Dagur - 31.08.1982, Page 8
Alyktanir fjórðungsþings
Um eflingu
almenns
iðnaðar
Fjórðungsþing Norðlendinga haldið
á Sauðárkróki 26.-28. ágúst 1982
fagnar stofnun iðnþróunarfélaga á
Norðurlandi. Þingið leggur þunga
áherslu á mikilvægi almenns iðnaðar
og hvetur til þess að nægu fjármagni
verði ávallt varið til grundvallar-
rannsókna, sem einkum beinist að
nýiðnaði ásamt nauðsynlegum rann-
sóknum í þágu hefðbundinna
atvinnuvega.
Atvinnuáætlun
fyrir Austur-
Húnavatnssýslu
Fjórðungsþing Norðlendinga haldið
á Sauðárkróki 26.-28. ágúst 1982
hvetur til þess að nú þegar verði haf-
ist handa um gerð atvinnuáætlunar
fyrir Austur-Húnavatnssýslu sem
m.a. taki mið af þeirri röskun sem
verður í héraði þegar framkvæmdum
við virkjun Blöndu lýkur.
Um uppbygg-
ingu á útvarps-
starfsemi
á Norðurlandi
Fjórðungsþing Norðlendinga haldið
á Sauðárkróki 26.-28. ágúst 1982 tel-
ur að með uppbyggingu útvarpsstarf-
semi á Akureyri og ráðningu fastra
starfsmanna sé stigið veigamikið
spor í þá átt að gefa Norðlendingum
kost á því að nýta möguleika útvarps
og sjónvarps til að kynna norðlenska
menningu og mannlíf í áhrifamestu
fjölmiðlum landsins. Jafnframt legg-
ur þingið áherslu á aðstrax verði haf-
ist handa um nauðsynlegar breyting-
ar á nýkeyptu húsi útvarpsins á Ak-
ureyri og það búið bestu fáanlegum
tækjum, svo hægt sé að vinna að al-
mennri dagskrárgerð og fréttaöflun
af öllu Norðurlandi í samstarfi við
heimamenn víðsvegar um fjórðung-
inn. í þessu sambandi lýsir þingið
ánægju sinni með það, að gert er ráð
fyrir aðstöðu fyrir sjónvarp í hinu
nýja húsi og leggur til að ráðnir verði
hið fyrsta fastir starfsmenn sjónvarps
til dagskrárgerðar og fréttaöflunar á
Norðurlandi.
Um menningar-
samtök
á Norðurlandi
Fjórðungsþing Norðlcndinga haldið
á Sauðárkróki 26.-28. ágúst 1982
fagnar stofnun mcnningarsamtaka á
Norðurlandi og telur að slík áhuga-
samtök manna, sem starfa að listum
og menningarmálum í fjórðungnum
geti átt stóran þátt í að konia á aukn-
um samskiptum og glæða áhuga
hinna mörgu áhugamanna á sviði
lista og menningarstarfsemi. Einnig
hafi þessi samtök mikið verk að
vinna við að koma norðlenskri lista-
starfsemi á framfæri.
Um menningar-
sjóð félags-
heimila
Fjórðungsþing Norðlendinga haldið
á Sauðárkróki 26.-28. ágúst 1982 tel-
ur nauðsynlegt að efla Menningar-
sjóð félagsheimila og endurskoða
reglur um starfshætti hans. Jafn-
framt leggur þingið áherslu a virk
tengsl á milli Menningarsjóðs félags-
heintila og samtaka menningaraðila
víðsvegar um landið við ,að koma á
menningarsamskiptum á milli staða
og landshluta. Lcggur þingið sér-
‘8*-bMGÚR-W:
'áö(íst*1982
staka áherslu á að stuðlað verði að
menningarvökum með gagnkvæm-
um skiptum á menningarstarfsemi á
milli byggðarlaga og landshluta, svo
og fyrirgreiðslu vegna kynninga á
listastarfsemi utan af landi á höfuð-
borgarsvæðinu.
Um félags-
heimili
Fjórðungsþing Norðlendinga haldið
á Sauðárkróki 26.-28. ágúst 1982 tel-
ur að með uppbyggingu félagsheim-
ila hafi verið stigið veigamikið spor í
þá átt að efla félags- og menningarlíf
hinna dreifðu byggða og hafi það átt
sinn þátt í því að treysta búsetu í
landinu. Skorar þingið á stjórnir fé-
lagsheimila á Norðurlandi að efla
samtök sín og stuðla að því að koma
á landssamtökum. Þingið fagnar því
að nefnd er starfandi til að vinna að
lausn á rekstrarvanda félagsheimila.
í því sambandi er rétt að undirstrika
að beitt er ósanngjarnri skattheimtu
á félagsheimili á sama tíma og ýmis
önnur menningarstarfsemi er undan-
þegin söluskatti og aðflutningsgjöld-
um. Þessu til viðbótar bendir þingið
á að félagsheimilasjóður getur engan
veginn staðið við greiðslu skuldbind-
inga, enda þótt skuldir hans við fé-
lagsheimilin séu óverðtryggðar. Því
leggur þingið ríka áherslu á að skuld-
ir félagshcimilasjóðs við félagsheim-
ilin verði verðtryggðar og féiags-
heimilum verði bætt upp verðrýrnun
á ógreiddum framlögum sjóðsins.
Ennfrentur bendir þingið á nauðsyn
þess að jafna upphitunarkostnað fé-
lagsheimila með sérstökum framlög-
um.
Um samstarf
vidskiptaaðila
á Norðurlandi
Fjórðungsþing Norðlendinga haldið
á Sauðárkróki 26.-28. ágúst 1982
samþykkir m.a. vegna tilmæla, að
boða saman aðila á sviði verslunar og
viðskiptaþjónustu til fundar um efl-
ingu þessara atvinnugreina á
Norðurlandi. Til fundarins verði
boðaðir fulltrúar kaupfélaga og ann-
arra verslunarfyrirtækja í fjórð-
ungnum.
Um ferðamála-
starf
Fjórðungsþing Norðlendinga haldið
á Sauðárkróki 26.-28. ágúst 1982
vekur athygli á, að á Vesturlandi hef-
ur verið komið á samtökum ferða-
málaaðila, sem þegar hafa ráðið til
sín starfsmann um takmarkaðan
tíma til að annast skipulagningu
ferðamála. Þingið telur þetta athygl-
isvert framtak og telur að á þessu ári
þurfi að fara fram athugun á því
hvort grundvöllur sé fyrir hliðstæð-
um samtökum á Norðurlandi. Því
álítur þingið nauðsynlegt að boðað
sé til undirbúningsfundar, þar sem
reynt er á hvort vilji sé fyrir hendi um
stofnun ferðamálasamtaka. Mál
þetta verði undirbúið í samstarfi við
Ferðamálaráð.
Um skipulags-
mál
Fjórðungsþing Norðlendinga haldið
á Sauðárkróki 26.-28. ágúst 1982
ítrekar tillögu síðasta fjórðungs-
þings um endurskoðun skipulags-
laga, lagaákvæða um landnýtingar-
mál og byggingareftirlit. Jafnframt
felur þingið nefnd þeirri, sem fjórð-
ungsráð kaus til að annast málið að
hefja störf sem fyrst. Þá leggur þing-
ið til að nefndin kalli saman til fund-
ar aðila á Norðurlandi, sem annast
skipulags- og landnýtingarmál, svo
og byggingaeftirlitsstörf, áður en
nefndin gengur frá tillögum sínum til
fjórðungsráðs.
Um skipu-
lagningu
samgangna
Fjórðungsþing Norðlendinga haldið
á Sauðárkróki 26.-28. ágúst 1982 tel-
ur með tilliti til þess, að ekki er hægt
að taka fyrir á þessu fjórðungsþingi
tillögur um samræmingu og skipulag
samgangna á Norðurlandi, sem unn-
ar eru á vegum samstarfsnefndar
Fjórðungssambandsins, Samgöngu-
ráðuneytisins og Framkvæmdastofn-
unar, að á vegum Fjórðungssam-
bandsins verði haldin sérstök ráð-
stefna um niðurstöðurnefndarinnar.
Að fenginni umsögn heimaaðila og
flutningaaðila verði mótaðar tillögur
um afstöðu Fjórðungssambandsins,
sem lagðar verði fyrir næsta fjórð-
ungsþing til afgreiðslu.
Um vöru- og
þjónustu-
kynningu
fyrirtækja
á Norðurlandi
Fjórðungsþing Norðlendinga haldið
á Sauðárkróki 26.-28. ágúst 1982
ítrekar fyrri ályktanir um nauðsyn
þess að kynna vörur og þjónustu
fyrirtækja innan fjórðungsins.
Fjórðungsþingið leggur því til að á
vegum sambandsins verði stefnt að
útgáfu kynningarbæklings sem gæfi
sem gleggsta mynd af norðlenskri
framleiðslu og þjónustu. Þá kemur
til álita, að dómi þingsins, að efna til
norðlenskrar vörukynningar og
kaupstefnu. Kanna þarf hvort að um
farandsýningu geti verið að ræða.
Leggja þarf áherslu á að þessari
könnun verði lokið fyrir næsta fjórð-
ungsþing.
Um málefni
aldraðra
Fjórðungsþing Norðlendinga haldið
á Sauðárkróki 26.-28. ágúst 1982 tel-
ur nauðsynlegt að gerð sé úttekt á
stöðu öldrunarmála á Norðurlandi í
samstarfi við þingkjörna nefnd, sem
vinnur að þessu verkefni í tilefni af
ári aldraðra. Á grundveili þessarar
úttektar verði haldin á þessu ári ráð-
stefna fyrir aðila sem vjnna að mál-
efnum aldraðra og fyrir sveitar-
stjórnarmenn til kynningar og
fræðslu og til að vinna að stefnumót-
un í þessum málaflokki.
Um fræðslu-
námskeið um
sveitarstjórnar-
málefni
Fjórðungsþing Norðlendinga haldið
á Sauðárkróki 26.-28. ágúst 1982
samþykkir að gangast fyrir fræðslu-
námskeiðum um sveitarstjórnarmál-
efni í samvinnu við Samband ís-
lenskra sveitarfélaga sem einkum
verði ætlað nýjum sveitarstjórnar-
mönnum og þeim sveitarstjórnar-
mönnum sem vilja auka þekkingu
sína á sviði sveitarstjórnarmála.
Jafnframt leggur þingið til að nám-
skeiðin verði haldin um mánaðamót-
in október/nóvember og standi yfir í
þrjá daga skv. tilhögunarskrá, sem
gerð verði í samráði við Samband ís-
lenskra sveitarfélaga. í því sambandi
bendir þingið á að eðlilegt sé að
námskeiðin verði þríþætt. f fyrsta
lagi verði fjallað um lagaþætti sveit-
arstjórnarkerfisins og sögulega upp-
byggingu þess. f öðru lagi verði fjall-
að um rekstur sveitarfélaga, reikn-
ingshald og gerð fj árhagsáætlunar og
fjárhagsleg samskipti við aðra aðila.
í þriðja lagi fjalli námskeiðin um
undirbúning málefna fyrir meðferð í
sveitarstjórn, um afgreiðslu þeirra
og framkvæmd ákvarðana sveitar-
stjórna. Einnig verði fjallað um
þjálfun í fundarstörfum og öflun
gagna er varða undirbúning mála og
framkvæmd vissra málaflokka.
Fjórðungsþingið beinir því til sveit-
arstjórna á Norðurlandi að þær veiti
nýkjörnum sveitarstjórnarmönnum
og stjórnendum sveitarfélaga styrk
til þess að sækja námskeiðin.
Um fræðslu- og
tækniþjónustu
við landbún-
aðinn
Fjórðungsþing Norðlendinga haldið
á Sauðárkróki 26.-28. ágúst 1982
fagnar þeim áfanga sem náðst hefur í
uppbyggingu Hóla í Hjaltadal sem
miðstöðvar búnaðarfræðslu í fjórð-
ungnum og lýsir ánægju með þá ný-
breytni, að sérhæfa skólann í tækni-
námi, þar sem sérstök áhersla er lögð
á nýjar búgreinar. Jafnframt leggur
þingið til að tilraunastöðin á Möðru-
völlum í Hörgárdal verði efld og að
sem mest samvinna takist milli bún-
aðarskólans á Hólum og tilrauna-
stöðvarinnar um rannsóknarstörf og
tækniþróun á sviði landbúnaðar.
Um háskóla-
menntun
á Akureyri
Fjórðungsþing Norðlendinga haldið
á Sauðárkróki 26.-28. ágúst 1982
fagnar því að stofnuð hefur verið
samstarfsnefnd Háskóla íslands,
Menntaskólans á Akureyri og
Menntamálaráðuneytisins til að
vinna að athugun og undirbúningi
menntunar á háskólastigi á Akur-
eyri. Samhliða starfi nefndarinnar
telur þingið eðlilegt að gerð sé áætl-
un um uppbyggingu háskólanáms í
landinu, sem geri ráð fyrir kennslu á
háskólastigi á Akureyri.
Um skiptingu
skólakostnaðar
Fjórðungsþing Norðlendinga haldið
á Sauðárkróki 26.-28. ágúst 1982
skorar á Alþingi og ríkisstjóm að á
næsta Alþingi verði sett ný lög um
skiptingu skólakostnaðar milli ríkis
og sveitarfélaga. í því sambandi
leggur þingið til að ákvæði um skipt-
ingu verði skýlaus og ekki sé blandað
saman kostnaði vegna grunnskóla og
framhaldsnáms. Þá bendir þingið á
nauðsyn þess að fjárhagslegur
rekstrargrundvöllur fræðsluskrif-
stofanna verði tryggður. Einnig legg-
ur þingið áherslu á að ríkissjóður
greiði rekstrarkostnað skólanna á
réttum tíma, eins og reglugerð gerir
ráð fyrir.
Um framhalds-
menntun
Fjórðungsþing Norðlendinga haldið
á Sauðárkróki 26.-28. ágúst 1982 tel-
ur óhjákvæmilegt að sett verði lög
um skipan framhaldsmenntunar, en
vekur á því athygli að tilgangslaust er
að setja slík lög, nema jafnframt sé
kveðið á um fjármögnun slíkra
skóla. Fari svo að ríkið kosti ekki að
öllu leyti framhaldsskólana og um
kostnaðarskiptingu milli ríkis og
sveitarfélaga verði að ræða, bendir
þingið á að yfirstjórn framhalds-
menntunar sé í höndum fræðsluráðs
og fræðslustjóra eins og tíðkast með
grunnskólastigið. Einnig, ef um sam-
rekstur verður að ræða og fram-
haldsskólum ætlað að þjóna tilteknu
svæði, t.d. fræðsluumdæmi, þá
standi fræðsluumdæmið í heild að
rekstri á móti ríkissjóði, eða sveitar-
félögin myndi sérstakt rekstararfélag
um skólann, eins og á sér stað uro
grunnskóla.
Um náms-
framboð fyrir
fullorðna
Fjórðungsþing Norðlendinga haldið
á Sauðárkróki 26.-28. ágúst 1982
beinir því til menntamálaráðuneytis-
ins að unnið verði að tillögu að náms-
framboði fyrir fullorðinsfræðslu á
Norðurlandi og komið verði á fót í
samráði við ráðuneytið sérstakri
nefnd til að vinna að málinu.
Um fjórðungs-
minjavörð og
safnamál
Fjórðungsþing Norðlenginga haldið
á Sauðárkróki 26.-28. ágúst 1982
ítrekar fyrri ályktun um endurskoð-
un þjóðminjalaga, þar sem gert er
ráð fyrir samtökum minjasafna og
þjóðminjaverði í hverjum fjórðungi.
Þingið varar við þeim ráðagerðum
að auka á miðstýringu í uppbyggingu
minjasafna og bókasafna og telur
rétt ríkisvaldsins vafasaman til íhlut-
unar um skipan safna, þar sem söfn
eru fyrst og fremst byggð upp af
framtaki áhugamanna og fjárfram-
lögum heimaaðila.
Um eflingu
atvinnulífs
í sveitum
Fjórðungsþing Norðlendinga haldið
á Sauðárkróki 26.-28. ágúst 1982 tel-
ur að með samdrætti í framleiðslu
aðalbúgreina landbúnaðarins geti
komið til búseturöskunar í sveitum
landsins, sem hefði áhrif á atvinnulíf
þéttbýlisstaða er tengjast sveita-
byggðum. Til að vega á móti þessari
hættu, telur þingið að efla verði nýj-
ar búgreinar og gefa sveitafólki kost
á að koma á fót atvinnustarfsemi í
þéttbýliskjömum sbr. áætlun um
smáiðnað í sveitum. Bendir þingið á
nauðsyn þess að landshlutasamtök
sveitarfélaga og stéttarsamtök
bænda taki upp samvinnu um að
gerðar séu sérstakar ráðstafanir til
að mæta aðsteðjandi hættu í atvinnu-
málum sveitanna. Þingið leggur
áherslu á að atvinnuuppbygging
þéttbýlisstaðanna er ekki síður þýð-
ingarmikil fyrir þróun sveitabyggð-
anna.
Um uppbygg-
ingu vega-
kerfisins
Fjórðungsþing Norðlendinga haldið
á Sauðárkróki 26.-28. ágúst 1982
fagnar gerð langtímaáætlunar í vega-
málum og þeirri ákvörðun að ákveða
að vissum hundraðshluta þjóðar-
tekna skuli varið til vegagerðar. Hins
vegar vekur þingið athygli á því að
þessi áætlanagerð miðast við aðal-
leiðir og tengingu stærri þéttbýlis-
staða við aðalvegakerfi landsins,
þannig að ekki er fyrir hendi trygging
fyrir því að héraðsvegir og aðrir
byggðavegir fylgi framþróun aðal-
vegakerfisins. Með vaxandi félags-
legum samskiptum og þeirri þróun
að íbúar sveitanna sækja í auknum
mæli daglega þjónustu og atvinnu til
staða utan heimasveitar er ljóst að
hið dreifða samgöngukerfi byggð-
anna hefur mikla þýðingu fyrir
atvinnu- og byggðaþróun hvers
svæðis. Þingið bendir á nauðsyn þess
að samtímis langtímaáætlun um
uppbyggingu aðalleiða, sé nauðsyn-
legt að gerð sé framkvæmdaáætlun
og tryggt sé framkvæmdafé samhliða
til hins dreifða vegakerfis byggð-
anna.