Dagur - 26.08.1982, Qupperneq 3
Máttur samtaka og
samstöðu er mikill
í önnum líðandi stundar vill það
oft henda okkur, að það gleymist
sem unnið er að, einkum ef það er
hljóðlátt starf fámennra félaga-
hópa, sér í lagi ef það opinbera
ríki og sveitarfélög koma þar lítt
við sögu, mun svo vera um mörg
félög í landi voru. NLFA er eitt
slíkt félag. Verkefni þess er stórt í
sniðum, sem er bygging hressing-
ar- og dvalarheimilis, fyrst og
fremst fyrir Norður- og Austur-
landssvæðið, en allir landsmenn
eiga frjálsan aðgang þar að. Á
undanförnum 2 sumrum hefur
verið unnið að gerð 600 fermetra
kjallara og sundlaugar, nú í sumar
er unnið að byggingu 1. hæðar og
á haustdögum verður sú hæð orð-
in fokheld. Eftir er þá bygging
tveggja hæða og mun stefnt að því
að reisa þær á næstu 2-3 árum. Þá
eru eftir innréttingar og húsbún-
aður allur ásamt lyftu, en mark-
miðið er að hraða framkvæmdum
sem frekast er kostur til þess að
starfsemin geti hafist sem allra
fyrst. Láta mun nærri að heildar-
kostnaður við framkvæmd þess-
ara 3 ára verði á haustdögum
rösklega 2 milljónir kr. þar með
taldar teikningar og öll verkfræði-
þjónusta. Lán hafa ekki verið
tekin, ríkisframlag 1.000 kr. fyrir
um það bil 8 árum. Akureyrarbær
lagði fram lóð og fjárhæð að upp-
hæð kr. 10.000. Á síðasta ári voru
veittar úr bæjarsjóði til fram-
kvæmdanna kr. 77.000,00. Von
okkar er að framhald verði þar á.
Félagið fær í sinn hlut ágóða af
landshappdrætti náttúrulækn-
ingasamtakanna sem er framlag
NLFÍ. Drjúg er sú tekjulind er
komið hefur frá félagasamtökum,
klúbbum og hinum almenna borg-
ara á Akureyri og í nágrannahér-
uðunum. Þá er ótalið það sem fé-
lagarnir í NLFA leggja af mörk-
um í vinnu og fjárframlögum,
segja má að allt árið sé í gangi ein-
hver vinna í formi fjármögnunar
og hefur verið bryddað upp á
mörgu í því sambandi, þess má og
geta að allt það starf er launa-
laust, fólkið gefur það frá sjálfu
sér málefnisins vegna.
Eftir þetta átak sumarsins
stöndum við þannig að sjóður fé-
lagsins mun vera fremur fyrirferð-
arlítill. Um leið og þökkuð eru
fyrri framlög leitum við til ykkar á
ný, framlög hvers og eins þurfa
ekki að vera svo ýkja stór, aðal-
atriðið er að sem flestir séu með,
við vitum aldrei hvenær við þurf-
um á slíkum stað að halda. Ferða-
kostnaður hækkar sífellt, stolt
okkar Norðlendinga ætti að vera
það að eignast slíkan hvíldar- og
hressingarstað sem fyrst. Athygli
skal vakin á því að farið hefur ver-
ið inn á þá braut að bjóða starfs-
hópum, sveitarfélögum og ein-
staklingum að taka þátt í upp-
byggingunni með þeim hætti að
gefa þeim kost á að leggja fram ár-
legt framlag til herbergis á bygg-
ingartímabilinu er viðkomandi
aðilar hefðu forgangsrétt að fyrir
sína félaga, hvort sem um er að
ræða bæjar- eða sveitarfélag. Nú
þegar er að koma í ljós árangur af
þessari hugmynd, geta má þess að
Bílasala
Bílaskipti.
Síór og bjartur
sýningasalur.
Bílasalan Ós,
Akureyri sími 21430.
einstaklingar hafa lagt fram and-
virði herbergis auk fleiri aðila.
Okkur er það ánægja að finna
hvað við höfum orðið vör vaxandi
skilnings á verkefni félagsins og
væntum þess að svo megi áfram
verða í auknum mæli.
Við bjóðum alla velkomna til
samstarfs við félagið og í félagið.
Máttur samtaka og samstöðu er
mikill ef saman er staðið af alúð,
áræði og bjartsýni.
Framlög má leggja inn á gíró-
reikning no. 23003, pósthólf nr.
398 Akureyri.
Stjóm Náttúrulækningafélags
Akureyrar.
Hafnarstræti 88
Komdu og
skoðaðu í...
Opið 4—7 • Föstudaga 1-7 Laugardaga 10-12
Til niðurrifs
Tilboð óskast í 2 sambyggðar bogaskemmur
(hvor 13x5 m) á Óseyri.
Strax.
Uppl. gefur Valtýr, vinnusími 25455, heima-
sími 24517.
Fundir með
þingmönnum
Alþingismenn Framsóknarflokksins í
Norðurlandskjördæmi eystra halda
fund:
í barnaskólanum Svalbarðseyri með íbúum
Svalbarðs- og Grýtubakkahrepps mánudaginn
30. ágúst kl. 20.30.
Allir velkomnir.
adidas ^
Schulsport stærðir 33-42
Æfingaskór
Universai stærðir 38-46
Póstsendum
Sporthú^id,
HAFNARSTRÆTI 94
SÍMI 24350
Egg
Stórlækkað verð
28 kr. kílóið
Ritz kex............... 15.20
Gevalia kaffi 250 gr...... 15.55
Kindahakk pr. kg....... 68.20
Bakaðar baunir 439 gr . 14.15
Cocktail ávextir 410 gr .. 16.60
Salernispappír 2 rl. 9.30
Eldhúsrúllur 2 rl...... 17.00
HAGKAUP
Norðurgötu 62, Akureyri.
. ágúst 1982 - DAGUR - 3