Dagur - 26.08.1982, Blaðsíða 7
Aðalfundur SUNN um Blönduvirkjun:
Átelur vinnubrögð
opnberra aðila
Aðalfundur SUNN fjallaði um
virkjun Blöndu og Héraðsvatna,
álver í Eyjafirði og hvalveiðar
og selveiðar.
Aðalfundur Samtaka um nátt-
úruvernd á Norðurlandi,
SUNN, var haldinn í Árgarði í
Skagafirði laugardaginn 21. og
sunnudaginn 22. ágúst í fögru
veðri við sæmilega aðsókn. í
tengslum við fundinn var farið í
skoðunarferð fram Austurdal,
allt fram að Ábæ og var farið yfir
Jökulsána á kláfnum við Skata-
staði. í ferðinni voru skoðuð
ýmis athyglisverð náttúrufyrir-
bæri, svo sem fágætar eða
þroskamiklar plöntur, berglög
og bergtegundir ásamt holum í
berglögin eftir stóra trjáboli. Á
laugardag var haldin kvöldvaka
með skagfirsku efni, Björn Eg-
ilsson, Sveinsstöðum, sagði frá
uppruna Sveins Pálssonar, lækn-
is og náttúrufræðings, sem fædd-
ur var á Steinsstöðum og enn
fremur sagði hann frá Örlygs-
staðabardaga, en hann var
háður þarna í nágrenninu þenn-
an sama mánaðardag og vikudag
fyrir 744 árum. Þá las Hjörleifur
Kristinsson á Gilsbakka ljóð
eftir Hjörleif Jónsson. Hróðmar
Jónsson stjórnaði almennum
söng og sagði ferðasögu af
nokkrum skagfirskum hagyrð-
ingum upp á Hofsafrétt. Þá var
einnig lesin frásaga eftir Hall-
grím Jónasson, kennara, og loks
söng Jóhann Már Jóhannsson frá
Keflavík nokkur lög við mikla
hrifningu áheyrenda.
í stjórn SUNN eru Árni Stein-
ar Jóhannsson, Akureyri, Ás-
laug Kristjánsdóttir, Hrísey,
Bjarni Guðleifsson, Möðruvöll-
um, Guðmundur Gunnarsson,
Akureyri og Jón Fornason,
Haga. Á fundinum var mikið
fjaliað um Blönduvirkjun og
fýrirhugaða virkjun Héraðs-
vatna. Kom fram almenn óá-
nægja með það hvernig unnið
hefur verið að undirbúningi
Blönduvirkjunar og einnig kom
fram ótti við að svipuð vinnu-
brögð yrðu enn viðhöfð við
undirbúning virkjána á vatna-
sviði Héraðsvatna. Flestir eða
allir fundarmenn töldu að virkj-
un Blöndu eftir tilhögun I með
stíflu við Reftjarnarbungu væri
mikið áfall fyrir náttúruvernd,
vegna þess að Blöndu hefði mátt
virkja á annan veg til verndar
gróðurlendi. Hins vegar var lögð
á það áhersla að reynt yrði eftir
megni að draga úr landspjöllum
ef haldið verður áfram við þessa
óheppilegu virkjunartilhögun.
Á aðalfundinum voru sam-
þykktar þrjár tillögur og fylgja
þær hér á eftir:
Alyktun um álver
í Eyjafirði
Aðalfundur Samtaka um nátt-
úruvernd á Norðurlandi, hald-
inn að Árgarði í Skagafirði dag-
ana 21. og 22. ágúst 1982 mót-
mælir fyrirhugaðri byggingu ál-
vers við Eyjafjörð, vegna meng-
unarhættu og þeirrar félagslegu
röskunar sem slíkt stórfyrirtæki
veldur.
Fundurinn telur að hætta á
náttúrufarslegri og félagslegri
röskun verði minni af völdum
smærri iðnfyrirtækja.
Fundurinn bendir enn fremur
á að Eyjafjarðarsvæðið á völ
margra annarra og betri iðnað-
arkosta en álbræðslu, og skorar
á stjórnvöld að skapa ný
atvinnutækifæri, án þess að
grónu og heilbrigðu atvinnulífi
sé stefnt í tvísýnu.
Ályktun um
Blönduvirkjun
Aðalfundur SUNN 1982 átelur
harðlega þau vinnubrögð sem
opinberir aðilar hafa viðhaft
gagnvart heimamönnum við
samráð og samningagerð í
Blöndumálinu.
Fundurinn harmar að við
endanlega afgreiðslu Alþingis
um virkjun Blöndu, skyldi ekki
tekið fullt tillit til náttúruvernd-
ar, með rannsóknum og stíflu-
gerð við Sandárhöfða.
Fundurinn leggur áherslu á að
ef stíflað verður við Reftjarnar-
bungu, verði lónsstærð aldrei
meiri en 220 GL og öll mann-
virki við það miðuð.
Þess er ennfremur vænst að
stjórnvöld landsins læri af því
öngþveiti, sem Blöndumálið
hefur skapað, og taki strax
breytta stefnu í virkjunarmál-
um.
Þess er krafist að við undir-
búning virkjana á vatnasvæði
Héraðsvatna og annarra vatns-
falla landsins, verði náttúru-
verndar gætt til hins ýtrasta strax
í upphafi.
Ályktun um hvalveiðar
og selveiöar
Aðalfundur SUNN haldinn í
Árgarði í Skagafirði dagana 21.
og 22. ágúst 1982 minnir á ný-
lega samþykkt Alþjóðahval-
veiðiráðsins um samdrátt í
hvalveiðum og hvalveiðibann
árið 1986. Telur fundurinn sjálf-
sagt að fara að tilmælum ráðsins
og skorar á ríkisstjórnina að lýsa
samþykki sínu og undirbúa laga-
setningu í samræmi við það,
ennfremur að efla rannsóknir á
hvölum, sem grundvallað geti
skynsamlega nýtingu þeirra í
framtíðinni.
Fundurinn fagnar þeim skyn-
samlegu og mannúðlegu við-
brögðum sem heimamenn á Rifi
á Snæfellsnesi sýndu, er hvala-
vaða hljóp þar á land 20. þessa
mánaðar.
Jafnframt lýsir fundurinn
furðu sinni á þeirri drápsher-
ferð, sem hafi var sl. vor gegn
selum við strendur landsins,
fyrir forgöngu hringormanefnd-
ar. Er þess krafist að þetta
fjöldadráp verði stöðvað nú þeg-
ar og lög sett hið allra fyrsta, til
að slíkir atburðir endurtaki sig
ekki.
Fundurinn telur brýnt að stór-
auka fræðslu um dýrategundir
lands og sjávar, um samskipti
þeirra og skynsamlega nýtingu á
þeim, ella getur svo farið að við
hljótum þann vafasama heiður
að útrýma fleiri tegundum en
geirfuglinum.
Vorum að taka upp
nýja sendingu af
pilsum
ístærðum 36-50
Einnig er hægt að gera góð
kaup í alls konar kvenfatnaði
og snyrtivörum á gamla
verðinu.
Sjón er sögu ríkari
Opið 9-18 (einnigí hádeginu).
Laugardögum
Kaupangi. 10-12.
sérverslun ® uou
meó kvenfatnaó
Benz 319 ferðabíll
Nýleg Perkingsvél
Uppl. gefur Þorsteinn Marinósson í síma 63181 og
á vinnustað í síma 63180.
AKUREYRARÐÆR
Lausar stöður
við grunnskóla
Við Glerárskóla: 1/2 staða gangavarðar -1/2 staða
hjúkrunarfræðings -1/2 staða á bókasafni.
Umsóknarfresturtil 3. sept.
Upplýsingar gefur skóla- og launafulltrúi í síma
21000.
Skólanefnd.
AKUREYRARBÆR f
FRÁ GRUNNSKÓLUNUM
Kennarafundir verða í skólunum (nema GA) mið-
vikudaginn 1. sept. nk. kl. 10f.h.
Börn í 4.-6. bekkjum mæti í skólana mánudaginn
6. sept. kl. 10 f.h., en börn í 1 -3. bekkjum kl. 1 e.h.
sama dag.
Forskólakennslan hefst mánudaginn 13. sept., en
áður munu viðkomandi kennarar hafa samband
við heimili þeirra barna, sem innrituð hafa verið.
Forskólagjaldið er 250,00 kr. og greiðist í tvennu
lagi (október og febrúar).
Innritun þeirra barna, sem flust hafa í bæinn, eða
milli skólasvæða og er ætlað að skipta um skóla,
ferfram í skólunum, fimmtudaginn 2. sept. kl. 10-
12 f.h. Skólasvæði eru óbreytt miðað við sl. skóla-
ár. Reiknað er með, að unglingadeildir (7.-9.bekk-
ir og framhaldsdeildir GA) taki til starfa 16. sept.
nk.
Nánar auglýst síðar.
SKÓLASTJÓRARNIR.
Frá Sjúkrasamlagi
Akureyrar
Vilhjálmur Ari Arason, cand. med., sem gegnt hef-
ur heimilislæknisstörfum fyrir þá samlagsmenn,
sem hafa verið skráðir hjá Ólafi Oddssyni og/eða
Braga Stefánssyni, hættir störfum 31. ágúst nk.
Þeir samlagsmenn sem höfðu þessa heimilis-
lækna eru vinsamlegast beðnir að koma hið allra
fyrsta í afgreiðslu samlagsins og velja heimilis-
lækni.
Sjúkrasamlag Akureyrar
Gránufélagsgötu 4, Akureyri.
26. ágúst 1982 - DAGUR - 7