Dagur - 31.08.1982, Qupperneq 7
orðlendinga 1982
áll Hlöðversson:
i þarf starfs-
■ði almenns
inaðar“
bundnu landbúnaðargreina. Ein-
hverri aukningu mætti búast við í
þjónustuiðnaði og þjónustu, en
telja mætti ljóst að almennur iðn-
aður yrði að taka til sín verulegan
þluta starfsaukningarinnar, því
þar dygði ekki einu sinni stóriðja
m. Ef svo ætti að verða þyrfti að
bæta verulega starfsskilyrði al-
menns iðnaðar.
,,Verði starfsskilyrði iðnaðar
ejcki stórbætt áður en lausnarorð
sfóriðjumanna verður að veru-
leika mun stóriðjan taka til sín
hæfustu og bestu starfskrafta iðn-
aðarins, einfaldlega vegna hins
mikla munar á launum og kjörum
starfamanna í stóriðju annars
vegar og starfsmanna í almennum
iðnaði hins vegar,“ sagði Páll
Hlöðversson. „Ef ekki verður
brugðist skjótt við yrðu afleiðing-
amar algjört hrun almenns fram-
leiðsluiðnaðar bæði vegna sam-
keppni um gott vinnuafl og auk-
innar samkeppni við innflutning á
iðnvarningi."
Meðal þeirra iðngreina sem
Páll nefndi að auka mætti voru
skinnaiðnaðurinn og skipasmíða-
iðnaðurinn. Þá mætti nefna marg-
háttaðan búnað fyrir sjávarútveg-
inn og rafeindaiðnaðinn, sem ætti
mikla vaxtamöguleika í framtíð-
inni.
Páll minntist á það alvarlega
mál sem alltaf væri að koma upp,
þ.e. stefnulaust val iðngreina á
hinum ýmsu stöðum á landinu.
Það væri eins og alltaf þyrfti að
endurtaka sig sama sagan. Ef ein
iðja gengi vel á einum stað þyrftu
allir að róa á sömu mið og allt færi
í vaskinn eða rétt tórði. Hann
sagði einnig að frá sjónarhóli
sveitarstjórnarmanna hlyti upp-
bygging framleiðslu og þjónustu-
iðnaðar að vera mjög þýðinga-
mikil. Með slíkri uppbyggingu
mætti draga úr þeim sveiflum sem
gætti í sjávarútvegi.
Páll sagði nauðsynlegt að sveit-
arfélögin kappkostuðu að hafa
ávalt nægar lóðir, þær hefðu
ákveðið frumkvæði um uppbygg-
ingu og rannsóknir og jafnframt
taldi hann eignaraðild sveitarfé-
laga mjög æskilega, þó ekki væri
til annars en að fyrirtækin hyrfu
ekki úr heimabyggðinni.
Ijörn Dagbjartsson:
möguleikar í
iruframleiðslu
Ályktanir
ist álíta að einstakir framleiðendur
eða smærri samtök þeirra þyrftu að
taka meira frumkvæði því viss sam-
keppni um utanlandsmarkaðinn ætti
að vera af hinu góða.
Björn fór nokkuð ýtarlega inn á
möguleikana í fóðurvörufram-
leiðslu, sem hann telur mikla. Hann
sagði að árið 1981 hafi verið flutt inn
rúmlega 60 þúsund tonn af fóðri fyrir
búfé. Þar af hafi meira en helmingur-
inn verið fóðurblöndur úr fóðri sem
hægt væri að framleiða eða væri jafn-
vel framleitt hér á landi. Á sl. ári hafi
verið fleygt um 40-50 þúsund tonn-
um af slógi, allt að 5 þúsund tonnum
af grásleppu, 6 þúsund tonnum af
vambagor, 3 þúsund tonnum af
blóði, 30 þúsund tonnum af mysu og
þannig mætti lengi telja. Hann sagði
að mjög brýnt væri að leggja meiri
áherslu á nýtingu þessara innlendu
hráefna til fóðurbætisgerðar. Loð-
dýrafóður yrði væntanlega notað í
stórum stíl á næstunni ef hugmyndir
um 80 ný loðdýrabú yrðu að veru-
leika. Þá benti nú margt til þess að á
næstu árum verði þörf fyrir jafnvel
þúsundir tonna af fóðri fyrir eldislax
og silung.
Björn sagði að fiskiðnaðurinn gæti
að líkindum tekið við miklum mann-
afla á næstunni ef ekki yrði verulegur
samdráttur í þorskafla. Hann sagði
staðreynd að það hafi sárvantað fólk
í fiskiðnaðinn. Hann sagði að búast
mætti við stóraukinni eftirspurn eftir
ófrosnum fiski á Evrópumarkaði,
ekki síst vegna stóraukins áhuga í
matargerð. Hann sagði að fjölmarg-
ar hugmyndir hefðu komið fram
varðandi aukna fjölbreytni í fisk-
iðnaði. Menn yrðu hins vegar að
bera sig eftir björginni sjálfir, trúa
niðurstöðum rannsókna sem þeir
ekki gætu sannprófað sjálfir og menn
yrðu að vera tilbúnir til að hætta
tíma, vinnu, fjármunum og fasteign-
um, en umfram allt að bíða ekki eftir
að „ríkið“ rétti þeim eitthvað.
Björn sagði að sér virtist sem engir
nýir, sérstakir möguleikar blöstu við
í lagmetisiðnaði. Fyrirtækin sem
fyrir væru þyrftu að halda vel á sín-
um málum ættu þau að standast óða-
verðbólgu, vitlausa gengisskráningu
og endalaus ríkisafskipti. Þó taldi
hann kavíarframleiðslu úr grá-
sleppuhrognum og lifrarniðursuðu
eiga einhverja möguleika hér þegar
til lengri tíma væri litið. Þá njóta ým-
iss konar kæfur (pöstur) úr fiskmeti
vaxandi vinsælda erlendis.
Þá nefndi hann feitmetisiðnað sem
hann taldi að nokkru vannýttan.
Hann spurði hvaða nauðsyn bæri til
að flytja inn danskar olíusósur eða
bandaríska steikarfeiti í smáflöskum
þegar ódýrari og betri innlendar
vörur fengjust. Það væri líka ein-
kennilegt að hert lýsi skuli vera flutt
inn í stórum stíl til smjörlíkisfram-
leiðslu - og hert lýsi flutt út í sama til-
gangi.
Um atvinnu-
þróun á
Norðurlandi
Fjórðungsþing Norðlendinga haldið
á Sauðárkróki 26.-28. ágúst 1982 tel-
ur að nauðsyn sé á eflingu atvinnulífs
í fjórðungnum.
Til að mæta eðlilegri íbúaaukn-
ingu og til að sjá þeim fyrir störfum
innan fjórðungsins, sem að öllum
líkindum munu hverfa frá frum-
framleiðslugreinum, þarf að skapa
ný atvinnutækifæri fyrir allt að 4000
manns á Norðurlandi á þessum ára-
tug. Á síðasta ári var hlutfallsleg
íbúaaukning á Norðurlandi 50%
lægri en landsmeðaltal.
í ljósi þess að röskun hefur orðið í
búsetu- og atvinnuþróun, án þess að
komið hafi til verulegra áfalla í
atvinnulífi fjórðungsins, ieggur þing-
ið áherslu á eftirfarandi atriði:
1. Atvinnurekstrinum verði tryggð-
ur starfsgrundvöllur til arðbærs
rekstrar og til að tryggja viðun-
andi launakjör.
2. Þingið leggur áherslu á, að orku-
iðnaður og annar stærri iðnaður
verði einn af undirstöðuatvinnu-
vegunum og þeir möguleikar sem
fyrir hendi eru verði nýttir eftir
því sem kostur er.
3. f ljósi þess að framleiðslu- og
þjónustuiðnaður verður að taka
við meira vinnuafli nú á næstu
árum en gerst hefur undanfarin
ár, bendir þingið á nauðsyn þess
að iðnaði verði sköpuð sambæri-
leg starfsskilyrði við aðra
atvinnuvegi svo sem landbúnað
og sjávarútveg.
4. Þjónustustarfsemi á Norðurlandi
verði efld sérstaklega þannig að
þau margfeldisáhrif, sem undir-
stöðuatvinnuvegirnir hafa, komi
fram í fjórðungnum.
5. Sérstök áhersla verði lögð á að
efla byggingastarfsemi og verk-
takastarfsemi með það fyrir aug-
um að norðlenskir verktakar
verði færir um að sinna stórum
verkefnum og fyrir hendi verði
nægilegt framboð húsnæðis.
6. Staðið sé á verði um uppbyggingu
og eflingu framleiðslugreina í
sjávarútvegi og landbúnaði og
gerðar ráðstafanir til að bregðast
við samdrætti vegna aflaröskunar
og takmarkana í búvörufram-
leiðslu.
Fjórðungsþingið felur fjórðungs-
stjóm, ásamt fjórðungsráði og milli-
þinganefndum að hefja umræður um
einstaka þætti atvinnumálanna og
viðræður við aðila vinnumarkaðar-
ins, sveitarstjórnir og alþingismenn
úr Norðurlandi. Telur þingið að til
athugunar geti komið að stofna til
samráðshópa manna úr vissum
atvinnugreinum.
Jafnframt verði haldnir atvinnu-
málafundir á einstökum þéttbýlis-
stöðum og á byggðasvæðum, þar
sem stuðlað verði að átaki í atvinnu-
málum og samstöðu byggðarlaga um
atvinnumál og uppbyggingu atvinnu-
rekstrar.
Um verkefna-
skiptingu á milli
ríkis og sveitar-
félaga
Fjórðungsþing Norðlendinga haldið
á Sauðárkróki 26.-28. ágúst 1982
ályktar að við endurskipulagningu
sveitarstjórnarkerfisins, verði sveit-
arfélögin gerð öflugri stjórneiningar.
Þannig geta þau tekið við auknum
verkefnum, sem gætu jöfnum hönd-
um náð til einstakra sveitarfélaga og
samtaka þeirra. Þingið bendir á að
efling sveitarfélaga, svo sem með
sameiginlegum starfsmanni, svo og
með sameiningu þar sem aðstæður
eru fyrir hendi og vilji fólks fyrir
sameiningunni liggur fyrir. Fjórð-
ungsþingið vekur athygli á því að
með samvinnu sveitarfélaga hafi
náðst mikill árangur. Jafnframt er
það skoðun þingsins að samvinnan
hafi styrkt sveitarfélögin sem stjórn-
einingar.
Fjórðungsþingið telur að ein meg-
inforsenda sjálfstæðis sveitarfélaga
sé, að þau séu fjárhagslega sjálfstæð
og með sjálfstæða afmarkaða tekju-
stofna. Því vekur þingið athygli á
samþykkt síðasta fjórðungsþings um
að tekju- og eignaskattur renni alfar-
ið til sveitarfélaganna og að til við-
bótar komi jöfnunarsjóður sveitar-
félaga, sem hafi eingöngu það hlut-
verk að jafna aðstöðumun sveitarfé-
laga til tekjuöflunar, miðað við út-
gjaldabyrði. Þingið leggur áherslu á
að verkefnanefnd ríkisvalds og sveit-
arfélaga taki þessa ábendingu til at-
hugunar, sem grundvöll að glöggum
fjárhagsskilum milli ríkis og sveitar-
félaga.
Þingið hvetur til þess að langtíma-
sjónarmið verði látið ráða þegar rætt
er um verkaskiptingu ríkis og sveit-
arfélaga. Grundvallarregla við
verkaskiptinguna skal vera að fjár-
hagsleg ábyrgð og stjórn fari saman.
Þar sem nauðsynlegt er að til kasta
ríkissjóðs komi, verði það í formi
framlaga í hlutfalli við framlög
heimaaðila og að yfirstjórn verði
heima fyrir.
Um breytta
stöðu lands-
byggðarinnar
Fjórðungsþing Norðlendinga haldið
á Sauðárkróki 26.-28. ágúst 1982
bendir á að nú er unnið að endur-
skoðun stjórnarskrár og kosninga-
laga, sem að líkindum mun koma til
kasta Alþingis á næsta ári.
Fjórðungsþingið telur nauðsyn-
legt að mynduð verði samstaða
landshlutasamtaka til að fylgjast
með þessu máli og kannaðar verði
leiðir til að draga úr röskun á stöðu
dreifbýlisins, ef til kemur, með
stjórnarfarsaðgerðum um valddreif-
ingu og dreifingu á þjónustustarf-
semi ríkisins.
Fjórðungsþing felur fjórðungs-
stjórn forgöngu um þetta mál.
Um svæðis-
bundið samstarf
innan
Norðurlands
Fjórðungsþing Norðlendinga haldið
á Sauðárkróki 26.-28. ágúst 1982 tel-
ur eðlilegt að sveitarfélög í fjórð-
ungnum efli með sér svæðisbundið
samstarf um lausn stærri verkefna í
framkvæmdum sveitarfélaga og
vegna sameiginlegra atvinnu- og
byggðahagsmuna. Fjórðungsþingið
lítur svo á að þess konar samstarf
geti styrkt sambandið sem heildar-
samtök Norðlendinga. Því beinir
þingið þvf til fjórðungsstjórnar og
fjórðungsráðs að stuðlað sé að slíku
samstarfi um lausn verkefna á af-
mörkuðum svæðum innan fjórð
ungsins.
Um orkumál
Fjórðungsþing Norðlendinga haldið
á Sauðárkróki 26.-28. ágúst 1982
vekur athygli á, að öryggi í orkumál-
um þjóðarinnar stóreykst með til-
komu Blönduvirkjunar og skapar
um leið aukna möguleika fyrir iðn-
þróun á Norðurlandi. Þingið styður
ákvörðun Alþingis um að Fljótsdals-
virkjun verði næsta stórvirkjun, sem
ráðist verður í eftir Blönduvirkjun.
Þingið leggur áherslu á að hafist
verði handa við rannsóknir og athug-
anir á virkjun Jökulsánna í Skaga-
firði, Skjálfandafljóts og Jökulsár á
Fjöllum við Hólsfjöll. Þingið hvetur
til þess, að þessir virkjunarkostir
komi á eftir þeim tveimur virkjun-
um, sem nú þegar eru ákveðnar. Þá
varar þingið við áformum um breyt-
ingar á vatnaskilum og þannig rösk-
un á vatnsbúskap einstakra lands-
hluta. Með tilliti til þess, að líklegt er
að Landsvirkjun verði falin fram-
kvæmd og rekstur stærri virkjana er
nauðsynlegt að landshlutasamtökin
fyrir hönd sveitarfélaganna, fái áhrif
á stjórnun málefna sem varða þeirra
landshluta.
Um staðarval
orkuiðnaðar
Fjórðungsþing Norðlendinga haldið
á Sauðárkróki 26.-28. ágúst 1982
bendir á að orkuiðnaður mun í vax-
andi mæli verða undirstöðuatvinnu-
vegur við hlið hefðbundinna
atvinnuvega í landinu. Þingið vekur
athygli á að á sviði orkunýtingar eru
ónýttir möguleikar sem skipt geta
sköpum fyrir þjóðarbúið allt. Stað-
arval orkufreks iðnaðar mun því
hafa afgerandi áhrif á byggðaþróun í
landinu. Fjórðungsþingið telur eðli-
legt að athugunum og rannsóknum
til undirbúnings næsta stóriðjuvers
verði haldið áfram og hraðað. Sér-
staklega verði rannsóknum þessum
beint að Eyjafjarðarsvæðinu enda
ljóst að það svæði er á ýmsan hátt
náttúrufars- og umhverfislega við-
kvæmara en önnur þau svæði sem
staðarvalsnefnd hefur nú bent á.
Jafnframt telur fjórðungsþing eitt
meginverkefni í byggðamótun
Norðurlands að stuðla að því að í
framhaldi Blönduvirkjunar verði
haldið áfram athugunum stærri iðn-
aðar sem víðast á Norðurlandi svo
sem trjákvoðuverksmiðju á Húsa-
vík.
Um stuðning
við steinullar-
verksmiðju
á Sauðárkróki
Fjórðungsþing Norðlendinga haldið
á Sauðárkróki 26.-28. ágúst 1982 lýs-
ir fullum stuðningi við áform Stein-
ullarfélagsins hf. um byggingu stein-
ullarverksmiðju á Sauðárkróki.
Fjórðungsþingið hvetur sveitarfé-
lög, einstaklinga og félög í fjórð-
ungnum til að leggja fram hlutafé í
Steinullarfélagið hf. og styrkja með
því þá góðu samstöðu sem ætt'ð hefur
verið um þetta mál.
Sjá
næstu
síðu