiptasamn-
ingi við Sovétmenn. Þar á að vera blandað
saman pólitík og viðskiptum, beitt óeðlilegum
þrýstingi af hálfu þeirra, sem selja vörur til
Sovétríkjanna og svo framvegis. Þórarinn Þór-
arinsson, ritstjóri Tímans, hefur bent á, að
þessi samningur sé ekkert annars eðlis en
samningur, sem Bjarni Benediktsson gerði á
sínum tíma. Þessi samningur sé til þess ætl-
aður, og nái þeim tilgangi, að tryggja við-
skiptahagsmuni þjóðarinnar, rétt eins og fyrri
samningar við Sovétmenn.
Þingflokkur sjálfstæðismanna ályktaði um
þennan samning nýlega og Ólafur G. Einars-
son sat fyrir svörum í útvarpsviðtali vegna
þessarar ályktunar. Það þurfti engan sérfræð-
ing í utanríkisviðskiptum til að sjá í gegnum
málflutning sjálfstæðismanna vegna þessarar
samningagerðar. Þegar gengið var á þing-
flokksformanninn með svör, kom í ljós, hvílíkar
dylgjur, hálfkveðnar vísur og rökleysur voru
uppistaða ályktunar þingflokks Sjálfstæðis-
flokksins.
Allur málflutningur sjálfstæðismanna í
þessu máli hefur verið til þess eins ætlaður að
slá ryki í augu fólks og ala á Rússagrýlunni
margfrægu. Það er hættulegur og óforskamm-
aður leikur, sem stærsti stjórnmálaflokkur
landsins með stærstu málgögnin hefur viðhaft
vegna þessa samnings. Skyldi ekki vera svo
um fleiri mál, sem upp koma í þjóðfélaginu?
Seinni ályktun þingflokks sjálfstæðismanna
var viðvíkjandi Blönduvirkjun og var þar allt á
sömu bókina lært; dylgjur og hálfkveðnar vís-
ur um ráðherra og starfsmenn ráðuneyta. Allt
var þetta gert í þeim tilgangi að koma höggi á
ríkisstjórnina. Engum dettur það í hug, að
sjálfstæðismenn vilji klippa á mikilvæg við-
skiptatengsl við Sovétríkin, sem þeirra eigin
menn hafa meðal annars unnið við að koma á
fót. Þá væru íslendingar líklega orðnir einir
þjóða í Atlantshafsbandalaginu, sem ekki
ættu viðskipti við Sovétríkin. Hvernig er t.d.
með öll viðskiptin vegna gasleiðslunnar miklu
og kornvöruviðskipti Bandaríkjamanna við
Sovétríkin?
Það er athyglisvert með hvaða hætti stjórn-
málabarátta er háð á íslandi í dag. Segja má,
að Alþýðuflokkurinn hafi byrjað og íhaldið
hefur nú bætt um betur. í þessum herbúðum
viðgengst „bombuaðferðin", þar sem þyrlað
er upp moldviðri vegna einhvers, sem síðan
reynist vera blaðra og rakalaust röfl. Aðferðin
snýst um það að rífa niður en ekki byggja upp
— gagnrýna flokka og einstaklinga án þess að
hafa nokkrar úrbætur á takteinum. Þetta er af-
leit aðferð og ekki sæmandi siðuðum
mönnum. Er nema von þótt eitthvað bjáti á í
þjóðfélaginu, þegar sterkustu stjórnmálaöflin
nota slík vinnubrögð?
Hver er þessi bær
Akureyri?
— A ferð með útlendingum um
the town of the midnight sun“
Með tímanum verður maður
ónæmur fyrir áreitum. Vond
lykt - þefskynið hættir allri
uppreisn og maður hættir að
finna lyktina. Sama á við um
hávaða. Því hefur meira að
segja verið haldið fram, að
verði tilfinningar fólks fyrir
miklu álagi, verði þær ónæm-
ar - þannig að þótt fólk haldi
áfram að búa saman og sofa
. . . „spiser de stene?“ . . .
hjá, geti það í raun ekki
elskað.
Þannig er hægt að verða
ónæmur fyrir umhverfinu og
áhrifum þess. Þetta hlýtur að
hafa í för með sér leiða mann-
fólks á þessu umhverfi, sem
alltaf er eins - svo að jafnvel
smáframkvæmdir eins og það,
að gangstétt sé malbikuð,
virðist merkileg tilbreyting.
Og þegar innfæddir Akureyr-
ingar eiga að fara að sýna að-
komufólki þennan fallega bæ
- hvað finnst þeim þá þess
virði að sýna það? Fyrir ekki
löngu síðan voru hér á ferð
nokkrir Finnar frá Lathi,
vinabæ Akureyrar, og þeir
voru að sjálfsögðu leiddir i all-
an sannleika um bæinn okkar.
Tíðindamaður Dags slóst í
kynnisförina.
Dulítill demantur
Við hófum förina á Syðri-
Brekkunni, án sérstakrar
ástæðu - einhvers staðar varð að
byrja. „Hér höfum við sundlaug
og þarna tjaldstæði," sagði
„gædinn" svona til að byrja með
og án hátíðleika. Svo sýndi hann
þeim finnsku fram á það, að
þessi bæjarhluti væri nokkurs
konar skólahverfi - iðnskóli,
hússtjórnarskóli, gagnfræða-
skóli, menntaskóli og verk-
menntaskóli á leiðinni. Tíðinda-
maður stóð sjálfan sig að því að
hafa ekki gert sér grein fyrir
þessu með skólana áður, þótt
hreinræktaður Akureyringur sé.
Lystigarðurinn - í raun kapít-
uli út af fyrir sig - í öllum sínum
óstjórnlega fjölbreytileika, ef
náið er að gáð. Fallegur- dulítill
demantur í hjarta bæjarins - og
um leið stærsta heimili bæjarins
(og þótt víðar væri leitað), hýs-
andi alla flóru landsins og það er
ekki svo lítið. Þar hittum við
mann, sem var með allt á hreinu,
er garðinn varðaði og í fimmtán
mínútna fyrirlestri gerði hann
grein fyrir garðinum, næstum
því grasstrá fyrir grasstrá.
Hverju velta menn fyrir sér,
þegar þeir heimsækja þennan
garð? Fer það eftir því, hvort
gesturinn er íslenskur eða út-
lendur? Velta menn fyrir sér
staðreyndum - hvað eru margar
plöntur, hvað er garðurinn
gamall, hvernig byrjaði þetta
allt? Eða því, hvort það hafi
bætandi áhrif á skapfar Akur-
eyringa að vita af þessum dem-
anti í bænum sínum, hvort Ak-
ureyringum þykir eitthvað til
garðsins koma, og hvort þeir
gera sér grein fyrir, hvað þeir
eiga, þar sem garðurinn er?
Kirkjuskip
Kirkjan hefur lengi verið stolt
Akureyrar og prýtt fjölda póst-
korta ásamt Lystigarðinum. Þar
var stansað með finnsku gestina
og leiðsögumaður sýndi þeim
þessa fallegu kirkju, eins og vera
ber. Benti á kirkjuorgelið og
nefndi háa tölu um leið og píp-'
urnar. Ein af þeim finnsku var
hissa á, að skip skyldi hanga
neðan í lofti, en var að sjálf-
sögðu leidd í allan sannleika um
tilkomu skipsins. Annar hafði
mestan áhuga á ætt og uppruna
leiðsögumannsins og hvar hann
hefði lært þessa fínu sænsku.
Enn var sest inn í blikkbelj-
urnar og rúður skrúfaðar niður
til að hleypa inn góða veðrinu og
sólskininu. Og leiðarinn (leið-
sögumaðurinn) hafði nóg að
gera við að benda á merkileg hús
í Innbænum. Höephnersversl-
un, sem var, gamla apótekið,
Laxdalshús, Nonnahús og fleiri
hús, sem merkileg þykja í sögu
bæjarins. Því að hús má varð-
veita og endurbyggja og bæta og
varðveita þar með ákveðinn
hluta úr mannkynssögunni. En
fólkið er illendurbætanlegt og er
sífelldum breytingum undirorp-
ið, þannig að þáttur þess í mann-
kynssögunni er einungis til á
bókum og ef heppnin er með á
kvikmyndafilmu. Samt ósnert-
anlegt.
Frá klapparbrún, sem blaða-
maður kann ekki að nefna, var
útsýnið yfir Glerárþorpið
skoðað. Það er á slíkum stöðum,
sem Akureyringur fer að hug-
leiða, hvað bærinn sé stór - eða
lítill, það fer eftir smekk og
viðmiðun. Þarna er gömul stífla
og þarna er slippurinn, þarna er
þetta og þarna er hitt - leiðarinn
hafði í nógu að snúast.
Fjallablóm
Hlíðarfjall - skíðaparadísin
okkar - staður, sem sumir vilja
enn bæta á kostnað lista- og
íslenskt fjaUablóm.
menningarmála í bænum. Nóg
hafði leiðarinn að gera við að
telja upp allar lyfturnar, sem
virðast geta flutt alla íslendinga
til himna, ef því er að skipta. Og
svo þetta merkilega skíðahótel,
sem einu sinni var sjúkrahús.
Þeir finnsku kinkuðu kolli og
pældu í rollunum, sem góndu á
gestina. Einhverju sinni var það
danskur ferðalangur, sem á ís-
landi sá rollurnar háma í sig
grængresið innanum stórgrýtið
og sá danski spurði í sakleysi:
„Spiser de stene?“ Heldur voru
Finnarnir betur upplýstir en svo,
að þeir héldu, að íslenskt sauðfé
snæddi grjót. Samt skondnar
skepnur.
Og ein af þeim finnsku tíndi
blóm.
Frostrósir
Úr sveitinni niður að sjó. í frysti-
húsinu gengu þeir finnsku bros-
ándi milli misfúllyndra íslend-
inga, sem streðuðu fyrir aurun-
um sínum, beittu hnífunum fim-
lega, meðan þeir góndu út í loft-
ið og voru staddir alls staðar
annars staðar en í vinnslusal í
frystihúsi. Einstaka manneskja
rýnir þó móti háfjallasólinni,
sem skín úr borðinu og virðist
hafa komið auga á meiningu og
tilgang lífsins í fiskflakinu, sem
einu sinni var fiskur í sjó, en
núna verðandi Ameríkubúa-
fæða. Veltur á skapillum íslend-
ingi, hvort sá ameríski étur orma
eða ekki.
Þeir finnsku vita þá orðið allt
um það, hvernig íslenskir með-
höndla þennan ljóta fisk, sem
allt byggist á.
Finnarnir héldu áfram að
skoða bæjarins gagn og nauð-
synjar. Tíðindamaður Dags var
hins vegar kominn með garna-
gaul sökum hungurs og hypjaði
sig heim.
Það reyndist þá vera satt eftir
allt saman - þetta er hinn ágæt-
asti bær, sem við eigum - Akur-
eyri.
KGA.
milli misfúllyndra íslendinga . . .
Myndir: KGA.
Þór kom á óvart
— en tapaði samt
Þórsarar fengu sputnink lið
Breiðabliks í heimsókn á
þriðjudagskvöldið og léku
þessir aðilar í 16 liða úrslitum í
bikarkeppni KSÍ.
Þessi leikur var ágæt skemmt-
un fyrir þá áhorfendur sem á
völlinn komu, og mun skemmti-
legri en leikur KA og Breiða-
bliks á laugardaginn. Blikarnir
stilltu upp sama liði og sigraði
KA örugglega, og það nægði
þeim til sigurs í leiknum, en þeir
skoruðu þrjú mörk en Þór að-
eins eitt.
Fyrsta marfctækifærið kom
strax á fyrstu mínútum leiksins
og í fyrstu sókn Blikanna, en þá
varði Eiríkur mjög gott skot frá
Blika. Það voru hins vegar Þórs-
arar sem gerðu fyrsta markið. Á
11. mín. léku þeir upp hægri
kantinn og Óskar gaf góðan
bolta fyrir markið og Nói fyrir-
liði var þar til staðar og afgreiddi
boltan í netið með viðstöðu-
lausu skoti. Aðeins örfáum mín.
síðar spiluðu Blikarnir Þórs-
vörnina sundur og saman og
sókn þeirra lauk með því að Nói
varði á línu hörkuskot frá Helga
Bentssyni. Á sömu mín. varði
Eiríkur glæsilega eftir að einn
Blikinn var kominn í dauðafæri.
Á 20. mín. áttu Þórsarar gott
tækifæri þegar Guðjón lék á tvo
Staðan
Eftir toppstöðu í deilidinni fyrir
skömmu er nú nafn KA komið
niður í næst neðsta sætið, eða fall-
sæti en að vísu eiga þeir sennilega
til góða tvö stig út úr kærunni á Val.
Barátta í síðari umferð deildarinn-
ar verður hins vegar erfið en von-
andi hrista þeir af sér slénið nú í
næstu leikjum.
varnarmenn Blikanna og hörku-
skot hans hafnaði á þverslánni
og yfir.
Á 32. mín. jafnar síðan Helgi
Bentsson fyrir Breiðablik og var
vel að því marki staðið. Aðeins
mín. síðar var Bjarni Svein-
björnsson í góðu færi en mark-
maður Blikanna varði glæsilega.
í hálfleik var því staðan eitt
mark gegn einu. Á 14. mín.
síðari hálfleiks sendi Bjarni
boltan vel fyrir markið og Óskar
skallar í netið, en dæmt var á
hann. Úr næstu sókn skoruðu
Blikarnir og var þar að verki Sig-
urður Grétarsson. Hann bætti
síðan öðru marki við á 23. mín.
og innsiglaði sigur Blikanna.
Það sem eftir var leiksins sóttu
liðin til skiptis, en á óvart kom
góð frammistaða Þórsara eftir
slaka leiki undanfarið. Ef þeir
ná svona baráttu í næstu leikjum
sínum, ættu þeir að geta lagt að
velli hvaða annarrar deildarlið
sem er. Ekki veit íþr.fréttaritari
hvað dómari leiksins hét, en
hann var óspar á að gefa gul
spjöld, eða alls sex í leiknum og
var það sennilega þremur of
mikið.
Víkingur
ÍBV
KR
Breiðablik
Valur
Fram
Akranes
Keflavík
KA
ísafjörður
9441 14-10 12
9 5 13 12-9 11
9 2 6 1 5-4 10
10 4 2 4 13-14 10
10 4 2 4 8-10 10
9333 11-9 9
10 3 3 4 10-10 9
93336-8 9
10 2 4 4 8-11 8
9225 11-13 6
Óskar skorar fyrir Þór, en markið var dæmt af.
Ljósmynd: K.G.A.
Golf - Golf - Golf - Golf
í annari deild er staðan einnig mjög
tvísýn og mörg lið eiga möguleika á
efstu sætum deildarinnar. Þórberst
þar við marga verðuga andstæð-
inga, og einnig eru nágrannar okk-
ar Völsungar með góða stöðu.
Þróttur
FH
Þór Ak.
Reynir S.
Völsungar
Fylkir
Njarðvík
Einherji
ÞrótturN.
Skallagr.
8620 15-4 14
7 4 2 1 8-5 10
8251 11-9 9
8 3 2 3 13-8 8
83239-9 8
8161 9-10 8
8233 14-16 7
7223 9-11 6
8134 4-10 5
8116 7-16 3
Mikil barátta er í B-riðli þriðju
deildar, en þar eru mörg ágæt
knattspyrnulið og verður eflaust
hart barist um efstu sætin.
Tindastóll 7 5 2 0 17-5 12
Huginn 6 4 2 0 11-4 10
KS 6 4 0 2 21-5 8
HSÞ 5 1 4 0 6-4 6
Austri 7 1 3 3 6-9 5
Magni 7 1 2 4 9-14 4
Árroðinn 7 115 4-14 3
Sindri 5 1 0 4 2-20 2
Saab-Toyota-
keppnin
um helgina
Eitt af stærri golfmótum
sumarsins hjá Golfklúbbi Ak-
ureyrar er Saab-Toyota-
keppnin sem fram fer þar um
næstu helgi. Er hér um aö
ræða opna 36 holu keppni og
verða leiknar 18 holur á laug-
ardag og aðrar 18 á sunnudag.
Öll verðlaun í keppnina eru
gefin af Saab-Toyota-umboðinu
á Akureyri og eru þau vegleg að
venju. Ekki ætla forráðamenn-
irnir þó að láta sér nægja að veita
hin hefðbundnu verðlaun fyrir
bestan árangur með og án for-
gjafar, heldur verða aukaverð-
laun einnig veitt.
Aukaverðlainin verða fyrir
þann sem verður næstur holu á
ákveðinni braut í einu höggi, og
ef einhver verður svo heppinn
að fara holu í höggi fær sá sami
flugfar fyrir tvo til Reykjavíkur
og til baka.
Sem fyrr sagði er hér um opið
mót að ræða. Búist er við mikilli
þátttöku, enda tilvalið fyrir þá
sem eru í golfklúbbnum í nám-
unda við Akureyri, að koma á
Jaðarsvöllinn og kynnast honum
fyrir Jaðarmótið sem fer fram
um verslunarmannahelgina.
Á miðvikudag í næstu viku
hefst síðan Akureyrarmótið hjá
Golfklúbbi Akureyrar og verða
ieiknar 72 holur í hverjum
flokki.
4-DAGUR-8. júlí 1982
8. júlí 1982 - DAGUR - 5